Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Page 13
Erlent 13Miðvikudagur 29 febrúar 2012
n Ummæli á Facebook draga dilk á eftir sér
n Jill Hawkins hefur helgað líf sitt barneignum í velgjörðarskyni
Þ
ó svo að Jill Hawkins sé kom-
in fast að fimmtugu er hún
ekkert á þeim buxunum að
slaka á í barneignum. Hawk-
ins, sem verður 48 ára á
árinu, er ólétt að tvíburum og þegar
þeir fæðast verður hún búin að eign-
ast tíu börn. Jill tók þá ákvörðun fyr-
ir rúmum tuttugu árum að bera barn
undir belti fyrir hjón sem gátu ekki
eignast barn, að verða staðgöngu-
móðir í velgjörðarskyni. Hún segir að
það, að geta hjálpað öðrum, hafi ver-
ið svo gefandi að hún ákvað að halda
því áfram. Og eftir að tvíburarnir fæð-
ast vill Jill halda áfram og eignast tvö
börn í viðbót áður en hún verður
fimmtug. Hún er einstæð og starfar
sem einkaritari.
Varð mikið veik
Þar sem Jill er að nálgast fimmtugt
hafa líkurnar á ýmiss konar vanda-
málum samfara óléttu og barneignum
aukist. Hún varð mikið veik árið 2010
þegar hún gekk með dreng og gat
nánast ekkert unnið þá níu mánuði
sem hún gekk með hann. Í samtali við
breska blaðið The Daily Mail segist Jill
hafa lofað fjölskyldu sinni, áhyggju-
fullum foreldrum þar á meðal, að hún
myndi ekki eignast fleiri börn. Hún
viðurkennir að hún hafi ekki getað
hætt og ákveðið að ganga með fleiri
börn.
Vill gleðja aðra
„Foreldrar mínir voru mjög áhyggju-
fullir síðast því ég varð lífshættu-
lega veik. Í dag er ég búin að gleyma
því öllu og ætla að halda áfram. Mér
finnst dásamlegt að vera ólétt. Ég hef
gaman af að gefa og gleðja aðra og
að geta uppfyllt óskir annarra með
barneignum er dásamlegt,“ segir Jill
og bætir við að tvíburarnir sem hún
gengur nú með undir belti hafi glatt
hana sérstaklega mikið. „Það var eins
og að verða ólétt aftur í fyrsta skiptið.“
Sjö fyrstu börnin sem Jill gekk með
voru getin með hennar eigin eggjum
og með sæði úr viðkomandi föður. Í
dag er hún ekki fær um að verða ólétt
með náttúrulegum hætti og því hafa
þrjú síðustu börn, tvíburarnir þar á
meðal, verið getin með glasafrjóvg-
unarmeðferð.
Faðirinn líkist Kevin Costner
Jill er komin fjórtán vikur á leið og
eru því væntanlegir síðsumars. Enn
sem komið er lítur allt vel út. Líf-
fræðilegir foreldrar tvíburanna eru
42 og 40 ára hjón. Þau eiga fyrir níu
ára dóttur en hafa ekki getað eign-
ast barn síðan þá. Jill segist hafa val-
ið þau vegna þess að þau hafi ver-
ið aðlaðandi og virkað vel á hana.
Þá hafi ekki skemmt fyrir að faðir-
inn hafi minnt hana á stórleikarann
Kevin Costner.
Jill er þegar farin að finna fyr-
ir svipuðum einkennum og síðast
þegar hún var ólétt. „Ég er mjög fljót
að verða þreytt. Ég er með stans-
lausan höfuðverk og gæti svo sem
tekið verkjatöflur. Ég geri það ekki
því þá gæti ég stefnt tvíburunum í
hættu,“ segir hún.
Aðspurð hvort það sé ekki erf-
itt að horfa á eftir börnunum þegar
þau loks koma í heiminn segir Jill
að svo sé – að hluta til að minnsta
kosti. „Ég vil aldrei halda þeim en
það eru ekki margar konur sem
gætu þetta. Það fylgja því miklar
tilfinningar að eignast barn og þú
þarft að vera mjög sterk. Fólk held-
ur að ég sé brjáluð en ekkert kem-
ur vinum mínum eða fjölskyldu á
óvart lengur.“
48 ára og á von
á tíunda barninu
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Ekki hætt Jill Hawkins ætlar að halda áfram barneignum en hún gengur nú með tvíbura. Henni finnst gaman að gleðja aðra.
Tvíburarnir Þessi sónarmynd sýnir annan tvíburann sem Jill ber undir belti.
Sjöunda barnið Þetta er Isabella sem Jill
eignaðist í nóvember 2006. Hún var sjöunda
barnið sem Jill eignaðist í velgjörðarskyni.
„Foreldrar
mínir voru
mjög áhyggjufullir
síðast því ég varð
lífshættulega veik
Bólulyf veldur þunglyndi:
Sjálfsvíg vegna
aukaverkana
Réttarrannsókn hefur leitt í ljós
að 18 ára stúlka fyrirfór sér vegna
aukaverkana lyfsins roaccutane,
sem ætlað er að draga úr bólum.
Lyfið er stundum nefnt accutane
og þykir afar umdeilt. Það er talið
geta valdið miklu þunglyndi og
jafnvel sjálfsvígshugsunum.
Melissa Martin-Hughes var
18 ára þegar hún svipti sig lífi.
Hún var fyrsta flokks nemandi
í menntaskóla og námsárang-
ur hennar var framúrskarandi. Í
rannsókn á láti hennar hefur kom-
ið fram að hún hafði átt erfitt frá 14
ára aldri, þegar hún steyptist út í
bólum í andliti og efri hluta líkam-
ans. Hún fór að skaða sjálfa sig.
Hún fór til læknis og fékk lyfið
roaccutane sem er eingöngu ávís-
að á ef um mjög slæm tilvik er að
ræða. Um er að ræða eitt sterk-
asta inntökulyf sem völ er á gegn
útbrotum eða bólum. Það getur
haft gríðarleg áhrif á bólurnar en
einnig haft miklar aukaverkanir.
Það getur valdið þunglyndi, lifrar-
bólgu og jafnvel fæðingargöllum
ef þunguðum konum verður á að
taka það inn. Sjúklingar verða að
vera undir handleiðslu húðsjúk-
dómalæknis alla þá fimm mánuði
sem meðferðin getur tekið.
Í próftíð árið 2009 reyndi Mel-
issa fyrst að svipta sig lífi. Álag
vegna prófa hafði gert útbrotin
verri en ella.
Áfallateymi átti að fylgjast
með henni í kjölfar þess atburð-
ar en samkvæmt rannsókninni
var henni ekki sinnt eins og hefði
þurft. Hún svipti sig lífi í apríl
2010, sjö mánuðum eftir að hún
hitti teymið síðast. Ástæðan fyrir
að svo langur tími leið var að sál-
fræðingurinn í teyminu fór í langt
veikindaleyfi. Þá hafði það líka
áhrif að Melissa náði 18 ára aldri
og fór því inn í annað kerfi en það
sem börn eru í. „Það tók enginn
við málinu og það er óverjandi,“
sagði sálfræðingurinn fyrir dómi.
Melissu var að sögn ekki fullkunn-
ugt um aukaverkanir lyfsins. Sér-
fræðingur sem dómurinn leitaði til
sagði að ef til vill hefði með sam-
talsmeðferð verið hægt að afstýra
því sem gerðist. Rannsókn málsins
er ekki lokið.