Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Síða 18
Takmarkinu næstum náð
n Söfnun fyrir bókinni Taktabrot gengur vel
F
orystumenn vefsíð-
unnar breakbeat.is,
plötusnúðarnir Karl
Tryggvason, Kalli, og
Gunni Ewok, eru nú ansi
nálægt takmarki sínu í söfn-
un fyrir bókinni Taktabrot:
Veggspjöld, flugumiðar og
annað prentefni úr starfi
breakbeat.is 2000–2012.
Bókin mun innihalda tugi
glæsilegra veggspjalda eftir
fjöldann allan af listamönn-
um og hönnuðum.
Veggspjöldin eiga ríkan
sess í sögu breakbeat-tón-
listarinnar á Íslandi en þau
hafa öll á einhverjum tíma-
punkti hangið uppi víðs
vegar um Reykjavíkurborg,
í skólum landsins og á veit-
ingastöðum svo einhverjir
staðir séu nefndir. Þau hafa
hlotið tilnefningar til verð-
launa Félags íslenskra teikn-
ara og Lúðursins, íslensku
auglýsingaverðlaunanna, og
eftirprentanir af þeim hafa
birst í mörgum tímaritum og
bókum, innanlands og utan.
Markmið strákanna var
að safna 700.000 krónum
og eru þeir ekki langt frá
takmarki sínu. Á þriðjudag-
inn höfðu safnast rétt tæpar
600.000 krónur en söfnun-
inni lýkur á föstudaginn. Eru
þeir því ekki langt frá því að
ná settu markmiði.
Breakbeat.is-menn
ákváðu frekar að leita til
fólksins í landinu en að
finna einn fjár-
sterkan aðila en
þeir sem leggja
söfnuninni lið fá
allir eitthvað fyrir
sinn snúð. Þeir sem
styrkja verkefnið
um 1.000 krónur fá
nafns síns getið á
sérstakri styrktar-
síðu í bókinni og
á vefsíðunni. Þeir
sem styrkja söfn-
unina um 3.500
krónur fá það sama
auk þess sem þeim
áskotnast eintak
af bókinni sjálfri.
Þeir sem leggja
svo 5.000 krónur í
styrktarsjóðinn fá allt
framangreint auk sætis á
gestalista í útgáfuteiti bók-
arinnar sem fer fram þann
24. mars.
Viljir þú styrkja verk-
efnið getur þú millifært á
reikning breakbeat.is en
reikningsnúmerið er: 0130-
26-447325 og kennitala
421299-3319. Settu svo
netfangið þitt í skýringar-
reitinn eða sendu póst á
bok@breakbeat.is.
tomas@dv.is
18 Menning 29. febrúar 2012 Miðvikudagur
Viltu Óskarinn?
– kauptu hann
Fimmtán óskarsverðlauna-
styttur voru boðnar upp á
uppboði í gær, þriðjudag.
Búist var við tilboðum upp
að allt að fjórum milljónum
dollara í hverja styttu.
Allar stytturnar voru í
eigu athafnamanns sem
tengdur er skemmtanaiðnaði
í Los Angeles.
Stytturnar eru allar frá því
fyrir 1950, fyrir kvikmynd-
irnar Citizen Kane og Wut-
hering Heights til að mynda.
Það var áður en handhöfum
verðlaunanna var bannað að
selja stytturnar. Þeir mega
að vísu selja þær en fyrst
verða þeir að bjóða þær aftur
til baka fyrir einn dollara.
Óskarsverðlaunanefndin er
allt annað en ánægð með
uppboðið. „Það á að vinna til
verðlaunanna, það á ekki að
vera hægt að kaupa þau.“
Þ
etta er minn leik-
völlur. Þarna er rólegt
og gott að vera,“ segir
Kári Viðarsson, leikari
og forsvarsmaður nýj-
asta atvinnuleikhússins á Ís-
landi, Frystiklefans á Rifi.
Kári býður Íslendingum
til sín í gamalt hraðfrysti-
hús á Rifi þar sem hann hefur
sett upp skemmtilegt leik-
hús. Í þessu leikhúsi setti hinn
athafnasami „sandari“ upp
sýninguna Góðir hálsar um
Axlar-Björn á síðasta ári og
fékk mikið lof fyrir. Hann hef-
ur áður sótt í sagnaarf æsku-
slóðanna. Árið 2010 setti hann
upp einleikinn Hetju og verk-
ið, sem byggir á Bárðar sögu
Snæfellsáss, sem fékk einnig
afar góða dóma.
Ekkert áreiti
Kári sem er uppalinn á Hellis-
sandi, segist hafa alist upp með
þessum sögum í æsku og finnst
mikilvægt að vinna bæði með
arfinn og að leggja til heima-
byggðar sinnar. „Það er afar
þægilegt að vinna að krefjandi
verkefnum í svo miklu næði.
Aðstaðan er góð og mér finnst
ég ná einbeitingu þarna sem ég
finn ekki annars staðar. Það er
ekkert utanaðkomandi áreiti í
svona litlu plássi,“ segir hann
og segist telja sig heppinn að
hafa haft gæfu til þess að koma
þessu verkefni af stað. „Ég fæ
mikið út úr verkefninu sjálfur,
ég get notað tímann til sjálf-
stæðra verkefna til þess að
byggja mig upp sem leikara og
stefni á það að vinna áfram að
mínu eigin efni þarna í heima-
byggð.“
Sumarsýningar á Rifi
Kári hefur nóg fyrir stafni.
Hann fer með hlutverk í verk-
inu Dubbeldusch eftir Björn
Hlyn Haraldsson sem verður
fært upp af Vesturporti í Gamla
bíói í mars. Verkið var áður
flutt í Hafnarfjarðarleikhúsi og
fékk góða dóma. Þá leikstýrir
Kári nemendum Fjölbrauta-
skóla Suðurlands sem setur
upp verkið Týpísk ástarsaga. Í
sumar sýnir svo Frystiklefinn
verkið Trúðsleik eftir Hallgrím
H. Helgason í leikhúsinu á
Rifi. „Við ætlum að frumsýna í
júní. Þetta verður sumarsýning
Frystiklefans. Mér hugkvæmd-
ist að setja upp um sumar þeg-
ar ég færði upp verkið Hetju
og það gekk svo vel að ég sýndi
allt sumarið. Ætli það sé ekki
vegna þess að þá þarf ekki að
reiða sig jafn mikið á færðina.“
Sjálfstæð vinnubrögð
Kári fór til Englands að læra
leiklist árið 2006 og útskrifað-
ist árið 2009 frá Rose Bruford-
leiklistarskólanum. Þar er lögð
áhersla á sjálfstæð vinnu-
brögð að sögn Kára sem hann
hefur svo sannarlega nýtt sér á
heimaslóð.
„Ég flutti heim í maí 2010,
þannig að það má segja að
ég sé eiginlega bara nýkom-
inn heim. Sem betur fer hefur
alltaf verið nóg að gera hjá
mér. Ég hef verið heppinn.
Það var æðislegt að fá að vera
með í skaupinu. Þar fór ég
með hlutverk Ásgeirs Kol-
beins og rappandi sjálfstæð-
ismanns. Ég er ofboðslega
þakklátur fyrir að hafa fengið
tækifæri til að taka þátt í því.
Ég hef ekki ennþá leitast eftir
því að starfa innan leikhúss-
ins,“ segir hann aðspurður um
hvort hann stefni á að koma
sér að í stóru leikhúsunum.
„Ég hef kosið að vinna sjálf-
stætt og kem úr námi þar sem
lagt er upp með að nemendur
hafi færni til þess að stunda
sjálfstæða sköpun. Mér finnst
líka að maður verði að vera
búinn að sanna sig áður en
maður fer inn í þessi stóru
leikhús.“
Mikilvægt að leggja
til heimabyggðar
n Kári Viðarsson rekur leikhús í gömlu hraðfrystihúsi á Rifi
Ungur á uppleið Kári leikur í
Dubbeldusch, leikstýrir mennt-
skælingum og undirbýr sumarleik-
hússýninguna Trúðsleik á Rifi.
Eitt af hinum
glæsilegu plakötum
Þetta er frá september
2007.
Siðblindir
útrásarvíkingar
Siðblindir og morðóðir út-
rásarvíkingar sem láta einskis
ófreistað. Ef einhver glæpa-
sagnahöfundur Íslands hefði
haft hugmyndaflug til þess að
fá útrás fyrir tilfinningar sínar
um hrunið í blóðugri glæpa-
fléttu hefði hann skrifað sögu
að hætti Jussi Adler Olsen.
Árið 1987 fundust tvö
systkini myrt á hrottafenginn
hátt í sumarbústað á Sjálandi
og grunur beinist að hópi
ungmenna úr yfirstétt.
Málinu er sópað undir
teppi en eins og alltaf komast
allar syndir upp um síðir og þá
kemur til kasta Carls Mørck,
forstöðumanns Deildar Q hjá
dönsku lögreglunni.
Við sögu máls koma úti-
gangskona sem er ekki öll
þar sem hún sýnist og þrír
auðugustu og valdamestu
menn landsins. Söguþráður-
inn hverfist að miklu leyti um
veiðar og miskunnarleysið og
fýsnina sem felst í því að fella
bráðina. Jussi segir listilega
vel frá og sagan er grípandi,
óhugnanleg og atburðarásin
hröð.
Veiðimennirnir er önnur
bókin í seríunni um Carl
Mørck og Deild Q. Fyrsta
bókin, Konan í búrinu, kom
út á íslensku á síðasta ári og
fékk afar góða dóma. Hér er
því komin fyrirtaks sería fyrir
unnendur glæpasagna að
fylgjast með.
kristjana@dv.is
Veiðimennirnir
Höfundur: Jussi Adler Olsen
Útgefandi: Forlagið