Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Page 20
Mælir með Barcelona
n Ronaldinho ráðleggur Neymar
E
ftirsóttasti knattspyrnu-
maður heims, brasil-
íska undrið Neymar,
hefur verið orðaður
við öll helstu stórlið heims
á undanförnum mánuðum.
Það þykir þó nokkuð ljóst að
aðeins félög á borð við Real
Madrid, Barcelona og Manc-
hester City hafa bolmagn til
þess að leggja fram þær fjár-
hæðir sem Santos mun krefj-
ast þegar kemur að því að
selja piltinn.
Evrópumeistarar Barce-
lona eru eitt þeirra liða sem
Neymar hefur verið orð-
aður hvað mest við ásamt
erkifjendum þeirra í Real
Madrid. Barcelona hefur not-
ið góðs af Brasilíumönnum
í gegnum tíðina, manna á
borð við Ronaldo, Romario
og Rivaldo. Vilja þeir endi-
lega gera Neymar að næstu
brasilísku stjörnu í Katalóníu.
Einn annar Brassi sem
hefur gert það gott í Barce-
lona er Ronaldinho en hann
spilar í dag með Neymar hjá
Santos. Hann hefur verið að
mæra Barcelona í samtölum
sínum við Neymar en Ro-
naldinho átti sín bestu ár í
Katalóníu.
„Ronaldinho hefur sett
viðmiðið fyrir leikmenn eins
og mig,“ segir Neymar í viðtali
við El Mundo Deportivo. „Ég
tek vel til greina öll þau fögru
orð sem Ronaldinho hefur
viðhaft um Barcelona-liðið
og borgina. Hann segir mér
að þarna sé frábært að vera.
Það vita allir hversu frábært
lið þetta er og hversu frábær-
ir leikmenn spila þarna.“
Neymar er samnings-
bundinn Santos til ársins
2014 en hann útilokar ekk-
ert að flytja sig um set í sum-
ar. „Það getur allt gerst,“ segir
hann.
20 Sport 29. febrúar 2012 Miðvikudagur
Handboltinn
aftur af stað
Eftir hlé vegna bikarúrslita í
handboltanum fer N1-deild-
in aftur af stað á fimmtudag-
inn. Hún hefst í Mosfells-
bænum þar sem Afturelding
tekur á móti Akureyri klukk-
an 18.30. Nýkrýndir bikar-
meistarar Hauka taka á
móti Val í Schenkerhöllinni
klukkan 19.30 og á sama
tíma mætast FH og Fram í
Hafnarfirði.
Eftirsóttur Neymar er vonar-
stjarna framtíðarinnar. MyNd REutERs
AG heppið
með drátt
Dregið var í 16 liða úrslit
Meistaradeildarinnar í hand-
bolta í gær en þar eiga Ís-
lendingar þrjú lið. Dan-
merkurmeistarar AKG voru
heppnir með drátt en þeir
mæta sænska liðinu Savehof.
Dagur Sigurðsson og strák-
arnir hans í Fücshe Berlin
mæta löndum sínum frá
Hamborg, og Kiel, undir
stjórn Alfreðs Gíslasonar,
mætir pólska liðinu Wisla
Plock. Fari allt eftir bókinni
ættu að minnsta kosti tvö Ís-
lendingalið að fara áfram í
átta liða úrslitin og ekki má
afskrifa Berlínarrefina.
Arsenal
græðir
Þó gengið á vellinum sé upp
og ofan hjá Arsenal vant-
ar ekkert upp á að rekstur
félagsins sé einn sá besti á
Englandi. Arsenal skilaði
49,5 milljóna punda hagnaði
á síðustu sex mánuðum og
er eigið fé félagsins nú 115,2
milljónir punda. Stafar þessi
hagnaður af sölu leikmanna,
þá sérstaklega Cesc Fabregas
til Barcelona. Þrátt fyrir að
hafa keypt fimm leikmenn á
lokadegi félagskiptagluggans
kom Arsenal út í plús hvað
félagskipti varðar á síðustu
sex mánuðum.
Lagerbäck mætir
nýjasta landsliðinu
n Fyrsti alvöru leikur Svíans verður gegn Svartfellingum
F
yrsta alvöru prófraun
nýja landsliðsþjálfara
Íslands í fótbolta, Lars
Lagerbäck, verður í
dag, miðvikudag, þeg-
ar Ísland mætir Svartfjalla-
landi á Pod Goricom-vell-
inum í höfuðborg landsins,
Podgorica. Lagerbäck tapaði
sínum fyrsta leik með Íslandi
síðastliðinn föstudag þegar
hópur skipaður leikmönn-
um sem spila hér heima og í
Skandinavíu tapaði gegn Jap-
an, 1–3. Í kvöld verður Lager-
bäck með sterkasta hóp sem
hann getur valið og verður
fróðlegt að sjá hvort A-liðið
nái að spila betri leik en B-
hópurinn síðastliðinn föstu-
dag.
Vill vinna alla leiki
Lagerbäck tapaði fimm fyrstu
leikjum sínum þegar hann
tók við sænska landsliðinu en
eftir það kom hann Svíum á
fimm stórmót í röð. Hann hef-
ur áður sett fyrirvara á þessa
fyrstu æfingaleiki sína með
liðið en hann er þó staðráð-
inn í að vinna þá alla ef hægt
er. „Ég vonast auðvitað til þess
líka að vinna leikinn,“ sagði
Lagerbäck á fréttamanna-
fundi í Svartfjallalandi. „Þó
svo menn noti vináttulands-
leikina til að skoða ýmsa hluti,
og þó að þetta sé minn fyrsti
leikur með þessa leikmenn
sem eru í hópnum núna, þá
vil ég vinna alla leiki, því það
skiptir máli að skapa og við-
halda hugarfari sigurvegara.“
Nokkur framherjavanda-
mál eru í hópnum en Lager-
bäck vill spila með tvo fram-
herja, ólíkt því sem Ísland
hefur gert undanfarin ár. Að-
eins eru tveir framherjar í
hópnum: Alfreð Finnbogason
og Birkir Bjarnason en báð-
um líður betur að spila rétt
fyrir aftan fremsta mann. Að-
spurður hvort ekki væri slæmt
að hafa ekki kost á að velja
þá Kolbein Sigþórsson og Eið
Smára Guðjohnsen, sem báð-
ir eru meiddir, svaraði Svíinn:
„Svona er þetta bara í fótbolta,
stundum meiðast menn og þá
verður bara að velja einhverja
aðra, maður kemur í manns
stað í þessu, liðsheildin er
alltaf mikilvægust.“
Nýjasta landsliðið
Lið Svartfjallalands er yngsta
landslið í heimi en það var
áður sameinað liði Serbíu.
Löndin tvö léku sinn síðasta
leik sameinuð á HM í Þýska-
landi 2006 og tókst ekki að
komast upp úr riðli. Svartfell-
ingar léku sinn fyrsta leik sem
sjálfstæð þjóð 28. mars 2009
en þá tapaði liðið fyrir Ítölum
á heimavelli í undankeppni
HM 2010. Svartfjallaland hef-
ur aðeins spilað 26 landsleiki
sem þjóð en til samanburðar
er hægt að benda á að hinn 27
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti Þekktustu leikmenn
Stefan Savic
Miðvörður hjá
Man. City
Landsleikir: 12
Mörk: 2
Stevan Jovetic
Framherji hjá
Fiorentina
Landsleikir: 19
Mörk: 7
Mirko Vucinic
Framherji hjá
Juventus
Landsleikir: 24
Mörk: 11
ára gamli Emil Hallfreðsson
sem hefur ekki spilað lands-
leik fyrir Ísland síðan í mars
2010 á 29 landsleiki að baki.
Svartfjallalandi mistókst
að komast á HM í Suður-Afr-
íku en það var ansi nálægt
því að komast á EM í Póllandi
og Úkraínu. Það lenti í und-
anriðli með Englandi, Sviss,
Wales, Albaníu og Búlgaríu
og tókst að hirða annað sæt-
ið í riðlinum með því að gera
frægt jafntefli við England í
næstsíðasta leik riðilsins. Í
sama leik fékk Wayne Roo-
ney rautt spjald og vegna þess
missir hann af fyrstu tveimur
leikjum Englands á EM. Í um-
spilinu tapaði Svartfjallaland
þó tvívegis fyrir Tékklandi og
sat eftir með sárt ennið.
Fyrsta alvöru prófið
Lagerbäck er með A-hópinn í
Svartfjallalandi. MyNd sigtRygguR ARi