Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2012, Blaðsíða 22
Afmæli og útskrift sama dag
n Maríanna Clara kláraði meistararitgerðina á steypinum
Þ
etta rétt slapp fyrir horn.
Hann var svo tillits-
samur og kom tveimur
vikum á eftir áætlun
þannig að það passaði alveg,“
segir leikkonan Maríanna
Clara Lúthersdóttir. Hún út-
skrifaðist með meistaragráðu
í bókmenntafræði frá Háskóla
Íslands síðastliðinn laugardag.
Lokaritgerðina skrifaði hún á
steypinum en hún eignaðist
sitt fyrsta barn, soninn Dýra
Ólafsson, fyrir tveimur og hálf-
um mánuði.
En hvernig var að vera kas-
ólétt að skrifa meistara ritgerð?
„Ég var búin að ákveða að
það væri engin pressa, ef ég
myndi ekki ná að klára hana
þá myndi ég bara klára hana
næsta vor. Ég hugsa að þetta
hafi bara verið ágætt, konur
verða svo þreyttar og pirraðar
þegar þær bíða eftir barni sem
lætur bíða eftir sér þannig ég
nýtti tímann í þetta í staðinn,“
segir Maríanna. Maríanna
lauk ritgerðinni fyrir fæð-
inguna og útskrifaðist svo með
ágætiseinkunn en það er besta
einkunn í Háskóla Íslands.
Meistararitgerðin fjallaði um
birtingarmyndir kvenna í
hreyfimyndum Pixar og Dis-
ney. „Ég var búin að vera að
horfa á Pixar-myndirnar og
sá að það voru engar konur í
þeim. Í framhaldinu fór ég að
skoða teiknimyndir almennt
og þannig vatt þetta upp á
sig. Niðurstaðan er sú að það
eru færri konur en karlar í
teiknimyndum, yfirleitt er ein
kona á móti þremur körlum.
Þetta er reyndar í öllu barna-
efni sem er sérstakt því þetta
endurspeglar ekki beint heim
barnanna.“
Maríanna útskrifaðist eins
og áður sagði á laugardaginn
en sama dag varð hún 35 ára.
„Það var nóg að gera og mikið
bakað,“ segir hún. „Ég fór út að
borða á afmælisdaginn og hélt
svo kökuboð fyrir nokkrar vin-
konur daginn eftir.“
viktoria@dv.is
22 Fólk 29. febrúar 2012 Miðvikudagur
Hann er „sex“ ára
í dag Pétur Mikael
Guðmundsson fæddist á
hlaupársdegi 1988.
Hann er sex ára í dag
n Pétur Mikael Guðmundsson fæddist á hlaupársdegi 1988
J
ú, jú, það er stórafmæli
á morgun [í dag],“ segir
Pétur Mikael Guð-
mundsson, háskóla-
nemi og fótboltakappi,
sem á afmæli í dag, hlaup-
ársdag. Hann fæddist 29.
febrúar á því herrans ári 1988
og er því 24 ára í dag en þetta
er aðeins hans sjötti „alvöru“
afmælisdagur. Hann segist
ekki vera mikið fyrir að halda
upp á afmæli sitt en hann
fagnar afmælisdeginum í
flugvél.
„Ég hef ekki verið grimm-
ur að halda upp á þetta. Þetta
var alltaf haldið 28. febrúar
þegar ég var yngri en svo
voru kannski aðeins stærri
veislur þegar stóru dagarn-
ir komu. En ég er nú að fara
til San Francisco á morgun.
Menn ætla aðeins að lyfta
sér upp. Þar ætla ég að hitta
góða vini mína og pabbi
er að fara elda á Þorrablóti
þannig ég ákvað að nýta ferð-
ina,“ segir Pétur.
„Ég er ekki mikill afmælis-
drengur. Afmælisdagurinn
er kannski ástæðan fyrir því.
Sjálfum finnst mér þetta ekk-
ert stórmerkilegt. Þetta var
reyndar gaman þegar ég var
tvítugur því þetta hitti þannig
á. En nú er ég bara 24 ára.
Það er ekkert merkilegt,“ seg-
ir hann.
Eðli málsins samkvæmt
gleymir enginn afmælis-
degi Péturs vegna sérstöðu
hans. Það kemur sér þó
nokkuð illa fyrir hann því
sjálfur er hann óhæfur um
að muna afmælisdaga nokk-
urra annarra. „Þetta er svo-
lítið sérstakt að því leyti að ég
er gallaður þegar kemur að
því að muna afmælisdaga,“
segir hann og hlær við. „Allir
þessir afmælis dagar renna
bara saman í eitt hjá mér. Ég
man ekki einu sinni hvenær
mamma á afmæli. Svo er ég
sjálfur með þennan afmælis-
dag,“ segir Pétur.
Hann segir að fólk taki
vissulega vel eftir afmælis-
degi hans. „Það sjá þetta
fleiri. Facebook er samt
ekki með 29. febrúar hjá sér
þannig ég hverf bara þar. Ég
hef allavega ekki orðið var
við hann hjá þeim. En jú,
afmælisgjafirnar eru klár-
lega fleiri og það vita allir af
þessu. Það laumaði því nú
einhver að mér að ég væri
einn af 208 Íslendingum sem
ætti þennan afmælisdag.
Það eru nú fleiri en ég hélt,“
segir Pétur sem viðurkennir
að vinirnir grínist stundum
í honum vegna dagsins sér-
staka. „Það er auðvitað smá
„banter“ í kringum þetta en
ekkert alvarlegt,“ segir hann.
Aðspurður að lokum hvort
hann sé ekki orðinn snilling-
ur í fjórum sinnum töflunni
svarar hann hlæjandi: „Jú,
klárlega. Hún er mín uppá-
haldsmargföldunartafla. Það
er alveg klárt.“
Flaug af baki
Leikkonan Bryndís Ás-
mundsdóttir datt af hestbaki
í síðustu viku. Bryndís var
í útreiðartúr með kærast-
anum, Fjölni Þorgeirssyni.
Bryndís sagði frá þessu á
Facebook-síðu sinni og kær-
astinn skrifaði undir að núna
væri ástin hans orðin alvöru
hestakona þar sem hún væri
loksins búin að fljúga af baki.
Hann lýsir fallinu sem skrúfu
og heljarstökki sem endað
hafi með Gilitrutt lendingu.
Hann ætlaði ekki að gefa
sinni heittelskuðu neinn
séns og ætlaði að láta hana
fara á bak fyrir hádegi morg-
uninn eftir svo hún missti
ekki starfskraftinn.
Kolfinna
best klædd
Fyrirsætan Kolfinna Krist-
ófersdóttir heldur áfram að
gera það gott en hún var í
fyrsta sæti í kosningu um
best klæddu fyrirsætuna
á tískuvikunni í London á
tískusíðunni style.com á
dögunum. Kolfinna hefur
verið á samningi hjá Eskimo
Models en á síðasta ári
skrifaði hún undir samning
við Next sem er ein stærsta
fyrirsætuskrifstofa Bretlands.
Hún hefur unnið fyrir fræg-
ustu merki heims á borð við
Marc Jacobs, Versace, Marni,
Prada, Missoni og Moschino.
Hrekkjóttur
Logi
Sjónvarpsmaðurinn Logi
Bergmann Eiðsson er víst með
stríðnari mönnum. Á dög-
unum hrekkti hann Sigríði
Elvu Vilhjálmsdóttur úr Ís-
landi í dag en Sigríður gerði
þau mistök að skilja fésbókar-
síðu sína opna nálægt Loga.
Í tilraun til að bæta skaðann
biðlaði Sigríður til vina sinna.
„Ok Facebook snillar. Er ein-
hver leið að sjá allar útsendar
vinabeiðnir? Það verður farið
að blæða úr fingurgómun-
um áður en ég næ að skrolla
í gegnum alla sem heita Ro-
driguez,“ skrifaði hún en Logi
hafði sent vinabeiðnir til fjölda
manna sem heita Rodriguez.
Frábær árangur Maríanna kláraði
meistararitgerðina á lokaspretti
meðgöngunnar og útskrifaðist svo
með ágætiseinkunn.