Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Blaðsíða 2
LYF FÁ BÖRN
TIL AÐ STELA
2 Fréttir 19. mars 2012 Mánudagur
A
lþekkt er að misnokun lyfja
veldur því að dómgreind
slævist. Tvítugur karlmaður
sem þekkir til í undirheim-
um Reykjavíkur segir að
dæmi séu um að börnum eða ung-
lingum séu gefin lyf til þess að þau
hiki síður við að stela. Það geri þau til
að fjármagna neyslu á dópi.
„Maður gefur 14–15 ára krökkum
pillur sem lætur þá verða stelsjúka og
þeir stela öllu,“ segir maðurinn í sam-
tali við DV. Hann vill ekki koma fram
undir nafni. Maðurinn hefur ný-
lega sagt skilið við undirheimana og
reynir að fóta sig í heimi án fíkniefna.
Hann stal fyrir eigin neyslu og segir
algengt að 14–15 ára krakkar sæki í
lyf sem sljóvgi dómgreind þeirra og
geri þau óhrædd við að stela. Hann
segir lyfjaneyslu í þessum tilgangi
vera þekkta, sum lyf segir hann hafa
þau áhrif að fólk verði stelsjúkt.
Yfirlæknir á Vogi segist ekki
þekkja til þess að fólk taki lyfin gagn-
gert til þess að stela. Þó sé þekkt að
tiltekin lyf geri fólk óútreiknanlegt.
Misnota lyf við
flogaveiki og kvíða
Þekkt er í undirheimunum að fólk
noti lyfseðilsskyld lyf til þess að koma
sér í vímu. Samkvæmt heimildum er
það þekkt aukaverkun af ýmsum lyfj-
um að fólk steli eða geri aðra hluti
sem það man svo jafnvel ekki eftir
að hafa gert eftir að víman rennur af
því. Þetta munu samkvæmt heimild-
um meðal annars vera lyf sem vana-
lega eru gefin við flogaveiki en hafa
einnig verið notuð sem kvíðastill-
andi. Þekktasta lyfið sem talað er um
í þessu sambandi er lyfið Rivotril en
einnig er talað um lyfið Mogadon.
Aðspurður segir maðurinn þó
að hann sé ekki með það á hreinu
hvaða lyf sé um að ræða í þeim til-
vikum sem hann þekkir til. „Bara
læknadóp, vímugefandi lyf. Það eru
sumar pillur sem hafa þessi áhrif. Ég
veit ekki beint við hverju þetta er en
þetta eru bara pillur sem eru á mark-
aðnum,“ segir hann og bætir við: „Ég
var ekki mikið að sækjast í að gefa
krökkunum þau en þeir komu oft til
manns og maður gaf þeim, maður
er náttúrulega sjálfur alveg ruglaður.
En það biður enginn um þetta nema
hafa prófað það.“
Fara í óminnisástand
Árið 2007 lýsti rannsóknarlögreglu-
maðurinn Aðalsteinn Aðalsteins-
son í viðtali við Morgunblaðið yfir
áhyggjum sínum af aukinni notk-
un lyfsins Rivotril. Í starfi sínu hafði
hann orðið var við aukinn fjölda
fólks sem neytti þessara lyfja og
fremdi alls kyns ofbeldis- og þjófn-
aðarglæpi undir áhrifum þess, oft án
þess að muna eftir því.
„Flestir sem taka þetta gleyma
stað og stund fara í einhvers konar
óminnisástand við að taka þetta lyf,“
segir Aðalsteinn.
Hann segir það vel geta passað að
önnur lyf valdi sams konar verkun.
„Alveg örugglega. Ég þekki það ekki
nógu vel en þetta lyf vakti athygli
mína,“ segir hann. „Það er algjörlega
mín tilfinning, miðað við allt það fólk
sem ég hef talað við í gegnum tíð-
ina, að fólk fer að gera hluti sem það
jafnvel hefði aldrei gert. Jafnvel ljóta
hluti, ofbeldi og rán. Skjólstæðingar
lögreglu voru trekk í trekk að koma
við sögu í ofbeldisglæpum og þjófn-
uðum undir áhrifum þessa lyfs.“
Hann segir helstu ástæðu þess
að fólk sæki í lyfið vera þá að það sé
ódýrt. „Menn komast í áhrif við að
nota þetta lyf. Ég held að þetta hafi
samt minnkað stórlega, en þetta er
ennþá á markaði,“ segir Aðalsteinn.
Tók bara það sem hana langaði í
„Rivotrilið breytti mér algjörlega. Ég
fór í búðir og tók bara það sem mig
langaði í og hafði enga samvisku
gagnvart því,“ segir kona á fertugs-
aldri sem misnotaði lyfið Rivotril til
skamms tíma en hún var á þeim tíma
í eiturlyfjaneyslu. „Ég hef heyrt af
mörgum svona dæmum, fólk verður
ruglað af því að taka sum af þessum
lyfjum með víni,“ segir maður á þrí-
tugsaldri sem þekkir vel til í undir-
heimunum. Fjölmargir aðrir hafa
sömu sögu að segja um aukaverkan-
ir þessara lyfja. „Fólk verður bara al-
veg ruglað og tekur hluti. Ég veit um
einn sem þurfti að fara til besta vinar
síns þegar það var runnið af honum
og skila honum einhverju dóti sem
hann hafði rænt af honum. Hann
hafði ekki hugmynd um af hverju
hann hafði tekið það,“ segir hann.
Sjúkleg áfengis- og lyfjavíma
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Vogi, segist ekki hafa heyrt af því að
fólk taki lyf til þess að stela. „Nei, ég
hef nú ekki heyrt þessu lýst með svo
ákveðnum hætti, að tengja það við
hnupl í búðum. Aftur á móti er það
vel þekkt að þegar áfengi og lyf koma
saman þá getur útkoman á því verið
kannski óútreiknanleg hvað hegð-
un varðar. Þetta er stundum kallað
sjúkleg áfengis- og lyfjavíma. Eitt-
hvað sem menn gátu ekki séð fyrir
að myndi verða. Þetta er ein af hætt-
unum við það að taka saman lyf sem
hafa áþekka verkun. Við þessu er var-
að í öllum handbókum um lyf og líka
í allri kennslu um áfengisneyslu, að
nota ekki áfengi með ákveðnum lyfj-
um. Vegna þessa getur maður fram-
kallað hegðun sem er manni mjög
óeðlileg og ekki í neinu samræmi við
manngerðina. Þannig að það hafa oft
orðið mikil vandamál út af þessu. En
ég hef aldrei heyrt þetta í sambandi
við stelsýki beint,“ segir Þórarinn.
Láta vaða þegar
dómgreindin dofnar
Guðmundur Týr Þórarinsson,
Mummi í Mótorsmiðjunni, tek
ur í sama streng og Þórarinn. „Ég
held að viðkomandi túlki það bara
n Misnotkun flogaveikilyfja sögð valda stelsýki n Þekkt aðferð í undirheimunum
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Dómgreindin dofnar Mummi segir að
fólk í vímu „láti frekar vaða“.
Yfirlæknir á Vogi Þórarinn bendir á að
þekkt sé að misnotkun lyfja og áfengis geti
valdið óútreiknanlegri hegðun.
Pillur til að stela „Maður gefur 14–15 ára krökkum pillur sem lætur þau verða stelsjúk
og þau stela öllu,“ segir tvítugur piltur sem þekkir vel til í undirheimum Reykjavíkur. Myndin
tengist fréttinni ekki beint.
Annþór Kristján Karlsson:
Lýsti eftir
manni á
Facebook
Annþór Kristján Karlsson, sem
margoft hefur verið dæmdur fyrir
ofbeldisverk og lengi vel gekk
undir nafninu handrukkari Ís-
lands vegna grófra aðferða sinna
við innheimtu skulda, virðist hafa
notað samskiptasíðuna Facebook
til að leita að einstaklingum sem
hann af einhverjum ástæðum
þurfti að hafa upp á.
Skjáskot af Facebook-síðu Ann-
þórs sýnir status sem skrifaður
var ekki löngu eftir að hann lauk
afplánun á Bitru. Þar spyr hann
Facebook-vini sína hvar hann geti
fundið tiltekinn mann. Einn af
þeim sem líkar við status Annþórs
er Jón Hilmar Hallgrímsson, betur
þekktur sem Jón stóri. Þegar vinir
Annþórs spyrja hvers vegna hann
sé að leita að þeim manni segir
hann: „Ég gleymdi að færa honum
blóm á konudaginn ;).“ Börkur
Birgisson sem situr ásamt Ann-
þóri í gæsluvarðhaldi í tengslum
við rannsókn lögreglunnar á
skipulagðri brotastarfsemi, lík-
amsmeiðingum, hótunum, inn-
brotum og þjófnuðum, skrifaði
athugasemd við stöðuuppfærsl-
una og sagði að manninn mætti
finna á „Rangabar“ eða „Rónakó“.
Þegar blaðamaður DV hafði sam-
band við Annþór, stuttu eftir að
statusinn var ritaður, og spurði
hvers vegna hann væri að leita að
manninum, var hann fjarlægður
af síðunni.
Ekki er langt síðan Annþór lauk
afplánun á fjögurra ára dómi sem
hann hlaut fyrir stórfellt fíkniefna-
smygl árið 2008. Hann losnaði af
áfangaheimilinu Vernd í ágúst í
fyrra og hefur því að öllum líkind-
um rofið skilorð verði hann fund-
inn sekur um þau brot sem hann
er grunaður um að hafa framið á
síðustu mánuðum.
Talsverður erill
Nóg var að gera hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu
aðfaranótt sunnudags vegna
ölvunar og hávaða frá heimil-
um og skemmtistöðum. Maður
var handtekinn á Vegamótastíg
grunaður um að hafa skemmt
bíl en hann var nokkuð ölv-
aður. Hann var færður í fanga-
geymslu og látinn sofa úr sér
þar til hægt var að ræða við
hann. Lögreglunni barst svo til-
kynning um að rúða hefði verið
brotin í Listasafni Reykjavíkur
við Tryggvagötu. Einnig barst
tilkynning um að brotist hefði
verið inn í íbúð við Álfhóls-
veg en ekki er vitað hverju var
stolið.