Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Page 22
Nútímaleg glæpasaga G læpasagan hlýtur að taka breytingum á meðan glæpir nú- tímans, mansal og þrælahald, herja á öll sam- félög eins og pest. Morðgáta leyst í teboði á ættaróðali er löngu týnt minni þótt það hafi visst afþreyingargildi. Í Evrópu týnist fólk, lætur lífið eða lifir í ógn allt sitt líf. Sögur þeirra eru ósagðar og glæp- irnir óleystir. Sagan um Kon- urnar á ströndinni er nútíma- leg glæpasaga sem fjallar að meginþræði um þessa nýju ógn og þær gátur verða seint leystar af sérvitringi í teboði. Söguhetja bókarinnar er leikmyndahönnuðurinn Ally Cornwall sem leitar eigin- manns síns sem er þekktur rannsóknarblaðamaður. Eig- inmaður hennar hefur farið undir yfirborðið í upplýsinga- leit og ætlað sér að afhjúpa net mansals og þrælahalds í Evrópu. Hann hverfur og Ally ákveður að hafa uppi á hon- um. Með barn undir belti. Í Frakklandi hefst eltingar- leikur Ally við sannleikann, hún fetar í fótspor eigin- manns síns og rekur upp sömu þræði. Það er dimm og drungaleg Evrópa sem blasir við lesendum þess- arar glæpasögu. Frakkland, Spánn og Lissabon fá á sig annað og ekki jafnglæst yfir- bragð. Höfundurinn Tove beitir skemmtilegum en einföld- um stílbrögðum við að segja sögu þessa og persónu- sköpun nægir til að halda söguþræðinum uppi. Það er áhrifamikið að stilla upp ást- fanginni og barnshafandi konu á móti illmennum sem svífast einskis. En veikleiki sögunnar felst í ógn- inni. Ógnin er bæði ógreinileg og einföld- uð. Þá helst í illmenn- inu franska sem er að mínu mati heldur fyrirsjáanlegt. Vell- auðugur og siðspilltur athafnamaður sem nauðgar og skemmtir sér á snekkju meðan raunin er líklegast sú að hin sönnu illmenni í þrælahaldi og man- sali sjá aldrei fórn- arlömb sín. Þau eru tölur á blaði. Í stuttu máli er Konurnar á ströndinni þrælgóð glæpasaga sem vísar á forvitnilegan máta í nútímann. 22 Menning 19. mars 2012 Mánudagur Þýskir bíódagar Þýskir kvikmyndadagar í Bíó Paradís voru settir í ann- að sinn á laugardaginn og standa til 25. mars. Þema hátíðarinnar í ár er fjölskyld- an í öllum sínum myndum. Opnunarmynd daganna er Almanya – Velkomin til Þýskalands, eftir Yasemin Samdereli. Alls verða sýndar sjö nýjar myndir frá þessu forna kvikmyndaveldi, sem á undanförnum árum hefur gengið í gegnum hressilega endurnýjun lífdaga. Mynd- irnar eru allar sýndar með enskum texta. Ævintýri Múnkhásens Leikritið Ævintýri Múnkhá- sens verður frumsýnt í Gafl- araleikhúsinu á fimmtudag. Uppselt er á frumsýninguna en hægt er að kaupa sig inn á forsýningu á þriðjudag og generalprufu á miðviku- dag á helmingsverði. Báðar sýningarnar eru klukkan 18. Leikarar eru meðal annars Gunnar Helgason, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Gunn- ar Björn Guðmundsson og Magnús Guðmundsson. Leikritið er ætlað fyrir alla aldurshópa. Nætur- gárun Gillon hefur sent frá sér plöt- una Næturgárun. Maðurinn að baki Gillon er Gísli Þór Ólafsson en hann kallar sig Gillon. Gísli hefur áður sent frá sér fimm ljóðabækur, á árunum 2006–2010. Lögin á Næturgárun eru frá árunum 1997–2010 og upptökur fóru fram hjá Sigfúsi Arnari Bene- diktssyni í stúdíó Benmen. Aðrir flytjendur á plötunni eru þau Sigurlaug Vordís Ey- steinsdóttir, Andri Már Sig- urðsson og Fúsi Ben ásamt sópransöngkonunni Ísabellu Leifsdóttur. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Bækur Konurnar á ströndinni Höfundur: Tove Alsterdal. Útgefandi: Veröld. 392 blaðsíður Ekkert teboð Morðgáta leyst í teboði á ættaróðali er löngu týnt minni þótt það hafi visst afþreyingargildi. Sagan um Konurnar á ströndinni er nútímaleg glæpasaga. Besti molinn n HönnunarMarsipanið snýr aftur! Á Hönn- unarMars, dagana 22.–25. mars, verður aftur hægt að fjárfesta í og háma í sig Hönnunar- Marsipan. Það er jafnvel betra en í fyrra því nú er það blátt og til styrktar krabbameinssjúkum. Lakkrískonfektkubbarnir eru hannaðir af Örnu Rut Þorleifsdóttur og Rán Flygenring og fram- leiddir í samstarfi við sælgætisgerðina Sambó. Netin hnýtt n Netagerðin opnaði verslun og vinnustofu við Mýrargötu í október síðastliðnum. Aðstandendur Netagerðarinnar sýna hönnunarvöru sem vísar til netagerðar. Með þessu leitast hönnuðir við að endurlífga fyrri starfsemi hússins og tengja hana núverandi starfsemi, þ.e. hönnun, myndlist og tónlist. Í Netagerðinni eru: Bryndís Bolladóttir, Stáss, Volki og Kongó. Opnunarhóf er 22. mars frá kl. 16–18. Netagerðin, Nýlendugötu 14. Stefnumót hönnuða og bænda n Stefnumót hönnuða og bænda, samstarfs- verkefni LHÍ og Matís, teflir saman tveimur starfsstéttum með það að markmiði að skapa einstakar afurðir og auka verðmæti. Af þessu tilefni verður opnuð heimasíða verkefnisins, designersandfarmers.com. Verkefnið er styrkt af Tækniþróunarsjóði, Framleiðnisjóði land- búnaðarins og Hönnunarsjóði Auróru. Spark Design Space, Klapparstíg 33. Fyrirmyndarborg – Model City n Borg rís í sölum Ráðhússins. Fjölskyldur og börn geta fengið úthlutað lóð í skipulagi sem verður komið fyrir á gólfi Ráðhússins, þar byggja þau hús, torg og garða. Þeir sem ekki sjá sér fært að taka þátt geta fylgst með af svölum Ráðhússins. Allt efni er endurunnið afgangs- efni. Ráðhús Reykjavíkur. Mundi The Journey / Ferðalagið n Ný vetrarlína Munda: The Journey, eða Ferðalagið, verður sýnd með óvenjulegu sniði í Rauðhólum. Sögusvið nýjustu stuttmyndar Munda er meðal annars Rauðhólar, en myndin er gerð í kringum vetrarlínuna og er söguþráður- inn unninn út frá nafni línunnar. Búast má við ævintýralegu umhverfi þar sem áhorfendur fá innsýn í The Journey. 24. mars, 16:30–17:30. Rauðhólar. Phobophobia n Teiknarar eru um allt heima hjá þér. Þeir hafa teiknað bækurnar í hillunum, bæklingana á stofuborðinu og aftan á morgunkornspakkann í eldhúsinu. Phobophobia er samsýning 34 íslenskra teiknara og nú er tími til kominn að þú heimsækir þá! Bíó Paradís, Hverfisgötu 54. Hönnun í hávegum höfð n Í tilefni HönnunarMars sýnir Epal verk hátt í 20 íslenskra hönnuða, þekktra jafnt sem nýrra og upprennandi. Á sýningunni eru bæði fullmótaðir hlutir sem og hugmyndir á frumstigi; húsgögn, leikföng, ljós, teppi og nytjahlutir. Opnunarhátíð verður miðvikudaginn 21. mars frá kl. 17.00– 20.00. Epal, Skeifunni 6. Arctic Plank n Sýnd eru ný húsgögn: sófar, bekkir, borð og ljós. Arctic Plank sérhæfir sig í hönnun og fram- leiðslu innréttinga og húsgagna úr endurunnu hráefni. Húsgögnin sem eru sýnd að þessu sinni eru unnin úr vörubrettum, steypu og endurunnum segldúk. Kex Hostel (á pallinum), Skúlagötu 28. 5 Í mars lifnar borgin við og verður öllu litríkari og smartari en venjulega. Lilja Gunnarsdóttir, ritstjóri hjá Hönnunarmiðstöð Íslands, valdi bestu og girnilegustu molana úr dagskránni 22.–25. mars. 8 bestu molarnir á Hönnunarmars 1 2 3 4 6 7 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.