Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Blaðsíða 11
Fréttir 11Mánudagur 19. mars 2012 n Hélt námskeið um öryggismál en ógnaði starfsfólki og svo lögreglu É g fæ um 125.000 krónur frá líf- eyrissjóðnum en það er tekinn skattur af því svo eftir standa rúmar 70.000 krónur. Nú fæ ég einnig örorkubætur en þær skerðast þar sem greiðslan úr lífeyr- issjóðnum fer yfir frítekjumark. Þeg- ar upp er staðið fæ ég rétt rúmlega 140.000 krónur á mánuði og þegar ég hef borgað leiguna, sem er 139.000 krónur, er ansi lítið eftir,“ segir Ólafur Pálmason bifvélavirki sem greindist með krabbamein fyrir fjórum árum og hefur undanfarið verið í stífum lyfjameðferðum. Hann hefur ekki getað unnið í tæpt ár og er því í afar erfiðri fjárhagslegri stöðu. Dóttir hans hefur komið af stað söfnun á Facebook þar sem fólk er beðið að styrkja föður hennar sem hefur nú ekki lengur efni á lyfjum. „Ég átti sjóð en nú er hann gjörsam- lega búinn og ég verð að lifa á vinum og vandamönnum,“ segir hann. Lyf fyrir 40.000 krónur á mánuði Ólafur segir að fólk hafi tekið ágæt- lega í söfnunina og hann hafi feng- ið 30– 40.000 krónur sem hafi gert honum kleift að borga lyfin en hann þarf að kaupa lyf fyrir um það bil 40.000 krónur á mánuði. „Um síð- ustu mánaðamót fékk ég leiðrétt- ingu frá Tryggingastofnun vegna of- greiðslu sem gerði það að verkum að ég átti um 12.000 krónur eftir og með því og peningum sem söfnuð- ust fyrir mig gat ég keypt lyf. Annars hefði ég ekki haft efni á þeim.“ Hefur ekki efni á að hafa börnin Ólafur setti fyrirspurn á Facebook- síðuna fyrir skömmu um hvort ein- hver vissi um vinnu fyrir hann. Þar sagðist hann verða að vinna því hann hefði ekki efni á því að vera veikur og halda áfram í lyfjameð- ferð. Aðspurður hvort hann geti unnið segir hann að í rauninni hafi hann ekki þrek til að vinna. Hann hafi bara verið svo örvæntingarfull- ur. „Ég varð bara að gera eitthvað því ég lifi ekki svona. Svo á ég börn og ég get ekki einu sinni boðið þeim að koma til mín. Þau hafa alltaf verið mikið hjá mér og þegar allt var eðli- legt voru þau hjá mér nær hverja helgi. Nú get ég ekki boðið þeim hingað því ég hef ekki efni á því að gefa þeim að borða,“ segir hann og bætir við að þetta sé afar erfitt fyrir börnin og erfitt fyrir þau að skilja að- stæðurnar. Alls staðar skorið niður Ólafur ætti að fá svokallaðan lyfja- styrk en fær hann ekki vegna barna- lífeyris. Hann segist þó aldrei fá þann lífeyri heldur renni hann til barnsmóður hans. Aðspurður hvort hann hafi rætt um það við Trygg- ingastofnun segist hann hafa gert það en kerfið virki bara svona. „Þetta er allt öfugsnúið. Ég hef líka sótt um afsláttarkort en það tekur langan tíma fyrir það að ganga í gegn. Þeg- ar ég spurði hverju það sætti var sagt að það væri svo mikið að gera og að það vantaði mannskap. Það er alls staðar skorið niður og þegar maður sækir um eitthvað er bitið af því eins og hægt er.“ Hann bendir einnig á að fyrr á árinu hafi hann legið inni á spítala í rúma viku. Þá hafi hann verið send- ur í alls konar rannsóknir og þar á meðal æðamyndatöku. „Ég þurfti að fá skyggingarefni og þegar ég kom heim kom reikningur fyrir efninu. Þó svo að ég hefði legið inni þegar ég fór í myndatökuna. Þetta voru bara 2.000 krónur sem er kannski ekki há upp- hæð en þetta er fljótt að safnast sam- an. Hver blóðprufa hjá lækni kostar rúmar 600 krónur og hver heimsókn til læknis 3–4.000 krónur. Þegar mað- ur þarf að fara oft til læknis þá verða þetta háar upphæðir þegar upp er staðið.“ Hefur ekki efni á að borga grunnkostnað Hann segir að þangað sem hann hafi leitað hafi hann fengið þau svör að ekkert sé hægt að gera því hann hafi verið svo tekjuhár í fyrra og þar sem hann sé einstaklingur þá fái hann ekki styrki. Fjölskyldufólk og börn gangi fyrir. „Ég hef leitað til kirkjunn- ar og félagsþjónustunnar en fæ þessi svör. Ég skil það svo sem en það er misskilningur að það sé ódýrara að vera einn í heimili. Það er alltaf viss grunnkostnaður og ég hef ekki efni á þeim kostnaði eins og er. Eins og staðan er í dag í kerfinu þá er þetta hryllingur. Þar sem ég er einstakling- ur þá er allt lokað og ég á að geta séð um þetta sjálfur. Það er ekkert gert til að létta undir með manni. Það er ekki nóg með að maður standi í þessum þreytandi og sálrænt erfiðu veikindum heldur þarf maður einnig að hafa peningaáhyggj- ur. Ég er ekki að tala um að fá að lifa eins og kóngur heldur bara að eiga í mig og á.“ Hann segist því miður ekki hafa verið með sjúkdómatryggingu því þá væri staða hans allt önnur. Það sé þó ekki hægt að vera vitur eftir á. Upp á aðra kominn Bíll Ólafs bilaði um daginn og þótt hann gæti vel gert við hann sjálfur hefur hann ekki þrek til þess. Hann er því upp á vini og vandamenn kominn með að komast á milli staða. „Ég er búinn að lifa á fjölskyldunni minni upp á síðkastið því allt sem ég fæ dugar ekki fyrir því allra nauð- synlegasta. Nú er ég líka upp á aðra kominn með að komast á milli staða. Það er þó eiginlega bara upp á spítala sem ég fer og heim aftur.“ Hann segir þetta ekkert sældarlíf og að það angri hann mest að geta ekki gert neitt og vera upp á aðra kominn. Hefur varla efni á að borða Ólafur greindist með blóðkrabba en læknar segja að batahorfur séu góðar. Í kjölfar krabbameinsins fékk hann svo slagæðabólgu sem hann segir að sé erfið. Út af henni sé hann á miklum sterum. „Vegna þeirra hef ég þyngst um 37 kíló þrátt fyr- ir að borða nánast ekkert. Ég borða kannski eina beyglu á dag og smá ab-mjólk því ég hef ekki efni á meiru og borða ekkert grænmeti eða ann- an hollan mat. Maður verður voða- lega þreklítill þegar maður borðar ekki og ég borða ekki því ég hef ekki efni á því.“ Hann segir það erfitt þegar systir hans hringir og býðst til kaupa eitt- hvað handa honum í búðinni því hann hugsi ekki um hvað hann þyrfti að borða heldur hvað kostar minnst og dugar lengst. „Maður getur ekki ætlast til að aðrir borgi ofan í mann mat. Það eiga allir nóg með sig.“ Tætt sálartetur Aðspurður um framhaldið segir hann að barnanna vegna verði hann að berjast áfram. Hann ætli sér að komast út úr þessu en eins og staðan er í dag sé sálartetrið tætt og svart- nættið svakalegt. „Það er einhvern veginn ekkert sem maður getur gert. Maður berst bara frá degi til dags við að halda sál- artetrinu í lagi. Ég vakna á morgnana og fer fram í stofu, leggst þar út af og reyni að lesa. Það er þó oft erfitt því sterarnir hafa haft áhrif á sjónina. Þannig eyðir maður dögunum og bíður eiginlega bara eftir kraftaverki á hverjum degi. Það eina sem ég bið um er að geta staðið uppréttur og þurfa ekki að betla af öðrum. Ég fer ekki fram á annað,“ segir hann og bætir við að hann vilji byrja að vinna eins fljótt og mögulegt er. Á meðan hann sé í meðferðunum sé það erfitt og hann hefði því þurft stuðning á meðan. Hann sé svekktur og sár út í kerf- ið. Hann hafi unnið í öll þessi ár og borgað í það allan tímann. „Svo þeg- ar maður þarf á kerfinu að halda þá fær maður höfnun,“ segir hann að lokum. Ólafur Pálmason hefur barist við krabbamein í fjögur ár og ekki getað unnið í tæpt ár. Hann hefur hvorki efni á lyfjum né mat þegar hann hefur greitt leiguna. Svartnættið er Svakalegt Bað um hjálp á Facebook Ólafur setti fyrirspurn um vinnu á Facebook-síðu sína fyrir skömmu en þar stóð einnig: „Látið þetta berast eins víða og þið getið því ég hef mikla trú á að þið gætuð hjálpað mér út úr þessum hryllingi ef viljinn er fyrir hendi, því ef ekkert gerist á ég ekkert annað eftir en að ljúka mínu lífi. Ég hef ekki getað hitt börnin mín því ég á ekkert til bjóða þeim. Það eina sem er til að borða er vatn og verður ekki breyting á því fyrr en ég get farið að vinna aftur. Þetta er neyðarkall frá mér, ég er búinn að standa í þessu í fjögur ár og við það að hætta í lyfjameðferðinni set ég mig í mikla hættu en ég get bara ekki meira. Með von að einhver geti hjálpað mér og bjargað lífi mínu kv Óli. P.S [...] vonandi sjá sem flestir þessi skrif mín því þau eru mjög áríðandi fyrir mig og eru spurning upp á líf eða dauða hjá mér.“ Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is Viðtal „Ég borða kannski eina beyglu á dag og smá ab-mjólk því ég hef ekki efni á meiru og borða ekkert grænmeti eða annan hollan mat. Ólafur Pálmason glímir við erfið veikindi Á lítið sem ekkert eftir þegar hann hefur greitt leigu og getur ekki keypt lyf. Mynd SigTryggUr Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.