Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Blaðsíða 4
Þ eir sem starfa í fjármálaþjón- ustu, lífeyrissjóðum og við vá- tryggingar hækkuðu í laun- um að jafnaði um tæpar 50 þúsund krónur á milli áranna 2010 og 2011. Þessir hópar hækkuðu mest allra í launum, þó að fyrir væru laun þeirra að jafnaði hæst á almenn- um vinnumarkaði. Hækkunin nam 10 prósentum, sem var einnig mesta hlutfallslega hækkun launa. Saman- borið við aðrar stéttir varð því ákveð- ið launaskrið í fyrra í þessum hópum. Bankamenn hafa þó setið eftir ef litið er til hækkana frá efnahagshruninu. Opinberir starfmenn sitja eftir Í tölum Hagstofunnar um laun á al- mennum vinnumarkaði kemur fram að regluleg laun hækkuðu að meðal- tali um 6,7 prósent á milli áranna 2010 og 2011. Eins og áður sagði hækkuðu laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóð- um og vátryggingum mest. Meðallaun fóru úr 476 þúsund krónum á mánuði í 524 þúsund. Minnst hækkuðu launin í byggingarstarfsemi og mannvirkja- gerð. Þar hækkuðu launin aðeins um 17 þúsund krónur að jafnaði á mánuði milli áranna 2010 og 2011. Meðallaun- in í byggingargeiranum fóru úr 356 þúsund krónum í 373 þúsund krónur. Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 4,4 prósent á milli þess- ara sömu ára og því má segja að þeir sitji eftir. Á sama tíma hækkaði verðlag í landinu um 1,8 prósent. Bankamenn hækka minnst frá hruni Þó meðfylgjandi graf varpi ljósi á það innan hvaða atvinnugreina laun hafa hækkað mest á milli áranna 2010 og 2011 breytist tölfræðin nokkuð þegar horft er á þróun launa frá árinu 2008, þegar efnahagshrunið varð. Þegar krónutöluhækkun frá þeim tíma er skoðuð kemur í ljós að laun þeirra sem starfa í byggingariðnaði hækkuðu um 70 þúsund krónur frá 2008, eða mest þeirra stétta sem hér um ræðir. Laun þeirra sem starfa við verslun hafa að jafnaði hækkað um 57 þúsund krón- ur á mánuði frá hruni og þeirra sem starfa í iðnaði um 50 þúsund, líkt og þeirra sem vinna við samgöngur. Laun þeirra sem starfa við fjármálaþjónustu hafa minnst hækkað frá hruni eða um 28 þúsund krónur á mánuði, að með- altali. Þetta helgast aðallega af því að stéttin lækkaði lítillega í launum á milli áranna 2008 til 2009. Fjölmargir starfs- menn bankanna, sem ekki misstu vinnuna strax í kjölfar hrunsins, tóku á sig launalækkun. Svo virðist hins vegar sem tímar samdráttar í launum hjá bönkunum séu að baki, ef taka má mark á því að laun þeirra hækkuðu að jafnaði mest milli 2010 og 2011. Þó má einnig benda á að frá hruni hefur verðlag hækkað um rúm 37 pró- sent. Kaupmáttur launa hefur því rýrn- að hjá öllum þeim hópum sem hér eru til umfjöllunar þegar horft er fimm ár aftur í tímann. Allir fengu 4,25% hækkun Í þessu samhengi skal haft í huga að í kjarasamningi aðildarfélaga Alþýðu- sambands Íslands og Samtaka at- vinnulífsins, sem undirritaður var í fyrravor, var kveðið á um að allir launa- taxtar hækkuðu um 4,25 prósent. Að auki fengu launamenn 50 þúsund króna eingreiðslu og 10 þúsund króna álag var greitt ofan á orlofsuppbót. Þessu til viðbótar var greitt 15 þúsund króna álag á desemberuppbót. Þegar þetta er haft í huga er óvar- legt að ætla að stór hluti launamanna hafi fengið miklar launahækkanir um- fram umsamda hækkun í kjarasamn- ingi ASÍ. 4 Fréttir 19. mars 2012 Mánudagur Fá ekki að mynda fermingu n Kurr meðal foreldra því aðeins einn fær að mynda athöfnina V ið viljum ekki að það séu tutt- ugu ljósmyndarar á sveimi á meðan á athöfninni stendur. Þetta er ekkert öðruvísi hér en annars staðar,“ segir Gunnar Sigur- jónsson, sóknarprestur í Digranes- kirkju í Kópavogi. Fermingar fara að ganga í garð og á fimmtudag voru haldnir foreldra- fundir í kirkjunni þar sem meðal ann- ars var rætt um myndatökur á meðan á athöfn stendur. Ákveðið hefur verið að semja við einn ljósmyndara, Jó- hann Ísberg, um að hann taki að sér að taka myndir. Jóhann er formað- ur Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi en Gunnar er einnig virkur félagi í Sjálf- stæðisflokknum. Að sögn Gunnars var sú ákvörð- un, að fá einn ljósmyndara til verks- ins, tekin til að trufla ekki sjálfa at- höfnina enda annars viðbúið að fjöldi fólks yrði á sveimi til að fanga þetta stóra augnablik í lífi barnanna á filmu. Samkvæmt upplýsingum DV er kurr meðal einhverra foreldra vegna þess- arar ráðstöfunar. Gunnar segist hins vegar ekki kannast við það og bend- ir á að raunar sé sama fyrirkomulag í öðrum kirkjum. Þá hafi þessi sami háttur verið hafður á í Digraneskirkju undanfarin ár. Reyndir ljósmyndarar komi og taki myndir og foreldrar geti síðan keypt myndirnar gegn gjaldi sem stillt er í hóf. Gunnar segir að á foreldrafund- unum á fimmtudag hafi hann beð- ið fólk um að koma með hugmynd- ir. Almenn sátt hafi hins vegar verið og enginn sett sig á móti þessu fyrir- komulagi. Þá bendir Gunnar á að for- eldrar og allir þeir sem vilja geti tekið myndir eftir sjálfa athöfnina. Mark- miðið með þessu sé að hafa athöfnina í senn fallega og hátíðlega. Bankamenn hækka mest n Laun starfsmanna í fjármálageiranum hækkuðu um 10% á einu ári „Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 4,4 prósent á milli þessara sömu ára og því má segja að þeir sitji eftir. 300 350 400 450 500 550 Iðnaður Byggingar- geirinn Verslun og þjónusta Samgöngur og flutningar Fjármálaþjón- usta, lífeyrissj. og tryggingar 373 320 345 356 318 341 342 372 476 524 Hækkun meðallauna 2010–2011Hækkun launa frá hruni Byggingargeirinn 70 þús. Verslun 57 þús. Iðnaður 50 þús. Samgöngur 48 þús. Fjármálaþjónusta 28 þús. Gengið á spariféð Verðbólgan hefur gert það að verkum að kaupmáttur launa hefur rýrnað frá hruni. Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Eins og í öðrum kirkjum Gunnar kann- ast ekki við að foreldrar séu ósáttir. Rauða súlan merkir laun árið 2010 en sú gráa launin árið 2011. Um er að ræða mánaðarlaun í þúsundum króna. Sóttu vél- sleðamann Vélsleðamaður var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri á sunnu- dagseftirmiðdag. Stjórnstöð Land- helgisgæslunnar barst laust fyrir klukkan fjögur beiðni frá Neyðar- línunni um aðstoð þyrlu eftir að vélsleðaslys varð í Flateyjardal milli Eyjafjarðar og Skjálfanda- flóa. Björgunarsveitir voru einnig kallaðar út. Sökum þess hversu snjólétt var í Flateyjardal komust björgunarsveitarmenn langleiðis á bílum. Fyrst var maðurinn flutt- ur í Heiðarhús sem er í um eins kílómetra fjarlægð frá slysstað. Þar fékk hann aðhlynningu þar til þyrlan kom á vettvang. Mað- urinn var í hópi vélsleðamanna á ferðalagi um Flateyjardal. Hann var með töluverða áverka, meðal annars á baki og fótum en var með meðvitund og líðan hans stöðug. Gæti haft fordæmisgildi Úrskurður sem féll hjá Evrópu- dómstólnum á fimmtudag í síð- ustu viku í slóvensku máli um neytendalán gæti haft fordæmis- gildi fyrir uppgjör gengislána hér á landi. Dómurinn fjallar um túlkun á tilskipun um óréttmæta skil- mála í neytendasamningum en sú tilskipun hefur verið innleidd í lög hér á landi og því er hægt að heimfæra dóminn upp á gengisl- ánin hér. Árið 2010 komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að gengisl- ánin yrðu látin bera lægstu óverð- tryggðu vexti Seðlabankans, rökin fyrir því voru meðal annars þau að vegna þess að lánin hefðu ekki verið veitt með óverðtryggð- um vöxtum ef gengistrygging hefði ekki fylgt. Evrópudómstóll- inn komst að þeirri niðurstöðu að þetta væru ekki gild rök. RÚV sagði frá þessu í kvöldfréttum sín- um á sunnudag. Ostborgari franskar og 0,5l gos Máltíð Mánaðarins Verð aðeins 1.045 kr. d v e h f. 2 0 12 / d av íð þ ó r Stigahlíð 45-47 | Sími 553 8890 *gildir í mars

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.