Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Blaðsíða 17
Dómstóll götunnar Fréttin hefur verið fjarlægð Þjóðleikhúsið er samt fínast Pressan baðst afsökunar og fjarðlægði frétt um DV. – PressanGrínistinn Arli Eldjárn hefur verið að skemmta á Norðurlöndum. – DV Af tapi, tjóni eða ráni „Nei, alls ekki. Ég vil bara fá sem mest af honum.“ Guðmann Ísleifsson, 41 árs framkvæmdastjóri „Já, ég bjóst nú við að sumarið væri komið. Þetta er alltaf svona, fyrst kemur sumar og vetur til skiptis sex sinnum og í sjöunda sinn þá er þetta komið.“ Steinunn Steinþórsdóttir, 18 ára nemi í MR „Nei.“ Sigríður Jakobsdóttir, 64 ára atvinnulaus. „Nei, fínt að hafa hann fram að páskum allavega.“ Sumarliði Rúnarsson, 40 ára matreiðslumaður „Já, pínu. Manni finnst þetta vera komið gott af snjónum, en ég er ekkert að láta þetta á mig fá mikið.“ Bergsveinn Þórsson, 28 ára starfsmaður Minjasafns Reykjavíkur Finnst þér verra að fá snjó aftur? M ikill er máttur orðsins. Sá sem segir frá stjórnar nefnilega ansi miklu um hvað okkur finnst, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Því er ábyrgð fjöl- miðlamanna á framsetningu frétta mikil. Bankarnir græða Fyrir síðustu helgi sendu tveir stóru bankanna frá sér ársreikninga fyrir síðasta ár. Sem fyrr er hagnaðurinn gífurlegur en nú fylgja sögunni fréttir af „tapi“ vegna dóms Hæstaréttar um gengistryggð lán frá 15. febrúar. Hagn- aður Landsbankans eftir skatta var 16,9 milljarðar króna en gert er ráð fyrir að dómur Hæstaréttar þýði 38 milljarða niðurfærslu á lánasafni bankans. Í kynningu frá bankanum segir: „Þessi ráðstöfun dregur verulega úr hagn- aði ársins og rýrir arðsemi eigin fjár.“ Sem sagt, ef ekki hefði komið til þessi óheppilegi dómur Hæstaréttar, ef ósáttir lántakendur hefðu ekki verið að vesenast þetta, hefði hagnaðurinn slag- að í 55 milljarða á síðasta ári. Bömm- er! Svipuð viðhorf eru uppi hjá Arion banka sem hagnaðist um 11,1 milljarð á síðasta ári. Á þeim bænum hefur dómur Hæstaréttar minnkað hagnað- inn um 13,8 milljarða sem hlýtur að hafa verið svekkjandi fyrir æðstu menn og vesalings kröfuhafana. Og hvernig sögðu fjölmiðlar frá þessu? Á mbl.is birtist frétt á föstudaginn undir fyrir- sögninni „Tapa 51 milljarði á dómn- um“. Og ríkisútvarp allra landsmanna talar einnig um tap. Á föstudaginn birt- ist fréttin „Tapa 38 milljörðum á gengis- dómi“ á vef þeirra. Gengistryggð lán sem mannréttindi En skoðum nú aðeins hvað í raun er um að ræða. Á árunum 2004–2007 buðu þau fjármálafyrirtæki sem þá störfuðu neytendum nýjung á lána- markaði, svokölluð gengistryggð lán. Loksins sátu Íslendingar við sama borð og aðrir íbúar hins vestræna heims. Þeim bauðst að fjármagna íbúðakaup eða annað án þess að greiða lánsfjárhæðina margfalt til baka. Þetta þótti mikil mannréttinda- bót enda voru menn orðnir þreyttir á að borga af verðtryggðu lánunum sínum en horfa á höfuðstólinn hækka í sífellu. Það er nefnilega ekki góð skemmtun. Á móti kom reyndar að gengið gat sveiflast til og frá þannig að fólk þurfti að hafa borð fyrir báru og geta mætt svona 30% gengisfalli. Gengið féll hins vegar mun meira en það og lántakendur sátu í súpunni. Sumarið 2010 kom svo í ljós að sam- kvæmt íslenskum lögum voru þessi lán ólögleg. Kerfið brást við þeim tíðindum fyrst með tilmælum en svo lagasetningu sem skelltu svoköll- uðum seðlabankavöxtum á lánið frá lántökudegi í stað gengistryggingar. Það var kallað leiðrétting og fólkið sem hafði farið svo illa að ráði sínu að taka ólögleg lán (skítt með það þótt það hafi verið gert í góðri trú) átti bara að vera ánægt með hana. Nú voru nefnilega flestir íslenskir lántakend- ur jafnilla settir, hvort sem þeir voru með gengistryggð lán eða hina hefð- bundnu verðtryggðu hörmung. Málið leyst, ekki satt? En svo dúkkuðu upp óánægðir skuldarar, fólk sem var jafnvel að gaspra um evrópskan neytendarétt sem stjórnvöld höfu reyndar innleitt í íslenska löggjöf en engum finnst í raun skipta neinu máli. Þetta fólk fór í mál og þrátt fyrir að fjármálafyrirtækj- unum hefði ítrekað tekist að koma í veg fyrir að Hæstiréttur gæti svarað spurningunni um hvort það stæðist íslensk lög, jafnvel stjórnarskrá, að reikna himinháa vexti á lán mörg ár aftur í tímann, þrátt fyrir að allir gjald- dagar hefðu verið greiddir, þá varð svar Hæstaréttar að lokum bæði rétt- látt og sanngjarnt. Samningar skulu standa. Það „tap“ sem bankarnir færa nú í bækur sínar eru því peningar sem þeir áttu aldrei. Þetta var væntur ávinningur af ólöglegu athæfi þeirra sem þeir komust ekki upp með, þökk sé Hæstarétti og þeim lántakendum sem tóku slaginn. Hver er að ræna hvern? Eftir allt sem á undan er gengið í ís- lensku þjóðfélagi. Eftir allt það raun- verulega tjón og tap sem hrun banka- kerfisins hefur valdið íslenskri þjóð á síðustu árum; er til of mikils mælst að fjölmiðlar hagi orðum sínum þannig að með því að lesa fréttir fái maður glögga mynd af því hver er að reyna að ræna hvern? „Það „tap“ sem bankarnir færa nú í bækur sínar er því peningar sem þeir áttu aldrei. Erilsamt í HR Lögrétta veitti á sunnudaginn fólki ókeypis aðstoð við að skila skattframtalinu sínu. Margir nýttu sér þjónustuna. Mynd SiGtRyGGuR ARiMyndin Umræða 17Mánudagur 19. mars 2012 Kjallari Margrét Tryggvadóttir 1 „Ég sver það ég kúgaðist ég varð svo reið“ Andrea Kristín Unn- arsdóttir segist hafa reiðst fórnarlambi líkamsárásar vegna hótana þess. 2 „Hakka þig í búta með veiðihnífnum mínum“ Hildi Lilliendahl barst óhugnanlegt hótunar- bréf frá ónefndum aðila. 3 Rannsókn á grófri lífláts-hótun þolir bið Stefán Eiríksson segir að mál sem þoli bið bíði næsta virka dags. 4 Himnasending að vera ekki háð sykri Sirrý Svöludóttir hefur verið á paleo-mataræði síðan síðasta sumar. 5 „Ég vil sjá þig brenna lifandi“ DV birti skjáskot af hótunarbréfi sem sent var Hildi Lilliendahl. 6 Adele í uppáhaldi Tinna Gunnlaugsdóttir sendi frá sér lag og myndband á vefsíðuna Youtube og fékk mikil viðbrögð. 7 Forsetaframbjóðandi vekur athygli á Facebook Myndband af forsetaframbjóðandanum Ástþóri Magnússyni þar sem hann talar meðal annars um „tannlausar og taílenskar kellingar“ í partíi vekur athygli á Facebook. Mest lesið á DV.is Hann kemur oft Fyrrverandi vaktstjóri á N1 segir Davíð Oddsson sólginn í lottó. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.