Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Page 6
6 Fréttir 19. mars 2012 Mánudagur Heilabilaður af neyslu áfengis n Sviptur sjálfræði eftir langvinna og þunga ofneyslu H æstiréttur staðfesti í síð- ustu viku úrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur um að karl- maður sem er vistmaður á Landakotsspítala í Reykjavík, verði sviptur sjálfræði. Maðurinn er hald- inn heilabilun sem stafar af lang- vinnri og þungri áfengisneyslu. Það voru börn mannsins sem fóru fram á sviptinguna. Fyrir dómi var lagt fyrir vottorð yfirlæknis á heilabil- unardeild Landspítala en í því seg- ir að heilabilunin einkennist meðal annars af innsæis- og dómgreindar- leysi og töluverðu minnisleysi. Hann sjái ekkert því til fyrirstöðu að halda áfram að neyta áfengis þrátt fyrir að hafa orðið fyrir miklu heilsutjóni af völdum þess en eins og áður sagði er heilabilunin rakin til ofneyslu hans á áfengi. Í janúar var maðurinn sviptur fjárræði. Í vottorði um heilsu hans frá því hann var sviptur fjárræði kem- ur fram að hann telji sig geta haldið heimili og séð um persónulega um- hirðu sína en það sé hann í raun ekki fær um. Framganga mannsins fyrir dómnum þótti vera í samræmi við það sem var sagt í læknisvottorðum. Dómurinn komst að þeirri niður- stöðu að maðurinn væri alls ófær um að ráða sínum persónulegu högum vegna heilabilunarinnar. Þess vegna taldi dómurinn að það væri nauð- synlegt að svipta hann sjálfræði til þess að veita honum þá læknisþjón- ustu sem hann þarf á að halda. Sólpalladeila í Vesturbænum H arðar nágrannadeilur hafa staðið yfir frá árinu 2007 um sólpall úr timbri sem stendur við Lágholtsveg 11 í Vestur- bænum í Reykjavík. Eru það íbúar á Grandavegi 38, sem liggur að lóð Lágholtsvegar, sem eru ósáttir við staðsetningu pallsins. Hefur málið undið það mikið upp á sig að lögregla hefur ítrekað verið kölluð á staðinn vegna meintra eigna- spjalla og hávaða, samkvæmt heimild- um DV. Þá kærðu íbúar á Grandavegi 38 Guðbjörgu Guðmundsdóttur, íbúa á Lágholtsvegi 11, til lögreglu vegna meints eignaskaða. Ólafur Tryggvason, íbúi á Granda- vegi 38, segir aðspurður um málið það hafa farið í „… alls konar kæruferli út af eignaskaða og fleiru. Síðan þurfti sak- sóknari að senda málið aftur til lög- reglu svo einhvern veginn var þetta að velkjast á milli þar. Þannig að ég veit ekki alveg hvar þetta stendur í dóms- kerfinu.“ Hann vill þó ekki útskýra það neitt frekar hvað liggur á bak við kær- urnar. Hefur staðið frá 1984 Umræddur pallur var byggður árið 1984, þá með samþykki allra nágranna, en núverandi íbúar á Grandavegi 38 keyptu eignina árið 2004. Í ágúst árið 2007 fékk Guðbjörg bréf frá byggingafulltrúa Reykjavíkur- borgar þar sem krafist var skýringa á „óleyfispalli“. Má því leiða að því lík- ur að íbúar á Grandavegi 38 hafi vakið athygli borgaryfirvalda á umræddum palli, sem þá hafði staðið þar án at- hugasemda í 23 ár. Einar Örn Thorlacius, yfirlögfræð- ingur skipulags- og byggingasviðs hjá Reykjavíkurborg, segir í samtali við DV að það sé líklegt að borginni hafi borist ábending um að staðsetning pallsins væri ekki í samræmi við deili- skipulag, en hann stendur innan við þrjá metra frá lóðamörkum. Í kjölfarið hafi eiganda pallsins verið gert að gera grein fyrir honum. Guðbjörg varð ekki við þeirri kröfu borgaryfirvalda. Aðrir nágrannar styðja pallinn „Í júní 2010, greinilega, þá er þolin- mæði okkar þrotin og við sendum kæranda [Guðbjörgu, innsk. blm.] bréf og krefjum hann um að fjar- lægja pallinn eða sækja um bygging- arleyfi,“ segir Einar. Hann telur líklegt að ýtt hafi verið við borgaryfirvöldum vegna málsins. Má aftur leiða líkur að því að um nágrannana á Granda- vegi 38 hafi verið að ræða. Guðbjörg sótti í kjölfarið um byggingarleyfi fyr- ir pallinum. Þeirri umsókn var synjað á þeim forsendum að samþykki íbúa á Grandavegi 38 fylgdi ekki með þrátt fyrir að þess væri krafist. Samþykki nokkurra annarra nágranna fylgdi þó umsókn Guðbjargar, en meðal nágranna hennar eru Guðrún Ás- mundsdóttir leikkona, Guðni Th. Jó- hannesson sagnfræðingur og Jón Ár- sæll Þórðarson sjónvarpsmaður. Guðbjörgu var gert að fjarlægja pallinn innan þrjátíu daga ella yrði þvingunaraðgerðum beitt. Hún varð þó ekki við því heldur kærði ákvörð- un byggingafulltrúa í desember árið 2010. Málið stopp hjá kærunefnd Byggingafulltrúi lýsti viðhorfum sín- um til kærunnar og skilaði greinar- gerð til kærunefndar í febrúar 2011 þar sem málið hefur legið í rúmt ár. Aðspurður hvort það sé ekki óeðli- lega langur tími, svarar Einar því játandi. „Samkvæmt lögum hefur nefndin þrjá mánuði frá því við skil- um okkar greinargerð. Hún getur reyndar framlengt úr þremur í sex mánuði ef málið er mjög viðamikið. En hvort sem við lítum á þrjá eða sex mánuði þá er ljóst að fresturinn sem nefndin hafði er liðinn.“ Báðir aðilar bíða því niðurstöðu málsins sem velkst hefur um í kerf- inu síðastliðin fimm ár, bæði hjá lög- reglu og borgaryfirvöldum. „Þetta er leiðindamál enda á milli og ég vona að það leysist bara eins fljótt og hægt er,“ segir Ólafur á Grandavegi 38. Sér ofan í heita pottinn Í samtali við Vesturbæjarblaðið í desember árið 2010 sagði Guðbjörg að að eigendur Grandavegs 38 hefðu gert harðskeytta atlögu að sér sem nágranna um sumarið vegna palls- ins. Þar skýrði hún einnig frá því af hverju hún teldi nágranna sína vilja losna við pallinn. „Í garði húss að Grandavegi 38 er heitur pottur og virðist það einkum angra húseig- endur þar, að í þennan pott sést frá pallinum mínum og reyndar einnig frá rishæð. Ég mun þar af leiðandi ávallt sjá ofan í garð inn og pottinn,“ sagði Guðbjörg í samtali við Vestur- bæjarblaðið. Hún vildi ekki tjá sig um málið þegar DV hafði samband við hana. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Ólafur Tryggva- son, íbúi á Granda- vegi 38, segir aðspurður um málið það hafa farið í „… alls konar kæruferli út af eignaskaða og fleiru.“ n Nágrannar vilja losna við 28 ára gamlan sólpall við Lágholtsveg 11 Umdeildur Sólpall- urinn við græna húsið hafði staðið án vand- kvæða í 23 ár þegar nýir nágrannar urðu ósáttir við staðsetningu hans. Mynd SigtryggUr Ari Breiðfylkingin stofnuð Síðari stofnfundur Breiðfylkingar- innar var haldinn á Grand hóteli á sunnudag. Að framboðinu standa Hreyfingin, Borgarahreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn, auk nokk- urra einstaklinga úr stjórnlaga- ráði. Fylkingin leggur áherslu á „öflugar aðgerðir í þágu heimil- anna á lýðræðisumbætur með nýrri stjórnarskrá, á nýskipan auð- lindamála og uppstokkun á stjórn fiskveiða, á siðvæðingu stjórnsýslu og fjármálakerfis, á lagalegt rétt- læti og afdráttarlaust uppgjör við hrunið og auk þess er samstaða um að þjóðin sjálf ráði niðurstöðu ESB-málsins,“ segir í yfirlýsingu vegna fundarins. Ástþór með „saklaust grín“: Frambjóðandi vekur athygli á vefnum Myndbandi af forsetaframbjóð- andanum Ástþóri Magnússyni þar sem hann talar meðal annars um „tannlausar og tælenskar kell- ingar“ í partíi með tónlistarmann- inum Sverri Stormsker hefur verið dreift mikið að undanförnu á Fa- cebook. Í myndbandinu sem er tekið upp í einkasamkvæmi má sjá þegar gítarleikari nokkur sting- ur upp á því að Ástþór og Sverrir fari í rímnabardaga. Ástþór tekur manninn á orðinu og reynir við rímur með misjöfnum árangri. Á meðal þess sem Ástþór segir í myndbandinu er: „Honum finnst best að láta tannlausar kellingar sjúga sig [...] tælenskar og tann- lausar, það er hans mottó, það er það sem hann vill.“ Aðspurður um það hvort ummælin í myndband- inu séu óheppileg í ljósi þess að hann sé á leiðinni í forsetafram- boð segir Ástþór svo ekki vera. „Ég og ágætur vinur minn Sverrir Stormsker slógum á létta strengi í einkasamkvæmi. Þetta var tekið upp með falinni mynda- vél án minnar vitneskju. Ég hef ekkert á móti tælenskum konum né tannlausu fólki yfirhöfuð enda um saklaust grín að ræða.“ Sviptur sjálfræði Börn mannsins fóru fram á að hann yrði sviptur sjálfræði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.