Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Page 8
8 Fréttir 19. mars 2012 Mánudagur
vilja kaupa 365
S
igmar Vilhjálmsson og
Jóhannes Ásbjörns-
son, fjárfestar og eigend-
ur Hamborgarafabrikk-
unnar, hafa áhuga á því
að eignast fjölmiðlafyrirtæk-
ið 365 og eru að skoða leiðir til
þess, samkvæmt heimildum DV.
Þeir eru hluti af fjárfestahópi
sem veltir fyrir sér þeim mögu-
leika að bjóða í fyrirtækið. DV hef-
ur líka heimildir fyrir því að tví-
menningarnir hafi þegar tryggt
sér fjármögnun fyrir kaupunum
ef af þeim getur orðið. Sigmar Vil-
hjálmsson vill aðspurður ekki tjá
sig við DV. „Ég vil ekki tjá mig um
málið.“ Simmi og Jói eru fyrrver-
andi starfsmenn 365 og ættu því
að þekkja fyrirtækið af eigin raun.
„Ekki í sölumeðferð“
Þó Sigmar og Jóhannes hafi áhuga
á félaginu þá virðist málið ekki
vera komið það langt að viðræð-
ur séu hafnar við eigendur 365.
Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir,
aðaleigandi fjölmiðlafyrirtækis-
ins 365, segir að fyrirtækið sé ekki
í sölumeðferð. „Félagið er ekki í
sölumeðferð og enginn hefur talað
við mig um þessar eigendabreyt-
ingar, mér sýnist þetta vera enn
einu sinni ein ekki-fréttin um fé-
lagið,“ segir Ingibjörg. Hávær orð-
rómur hefur verið um það í langan
tíma að Ingibjörg, sem er eigin-
kona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
ætli sér að selja fyrirtækið.
Viðskiptablaðið greindi frá því í
síðustu viku að hópur fjárfesta vildi
kaupa 365, sem meðal annars á
Stöð 2 og Fréttablaðið. Ekki var tek-
ið fram í frétt blaðsins hvaða aðil-
ar það væru sem væru áhugasamir
um fjölmiðlafyrirtækið. Miðað við
eftirgrennslan DV um málið virðist
sem málið snúist um að einhverjir
aðilar undirbúi að reyna að kaupa
fjölmiðlafyrirtækið en að þessir að-
ilar hafi ekki enn haft samband við
Ingibjörgu og Jón Ásgeir. Á meðal
þeirra eru Sigmar og Jóhannes.
Leitar ekki að hluthöfum
Ingibjörg segist koma af fjöllum
þegar hún er spurð hvort hún sé
að selja félagið eða hvort nýir hlut-
hafar séu að koma að því. „Eins
og ég sagði við VB þá get ég ekki
svarað því sem ég veit ekki um. Ef
starfsmenn ásamt öðrum langar til
að koma að rekstrinum eða leggja
fram fé þá hafa þeir ekki haft sam-
band. Landsbankinn hefur ekki
haft samband. Ég hef ekki ver-
ið að leita að hluthöfum. Ég veit
ekki til þess að það séu breytingar
í eigandahópi félagsins. Félagið er
ekki í sölumeðferð og enginn hefur
talað við mig um þessar eigenda-
breytingar, mér sýnist þetta vera
enn einu sinni ein ekki-fréttin um
félagið.“
Landsbankinn á hliðarlínunni
DV hefur heimildir fyrir því að
Landsbankinn komi ekki með
neinum hætti að þessum hugs-
anlegu eigendabreytingum á 365.
Landsbankinn er viðskiptabanki
365 og skuldar félagið honum um
fjóra milljarða króna.
Landsbankinn er hins vegar,
samkvæmt heimildum DV, mjög
ánægður með viðskiptin við núver-
andi eigendur 365 í þeim skilningi
að þeir eru sagðir standa við skuld-
bindingar sínar gagnvart bankan-
um. „Allt stendur eins og stafur á
bók,“ segir heimildarmaður blaðs-
ins. Bankinn er því ekki að þrýsta á
um það að Ingibjörg selji 365. Við-
ræður um kaup á 365 þurfa því að
fara fram í gegnum Ingibjörgu eina
en ekki bankann.
Af orðum Ingibjargar að dæma
er það hins vegar ekki svo að fyrir-
tækið sé ekki til sölu fyrir rétt verð.
„En eins og ég sagði áður getur vel
verið að fólk sé að spá í að kaupa
félagið og er það bara ágætt að
áhugi sé fyrir hendi, en ég myndi
halda að þeir aðilar þyrftu að hafa
samband við eigandann ef eitthvað
á að verða úr. Ég vona að þetta sé
skýrt og þessi saga vindi ekki meira
upp á sig – það þarf alla vega selj-
anda til að kaupandi geti keypt.“
Staðan er því væntanlega sú,
samkvæmt þessu, að einhverjir að-
ilar undirbúa að leggja fram tilboð
í 365 en hafa ekki enn haft sam-
band við Ingibjörgu vegna málsins
eða lagt fram tilboð.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Simmi og Jói í hópi fjárfesta n Ingibjörg segist ekki leita hluthafa„Veit ekki til
þess að það
séu breytingar í
eigandahópi félagsins.
Simmi og Jói græða á tá og fingri:
Seldu 1.000 borgara á dag
Leiðir þeirra Simma og Jóa lágu
fyrst saman í útvarpinu árið 1998.
Síðan þá hafa þeir starfað saman í
hinum ýmsu verkefnum, aðal-
lega í fjölmiðlum, bæði útvarpi og
sjónvarpi. Þeir stýrðu sjónvarps-
þættinum 60 mínútum um skeið
og voru kynnar í sjónvarpsþætt-
inum vinsæla Idol-Stjörnuleit fyrir
fáeinum árum.
Fyrir tveimur árum ventu þeir
sínu kvæði í kross og opnuðu
saman veitingastaðinn Hamborgarafabrikkuna. Meðeigandi þeirra í henni er
Skúli Gunnar Sigfússon sem einnig á Subway. Stöð 2 fylgdist náið með uppbygg-
ingunni en vikulegir þættir voru um framgang mála.
Vinsældir staðarins voru strax gífurlegar, enda hafði staðurinn verið rækilega
kynntur og seldu þeir 180 þúsund hamborgara á fyrstu sex mánuðunum. Það
jafngildir um 1.000 hamborgurum á dag þann tíma.
Nautafélagið, sem á og rekur Hamborgarafabrikkuna, stendur vel og er nánast
skuldlaust. Árið 2010 var hagnaður félagsins 34,7 milljónir króna.
Simmi og Jóu voru sama ár valdir markaðsmenn ársins af Ímark en þeir þykja
afar snjallir á því sviðinu.
Auk Hamborgarafabrikkunnar reka þeir Íslensku kaffistofuna. Einnig eru þeir
með vörulínu undir nafni Hamborgafabrikkunnar sem seld er í Hagkaupum. Í
henni er að finna matvöru, meðal annars hamborgara, sósur og kökur.
Engin tilboð Ingibjörg segir að 365 sé
ekki í söluferli.
Slógu í gegn Hamborg-
arafabrikka Simma og Jóa
hefur slegið í gegn. Þeir hafa
starfað saman frá árinu 1998.