Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Qupperneq 12
Landsdómur víðar en hér
12 Fréttir 19. mars 2012 Mánudagur
G
etan til að kalla ráðherra
til ábyrgðar gjörða sinna er
kjarni þingræðisreglunnar.
Jón forseti Sigurðsson, rit-
stjóri Nýrra félagsrita, skrif-
ar meðal annars um kröfuna um að
hægt sé að kalla ráðherra til ábyrgð-
ar árið 1846. „Í þeim löndum sem
hafa löggjafar-þíng, koma stjórnar-
herrarnir sjálfir fram á þíngunum
af stjórnarinnar hendi, og eru þar til
andsvara fyrir fulltrúum þjóðarinn-
ar um sérhvað það, sem þeir gjöra,
sem æðstu embættismenn til að
framkvæma allsherjar-viljann. Þeir
hafa sjálfir ábyrgð embættis síns
og aðgjörða sinna, og geti þeir ekki
fengið meira part fulltrúanna til að
fallast á álit sitt í merkilegum mál-
efnum, geta þeir ekki verið lengur í
völdum.“
Landsdómur víða
Lög um sérstaka ráðherraábyrgð er
að finna víðar en á Íslandi. Í dönsku
stjórnarskránni er gert ráð fyrir sér-
stökum dómstól sem kallast ríkis-
réttur og er oft sagður fyrirmynd
landsdóms. Dómurinn er skipaður
þrjátíu dómurum, fimmtán hæsta-
réttardómurum og fimmtán aðil-
um kjörnum til sex ára í senn. Líkt
og í tilviki landsdóms er það lög-
gjafinn sem ákærir. Svipuð ákvæði
er að finna í norsku stjórnarskránni,
þótt norski ríkisrétturinn hafi víð-
ari skyldur. Kæra má bæði dómara
og þingmenn fyrir norska ríkisrétt-
inum.
Danski ríkisrétturinn hefur fjór-
um sinnum verið kallaður til. Síðast
árið 1995 í svokölluðu Tamílamáli,
Erik Ninn-Hansen, dómsmálaráð-
herra í ríkisstjórn Hilmars Baunsga-
ard, samsteypustjórnar Konserva-
tive Folkeparti, Venstre og Radikale
Venstre, var ákærður fyrir að mis-
nota vald sitt þegar hann stakk um-
sóknum, frá ættingjum tamílskra
flóttamanna um rétt til að flytja
til Danmerkur, undir stól. Ninn-
Hansen var fyrsti ráðherrann sem
ákærður var fyrir dómnum frá því
1910.
Aðrar hliðstæður
Löggjafarþing Bandaríkjanna getur
ákært dómara Hæstaréttar og ráð-
herra fyrir landráð, mútuþægni eða
önnur afbrot. Öldungadeildin dæm-
ir síðan í málinu. Bill Clinton, fyrr-
verandi forseti Bandaríkjanna, var
þannig ákærður 1998 fyrir að hafa
sagt ósatt í vitnaleiðslum um sam-
skipti sín og Monicu Lewinsky. Þá
má nefna að þýska sambandsþing-
ið getur ákært forseta sambandslýð-
veldisins fyrir að brjóta þýsk lög vilj-
andi. Þýski stjórnlagadómstóllinn
dæmir í málum fyrir dómstólnum.
Líkist kviðdómi
Ástæða sérstaks dómstóls og laga
sem fjalla eiga um ráðherra er sú
hugmynd að sérstöku valdi skuli
fylgja sérstök ábyrgð. Landsdómur
er sá dómstóll hér á landi sem kemst
næst því að vera skipaður kvið-
dómi. Talið er mikilvægt að dómar-
ar geti litið til fleiri þátta en aðeins
þröngrar skilgreiningar laga. Þannig
eiga dómarar að geta sett sig í spor
ákærða enda brot á ráðherraábyrgð
víðtækari en brot á öðrum lögum.
Dóminn skipa fimmtán dómar-
ar. Þeir fimm dómarar Hæstarétt-
ar sem starfað hafa þar lengst auk
dómstjóra í Reykjavík, prófessor í
stjórnskipunarrétti við Háskóla Ís-
lands auk átta manna kjörinna af Al-
þingi til sex ára. Forseti Hæstaréttar
er einnig forseti landsdóms. Skylt er
hverjum sem er kjörgengur að taka
kjöri í dóminn.
Matskennd brot
Hér á landi er lögum um ráðherra-
ábyrgð ekki ætlað að koma í stað al-
mennra hegningarlaga. Gerist ráð-
herra brotlegur við lög en brotin
varða ekki starf hans, fara slík mál
fyrir almennan dómstól.
Brot ráðherra á lögum um ráð-
herraábyrgð skiptist í þrjá flokka:
n Sérstökum völdum skal fylgja sérstök ábyrgð n Sérstakur dómstóll fyrir stjórnmálamenn ekki aðeins á Íslandi
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
„Hér á landi er
lögum um ráð-
herraábyrgð ekki ætlað
að koma í stað almennra
hegningarlaga.
Dreginn fyrir dóm Lög um ráðherraábyrgð er að finna víðar en á Íslandi, til dæmis í Danmörku og Bandaríkjunum.
Hefur tekið hálft annað ár
Munnlegum málflutningi er lokið og kveða ætti upp dóm á næstu vikum
16. mars 2012 Munnlegum málflutningi
lýkur. Ekki hefur verið tilkynnt um hvenær
dómur verður kveðinn upp.
5. mars 2012 Munnlegur málflutningur
hefst með skýrslutöku á Geir Haarde. Um
fimmtíu vitni eru kölluð til fyrir dómnum,
þar á meðal ráðherrar í ríkisstjórn Geirs og
hátt settir embættismenn auk yfirmanna
bankanna.
1. mars 2012 Frávísun á tillögunni er
samþykkt á Alþingi. Stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd hafði tveimur dögum áður
afgreitt tillöguna út úr nefnd og lagt til að
greidd yrðu atkvæði um frávísun öðru sinni.
16. desember 2011 Bjarni
Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, leggur
fram þingsályktunartillögu
um að fallið verði frá ákæru
á hendur Geir. Tillögunni
er dreift á lokadegi þings
og veldur nokkrum titringi.
Þingmenn deila meðal annars
um þingtæki tillögunnar.
3. október 2011 Lands-
dómur vísar frá sakargiftum í
liðum 1.1 og 1.2 í ákærunni gegn
Geir. Dómurinn hafnar að öðru
leyti frávísun málsins.
28. september 2010
Alþingi ákveður að ákæra
Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, vegna
embættisstarfa sinna. 33
þingmenn greiddu atkvæði
með ákæru en 30 greiddu
atkvæði gegn henni.
12. október 2010 Sak-
sóknari og varasaksóknari
Alþingis kosnir af Alþingi. Í
fyrri hluta nóvember 2010
voru saksóknarar komnir í
leyfi frá föstum störfum.
10. júni 2011 Landsdómur
hafnar kröfu Geirs um að dóm-
ararnir Ástríður Grímsdóttir,
Brynhildur Flóvenz, Fannar
Jónason, Hlöðver Kjartansson,
Linda Rós Michaelsdóttir,
Magnús Reynir Guðmundsson,
Sigrún Magnúsdóttir og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson víki sæti
í málinu.
10. maí 2011 Ákæra gefin út
og undirbúningi málsgagna og
gerð skjalaskrár fyrir ljósritun
lokið. Landsdómi og verjanda
voru afhent skömmu seinna 10
hefti með málsgögnum upp á
3.683 bls. auk 122 bls. langrar
skjalaskrá.
20. janúar 2012 Fyrri umræða um
tillögu Bjarna Benediktssonar um að falla
frá ákæru. Magnús Orri Schram mælir
fyrir því að tillagan verði tekin af dagskrá.
Þingsályktun Bjarna er naumlega sam-
þykkt inn í nefnd.
stjórnarskrárbrot, brot á landslög-
um og ráðmennskubrot. Geir H. Ha-
arde, fyrrverandi forsætisráðherra,
er ákærður fyrir brot á góðri ráð-
mennsku. Í greinargerð með frum-
varpi um ráðherraábyrgð segir að
óneitanlega sé þessi tegund brota
nokkuð matskennd. Ráðherra get-
ur því brotið af sér með framkvæmd
sem er ekki beinlínis lögboðin,
né þarf framkvæmdaleysi að vera
bannað með lögum. Í greinargerð
laganna frá 1963 segir að einmitt
það hversu matskennd brot á ráð-
herraábyrgð eru sé birtingarmynd
séreðlis ráðherraábyrgðar.
Ráðherra má krefja ábyrgðar fyr-
ir sérhver störf eða vanrækt starfa,
sem hann gerist sekur um, ef málið
er svo vaxið, að hann hefur annað-
hvort af ásetningi eða stórkostlegu
hirðuleysi farið í bága við stjórn-
arskrá, landslög eða að öðru leyti
stofnað hagsmunum ríkisins í fyr-
irsjáanlega hættu.
Margoft breytt
Núverandi lög um ráðherraábyrgð
tóku gildi árið 1963. Þau sækja þó
uppruna sinn til laga frá árinu 1904.
Sama ár og Hannes Hafstein, fyrsti
íslenski ráðherrann, var skipaður
af Danakonungi. Þau lög má rekja
til ákvæða stjórnarskrárinnar um
ábyrgð ráðherra. Alþingi hafði tvisv-