Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Síða 14
14 Erlent 19. mars 2012 Mánudagur
Vildi ekki fara aftur í stríðsátök
n Robert Bales myrti 16 saklausa borgara á hrottalegan hátt
H
ermaðurinn sem myrti 16 sak-
lausa borgara í Afganistan á
sunnudaginn í síðustu viku
heitir Robert Bales. Það var
Fox-fréttastofan sem reið á vaðið á
laugardag og nafngreindi hann, fyrst
allra miðla. Eftir að hann var nafn-
greindur hafa komið fram ýmsar
upplýsingar um bakgrunn hans.
Bales er 38 ára, kvæntur og faðir
tveggja ungra barna, 3 og 4 ára. Því
er haldið fram að erfiðleikar hafi ver-
ið í hjónabandi Bales og eiginkonu
hans og þau hafi einnig átt í fjárhags-
erfiðleikum. Bales skráði sig í herinn
eftir hryðjuverkaárásirnar 11. sept-
ember árið 2001. Hann barðist í Írak
og særðist meðal annars illa á fæti.
Hann hafði dvalist í Afganistan síðan
í desember en þetta var í fjórða sinn
sem hann var kallaður út til að sinna
herskyldu. Bales mun hafa verið afar
ósáttur við að vera sendur af stað í
fjórða skipti en samkvæmt fjölskyldu
hans hafði hann fengið loforð hjá
hernum um að hann yrði ekki sendur
aftur, það hefði hins vegar verið svik-
ið. Herinn hefur ekki staðfest þetta.
Fjölskylda Bales segir hann hafa
orðið vitni að því degi fyrir skotárás-
ina þegar annar fóturinn var skot-
inn af félaga hans í hernum. Herinn
hefur ekki staðfest þetta heldur. Því
hefur einnig verið haldið fram að
ástæðan fyrir þessum grimmu og
tilefnislausu árásum Bales hafi verið
sú að hann hafi átt í hjónabandser-
fiðleikum ásamt því sem hann hafi
verið undir miklu álagi og auk þess
undir áhrifum áfengis þegar árásin
átti sér stað. Þessu hafnar lögmaður
hans, John Henry Browne, en hann
segir að Bales hafi misst stjórn á sér.
„Hann hefur aldrei sagt neitt niðr-
andi um múslima. Hann er í grunn-
inn mjög góðhjartaður,“ var haft eft-
ir lögmanni hans. Það er þó vitað að
árið 2002 var Bales handtekinn fyrir
að ráðast á konu, sem var ekki eig-
inkona hans, hann játaði brotið og
var dæmdur til 20 tíma námskeiðs í
reiði stjórnun. viktoria@dv.is
Á
hverju ári mæta helstu fyrir-
menni Bretlands á veðhlaupa-
brautina í Cheltenham. Meðal
þeirra eru meðlimir konungs-
fjölskyldunnar. Veðhlaupa-
keppnin sem fram fer í bænum hefur
löngum verið talin ein sú fínasta og
eftirsóknarverðasta að mæta á í land-
inu. Því hefur kynlífsbransinn einn-
ig tekið eftir. Á kvöldin, eftir að veð-
hlaupum dagsins er lokið, umbreytist
bærinn og barir og kaffihús breyt-
ast í nektarstaði og hótel breytast í
hóruhús. Á meðan veðhlaupahátíðin
stendur breytist Cheltenham í hjarta
kynlífsbransans í Bretlandi.
Þessu fylgir mikil áfengis- og vímu-
efnaneysla auk annarra vandamála.
Ekki er langt síðan bensínsprengju
var kastað á einn af nektardansbör-
unum. Þá þurfti dyravörður á einum
staðnum að leggjast inn á sjúkrahús
eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri árás
nokkurra manna sem voru gestkom-
andi í borginni.
Sækja menn á
veðhlaupabrautina
Um 250.000 einstaklingar eru við-
staddir Cheltenham-veðhlaupahá-
tíðina ár hvert. Þetta hefur laðað að
fjölda nektardansara og vændis-
kvenna sem vilja græða á þeim gífur-
lega fjölda ríkra einstaklinga sem
sækja hátíðina. Græða þær bæði á
þeim sem vilja fagna sigri á brautinni
og þeim sem vilja drekkja sorgum sín-
um eftir tap dagsins. Í ár eru það átta
skemmtistaðir sem reyna að lokka til
sín karlmenn sem hafa það fyrir aug-
um að horfa á og jafnvel kaupa sér
konur.
Staðirnir leggja upp úr því að
fanga athygli sem flestra gesta í bæn-
um í tengslum við hátíðina. Staðirn-
ir bjóða upp á skutluþjónustu á milli
veðhlaupabrautarinnar og nektar-
staðanna auk þess sem margir þeirra
hafa ráðið ungar háskólastúlkur til að
dreifa auglýsingum um nektarsýning-
ar þar sem boðið er upp á „fulla nekt“.
Staðirnir hengja einnig upp flennistór
skilti þar sem nektardanssýningarnar
eru kynntar.
Bjóða upp á vændi
Það er þó ekki bara nektardans sem
er í boði á skemmtistöðunum eins
og blaðamaður breska blaðsins The
Daily Mail komst að þegar hann var
gestur á hátíðinni. Nokkur fjöldi
nektardansmeyja var tilbúinn að
bjóða upp á kynlífsþjónustu eftir að
vinnu á skemmtistöðunum væri lok-
ið.
„Þetta er betra en Amsterdam,“
sagði bankamaður í samtali við The
Daily Mail um hátíðina. Hann vildi
ekki láta nafns síns getið af ótta við
að unnusta hans myndi þá komast
að því hvað hann væri að gera í Chel-
tenham. Hann lýsti því þannig að
boðið væri upp á einkadans bak við
luktar dyr – eða í raun bara tjald sem
dregið væri fyrir – og þar væri mönn-
um boðið að káfa á nektardansmeyj-
unum gegn aukagreiðslu. „Dansinn
kostar bara 20 pund en konurnar
leyfa þér að borga auka 20 pund svo
þú fáir að snerta þær. Þetta er mein-
laust gaman, í alvöru,“ útskýrði mað-
urinn.
Vændi víðar
Það er þó langt frá því að það séu
aðeins nektardansmeyjarnar sem
bjóða upp á kynlífsþjónustu. Vænd-
iskonur flykkjast frá ýmsum borgum
og bæjum í Bretlandi til Chelten-
ham til þess að freista þess að græða.
„Dansararnir undirbjóða okkur,“ seg-
ir vændiskona sem kallar sig Jeanette
í samtali við The Daily Mail. „Við vit-
um allar að sumir dansararnir mæla
sér mót við karlmenn eftir að klúbb-
unum er lokað og bjóða þeim tiltölu-
lega ódýra þjónustu. Þetta er pirr-
andi,“ útskýrir hún en sjálf rukkar
hún rúmlega 200 þúsund krónur fyr-
ir nóttina.
Jeanette segist verða vör við að
austurevrópskir karlmenn komi með
vændiskonur til Cheltenham og geri
þær út í vændi. Segir hún að leigðar
séu heilu íbúðirnar undir þessa starf-
semi. Fleiri í kynlífsgeiranum í Bret-
landi hafa sömu sögu að segja.
Glufa í lögunum gerir þetta
mögulegt
Það sem gerir börunum það kleift
að bjóða upp á nektardans er glufa
í lögum frá árinu 2009. Þar er kveð-
ið á um að ekki þurfi að sækja um
sérstakt leyfi til að halda nektarsýn-
ingar svo lengi sem það sé ekki gert
oftar en einu sinni í mánuði. Þessa
glufu nýtir fyrirtækið Eroticats, undir
stjórn Camillu Griffiths, sér en fyrir-
tækið skipuleggur meira og minna
allar nektarsýningar í Cheltenham
á meðan á veðhlaupavikunni stend-
ur. Nektarsýningarnar eru því aðeins
haldnar eitt kvöld á hverjum stað.
Eroticats græðir gífurlega á þessari
viku sem Cheltenham-veðhlaupa-
hátíðin stendur yfir. Fyrirtækið tek-
ur nefnilega tuttugu prósent af allri
innkomu nektardansmeyjanna og
borgar ekki sérstaklega fyrir afnot af
börunum, þeir njóta aðeins góðs af
aukinni áfengissölu.
Vændi grasserar á
veðhlaupabrautinni
n Ein frægasta veðhlaupahátíð Breta er í raun hjarta kynlífsbransans
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Þetta er
betra en
Amsterdam
Konunglegir gestir
Camilla Parker-Bowles,
hertogynjan af Cornwall
og eiginkona Karls Breta-
prins, er meðal annars
gestur á Cheltenham
Festival-veðhlaupahá-
tíðinni í ár. Mynd ReuteRS
Óttast ís-
lensk eldgos
Gos í íslenskum eldstöðvum er
ein af helstu ógnum við þjóðarör-
yggi Bretlands samkvæmt nýjum
hættulista frá stjórnvöldum þar
í landi. Á listanum er einnig að
finna inflúensufaraldur, hamfara-
flóð og hryðjuverk. Á hættulistan-
um er bent á þau áhrif sem gosið
í Eyjafjallajökli hafði á flugumferð
í Evrópu en einnig eru áhyggjur af
gosstöðvum á borð við Lakagíga
sem spúa eitruðum gosgufum. Er
bent á að í gosinu 1783 hafi aska
og gosgufur borist yfir til Evrópu
og Asíu með þeim afleiðingum að
uppskerubrestur varð og þúsundir
létu lífið.
Rændu tveimur
konum
Á sunnudag rændu egypskir hirð-
ingjar úr samfélagi bedúína tveim-
ur brasilískum konum sem voru á
ferðalagi um Sínaískaga. Mann-
ránið er það þriðja á skaganum
það sem af er ári. Konurnar, sem
eru 18 og 40 ára, voru í hópi 36
ferðamanna í hópferðabíl. Tveir
vopnaðir hirðingjar þvinguðu
bílinn til að stoppa og völdu kon-
urnar tvær úr hópnum ásamt
fararstjóra hópsins og héldu með
þau til fjalla. Þarlend lögregluyfir-
völd hafa gefið það út að annar
ræningjanna sé faðir manns sem
var dæmdur í fangelsi fyrir fíkni-
efnamisferli og vopnaburð. Hann
hafi framið mannránið til að fá
soninn lausan.
Gauck forseti
Þýskalands
Joachim Gauck var á sunnu-
dag valinn forseti Þýskalands.
Hann hlaut 991 atkvæði af 1.232
og studdu fulltrúar allra stærstu
stjórnmálaflokkanna hann.
Gauck tekur við af Christian Wulff
sem sagði af sér forsetaembætti
vegna hneykslismáls. Gauck er
72 ára mannréttindafrömuður frá
Austur-Þýskalandi og fyrrverandi
prestur en á sínum tíma afhjúpaði
hann glæpi austurþýsku öryggis-
lögreglunnar, Stasi, þegar hann
var yfirmaður stofnunar sem hefur
umsjón með skjalasafni öryggis-
lögreglunnar.
Áður hafði stjórn Angelu Mer-
kel, kanslara Þýskalands, komist
að samkomulagi um að tilnefna
Gauck í embætti en hann var for-
setaefni stjórnarandstöðunnar
árið 2010.
Bales Hermaðurinn sem myrti 16 saklausa borgara er kvæntur, tveggja barna faðir.