Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Síða 15
Erlent 15Mánudagur 19. mars 2012
n Robert Bales myrti 16 saklausa borgara á hrottalegan hátt
H
ann taldi að ef hann ætl-
aði sér að verða alvöru fót-
gönguliði í hernum þyrfti
hann að drepa.“ Þetta seg-
ir Daron Wyatt, yfirmað-
ur rannsóknardeildar lögreglunn-
ar í Anaheim í Bandaríkjunum, um
Itzcoatl „Izzy“ Ocampo, 23 ára, sem
hefur verið ákærður fyrir að myrða
sex einstaklinga; fjóra heimilislausa
karlmenn af handahófi, konu og son
hennar.
Fyrsta morðið framdi Ocampo
í október síðastliðnum og hélt svo
morðunum áfram allt þar til hann var
handtekinn í janúar. Bandaríska vef-
ritið The Daily Beast fjallaði ítarlega
um morðin á dögunum og skyggnd-
ist inn í sjúkan hugarheim Ocampos.
Umfjöllunin byggir að mestu á yfir-
heyrslum yfir Occampo.
Vildi læra að drepa
Daron Wyatt hefur farið með rann-
sókn málsins en Ocampo gekk fyrst
í bandaríska herinn árið 2006. Til-
gangur Ocampos með því að ganga í
herinn virðist aðeins hafa verið einn:
Að taka þátt í bardögum og læra
hvernig á að drepa. Hann gegndi
herþjónustu í Írak um sex mánaða
skeið. Hann varð þó fyrir verulegum
vonbrigðum með þann tíma þar sem
hann tók ekki þátt í neinum bardög-
um.
Ocampo lýsti því við yfirheyrslur
að hann hefði undirbúið sig vel áður
en hann framdi morðin. Þannig hefði
hann skoðað myndir af mannslíkam-
anum til að sjá hvernig væri best að
stinga fórnarlömb sín beint í hjarta-
stað. Þá tók hann ávallt með sér
aukaföt sem hann klæddi sig í eftir að
hafa myrt fórnarlömb sín. Ocampo,
sem fæddist í Mexíkó, skoðaði einn-
ig klámtímaritið Penthouse áður en
hann lét til skarar skríða.
Byrði á samfélaginu
Ástæða þess að Ocampo valdi að
myrða heimilislausa karlmenn er sú
að hann taldi þá vera byrði á sam-
félaginu, að sögn Wyatts. Þeir væru
berskjaldaðir og auðveldir að finna.
Hafði hann þá skoðun að hann væri
að gera samfélaginu greiða með því
að losa það við þá og leit á það sem
skyldu sína.
Samkvæmt yfirheyrsluskjölum
sem The Daily Beast vitnar til leið
honum sem „sönnum landgöngu-
liða“ þegar hann var búinn að
myrða fyrstu fórnarlömb sín, Ra-
quel Pacheco, 53 ára, og son henn-
ar, Juan Herrera, sem var 34 ára.
Þau voru stungin til bana á heim-
ili sínu þann 18. október í fyrra. Í
yfirheyrslunum sagði Ocampo að
ástæðan væri sú að þau „hefðu
verið með stæla og stundum ekki
heilsað honum“. Ocampo þekkti
þau bæði enda var hann ágætur
kunningi Eders Herrera, bróður
Juans Herrera og sonar Raquel.
Í kjölfarið fylgdu fjögur morð
sem fyrr segir og í öllum tilfellum
var um að ræða heimilislausa karl-
menn í Orange-sýslu í Kaliforníu.
Ætlaði að myrða 16
Ocampo lýsti því yfir við yfirheyrslur
að hann hefði viljað myrða sextán
manns í það heila. Vildi hann líkja
eftir Charles Whitman, fyrrverandi
hermanni sem myrti 16 manns og
særði 32 í skotárás í Texas árið 1966.
Whitman valdi fórnarlömb sín af
handahófi og skaut á þau úr turni
skammt frá heimavist við háskólann
í Austin. Ocampo tókst þó ekki ætl-
unarverk sitt því hann var handtek-
inn þegar öryggismyndavélar náðu
myndum af honum og bíl hans.
Eftir að hafa myrt mæðginin þann
18. október myrti Ocampo James
McGillvray, sem var 53 ára. Hann
stakk manninn til bana fyrir utan
verslunarmiðstöð en Ocampo réðst
á fórnarlamb sitt meðan það svaf.
Sjö dögum síðar myrti hann 42
ára karlmann, Lloyd Middaugh. Eftir
morðið kom Ocampo við í 7-Eleven
verslun og keypti sér þurrkað kjöt og
gekk svo heim til sín. Því næst beindi
hann spjótum sínum að 57 ára karl-
manni, Paulus Smit, sem hann lædd-
ist upp að og stakk mörgum sinnum.
Síðasta morðið framdi hann 13.
janúar þegar hann myrti 64 ára karl-
mann, John Berry, eftir að hann sá
mynd af honum í Los Angeles Ti-
mes. Blaðið hafði fjallað um morð-
in og við umfjöllunina birtist mynd
af Berry. Hann ákvað að leita hann
uppi og fann hann fyrir utan veit-
ingastað. Hann ákvað að bíða með
að láta til skarar skríða þar sem of
margir voru á ferli. Hann leitaði
hans því aftur daginn eftir og lét þá
til skarar skríða. Hann stakk Berry
mörgum sinnum en gætti ekki að
því að vitni var að atburðinum. Vitn-
ið lét lögreglu vita og var Ocampo
handtekinn síðar um kvöldið, útat-
aður í blóði.
Sér ekki eftir morðunum
Við yfirheyrslur var Ocampo
spurður að því hvort hann sæi eft-
ir því að hafa myrt fórnarlömb sín.
Hann sagði að „… í rauninni sæi
hann ekki eftir neinu þótt hann
vonaði að fórnarlömbin myndu
hvíla í friði.“ Verjandi Ocampos
lýsti því yfir þegar málið var dóm-
tekið fyrir skemmstu að skjólstæð-
ingur hans þjáðist af áfallastreit-
uröskun eftir veruna í Írak. Málið
verður næst tekið fyrir þann 20.
apríl næstkomandi en dóms er
ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi
næsta haust.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Þá tók hann ávallt
með sér aukaföt
sem hann klæddi sig í
eftir að hafa myrt fórnar-
lömb sín.
Gekk í herinn til að
Gerast morðinGi
Ætlaði að læra að drepa Ocampo vildi læra að drepa í hernum. Hann myrti fjóra heimilislausa karlmenn og taldi sig vera að gera
samfélaginu greiða. Mynd ReuteRS
n Myrti heimilislausa karlmenn í Kaliforníu n Taldi þá vera byrði á samfélaginu