Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Page 24
Gylfi Þór óstöðvandi
n Rodgers vill fá Gylfa til frambúðar
G
ylfi Þór Sigurðsson,
landsliðsmaður í fót-
bolta, heldur áfram
að fara á kostum með
Swansea í ensku úrvalsdeild-
inni. Gylfi skoraði tvö mörk í
3–0 útisigri velska liðsins á Ful-
ham en Lundúnaliðið hefur
verið afar erfitt heim að sækja
á Craven Cottage. Gylfi skoraði
með skalla af stuttu færi í fyrri
hálfleik og lagði svo boltann
snyrtilega í netið með hægri
fæti eftir frábæra sókn Swan-
sea.
Gylfi hefur nú skorað fimm
mörk í níu leikjum með Swan-
sea og þess utan gefið tvær
stoðsendingar. Brendan Rod-
gers, stjóri Swansea, fer ekki
lengur í neinar grafgötur með
það að hann vill frá Gylfa til
frambúðar frá þýska liðinu
Hoffenheim.
„Við höfum talað við um-
boðsmann hans og ég hef gert
formanni liðsins grein fyrir því
hvað ég vil gera. En þegar allt
kemur til alls þá er það undir
Hoffenheim komið hvort það
vilji selja Gylfa. Við þurfum
miðjumann sem skorar mörk
og Gylfi hefur smellpassað
inn í leikmannahópinn,“ sagði
Brendan Rodgers í viðtali eftir
sigurinn.
Gylfi hefur skorað öll fimm
mörkin á útivelli en eftir komu
hans hefur útivallarárangur
Swansea snarlagast. Fyrir jól
vann liðið ekki einn útileik en
nú hefur það unnið fjóra af síð-
ustu sex. Swansea er nú kom-
ið með 39 stig og er endanlega
sloppið við fall.
Walesverjarnir geta frek-
ar farið að horfa upp á við og
jafnvel blandað sér í baráttu
um Evrópusæti því aðeins eru
þrjú stig í Liverpool sem á þó
leik til góða. Ævintýri Swan-
sea og Brendan Rodgers held-
ur allavega áfram því ljóst er að
velska liðið verður áfram í úr-
valsdeildinni á næsta tímabili.
Svo mikið er víst.
24 Sport 19. mars 2012 Mánudagur
3–0 Gylfi fagnar með
liðsfélögum sínum.
M
cLaren-menn byrja
tímabilið í Formúlu
1 af krafti en Jenson
Button vann fyrstu
keppni ársins í Ástr-
alíu árla sunnudagsmorguns.
Button hóf leik annar á rásl-
ínu en liðsfélagi hans, Lewis
Hamilton, var á ráspól. Hamil-
ton þurfti þó að sætta sig við
þriðja sætið eftir að hafa misst
bæði Button og heimsmeist-
arann Sebastian Vettel fram
úr sér snemma í keppninni.
Vettel varð annar og liðsfélagi
hans á Red Bull, Mark Webber,
varð fjórði. Svisslendingur-
inn Romain Grosjean á Lotus,
sem kom öllum á óvart með
að ræsa þriðji, lenti í árekstri
strax á öðrum hring og féll úr
keppni.
Frábær byrjun á tímabilinu
„Það var mikilvægt fyrir okkur
að koma stigum á töfluna strax
í fyrstu keppni,“ sagði Jenson
Button sigurreifur á frétta-
mannafundi eftir keppnina. Í
fyrra stakk Sebastian Vettel á
Red Bull af eftir fyrstu keppn-
irnar og er fastlega búist því að
hann verði sterkastur í ár. „Við
höfum ekki verið svona sterk-
ir svona snemma á tímabilinu
áður. Þannig að allt í allt var
þetta frábær dagur,“ sagði But-
ton.
Ólíkt undanförnum tíma-
bilum leit McLaren-bíllinn vel
út á undirbúningstímabilinu
og var árangurinn í Melbourne
áframhald af góðu gengi í und-
irbúningi liðsins. „Síðustu ár
hafa fyrstu keppnirnar verið
okkur erfiðari. En núna erum
við augljóslega í góðu formi og
getum byggt á þessu strax. Ég
myndi bara ganga svo langt að
segja að við höfum verið lang-
bestir hér í Ástralíu. Þetta var
alveg frábær byrjun á tíma-
bilinu,“ sagði Button.
Alonso bjargaði Ferrari
Ferrari átti afskaplega erfiða
helgi í Ástralíu og hóf Fern-
ando Alonso keppni 16. á rásl-
ínu. Hann keyrði aftur á móti
frábærlega og endaði í fimmta
sæti og nældi því í nokkur stig
fyrir sig og liðið. „Ferrari er
alltaf Ferrari. Hinir bílarnir
eru kannski fljótari en við en
þetta er eins og þegar Manc-
hester United eða Chelsea eiga
slæma leiki. Þau vinna samt
alltaf, 1–0,“ sagði Alonso eftir
keppnina en hann var sáttur
við stigin.
„Augljóslega er ég ánægður
með úrslitin. Ég náði að tak-
marka skaðann fyrir okkur og
ná í nokkur stig. Þetta var erfið
helgi alveg frá upphafi til enda,“
bætti hann við. Liðsfélagi hans,
Felipe Massa, náði aftur á móti
ekki að ljúka keppni en hann
er undir mikilli pressu frá Ferr-
ari í ár eftir slakt tímabil í fyrra.
Standi hann sig ekki almenni-
lega eru litlar sem engar líkur á
að hann keyri Ferrari-bílinn á
næsta ári.
Ekkert óvænt
Eftir frábæran akstur í tíma-
tökum fylgdust margir
spenntir með Romain Grosj-
ean hjá Lotus en hann lenti í
árekstri þegar Pastor Maldo-
nado á Williams keyrði á
hann. Frönsku nýliðarn-
ir tveir áttu misjöfnu gengi
að fagna. Jean-Eric Vergne á
Toro Rosso-bílnum náði ell-
efta sæti en Charles Pic hjá
Marussia varð síðastur eins og
búast mátti við.
Kimi Raikkonen náði sjö-
unda sæti í endurkomu sinni
í Formúluna. Hann bjóst ekki
við miklu fyrir fyrstu keppni
en eftir að henni var lokið
vildi hann meira. „Ég hefði
auðveldlega getað gert betur.
Ég byrjaði vel og komst vel í
gegnum traffíkina sem mynd-
aðist. Mér líður eins og ég hafi
aldrei yfirgefið Formúluna,“
sagði Finninn fljúgandi.
n Góður dagur hjá McLaren í Ástralíu n Ferrari sterkara en haldið var
Jenson Button
fagnar fyrstur
Lokastaðan
í Ástralíu
Ökuþór Lið
1. Jenson Button McLaren
2. Sebastian Vettel Red Bull
3. Lewis Hamilton McLaren
4. Mark Webber Red Bull
5. Fernando Alonso Ferrari
6. Kamui Kobayashi Sauber
7. Kimi Raikkonen Lotus
8. Sergio Perez Sauber
9. Daniel Ricciardo Toro Rosso
10. Paul Di Resta Force India
11. Jean-Eric Vergne Toro Rosso
12. Nico Rosberg Mercedes
13. Pastor Maldonado Williams
14. Timo Glock Marussia
15. Charles Pic Marussia
Aðrir kláruðu ekki
Fyrstur Jenson Button vann fyrstu keppni ársins. Mynd REutERs
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Formúla 1
Ásdís
sjöunda
Spjótkastarinn Ásdís Hjálms-
dóttir úr Ármanni byrjaði
keppnistímabilið vel á sterku
kastmóti sem haldið var í
Svartfjallalandi um helgina.
Ásdís kastaði lengst 57,65
metra. Hún varð í sjöunda
sæti af alls nítján keppend-
um en tólf af þessum nítján
hafa kastað yfir 60 metra.
Þarna voru tvær af þeim kon-
um sem kastað hafa lengst
í ár. Lengst hefur Ásdís sjálf
kastað 61,37 metra og er það
að sjálfsögðu Íslandsmet.
Mótið var liður í undirbún-
ingi Ásdísar fyrir Ólympíu-
leikana í Lundúnum en hún
hefur nú þegar náð lágmarki
fyrir þá.
Stórleikur
í Digranesi
Nítjánda umferðin í N1-deild
karla í handbolta verður leik-
in í heild sinni í kvöld, mánu-
dagskvöld. Þar ber hæst leik
liðanna í 2. og 3. sæti, Hauka
og HK, en hann fer fram í
Digranesi. Með sigri geta HK-
ingar jafnað Hauka að stigum
en topplið FH heimsækir
sjóðheita Akureyringa. Vals-
menn, sem þurfa nauðsyn-
lega að vinna alla þá þrjá leiki
sem eftir eru, taka á móti
Aftureldingu í Vodafone-höll-
inni. Framarar heimsækja svo
botnlið Gróttu. Allir leikirnir
hefjast klukkan 19.30 fyrir
utan leikinn fyrir norðan sem
hefst á slaginu sjö.
Næstsíðasta
umferðin
klárast
Deildarkeppninni í Iceland
Express-deildinni er við það
að ljúka en seinni helming-
ur 21. umferðarinnar verður
spilaður í kvöld, mánudags-
kvöld. Þá tekur Njarðvík á
móti nýkrýndum deildar-
meisturum Grindavíkur í
Ljónagryfjunni, spútniklið
Þórs frá Þorlákshöfn fær
botnlið Vals í heimsókn og ÍR
heimsækir Keflvíkinga. Allir
leikirnir hefjast klukkan 19.15.