Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2012, Síða 25
Sport 25Mánudagur 19. mars 2012
F
ótboltaheimurinn sam-
einast þessa stund-
ina í bæn fyrir Fabrice
Muamba, leikmanni
Bolton, sem hneig nið-
ur í bikarleik liðsins gegn Tot-
tenham á laugardagskvöld-
ið. Muamba fór í hjartastopp
þegar nokkrar mínútur voru
eftir af fyrri hálfleik og horfðu
30 þúsund áhorfendur á White
Hart Lane og milljónir útu um
heim allan skelkaðar á þennan
unga pilt umkringdan lækn-
um og sjúkraliði þar sem það
reyndi að koma hjartanu aftur
af stað úti á miðjum vellinum.
Hann var á endanum fluttur á
sjúkrahús þar sem hann er nú
á gjörgæslu og berst fyrir lífi
sínu. Howard Webb, dómari
leiksins, flautaði hann af og þá
hefur Bolton fengið að fresta
næsta leik sínum sem átti að
vera gegn Aston Villa á þriðju-
dagskvöldið.
Mikill baráttumaður
Fabrice Muamba er fæddur
í Kinshasa, höfuðborg Saír.
Hann ólst upp í miðri borg-
arastyrjöld og þurfti oft í æsku
sinni að flýja kúlnahríð. „Það
hindraði okkur í að spila fót-
bolta því við vorum hræddir
um að verða drepnir. Nokkrir
vina minna slösuðust í styrj-
öldinni,“ sagði Muamba um
æsku sína í viðtali við The Gu-
ardian í fyrra. Fabrice vakn-
aði aftur á móti einn morgun-
inn við það að faðir hans sagði
að hann ætlaði út. Í rauninni
fór hann alla leið til Bretlands
þar sem hann sótti um póli-
tískt hæli. Það var svo ekki fyrr
en í desember árið 1999 sem
Fabrice og restin af fjölskyld-
unni fengu að koma til Lund-
úna líka.
Fabrice Muamba hefur
þurft að yfirstíga margt á sinni
ævi og hefur hann alltaf bar-
ist eins og ljón. Hann gefur
sig alltaf allan í hvern einasta
leik. „Ég er ekki hæfileikarík-
asti fótboltamaður sem til er
en ég veit hvað ég þarf að gera
til að halda mér þar sem ég er.
Og það mun ég halda áfram að
gera. Ég verð bara að berjast og
halda áfram að hafa gaman.
Ég vil njóta alls þess sem lífið
getur gefið mér,“ sagði hann í
sama viðtali en erfiðasta bar-
átta hans til þessa stendur nú
yfir.
Mætti óboðinn á æfingu
hjá Arsenal
Muamba hóf feril sinn á Eng-
landi í unglingastarfi Arsenal
en það var ekki vegna þess að
útsendarar liðsins höfðu séð
hann spila. Wimbledon hafði
áhuga á pilti en sjálfur vildi
hann ekkert annað fara en til
Arsenal. Hann tók því upp á
því að mæta á æfingasvæði
Arsenal og biðja um að fá að
fara á reynslu. „Við stundum
það ekki að hleypa hverjum
sem er á reynslu en hann var
svo sannfærandi og yndisleg-
ur piltur að við gáfum honum
tækifæri,“ segir David Court,
næstráðandi í unglingastarfi
Arsenal, í viðtali við AP.
„Fabrice er einn af þessum
krökkum sem þrá það að ganga
vel og eru tilbúnir að gera allt
sem hann er beðinn um. Hann
vill alltaf verða betri. Fabrice er
yndislegur strákur, svo einlæg-
ur og hlýr,“ segir Court. Aðeins
einu sinni var Muamba með
uppsteyt á æfingu og sá hann
eftir því strax. „Einu sinni bað
ég hann um að spila miðvörð
og hann setti upp fýlusvip. Ég
sagði honum þá bara að fara
inn í hús ef hann vildi ekki
spila. En svona fimm mínútum
síðar kom hann aftur og baðst
innilega afsökunar. Þetta gerð-
ist aldrei aftur. Það elskuðu all-
ir Muamba hjá Arsenal,“ segir
David Court.
Fótboltaheimurinn
sameinast
Stuðningsmenn bæði Totten-
ham og Bolton sungu nafn
Fabrice Muamba hástöfum á
meðan þeir stóðu í óvissunni
á White Hart Lane á laugar-
dagskvöldið. Það leið ekki á
löngu þar til allar helstu stjörn-
ur ensku úrvalsdeildarinnar
voru farnar að senda honum
batakveðjur á samskiptavefn-
um Twitter og fótboltaþáttur-
inn Match of the day byrjaði á
dramatískum nótum á laugar-
dagskvöldið þar sem Muamba
voru sendar batakveðjur.
Leikir sunnudagsins hófust
svo allir með mínútu lófataki
og í Leeds var nafn Muamba
sungið hátt og lengi. Það var
svo við hæfi að fyrrverandi
liðsfélagi Muamba hjá Bot-
lon, Gary Cahill, skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Chelsea í bik-
arleik liðsins gegn Leicester á
sunnudaginn. Hann var ekki
lengi að rífa sig úr treyjunni en
undir henni var hann í bol þar
rituð voru einkunnarorð fót-
boltans þessa dagana: „Pray
4 Muamba“ eða „Biðjið fyrir
Muamba“.
n Fabrice Muamba hneig niður í bikarleik n Berst fyrir lífi sínu á gjörgæslu
Beðið fyrir MuaMBa
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti
Skelfilegt
Muamba steinlá
á vellinum.
Með von um skjótan bata Blóm og kransar hafa verið lagðir við sjúkrahúsið og leikvang Bolton.
Beðið fyrir Muamba Gary Cahill
spilaði með honum hjá Bolton.
Treyjan „Láttu þér batna.“
Stóru liðin
áfram
Liverpool og Chelsea kom-
ust bæði í undanúrslit ensku
bikarkeppninnar á sunnu-
daginn.
Chelsea lagði
Leicester
á heima-
velli, 5–2, og
Liverpool
vann Stoke,
2–1, þar sem
Stewart Downing af öllum
mönnum skoraði sigurmark-
ið. Everton og Sunderland
þurfa að mætast aftur eftir
jafntefli á Goodison Park og
þá þarf að endurtaka leik
Tottenham og Bolton sem
var stöðvaður vegna atviks-
ins með Fabrice Muamba.
Úrslit
Enski bikarinn
Everton - Sunderland 1-1
0-1 Phil Bardsley (12.), 1-1 Tim Cahill (22.).
Tottenham - Bolton Leik hætt
0-1 Gareth Bale (6. sm), 1-1 Kyle Walker (10.).
Chelsea - Leicester 5-2
1-0 Gary Cahill (11.), 2-0 Salomon Kalou
(16.), 3-0 Fernando Torres (66.), 3-1
Jermaine Beckford (76.), 4-2 Ben Marshall
(87.), 5-2 Raul Meireles (90.+1).
Liverpool - Stoke 2-1
1-0 Luis Suarez (23.), 1-1 Peter Crouch (25.),
2-1 Stewart Downing (56.).
Enska úrvalsdeildin
Fulham - Swansea 0-3
0-1 Gylfi Þór Sigurðsson (36.), 0-2 Gylfi Þór
Sigurðsson (65.), 0-3 Joe Allen (76.).
Wigan - WBA 1-1
1-0 James McArthur (53.), Paul Scharner (64.).
Úlfarnir - Man. United 0-5
0-1 Jonny Evans (20.), 0-2 Antonio Valencia
(42.), 0-3 Danny Welbeck (45.+1), 0-4 Javier
Hernandez (55.), 0-5 Javier Hernandez
(61.). n Ronald Zubar, Úlfarnir (38.).
Newcastle - Norwich 1-0
1-0 Papiss Demba Cisse (10.).
Staðan
1 Man. Utd 29 22 4 3 73:27 70
2 Man. City 28 21 3 4 69:20 66
3 Tottenham 28 16 5 7 52:34 53
4 Arsenal 28 16 4 8 57:39 52
5 Chelsea 28 14 7 7 48:32 49
6 Newcastle 29 13 8 8 41:41 47
7 Liverpool 28 11 9 8 33:26 42
8 Swansea 29 10 9 10 34:34 39
9 Sunderland 28 10 7 11 36:31 37
10 Everton 28 10 7 11 28:31 37
11 Fulham 29 9 9 11 37:40 36
12 WBA 29 10 6 13 35:38 36
13 Norwich 29 9 9 11 39:46 36
14 Stoke 28 10 6 12 27:39 36
15 Aston Villa 28 7 12 9 31:35 33
16 Blackburn 28 6 7 15 40:60 25
17 Bolton 28 7 2 19 31:57 23
18 QPR 28 5 7 16 29:48 22
19 Wigan 29 4 10 15 25:54 22
20 Wolves 29 5 7 17 30:63 22
Enska úrvalsdeildin
Barnsley - Reading 0-4
Birmingham - Middlesbr. 3-0
Blackpool - Brighton 3-1
Crystal Palace - Hull 0-0
Doncaster - Derby 1-2
Ipswich - Peterborough 3-2
Leeds - West Ham 1-1
Millwall - Southampton 2-3
Portsmouth - Bristol City 0-0
Watford - Coventry 0-0
Cardiff - Burnley 0-0
Staðan
1 Southampton 37 21 9 7 68:35 72
2 Reading 37 21 7 9 52:30 70
3 West Ham 36 19 10 7 56:35 67
4 Birmingham 36 16 11 9 58:36 59
5 Blackpool 37 16 11 10 62:50 59
6 Middlesbr. 36 16 11 9 43:40 59
7 Hull 36 16 10 10 37:28 58
8 Cardiff 37 15 13 9 54:47 58
9 Brighton 37 16 10 11 45:39 58
10 Leeds 37 15 9 13 55:50 54
11 Derby 37 15 7 15 41:48 52
12 Leicester 36 14 9 13 51:44 51
13 Cr.Palace 36 12 14 10 36:32 50
14 Burnley 36 14 7 15 48:44 49
15 Ipswich 36 14 6 16 59:65 48
16 Watford 37 12 12 13 42:54 48
17 Barnsley 37 12 7 18 46:61 43
18 Peterborough 36 11 8 17 56:60 41
19 Millwall 37 9 10 18 41:53 37
20 Nottingham F. 36 10 5 21 33:55 35
21 Bristol City 37 9 8 20 32:59 35
22 Coventry 37 7 10 20 31:50 31
23 Doncaster 36 7 10 19 33:58 31
24 Portsmouth 36 9 10 17 34:40 27