Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Blaðsíða 10
„Eftirsjá mín Er Einlæg“
10 Fréttir 13.–15. apríl 2012 Helgarblað
GALLABUXUR
Verð
STUTTERMASKYRTUR
Verð
5990,-
4490,-
ÁVALLT VEL KLÆDDUR
AKUREYRI S:4627800. SMÁRALIND S:5659730. KRINGLUNNI S:5680800. LAUGAVEGI S:5629730
F
yrir tæpum tuttugu árum
urðu mér á mistök sem ég sé
enn eftir,“ segir Svavar Hall-
dórsson, sambýlismaður
Þóru Arnórsdóttur forseta-
frambjóðanda. Svavar svarar hér
dreifibréfi sem gengur manna á milli
og DV greindi frá á fimmtudags-
kvöld. Í bréfinu er rifjaður upp tutt-
ugu ára gamall líkamsárásardómur
yfir Svavari. Í bréfinu er sagt berum
orðum að maðurinn sem varð fyrir
árásinni hafi orðið alvarlega veikur
í kjölfar hennar, af ólæknanlegum
sjúkdómi. Hefur DV leitað álits lækn-
is sem segir að slíkt geti ekki staðist.
Heimildir DV herma að innan her-
búða stuðningsmanna Þóru sé það
litið alvarlegum augum að bréf þetta
gangi manna á milli en í kjölfar um-
fjöllunar DV sendi Svavar frá sér yfir-
lýsingu.
Braut tvær tennur
Svavar var dæmdur vegna líkams-
árásarinnar árið 1993. Hann var þá
23 ára og árásin átti sér stað árið
áður. Í líkamsárásinni brotnuðu tvær
tennur í manninum sem er jafnaldri
Svavars. Í yfirlýsingu sem Svavar hef-
ur nú sent frá sér segist hann gera sér
grein fyrir alvarleika árásarinnar. „Ég
geri mér fulla grein fyrir því að það
sem ég gerði honum var verulega
slæmt og eftirsjá mín er einlæg. Þetta
er líklega það versta sem ég hef nokk-
urn tímann gert nokkrum manni
á ævi minni.“ Svavar var dæmdur
í tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi vegna árásarinnar og gert að
greiða skaðabætur vegna hennar.
Blöskra ásakanir
Það sem fer fyrir brjóstið á fólki er að
í bréfinu eru annars vegar ásakanir
á Svavar tengdar hrörnunarsjúk-
dómi sem maðurinn glímir við og
hins vegar að sagt er berum orðum
að Svavar hafi ekki greitt miskabætur
sem honum bar að greiða vegna
málsins. Heimildir DV herma að það
sé rétt að skaðabætur hafi ekki verið
greiddar, en að málsaðilar hafi gert
með sér samkomulag þar að lútandi.
Leiðir Svavars og mannsins lágu
aftur saman síðar meir og hafa þeir
gert upp málið sín á milli. „Seinna
lágu leiðir okkar saman og við sætt-
umst. Mér er verulega hlýtt til þessa
manns og ég er honum þakklátur
fyrir hversu stórmannlega hann tók
afsökun minni,“ segir Svavar.
„En þetta var dómgreindarskort-
ur af minni hálfu,“ segir hann, „ef ég
gæti tekið þetta til baka þá myndi ég
gera það á svipstundu.“
Nú, þegar tæpir þrír mánuðir eru
til kosninga og sex frambjóðendur
hafa stigið fram, er ljóst að kosninga-
baráttan er hafin og að hún verður
hörð. Herbúðir frambjóðenda vinna
nú hörðum höndum að því að koma
sínum frambjóðanda á framfæri.
Hvert sem bréfið á rætur sínar að
rekja virðist sem aðilar víli ekki fyrir
sér að beita áróðursherferðum sem
þessari.
„Þetta verður leðjuslagur“
„Allt svona skaðar en engu að síður
gæti þetta orðið til þess að fólki
blöskri og þyki þetta fyrir neð-
an beltisstað og ákveði að styðja
hana,“ segir Jón Hákon Magnússon,
framkvæmdastjóri KOM almanna-
tengsla. Hann telur málið allt í raun
út í hött. Svavar hafi verið ungur
maður, ungir menn geri stundum
hluti sem þeir eiga ekki að gera, en
hann hafi beðist afsökunar, náð sátt-
um og þar með ætti málinu að vera
lokið.
„En það eru einhverjir andstæð-
ingar sem hugsanlega sjá tækifæri
til að höggva í hann,“ segir Jón Há-
kon. Fjöldapósturinn um Svavar
kemur honum ekki á óvart og hann
býst við að baráttan harðni enn.
„Það var alveg við þessu að búast.
En þetta ætti ekki að verða til þess að
hún fari ekki í framboð. Því miður
held ég að það verði allt dregið fram,
og ekki bara um Þóru. Þetta verð-
ur leðjuslagur, þó vonandi ekki jafn
slæmur og í Bandaríkjunum núna.“
„Þetta er líklega
það versta sem ég
hef nokkurn tímann gert
nokkrum manni á ævi
minni.
n Svavar fær kaldar kveðjur í dreifibréfi n „Verður leðjuslagur,“ segir almannatengill
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Kaldar kveðjur Svavari eru sendar kaldar kveðjur í bréfinu sem gengur manna á milli. Hann segist iðrast. mynd eyÞór árnason