Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Blaðsíða 42
42 13.–15. apríl 2012 Helgarblað
„Sýning sem þið megið
alls ekki missa af“Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Tengdó
eftir Val Frey Einarsson
„Ef þessi mynd snertir þig
ekki, þá ertu frá Kapítol“
The Hunger Games
SELDU FLEIRI PLÖTUR EN MADONNA
Hljómsveitin Of Monsters and Men náði í vikunni besta árangri
sem íslensk hljómsveit hefur náð á bandaríska Billboard-listan-
um. Uppselt er á alla tónleika hljómsveitarinnar í Bandaríkjunum
en aðeins tvö ár eru frá því þau unnu Músíktilraunir. 55 þúsund
plötur eru seldar í Bandaríkjunum og það á einni viku. DV kynnti sér
hljómsveitina og velgengni hennar.
Þ
au hafa náð að hitta
þráðbeint í mark,“
segir Arnar Eggert
Thoroddsen, blaða-
maður og tónlistar-
spekúlant, um árangur hljóm-
sveitarinnar Of Monsters
and Men í Bandaríkjunum.
Frægðarsól hljómsveitarinnar
hefur risið hratt undanfarið.
Platan My Head is an Ani-
mal hefur selst í 55 þúsund
eintökum síðan hún kom út í
Bandaríkjunum þann 3. apríl
síðastliðinn. Hún fór beint í
sjötta sæti Billboard-listans
í Bandaríkjunum yfir mest
seldu plötuna í öllum flokk-
um og í 1. sæti listans yfir
mest seldu rokkplöturnar. Það
þykir ótrúlegur árangur en á
sama tíma seldi söngkonan
Madonna 46 þúsund eintök
af sinni plötu sem kom út
tveimur vikum á undan plötu
Of Monsters and Men.
My Head Is an Animal sit-
ur nú í þriðja sæti vinsælda-
lista iTunes og er ofarlega á
sölulista vefjarins Amazon.
Þetta er með betri árangri
sem íslenskir tónlistarmenn
hafa náð í Bandaríkjunum en
Björk náði níunda sæti Bill-
board-listans með plötunni
Volta sem kom út 2007. Sigur
Rós náði 15. sæti listans með
plötu sinni Með suð í eyrum
við spilum endalaust.
Á mála hjá Universal
Saga hljómsveitarinnar hófst
fyrir alvöru þegar hún vann
Músíktilraunir fyrir aðeins
tveimur árum, eða árið 2010.
Hlutirnir hafa gerst hratt síð-
an. Sama ár var þeim boðið að
spila á Iceland Airwaves-tón-
listarhátíðinni og það var þar
sem útvarpsstöðin KEXP tók
upp lagið þeirra Little Talks.
Í febrúar í fyrra fengu þau
samning við Record Records
um útgáfu fyrstu plötu sinnar.
Fyrsta breiðskífa sveitarinnar,
My Head is an Animal, leit svo
dagsins ljós í september. Sum-
arið á undan var lagið Little
Talks vinsælasta lagið og voru
því margir sem biðu spennt-
ir eftir plötunni. Í kjölfarið
skrifuðu þau undir samn-
ing við Universal um útgáfu
plötunnar utan Íslands.
Meðlimir hljómsveitarinn-
ar eru sex talsins. Nanna Bryn-
dís Hilmarsdóttir er eina kon-
an en hún syngur og spilar á
gítar. Strákarnir eru svo fimm
talsins; þeir Ragnar Þórhallson
sem syngur og spilar á klukku-
spil og melódíku, Brynjar
Leifsson sem spilar á gítar,
Arnar Rósenkranz Hilmars son
á trommur, Kristján Páll Krist-
jánsson á bassa og Árni Guð-
jónsson á píanó og hljómborð.
Miklir vinir
Hljómsveitin varð til þegar
Nanna Bryndís fékk vini sína
til að spila undir hjá sér. Hún
hafði verið að spila undir
nafninu Songbird frá árinu
2007 sem var þá sólóverkefni
hennar. Hún fór svo í tón-
leikaferðalag með Trúbatrix-
um, kvenkyns trúbadorum,
og þróaði stíl sinn enn frek-
ar. Hún fékk síðan þá Brynj-
ar og Ragnar til að spila með
sér og úr varð hljómsveit.
Þau skiptu um nafn og tóku
þátt í Músíktilraunum og
sigruðu. Eftir Músíktilraunir
bættust hinir meðlimirnir
við sveitina. „Það besta við
þetta allt saman er hvað við
erum góðir vinir. Við eyðum
miklum tíma saman og ég
held það eigi eftir að styrkja
okkur nú þegar alvaran er
tekin við,“ sagði Nanna í við-
tali við DV í nóvember síð-
astliðnum.
Hljómsveitin var valin
Bjartasta von ársins 2011
í áramótablaði DV og þar
höfðu álitsgjafar með-
al annars þetta að segja:
„Diskurinn þeirra er frábær,
ég er búin að hlusta enda-
laust á hann og fæ aldrei
leið á honum. Ég hef mikla
trú á þessum krökkum og
hlakka mikið til næsta disks
frá þeim,“, „Eiga eftir að gera
góða hluti í framtíðinni,“ og:
„Einhver mest spennandi
hljómsveit síðustu ára. Ætla
að spá þeim heimsfrægð á
næstu árum.“ Hljómsveitin
hlaut einnig Menningar-
verðlaun DV fyrir árið 2011 í
flokki tónlistar.
Góður árangur
Bandaríkin eru oft talin ansi
erfiður markaður fyrir tón-
listarmenn að komast inn á.
Of Monsters and Men virðist
þó hafa það sem sem þarf til
að heilla bandarísku þjóðina.
„Þessi markaður þykir mjög
erfiður. Þetta eru 4–5 atriði
sem ganga upp og koma sam-
an. Svo er þetta oft bara eitt-
hvað í vindinum og oft er þetta
algjört happadrætti,“ segir
Arnar Eggert um velgengni
bandsins vestanhafs. „Þetta er
gríðarlega gott hjá þeim þó að
það sé kannski erfitt að bera
þetta saman við einhverja aðra
tíma í poppinu. Einhvern tím-
ann hefðu kannski 55 þúsund
seld eintök skilað 90. sæti en
þetta er þannig tími í plötu-
sölu að það er ekki beint hægt
að miða við það en þetta er
auðvitað mjög góður árangur,“
segir Gunnar Lárus Hjálmars-
son, eða Dr. Gunni eins og
hann er gjarnan kallaður.
Hljómsveitin er núna á
tónleikaferðalagi um Banda-
ríkin sem hófst á tónleika-
hátíðinni South by Southwest
13. mars og hefur hún spilað
á um 20 tónleikum og uppselt
hefur verið á þá alla.
Uppselt áður en var
auglýst
Hljómsveitin nýtur vinsælda
víða annars staðar en í Banda-
ríkjunum. „Þetta er besta tón-
listarútflutningsvara Íslands.
Þetta er eitt flottasta bandið
frá Íslandi þessa dagana,“
segir Róbert Aron Magnússon,
tengiliður Iceland Airwa-
ves-hátíðarinnar í London
og tónleikahaldari. Hann
segir gríðar legan áhuga vera á
bandinu en uppselt varð á ein-
um degi á tónleika með þeim
sem fram fara í maí í London
og Róbert stendur fyrir. „Ég
var ekki einu sinni byrjaður að
auglýsa að miðarnir væru til
sölu þegar það var orðið upp-
selt. Það er mjög óvenjulegt,
sérstaklega þar sem hljóm-
sveitin hefur ekkert verið
kynnt hér í Bretlandi. Þetta
voru ekki Íslendingar sem
voru að kaupa miðana, þeir
áttuðu sig ekki einu sinni á því
að þau væru að fara að spila.“
Magnaður umboðsmaður
Umboðsmaður hljómsveitar-
innar er Heather Kolker sem
starfar hjá umboðsskrifstof-
unni Paradigm Agency í New
York og hefur séð um tón-
leikabókanir fyrir hljómsveitir
á borð við MGMT og Edward
Sharpe & The Magnetic Ze-
ros. Of Monsters and Men er
þó fyrsta hljómsveitin sem
hún tekur að sér umboðs-
mennsku fyrir. „Heather er
svo ansi magnaður umboðs-
maður og með mjög skýra
sýn á tónleikaferðalag okkar
um Bandaríkin eftir áramót,“
sagði Nanna Bryndís um um-
boðsmanninn í fyrrnefndu
viðtali við DV.
„Heather, umboðsmað-
urinn þeirra, er frábær og
rosalega vel tengd, það hefur
hjálpað þeim mjög mikið en
það breytir því ekki að það er
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Viðtal
Hljómsveitin Hér eru meðlimir hljómsveitarinnar.
Nanna og strákarnir Nanna Bryndís stofnaði hljómsveitina en áður hafði
hún verið með sólóverkefnið Songbird.
„Þetta er tón-
list sem pass-
ar inn í ákveðinn stíl
sem er móðins núna.
Slær í gegn Hljómsveitin
gerir það gott í Bandaríkj-
unum og seldi 55 þúsund
eintök af plötunni sinni á
einni viku.
Platan My Head Is an Animal selst eins og heitar lummur í Bandaríkjunum.