Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Blaðsíða 43
43Helgarblað 13.–15. apríl 2012 „Besta sýningin á höfuð- borgarsvæðinu“ „Vel sungið á of stóru sviði“ Ævintýri Múnkhásens La Bohéme í Hörpu Uppáhaldsbíómyndin? „Hún er kannski ekki uppáhalds, en Rush Hour 2 hefur alltaf snert mig í hjartastað.“ Dóri DNA SELDU FLEIRI PLÖTUR EN MADONNA tónlistin þeirra sem selur og það skiptir mestu máli,“ segir Róbert og Arnar Eggert tekur í sama streng. „Þau eru með færan umboðsmann og góð- an útgefanda sem er lykillinn að þessu.“ Úr áhugamáli í alvöru „Þetta fór frá því að vera áhugamál í að vera þvílík al- vara,“ sagði Nanna Bryndís í viðtalinu. „Kröfurnar til okkar nú eru miklu meiri og við finnum alveg fyrir því. Við reynum að standa undir þeim en halda samt í ánægjuna af því að spila. Vel- gengnin hefur í raun komið okkur svolítið á óvart.“ Velgengnin er óumdeil- anleg en það þykir mjög góður árangur að ná inn á Bill board-listann í fyrstu til- raun. „Ég man ég talaði við krakkana þegar þau voru ný- búin að vinna Músíktilraunir og þetta var númer eitt hjá þeim og þau voru mjög þétt í þessu. Það skiptir öllu máli,“ segir Arnar Eggert. „Þetta eru held ég mjög heilsteyptir krakkar og það skiptir líka miklu máli,“ segir Róbert. Höfðar til fjöldans Tónlist Of Monsters and Men virðist höfða til fjöldans. „Þetta er tónlist sem smell- passar inn í ákveðinn stíl sem er mjög móðins núna,“ segir Arnar Eggert. „Þetta er ekk- ert nýtt „sound“ sem þau eru með en það virkar. Svo eru þau bara vel spilandi og góð,“ segir Róbert um tónlistina. „Þessi bönd sem hingað til hafa slegið í gegn erlendis hafa verið með furðulega músík meðan þetta band er frekar „normal“. En við eigum svo alveg líka svona „mainstream“ velgengnisögu, Alda Björk til dæmis með Real Good Time,“ segir Dr. Gunni. Erlendir gagnrýnendur hafa hrósað bandinu í há- stert og binda vonir við það. Sölutölur þessa fyrstu viku í Bandaríkjunum virðast líka gefa skýr skilaboð um að hljómsveitin höfði til fjöldans. Álög sem fylgja annarri plötu En er velgengnin komin til að vera í þessum óútreiknanlega bransa sem tónlistarheim- urinn er? Að mati þeirra sem DV talaði við er ómögulegt að spá fyrir um slíkt en nauðsyn- legt er að halda rétt á spil- unum í framhaldinu. „Músík- bransinn er eiginlega orðinn þannig í dag að það er bara ein plata á band. Það er svo mikil nýjungagirni og áhersla á að allir séu ungir og ferskir. Það þarf ekkert að vera að það verði eitthvað meira en svo eru alltaf bönd sem komast áfram í næsta borð ef við töl- um um þetta eins og tölvuleik. Þær þróast þá og breytast en hjakka ekki í sömu músíkinni en auðvitað er alltof snemmt að vera að pæla í því núna heldur á bara að fagna því sem er í hendi,“ segir Dr. Gunni. „Þetta er auðvitað fyrsti túr- inn og allt að gerast á fullu og með því að komast inn á lista eru þau komin inn á einhverja skrá. Maður skilur vel að fólk sé æst yfir þessu núna en það þarf að sjá hvað gerist á næstu miss- erum. Það er oft talað um viss álög sem fylgja plötu númer tvö þegar fyrsta platan geng- ur svona vel, þá eru komnar ákveðnar væntingar. En það er bara að anda með nefinu og sjá hvað gerist,“ segir Arnar Eggert.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.