Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Blaðsíða 46
46 Lífsstíll 13.–15. apríl 2012 Helgarblað
Æ
tli ég hafi ekki feng-
ið metnaðinn úr sam-
kvæmisdansinum sem
ég stundaði af kappi
þegar ég var lítil. Ég er
mikil keppnismanneskja og verð
alltaf að að gera mitt allra besta í öllu
því sem ég tek mér fyrir hendur,“
segir Hrefna Rósa Sætran Jóhanns-
dóttir, kokkur og veitingahúsaeig-
andi.
Eldaði jólamatinn níu ára
Hrefna Rósa lærði kokkinn á veit-
ingastaðnum Apótekinu en hún út-
skrifaðist sem matreiðslumaður
árið 2004. Í dag er hún einn af eig-
endum Fiskmarkaðarins sem var
opnaður 2007 og Grillmarkaðarins
sem var opnaður í fyrra. Hún segist
hafa haft áhuga á mat og matreiðslu
frá því hún muni eftir sér.
„Ég var mjög ung þegar ég byrj-
aði að horfa á kokkaþætti og kaus
það sjónvarpsefni oft fram yfir
teiknimyndirnar. Ég var heldur ekki
há í loftinu þegar ég var farin að fikta
mig áfram í eldhúsinu og fékk til
dæmis að sjá um jólamatinn aðeins
níu ára gömul. Þá eldaði ég ham-
borgarhrygg með ananassneiðum
eftir uppskrift úr þætti Sigga Hall. Ég
hafði lært þáttinn utan að og útkom-
an var mjög góð,“ segir Hrefna Rósa.
Henni datt þó ekki í hug að læra fag-
ið fyrr en hún var orðin tvítug.
Leist ekki á þessa stelpu
„Það voru ekki margar konur sem
voru áberandi kokkar. Ég hélt örugg-
lega að þetta væri bara karlastarf,“
segir Hefna Rósa og bætir við að hún
hafi lagt enn meira á sig fyrir vikið.
„Þegar ég var að leita mér að samn-
ingi leist ekki öllum á þessa stelpu
en ég endaði á að fá vinnu á Apótek-
inu. Þeim fannst ég standa mig vel
og þeir tóku mig svo inn sem nema.
Mér fannst ég þurfa að vera ennþá
duglegri af því að ég var stelpa.
Kannski var það bara frá sjálfri mér
komið en mér leið allavega þannig.
Þetta getur verið erfið vinna og
þá sérstaklega þegar maður er að
byrja – þá er maður í því að ganga
frá, sigta soð í allt að 120 lítra pottum
fullum af beinum og vatni, ganga
frá stórum hveiti- og sykurpokum
og standa í margar klukkustundir.
Ég vildi að það væri ljóst að ég gæti
lyft þungu eins og strákarnir,“ segir
hún en viðurkennir að hafa oft verið
ansi þreytt eftir langar vaktir. „Í hálft
ár var ég alltaf þreytt. En svo kemst
þetta í vana.“
Bitnar á félagslífinu
Hrefna Rósa er fædd árið 1980. Hún
eyddi fyrstu tólf árunum í Breið-
holtinu en þaðan flutti fjölskyldan í
Grafarvoginn og tveimur árum síð-
ar í miðborgina. Foreldrar henn-
ar eru Sigrún Sætran, sem vinnur á
BUGL, og Jóhann Frímann Trausta-
son, sem rekur tískuvöruverslunina
Mótor í Kringlunni. Hún segist hafa
verið venjulegur unglingur en hafa
þó átt sín erfiðu tímabil.
„Það voru forréttindi að vera
unglingur í 101. Það átti mjög vel við
mig. Hér er svo mikið um að vera
og ég gat alltaf verið að kaupa mér
eitthvað gott að borða,“ segir Hrefna
sem býr enn í miðbænum með fjöl-
skyldu sinni.
Hún og kærastinn, Björn Árna-
son, urðu foreldrar þegar Bertram
Skuggi kom í heiminn fyrir sjö mán-
uðum og aðspurð segir hún lítið
mál að sameina móðurhlutverkið
við fyrirtækjareksturinn. „Ég á svo
góðan mann. Bjössi er ljósmyndari
og þegar það er mikið að gera hjá
mér tekur hann meira á sig. Ég næ
að gera allt sem ég gerði áður, svona
vinnulega séð – það er frekar að fé-
lagslífið verði út undan.“
Kann ekki að vera í fríi
Þau Björn eru ógift en fóru að vera
saman fyrir rúmum þremur árum.
„Við erum búin að
þekkjast síðan við vor-
um 17 ára og vorum þá
í sama vinahópnum.
En svo fór ég að vinna
á fullu og átti eiginlega
ekkert félagslíf frá því að
ég byrjaði í kokknum og
þar til ég kynntist hon-
um.
Við Bjössi erum
voða lík, höfum sama
húmor og erum oft að
hugsa það sama, sem
getur bæði verið fyndið
og þægilegt,“ segir hún
og bætir við að þótt
barneignir hafi ekki
verið planaðar hafi
Bertram Skuggi verið
velkominn í heiminn.
„Ég var þrítug þegar
hann fæddist og hefði ekki viljað
vera yngri. Mér finnst ég ennþá svo
ung,“ segir hún brosandi og bætir
við að móðurhlutverkið sé meiri
vinna en að hún hafi gert sér grein
fyrir.
„Ég tók mér barneignarfrí en var
ekki bara heima. Fyrsti göngutúr-
inn okkar var til dæmis niður á Fisk-
markað. Ég kann ekkert að vera í
fríi þótt ég væri alveg til í það,“ segir
hún og bætir við að það komi vel til
greina að eignast fleiri börn.
Mótandi að vera einbirni
„Áður en hann fæddist langaði mig
ekki til að eignast mörg börn og
fannst fín tilhugsun að hann yrði
einkabarn – eins og ég. En í dag er
ég alveg til í að eignast fleiri börn
en ekki alveg strax samt. Maður er
miklu bundnari í þessu en ég bjóst
við.
Ég hafði búist við erfiðum nótt-
um en hann hefur sofið allar nætur
frá tveggja mánaða aldri. Hins vegar
sefur hann mjög lítið á daginn. Þá
þarf að hafa mikið fyrir honum. En
hann er svo skemmtilegur að það er
ekkert mál,“ segir hún og bætir við
að sjálfri hafi hana aldrei langað í
systkini.
„Ég átti vinkonu sem bjó í sama
húsi og ég og við vorum nánast eins
og systur. Svo var mamma líka dug-
leg að spila við mig tölvuleiki auk
þess sem ég var mikið með ömmu
og afa en þau bjuggu í sömu blokk
svo ég var ekkert að pæla í því,“ segir
hún en játar að það hafi líklega mót-
að hana að vera einbirni.
„Ég var mikið með afa og ömmu
og lærði að bera virðingu fyrir mér
eldra fólki. Ég fór mikið út að borða
með mömmu, pabba, ömmu og afa
og sat þá kyrr og borðaði með þeim
en var ekki hlaupandi út um allt.“
Fyrirmynd ungra kvenna
Hrefna Rósa segir að sér hafi strax
verið ljóst að hún vildi reka eigin
veitingastað. „Ég stefndi markvisst
að því og sagði eigendum Sjávar-
kjallarans strax frá því þegar ég byrj-
aði þar. Þegar annar eigandinn hætti
opnuðum við svo saman Fiskmark-
aðinn. Þá var ég komin með orð á
mig fyrir sérstakan stíl og mig lang-
aði að taka þann stíl alla leið,“ segir
Hrefna Rósa sem ferðast reglulega
um heiminn til að kynna sér það
nýjasta í matargerð.
Hún viðurkennir að hún sé sjálf-
sagt ákveðin fyrirmynd fyrir unga
krakka sem stefni á
nám í faginu og sér í
lagi stúlkur. „Það kem-
ur reglulega fyrir að
fólk kemur til mín eða
hringir og segir mér að
það eigi unga krakka
sem fylgist með mér og
langi að verða kokkar.
Ég er orðin svona Siggi
Hall,“ segir hún hlæjandi
og bætir við að hún sé
ánægð ef hún geti hjálp-
að og ef hún hafi opnað
einhverjar dyr fyrir konur
að faginu.
Vann frítt á frívöktum
Hún segir veitingarekstur
krefjast mikillar vinnu. „Í upphafi
unnum við langt fram á nótt og
mættum eldsnemma alla morgna.
Svoleiðis gekk það í heilt ár. Það er
mikil vinna að reka eigið fyrirtæki
og mikið af þeirri vinnu fer fram
áður en gestirnir koma á kvöld-
in. Það þarf til dæmis að undirbúa,
panta inn og gera rétti,“ segir Hrefna
Rósa sem er ekki óvön mikilli vinnu
því þegar hún var að læra vann hún
frítt á öðrum veitingahúsum þegar
hún átti frívakt og var því meira og
minna í kokkagallanum allan sólar-
hringinn.
Tekur ennþá vaktir
Hún segir bisnessinn ganga vel en
hún og Ágúst Reynisson eru með yfir
100 manns í vinnu. „Mig óraði aldrei
fyrir að ég ætti eftir að reka svona
stóran vinnustað. Við ætluðum bara
að opna einn lítinn og krúttlegan
stað en vorum svo heppin að fá nýtt
húsnæði í Lækjargötu. Það er mikið
að gera á báðum stöðum og allir eru
ánægðir og það skiptir mestu máli,“
segir hún og bætir við að hún taki
vaktir af og til.
„Það fer eftir því hvaða verkefni
eru á döfinni hjá mér. Þessa dagana
er ég að vinna að kokkabók fyrir
Hagkaup og þá er ekki mikill tími
til að gera eitthvað annað. Og það
sama er uppi á teningnum þegar við
erum að taka upp sjónvarpsþættina.
Ég hef samt alltaf jafn gaman af því
að mæta í hasarinn og finnst þetta
allt skemmtilegt.
Fjölbreytileikinn heldur manni
ferskum. Ég veit sjaldnast hvernig
dagurinn verður þegar ég vakna,“
segir hún og bætir aðspurð við að
það sé eflaust hægt að verða ríkur á
rekstri veitingahúsa á Íslandi. „Með
tímanum hugsa ég að það sé hægt.
Ef maður gerir þetta rétt. En við
erum í þessu af ást en ekki til þess að
vera rík.“
Alltaf betri og betri
Hrefna Rósa segist ekki hafa hugs-
að sig lengi um þegar henni bauðst
tækifæri til að stýra eigin mat-
reiðsluþætti en sjöunda serían af
Matarklúbbnum var að renna sitt
skeið. „Ég hafði stýrt mínum eig-
in kokkaþáttum inni á baði fyrir
framan spegilinn þegar ég var lítil
og þegar Skjár einn hafði samband
sagði ég bara já enda er ég já-mann-
eskja sem hefur gaman af því að
prófa eitthvað nýtt.
Ég vissi að ég hefði þekkinguna
í þetta en hafði ekki hugmynd um
hvernig ætti að bera sig að í sjón-
varpi en ákvað bara að vera ég sjálf
og gera mitt besta. Mér finnst ég
alltaf verða betri og betri. Í fyrstu gat
ég ekki horft á þetta og sat þá með
sængina fyrir augunum.“
Erfið við kærastann
Hún segir þau Björn skiptast á að
elda heima fyrir. „Ef við viljum vera
fljót að borða þá elda ég því ég er
svo fljót. En ef við viljum prófa eitt-
hvað nýtt þá eldar hann,“ segir hún
og viðurkennir að hafa oft verið erfið
við kærastann þegar hann hafi byrj-
að að prófa sig áfram í eldhúsinu.
„Ég veit ekki af hverju en ég var
alltaf að skipta mér af. Samt var
þetta alltaf gott hjá honum og í dag
er hann orðinn mjög góður kokkur.
Hann eldar yfirleitt þegar við fáum
gesti í mat þótt ég sé alltaf með putt-
ana í matnum líka.“
Þrífst best undir álagi
Hún segist geta leitað til foreldra
sinna með öll vandamál. „Þegar ég
tilkynnti pabba að ég ætlaði að fara
út í eigin rekstur benti hann mér á
að þetta yrði mjög mikil vinna svo
ég var undir það búin. Ég hef alltaf
getað spurt þau álits á því sem ég er
að brasa við hverja stundina. Bjössi
er líka með í einu og öllu sem ég
tek mér fyrir hendur og hefur alltaf
miklar og stórar skoðanir,“ segir hún
og bætir við að japanskur kokkur að
nafni Mori Moto sé fyrirmynd henn-
ar.
„Foreldrar mínir eru líka fyrir-
mynd mín. Þau hafa alltaf verið dug-
leg og eru góðar manneskjur,“ seg-
ir Hrefna Rósa og bætir við að hún
þrífist vel þegar álagið sé mikið. „Það
er gaman þegar það er mikið að gera
og allt gengur vel. Þá er ég ham-
ingjusöm. Annars þarf ekki mikið til
að gera mig hamingjusama.“ n
Drifin áfram af ást
Hrefna Rósa Sætran Jóhannsdóttir kokkur og
veitingahúsaeigandi var aðeins níu ára þegar hún
eldaði jólamatinn heima hjá sér. Hún var heldur ekki
há í loftinu þegar hún stjórnaði heilu kokkaþáttunum
fyrir framan spegilinn inni á baðherbergi. Hrefna
Rósa er mikil keppnismanneskja sem gerir sitt besta
í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur.
„Áður en hann
fæddist langaði
mig ekki til að eignast
mörg börn og fannst fín
tilhugsun um að hann yrði
einkabarn – eins og ég.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal
Fyrirmynd Hrefna Rósa leit upp til Sigga Hall þegar hún var barn en er nú sjálf orðin nokkurs konar Siggi Hall ungu kynslóðarinnar.