Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2012, Qupperneq 52
52 Lífsstíll 13.–15. apríl 2012 Helgarblað Skuldbinding Mánaðarverð Engin binding 3.091 kr. 3 mánuðir 2.944 kr. 6 mánuðir 2.688 kr. 12 mánuðir 2.473 kr. DV sent heim þrisvar í viku, á mánudögum, miðviku dögum og föstudögum. Netáskrift fylgir frítt með! Komdu í áskrift Það er ódýrara en þig grunar! Góð ráð fyrir fallegt hár Á stand hárs þíns segir mik- ið til um líkamlegt ástand þitt. Þjáist þú af vítamín- eða vökvaskorti, ert þú van- svefta eða stressaður fer það ekki á milli mála þegar hár þitt er skoðað. Hárið mun einfaldlega vaxa út líflaust og viðkvæmt. Því miður er skaðinn skeður og þú get- ur ekki lagað hárið sem er á hausn- um á þér. Þú getur hins vegar haft áhrif á hárið sem er að myndast og hvernig það mun koma út. Sértu með þunnt og fínt hár munt þú væntanlega aldrei verða með þykkt og mikið hár en þar sem hárið vex um það bil um 2 sentí- metra á mánuði getur þú gert ýmis- legt til að útkoman verði eins góð og mögulegt er. Árangurinn gæti jafnvel verið enn betri en þú hefur gert þér vonir um. Á poli tiken.dk eru gefin nokkur góð næringarráð sem þú getur haft í huga viljir þú bæta ástand hársins. Omega-3 Feitur fiskur eins og lax, makríll, síld og sardínur innihalda prótein og hollar omega-3 fitusýrur sem hafa sérstaklega góð áhrif á mynd- un hársins. Þær hjálpa til við að halda höfuðleðrinu heilbrigðu, að koma í veg fyrir húðþurrk og gefa hárinu glans. Eins eru til rann- sóknir sem sýna að fitusýrurnar hjálpi til við hárvöxtinn. Græn- metisætur fá hollar fitusýrur úr hörfræjum, hörfræjaolíu, rapsolíu, sojaolíu, valhnetum og valhnetu- olíu. Grænt grænmeti Grænmeti, eins og spínat og spergil kál, er góð uppspretta A- og C-vítamína sem hjálpa líkaman- um að framleiða húðfitu sem veitir húðinni náttúrulega næringu. Grænt grænmeti er auk þess ríkt af járni og kalsíum. Prótein Baunir, kjúklingur, fiskur, ostur, egg, korn, fræ, avókadó, döðlur og hnetur eru allt matvæli sem gefa þér mikið af próteini. Próteinið styrkir hárið og vöxt þess. Heilkornamatvæli Heilkornin innihalda sink, járn og B-vítamín sem eru góð næring fyrir hárið. Auk þess eru heilkornamat- vörur stór hluti af hollu mataræði meðal annars vegna þess að þau innihalda mettandi trefjar. Borð- aðu heilkornabrauð og notaðu heilkornamatvæli í matargerðina, svo sem pasta, hrísgrjón, morgun- korn og annað sem er gert úr heil- kornum. Vatn Húð og hár þurfa, líkt og restin af líkamanum, á vökva að halda. Þess vegna er mikilvægt að drekka mik- ið af vatni og takmarka neyslu á kaffi, te og áfengi sem eru vatns- losandi og auka líkur á vökvaskorti. Að auki þá inniheldur vatnið engar hitaeiningar og er besta ráðið til að slökkva þorstann. Gulrætur Gulræturnar eru stútfullar af A-víta míni sem hjálpar til við að fá heilbrigðan hársvörð og betri sjón. Mjólkurvörur Kalk er afar gagnlegt þegar við vilj- um setja auka kraft í hárvöxtinn. Auk þess eru góð prótein í mjólkur- vörum. n Mataræði okkar hefur jafn mikil áhrif á hár okkar og heilsuna Önnur góð ráð n Passaðu að fá nægan svefn. Fullorðnir þurfa að meðaltali 7 til 9 tíma svefn. Hættu í megrun. Þú getur farið á mis við ýmis nauðsynleg næringarefni ef þú ert á megrunarkúr. Borðaðu heldur hollan og fjölbreyttan mat á degi hverjum. Fáðu aðstoð fæðubótarefna. Það er best að borða hollan mat en ef þú færð, af ein- hverjum ástæðum, ekki nægilegt magn næringarefna úr matnum gæti þetta hjálpað. Mikilvæg næringarefni fyrir hárið eru; járn, sink, omega-3, kalk og mismunandi B-vítamín, svo sem bíótín. Heilbrigt hár Járn, sink, omega-3, kalk og mismunandi B- vítamín hefur áhrif á útlit hársins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.