Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2012, Blaðsíða 10
Lífeyrissjóðir græða á veiðum við afríku
n Gera út verksmiðjutogara í Máritaníu n 2,3 milljarða tekjur
N
okkrir af stærstu lífeyris-
sjóðum landsins eiga verk-
smiðjutogarann Blue Wave
sem veitt hefur fisk við vest-
urströnd Afríku frá árinu
2007. Lífeyrissjóðirnir sem um ræðir
eru Gildi, Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins, Lífeyrissjóður verslunar-
manna, Stapi, Stafir og Sameinaði
lífeyrissjóðurinn. Togarinn er því á
endanum að hluta til í eigu þeirra
einstaklinga – tugþúsunda Íslend-
inga – sem greiða af tekjum sínum í
þessa lífeyrissjóði.
Aðrir eigendur togarans eru fjár-
festingarbankinn Straumur, Gunn-
ar Sæmundsson, Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins, sem er í eigu íslenska
ríkisins, og Tryggingamiðstöðin.
Eignarhaldið á togaranum er í gegn-
um fjárfestingasjóðinn Brú II Vent-
ure Capital Fund, sem skrásettur er
í Lúxemborg, en er stýrt af Thule In-
vestments, sjóðsstýringarfyrirtæki
með aðsetur í Kringlunni.
Eignarhaldsfélagið sem á Blue
Wave heitir Blue Wave Ltd. og er
skráð í skattaskjólinu Jersey á Ermar-
sundi. Annað félag, Wave Operation
Ltd., er utan um reksturinn á skip-
inu en það er skráð í skattaskjólinu
Bresku Jómfrúaeyjum í Karíbahaf-
inu. Þetta kemur fram í gögnum um
stofnun félaganna tveggja sem send
voru til ríkisskattstjóra síðla árs 2007.
Stjórnarformaður þessara tveggja
félaga heitir Herdís Dröfn Fjeldsted
og er hún fyrrverandi starfsmaður
hjá Thule Investments og núverandi
starfsmaður Framtakssjóðs Íslands
sem er í eigu nokkurra íslenskra líf-
eyrissjóða, meðal annars þeirra sem
eiga í Blue Wave. Bæði eignarhaldið
á togaranum, og félagið sem heldur
utan um rekstur hans, er því í gegn-
um erlend skattaskjól.
Lausir við kvótakerfið
Blue Wave er 126 metra langur togari,
8.000 tonn og tekur um 2.300 tonn
af frystum fiski. Hann er smíðaður í
Þýskalandi árið 1988 og er skráður í
Mið-Ameríkuríkinu Belís. Blue Wave
er gerður út frá Kanaríeyjum líkt og
aðrir íslenskir togarar sem veiða við
strendur Vestur-Afríku. Togarinn
veiðir aðallega sardínu, sardínellu,
makríl og hestamakríl við strendur
Vestur-Afríku, aðallega Máritaníu.
Á sunnudaginn var Blue Wave
við veiðar úti fyrir strönd Máritaníu,
nánar tiltekið undan borginni Nou-
akchott, ásamt einum togara Sam-
herja, Geysi. 104 eru í áhöfn togar-
ans: 4 Íslendingar, 20 Máritanar og
80 Rússar. Skipstjórarnir á Blue Wave
eru báðir íslenskir og heitir annar
þeirra Árni Valdimar Þórðarson.
Í viðtali við vefsíðuna siglo.is, vef-
síðu sem fjallar um málefni Siglu-
fjarðar og Siglfirðinga, í fyrra greindi
Árni Valdimar frá því hvernig hann
hóf störf á skipinu. Árið var 2007 og
hann var hættur að starfa fyrir Sjóla-
skip við strendur Vestur-Afríku eftir
að Samherji hafði keypt útgerðina.
„Ég vissi eiginlega ekkert hvað ég ætti
að gera næst og var jafnvel að hugsa
um að drífa mig heim á grásleppu. Þá
bauðst mér að taka við skipi sem ís-
lenskir aðilar voru nýbúnir að kaupa
[…] Það var eitt af allmörgum skipum
sem Þjóðverjar smíðuðu um 1990
fyrir Rússa sem hluta af stríðsskaða-
bótunum sem þeir voru þá enn að
greiða. Ég er búinn að vera þarna um
borð síðan, eða um tvö ár og þessi
Afríkuár hafa verið minn skemmti-
legasti tími á sjó. Þarna eru veður-
farið gjörólíkt því sem við þekkjum af
Íslandsmiðum og svo er maður líka
laus við þetta bölvaða kvótakerfi eins
og það er hérna heima.“
Meira en 2,3 milljarða tekjur
DV leitaði til Herdísar Drafnar til að
spyrja hana um reksturinn á togar-
anum. Herdís segir reksturinn á
togaranum ganga ágætlega og að
tekjurnar af rekstri skipsins hafi
numið rúmlega tveimur milljörðum
króna í fyrra. Blue Wave var þó ekki
haffær í um þriggja mánaða skeið
vegna bilunar: „Ákvörðun um kaup
á skipinu Blue Wave var tekin af
stjórn sjóðsins Brú II Venture Capi-
tal Fund, S.C.A. SICAR. […] Rekstur-
inn á togaranum Blue Wave gengur
ágætlega þrátt fyrir að á haustmán-
uðum 2011 hafi skipið orðið fyrir
því óhappi að sveifarás brotnaði og
var í rekstrarstoppi í þrjá mánuði af
þeim sökum. Tekjur fyrir árið 2011
voru um 19 milljónir Bandaríkjadalir
og EBITDA um 1,5 milljónir Banda-
ríkjadala. Samhliða þessu stoppi
voru gerðar lagfæringar á skipinu.“
EBIDTA er hagnaður fyrir fjármagns-
liði og afskriftir.
Af þessu sést að afkoma af rekstri
Blue Wave var ekki mjög góð í fyrra,
meðal annars vegna bilunarinnar,
og má ætla að reksturinn hafi verið
á pari. Skipið hefur hins vegar skil-
að hagnaði síðastliðin ár samkvæmt
heimildum DV.
Herdís segir einnig að veiðigjöld-
in sem rekstrarfélag Blue Wave greiði
séu í samræmi við lög í Máritan-
íu – Blue Wave veiðir eingöngu úti
fyrir strönd þess lands en ekki við
Marokkó eða Vestur-Sahara. „Veiði-
gjald til Máritaníu er í samræmi við
lög og reglugerðir þar í landi. Á síð-
asta ári voru umtalsverðar fjárhæðir
greiddar í veiðigjöld en skipið var á
veiðum í 9 mánuði árið 2011.“ Herdís
segist ekki vilja gefa upp hversu há
veiðigjöld útgerðin greiddi til ríkis-
stjórnar Máritaníu þar sem hún viti
ekki hvort þær upplýsingar séu opin-
berar í Afríkuríkinu. Hún segir upp-
hæðina hins vegar vera verulega,
góðan bita af tekjum togarans. Jafn-
framt kemur fram í máli Herdísar að
íslenski togarinn veiði ekki í skjóli
Evrópusambandsins heldur hafi ver-
ið gerður samningur beint við yfir-
völd í Máritaníu.
Einn af eigendum Blue Wave,
Gunnar Sæmundsson, segir að hann
vilji lítið tjá sig um veiðar skipsins en
bendir þó á að um sé að ræða gott
skip. „Það er enn við veiðar. Þetta er
flottur togari.“
Rányrkja og viðbrögð
alþjóðasamfélagsins
DV hefur síðustu daga fjallað um
veiðar nokkurra íslenskra útgerðar-
fyrirtækja við strendur Vestur-Afr-
íku, meðal annars Sjólaskipa, Sam-
herja, Úthafsskipa og hins gjaldþrota
Sæblóms sem átti og rak þrjá togara
í Vestur-Sahara. Togarinn Blue Wave,
sem er í eigu íslenskra lífeyrissjóða
og stórfyrirtækja, bætist nú í þennan
hóp. Veiðarnar fara aðallega fram úti
fyrir ströndum Marokkó, Máritaníu
og Vestur-Sahara og byggja í ein-
hverjum tilfellum á samningum sem
Evrópusambandið hefur gert við
ríkisstjórnir Marokkó og Máritaníu.
Í skiptum fyrir veiðiréttindin hefur
sambandið greitt ríkis stjórnum land-
anna tugi milljóna evra á hverju ári.
Þær greiðslur nema þó ekki nema
litlum hluta af hagnaði útgerðanna
vegna veiðanna.
Veiðar erlendra fiskiskipa við
strendur Vestur-Afríku hafa verið
umdeildar um margra ára skeið en
tiltölulega lítið hefur verið fjallað um
þær hér á landi. Gagnrýnin á veið-
arnar byggir meðal annars á því að
um sé að ræða rányrkju stöndugra
þjóða á auðlindum fátækra þjóða í
þriðja heiminum.
Á heimasíðu WSRW, Western
Sahara Resource Watch, samtökum
sem fjalla um nýtingu erlendra þjóða
á auðlindum landsvæðisins Vestur-
Sahara fyrir sunnan Marokkó, segir
meðal annars um íslenska útgerð-
arfélagið Sæblóm. „Í mörg ár hafa
10 Fréttir 7. maí 2012 Mánudagur
„Reksturinn á
togaranum Blue
Wave gengur ágætlega.
Lífeyrissjóðir fjárfestu í Afríkuveiðum Meðal eigenda Blue Wave er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, en Haukur Hafsteinsson er
framkvæmdastjóri hans, og lífeyrissjóðurinn Gildi, sem stýrt er af Ágústi Guðmundssyni. Kaup togarans voru fjármögnuð af Landsbanka
Íslands og tók Nýi Landsbankinn við fjármögnuninni eftir hrun 2008. Steinþór Pálsson er bankastjóri Landsbankans.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is