Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2012, Blaðsíða 22
22 Menning 7. maí 2012 Mánudagur
Tvöfaldur skolli
Í
fyrra skrifaði ég dóm um
Tiger Woods PGA Tour 12
þar sem ég sagði framleið-
endur leiksins rétt hafa bjarg-
að pari. Einhverra hluta vegna,
andstætt hinni almennu þróun
hjá EA Sports, ákváðu þeir að
fara dýpra út í röffið, bak við tré
og lenda í tómu tjóni. Leikurinn
í ár er nefnilega í mestu vand-
ræðum með að ná tvöföldum
skolla.
Í fyrra var gulrótin, sem átti
að lokka golfáhugamenn að
leiknum, sú að loks var búið
að tryggja réttinn að Augusta
National-vellinum og Masters-
mótinu. Og allt snérist um það
löngu tímabæra dæmi. Í ár er
því miður ekkert sem að mínu
mati réttlætir það að maður
hreinlega uppfæri frá 12 upp í
13. Grafíkin er svo til sú sama,
það er komið nýtt sveiflukerfi
sem er gjörsamlega óþolandi og
reyndist hrein kvöl að ná tökum
á því eftir að maður var búinn
að fullkomna sveifluna í 12. Í
ár er kynnt til sögunnar „Tiger
Legacy“ sem í grófum dráttum
ert þú að spila Tiger Woods á
öllum stigum ferils hans. Alveg
frá því að hann var smápjakkur
í bakgarðinum
heima hjá sér yfir
í atvinnumennsk-
una. Þar snýst allt
um að leysa miserf-
iðar þrautir. Agalegt
vindhögg.
Grafíklega séð
hafa kylfingarnir í
leiknum verið bætt-
ir. Í fyrra gagnrýndi
ég gínulega golfar-
ana harðlega og var
ánægjulegt að sjá
bót þar á. Heilt yfir
er yfirbragðið á leiknum glæsi-
legt. Vellirnir fallegir og um-
gjörðin fín. Vellirnir eru reynd-
ar sér kapítuli út af fyrir sig. 20
af 36 völlum leiksins eru læstir.
Þessar læsingar eru ómerkilegt
peningaplokk sem neyðir spil-
ara til að kaupa sér aukavelli
eða í það minnsta aðgang að
þeim. Stór mínus þar.
Sem fyrr er langskemmti-
legast að byrja bara á nýjum
„ Carreer Mode“ og vinna sig
upp atvinnumannastigann.
Það hefur samt aldrei verið erf-
iðara með nýja sveiflukerfinu.
Hér eru flestar gulræturnar í
körfu EA Sports farnar að mygla
allhressilega. Ég kunni ágæt-
lega við leikinn í fyrra. Í ár ætla
ég heldur að næla mér í tvöfald-
an skolla úti á velli í sól og sum-
aryl en að pirra mig í sófanum
fyrir framan tölvuna.
Sigurður
Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Tónlist
Tiger Woods
PGA Tour 13
Tegund: Golfleikur
Spilast á: PS3
Tiger í tjóni Það er einhvern veginn of mikið sem fer úrskeiðis í Tiger Woods PGA Tour 13.
M
aður fær alveg nokk-
ur magasár en þetta
er allt að koma. Það
er að svo mörgu að
huga; muna alla text-
ana og reyna að fá ekki móð-
ursýkiskast af hræðslu og líka
spila á gítarinn,“ segir Þormóð-
ur Dagsson, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Tilbury, aðspurð-
ur hvernig sé að vera kominn
fremst á sviðið í stað þess að
vera aftast, bak við trommusett-
ið, eins og hann er vanur.
Faldi sig bak við
trommusettið
Þormóður hefur áður ver-
ið í hljómsveitunum Skakka-
manage, Jeff Who? og Hudson
Wayne þar sem hann spilaði á
trommur. Nú er hann hins vegar
komin í framlínuna og stýrir
af stakri snilld sínu nýjasta
hugarfóstri, hljómsveitinni
Tilbury.
„Ég hef alltaf falið mig
dálítið bak við trommusett-
ið en mér fannst ég nú samt
aldrei vera neinn tromm-
ari. Þegar ég spila heima
þá er ég meira að glamra á
gítar og píanó. Það vantaði
bara alltaf trommara í þær
hljómsveitir sem ég var í
þannig að ég keypti mér
bara trommusett á end-
anum,“ segir Þormóður
hlæjandi.
Formaður Dagsbrúnar
„Þetta byrjaði þannig að ég var
að leika mér að taka upp prufu-
tökur af lögum sem ég hafði ver-
ið að fikta við heima hjá mér. Ég
var komin með svona fjögur lög
þegar ég hitti hann Árna Rúnar
Hlöðversson, Árna plúseinn, og
hann tók upp með mér rafræna
grunna að þremur lögum,“ seg-
ir Þormóður sem kallaði verk-
efnið Formann Dagsbrúnar.
Hann spilaði lögin á Innipúk-
anum um verslunarmanna-
helgina en sá þá að það vantaði
eitthvað upp á til að fullkomna
hljóminn. „Þetta var ekki alveg
að virka svona, það þurfti eigin-
lega hljómsveit með.“ Hann
hóaði þá í Kristinn Evertsson,
Guðmund Óskar Guðmunds-
son, Örn Eldjárn og Magnús
Tryggvason Elíasen.
Viðtökurnar komu á óvart
„Þegar þeir voru allir komnir
þá varð þetta loksins tilbúið og
við sáttir með þetta,“ segir Þor-
móður.
Fyrsta lagið af væntanlegri
plötu fór í spilun fyrir nokkrum
vikum og hefur hlotið verð-
skuldaða athygli. Margir
tónlistarspekingar hafa lýst
yfir aðdáun sinni á laginu
sem ber nafnið Tenderlo-
in og Arnar Eggert Thor-
oddsen, poppfræðingur og
blaðamaður, gekk svo langt
að kalla það „uppgötvun árs-
ins í íslenskri tónlist.“
Viðtökurnar hafa komið
Þormóði á óvart. „Það kom
mjög á óvart hvað fólk tók
vel í þetta. Við bjuggumst alls
ekki við þessu, sérstaklega þar
sem við erum splunkunýtt band
og vissum ekkert almennilega
hvað við hefðum í höndunum.
Þegar maður er búinn að liggja
yfir þessu svona lengi þá skynjar
maður ekki lengur hvað maður
hefur í höndunum.“
Hlakkar til að fá viðbrögð
Platan kemur út í dag, mánu-
daginn 7. maí, og Þormóður
er spenntur fyrir útgáfunni.
Plötuna segir hann vera hugs-
aða sem heildarverk. „Þetta
er ákveðið heildarverk, það
er ákveðinn stígandi í þessu
og mikið samhengi. Hún nær
ákveðnu risi og það er pæl-
ing sem við lögðum upp með
að hafa góða heildarplötu. Ég
hlakka mikið til að leyfa fólki
að hlusta og fá viðbrögð,“ segir
hann.
viktoria@dv.is
Hlakkar til að
fá viðbrögð
n Tilbury sendir frá sér plötu í dag, mánudag n Viðtökurnar koma á óvart
Nýja platan Plata hljómsveitarinnar
heitir Exorcise.
Tilbury
Hljómsveitin
Tilbury
sendir frá sér
sína fyrstu
plötu í dag.
Spenntur Þormóður er spenntur fyrir
útgáfu nýju plötunnar en fyrsta lagið sem
fór í spilun hefur hlotið góðar viðtökur.
Kemur inn
af krafti
Nýtt bókaforlag kemur inn
af krafti í íslenskt samfé-
lag. Það er bókaforlagið
Draumsýn sem hefur gefið
út sína fyrstu bók, örsagna-
safnið Lukkunnar pamfíll
eftir norska rithöfundinn
Ari Behn, í þýðingu Sigurðar
Helgasonar.
Stofnendur forlagsins
eru Karitas K. Ólafsdótt-
ir og Örn Þ. Þorvarðarson
en Draumsýn mun leggja
megináherslu á að kynna ís-
lenskum lesendum góðar
norrænar bókmenntir fyrir
alla aldurshópa, ásamt völd-
um verkum frá öðrum mál-
svæðum.
Meðal þeirra norrænu
verka sem væntanleg eru
frá forlaginu eru norsku
skáldsögurnar Dagar i still-
hetens historie eftir Merethe
Lindstrøm, sem hlaut Bók-
menntaverðlaun Norður-
landaráðs í ár, Vidunder-
barn eftir Roy Jacobsen
og Så höyt var du elsket eftir
Nikolaj Frobenius.
GusGus spilar
og dansar
Íslenski dansflokkur-
inn og GusGus bjóða til
dansveislu, í samstarfi
við Hörpu og Listahátíð í
Reykjavík, þar sem sam-
einaðir eru kraftar ólíkra
listforma. Meðlimir GusGus
taka fullan þátt í verkinu
og dansa meðal annars á
sviðinu með dönsurum Ís-
lenska dansflokksins undir
nýrri frumsaminni tón-
list. Þá verða frumsýndar
stuttmyndir Reynis Lyng-
dals og Katrínar Hall. Dans-
veislan verður í boði tvo
daga á Listahátíð, 18. og 19.
maí.
Forsetaframboð
eykur eftirspurn
Ari Trausti Guðmundsson,
frambjóðandi til embættis
forseta Íslands, sækir mjög á
í skoðanakönnunum. Merki-
legt þótti hversu mikið fylgi
hann sótti fljótlega eftir að
hann tilkynnti um framboð
sitt. Þá vakti athygli að hann
kynnti nýútgefna ljóðabók
á framboðsfundi sínum.
Það hefur skilað árangri og
ljóst að framboðið eykur
eftirspurn því þrjár bóka Ara
Trausta hafa nú ratað á met-
sölulistalista Eymundson.