Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2012, Qupperneq 26
26 Fólk 7. maí 2012 Mánudagur
Ívar hættur í ræktinni
n Útvarpsmaðurinn stælti fórnarlamb vinnustaðahrekks
M
argir supu hveljur þegar
útvarpsmaðurinn hrausti
Ívar Guðmundsson á
Bylgjunni tilkynnti á fés
bókinni að hann væri
hættur að hreyfa sig. Eins og flest
ir vita er Ívar á kafi í líkamsrækt og
stæltur eftir því en hann og Arnar
Grant framleiða til að mynda pró
teindrykkinn Hámark. Fésbókar
færslan „er hættur í líkamsrækt að ei
lífu, nú verður sukkað það sem eftir
er“, vakti því mikla athygli vina hans
og einhverjir þóttust þess fullvissir að
útvarpsmaðurinn væri fórnarlamb
vinnustaðahrekks. Sannleikurinn
kom fljótlega í ljós þegar Ívar þakk
aði tæknimanninum Þráni Steinssyni
færsluna.
Vinnustaðahrekkir tengdir Face
book eru alltaf jafn vinsælir en fjöl
miðlamenn á borð við Helga Seljan
og Sigmar Guðmundsson úr Kast
ljósi hafa orðið fórnarlömb þeirra.
Helgi lenti í einum slíkum á síðasta
ári þegar óprúttinn samstarfsmað
ur komst inn í fésbókarsíðu hans og
tilkynnti um fjölgun í fjölskyldunni.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa og
á innan við 50 mínútum höfðu 64
aðilar kunnað að meta færsluna auk
óteljandi heillaóska. Lögmaðurinn
Katrín Oddsdóttir gerði einnig þau
mistök að standa upp frá opinni tölvu
sem varð til þess að á fésbókarsíðu
hennar voru eftirsóttir miðar á tón
leika Bjarkar auglýstir til sölu á helm
ingsafslætti. Katrín stóð í ströngu
það sem eftir lifði dags við að svara
pósti og símtölum frá æstum Bjarkar
aðdáendum sem líklega þótti brand
arinn ekkert voðalega fyndinn.
Flott
fyrirmynd
Leikarinn Ævar Þór Benedikts
son er vinsæll á meðal barna
eftir að hafa leikið vísindamann
inn í Stundinni okkar. Ævar Þór
leikur í forvarnarleikritinu Hvað
ef, en fjallað er um leikritið í SÁÁ
blaðinu. Þar kemur fram að Ævar
Þór sé einn þeirra sem hafi aldrei
byrjað að drekka áfengi. Ævar Þór,
sem lék líka í sjónvarpsþáttunum
Dagvaktinni, Rétti, Hæ Gosa og
Heimsenda, er því flott fyrirmynd
ungra krakka.
Komnar í
tískubransann
Manuela Ósk Harðardóttir og
Anna Lilja Johansen hafa stofnað
saman fyrirtæki sem framleiðir
tískufatnað undir merkinu Malla
Johansen. Manuela og Anna Lilja
kynntust fyrst þegar þær kepptu
báðar um titilinn ungfrú Reykjavík
árið 2002. Manuela var krýnd ung
frú Reykjavík en Anna Lilja var þá
valin ljósmyndafyrirsæta keppn
innar. Þær eru nánar vinkonur en
kærasti Önnu Lilju er Vilhjálmur
Vilhjálmsson lögfræðingur. Sá
hinn sami og kom Manuelu til
varnar í skilnaði hennar og fót
boltakappans Grétars Rafns.
Merkið kalla þær, sem fyrr seg
ir, Malla Johansen og fötin eiga að
vera unnin úr hágæðaefnum.
Árni Páll
varalitar sig
Árni Páll Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, mundaði vara
litinn líkt og vanur maður í verki á
yfirlitssýningu sem Ungir jafnað
armenn standa fyrir á kaffihúsinu
Sólon um þessar mundir. Sýningin
ber heitið Mál málanna og er
haldin til að vekja athygli á þeim
málum sem ríkisstjórnin hefur
komið í gegn á yfirstandandi kjör
tímabili. Fjölmargir þingmenn og
ráðherrar tóku sig til, varalituðu
sig og fengu sér sopa úr plastmáli.
Gjörningurinn var myndaður í
bak og fyrir og má sjá afraksturinn
á sýningunni.
Guðbjartur Hannesson velferð
arráðherra var til að mynda ekki
eftirbátur kollega síns, Árna Páls.
Hann tekur sig vel út skælbros
andi með bleikan varalit á einni
mynd á sýningunni.
Vöðvatröll Þráinn Steinsson hlýtur að teljast hugrakkur maður ef hann ber ábyrgð á að
hafa hrekkt Ívar.
n Fékk bókasamning hjá virtu bókaforlagi í Bretlandi
E
bba Guðný Guðmundsdóttir
er öllum Íslendingum kunn.
Hún hefur helgað sig nær
ingu og hollari lífsháttum
allrar fjölskyldunnar. Hún gaf
út bókina Hvað á ég að gefa barninu
mínu að borða? sem hefur reynst ís
lenskum foreldrum ómetanlegur fjár
sjóður í leitinni að hollari lífshátt
um og þá heldur hún úti vefsíðunni
pureebba.com þar sem hægt er að
finna myndbönd og girnilegar upp
skriftir. Ebba Guðný hefur ekki síður
hreyft við Íslendingum sem þraut
seig móðir en sonur hennar Hafliði
fæddist fótalaus og hefur hún leitað
allra leiða til að hann eigi sem besta
möguleika á gæfuríku lífi. Hún fluttist
meðal annars til Afríku um skeið þar
sem hún kynntist háttum fótalauss af
rekshlaupara og nýtti sér tækifærið og
lærði um afríska matargerð.
Les yfir samninga
Vinsældir Ebbu Guðnýjar hafa verið
miklar hér á landi og nú er heims
frægðin á næsta leiti. Ebba Guðný
hefur fengið bókasamning í Bret
landi hjá afar virtu bókaforlagi og er
himinlifandi með árangurinn. „Ég er
búin að fá samninginn sendan en er
enn sveitt að lesa hann yfir og reyna
að átta mig á honum. Er núna að
taka nýjar forsíðumyndir fyrir bókina
þar úti, en forsíðan þarf að vera klár
núna fljótlega og bókin kemur út þar
í nóvember.“
Eldar eins og enginn sé
morgundagurinn
Ebba er í öðru afar spennandi verk
efni og vinnur að nýrri matreiðslubók
í samstarfi við Latabæ og áherslurnar
eru á hollan og hreinan heimilismat.
„Latibær er skemmtilegt verkefni og
ég er mjög glöð að vinna með þeim.
Ég er að leggja lokahönd á verkefnið
núna og elda eins og enginn sé morg
undagurinn alla daga og svo eru tekn
ar myndir. Áherslan er lögð á einfald
an, hollan og hreinan heimilismat sem
mér og minni fjölskyldu finnst góður.
Það er víst eina viðmiðið sem ég get
notað þótt gestum og gangandi verði
að finnast hann góður líka,“ segir hún
og hlær.
Fengu að hitta íþróttaálfinn
Hvað skyldi börnunum hennar
finnast um verkefnið í Latabæ?
„Hanna og Hafliði segja sosum
minnst um þetta, eru bara al
veg slök yfir verkefnum móður
sinnar. En þau eru búin að fá að
fara í stúdíó og hitta íþróttaálfinn
sjálfan og allt saman, það var mjög
skemmtilegt,“ segir hin orkumikla
Ebba Guðný.
kristjana@dv.is
Heimsfrægð
á næsta leiti
Með börnunum Ebba Guðný hefur vakið eftirtekt Íslendinga en sonur hennar Hafliði fæddist fótalaus.