Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2012, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2012, Page 14
Vá Vofir yfir spáni 14 Erlent 21. maí 2012 Mánudagur Dýrasta íbúð New York Óþekkt fjölskylda hefur slegið metið í New York-borg með því að spandera 90 milljónum dala, rúmlega 1.100 milljónum króna, í þakíbúð á tveimur hæðum í miðborg Manhattan. Íbúðin til- heyrir One57-háhýsinu sem enn er í byggingu og eru íbúðirnar sem seldar voru á 89. og 90. hæð byggingarinnar. Austur-evrópskir auðmenn hafa verið duglegir að kaupa upp lúxushúsnæði í New York og á Manhattan undanfarið en sá sem keypti umrædda íbúð er ekki þaðan að sögn Gary Barnett hjá fasteignafélaginu Extell Deve- lopment Company. Hann segir kaupandann mjög „viðkunnan- lega fjölskyldu.“ Barnett segist bú- ast fyllilega við því að 100 milljóna dala múrinn verði senn rofinn með íbúðakaupum í One57. Dómari leyfir Zoloft-vörn Fyrrverandi rannsóknarlögreglu- maður sem rændi og nauðgaði 25 ára gamalli gengilbeinu vopn- aður skammbyssu árið 2010 ber því fyrir sig að hann hafi ekki vitað hvað hann var að gera því hann var „andlega meðvitundarlaus“ vegna notkunar á þunglyndislyfinu Zoloft. Dómari í málinu í San Bernardino í Kaliforníu ákvað fyrir helgi að leyfa þessa vörn Nicholas Orban og lög- manns hans. „Orban hefði aldrei framið þessi voðaverk ef ekki hefði verið fyrir Zoloft,“ sagði lögmaður hans að því er LA Times greinir frá. Hann á yfir höfði sér lífstíðarfang- elsi verði hann fundinn sekur. Fannst á lífi viku eftir slys Hinn 25 ára gamli Michael Sanchez liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í San Jose í Kaliforníu eftir að hafa verið matarlaus og slasaður í heila viku. Þann 8. maí hafði hann misst stjórn á pallbíl sínum, endað utan vegar og farið bílveltu. En lögreglan fann engan í bílnum né nærri vettvangi þegar hún sinnti útkallinu. Sanchez hafði verið saknað í viku þegar lögreglu- menn ákváðu að fara aðra ferð að slysstað í leit að vísbendingum um hvar hann gæti verið niðurkominn. Þeir fundu meira en það, því þeir fundu Sanchez – meðvitundar- lausan og illa haldinn í kjarri. Lög- reglan gefur ekki upp hversu langt frá slysstað hann fannst. „Það er kraftaverk að hann lifði í sjö daga.“ E fnahagskerfi Spánar lék á reiði- skjálfi á föstudag þegar mats- fyrirtækið Moody‘s lækkaði lánshæfismat 16 spænskra banka, þar á meðal tveggja stærstu banka landsins. Tíðindin frá Spáni auka enn á vanda Evrópu sem rambar á barmi efnahagshruns. Reynt að róa fólk Stjórnvöld á Spáni voru fljót að bregð- ast við lækkuninni fyrir helgi og reyndu að róa almenning og fjárfesta. „Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar vil ég biðja fjárfesta og innstæðueigendur að halda ró sinni. Ríkisstjórnin reynir nú að tryggja greiðslufærni allra sinna stofnana svo þær geti sinnt sínum hlutverkum,“ sagði aðstoðarforsætis- ráðherra Spánar, Soraya Saenz de San- tamaria, eftir ríkisstjórnarfund á föstu- dag. Þar ákváðu og ítrekuðu ráðherrar ríkisstjórnarinnar að forgangsatriði ríkisstjórnarinnar væri að ná tökum á tekjuhalla þjóðarinnar. Banco Santander og BBVA, tveir stærstu bankar Spánar, voru meðal þeirra sem urðu fyrir barðinu á Moody‘s. Matsfyrirtækið hefur áhyggj- ur af því efnahagsumhverfi sem bank- arnir þurfa að búa við. Í raun eru þeir fórnarlömb afleitrar stöðu ríkissjóðs. Moody‘s hefur áhyggjur af síminnk- andi burði spænska ríkisins til að styðja við bankana á þessum erfiðu tímum. Keðjuverkun frá Grikklandi Og þessa ólgu má svo aftur rekja til síversnandi ástands í Grikklandi þar sem stjórnarkreppa ríkir í kjölfar kosn- inganna sem fram fóru á dögunum. Þær kosningar þarf að endurtaka og ólgan þar hefur keðjuverkandi áhrif á þegar óstöðugt efnahagskerfi margra Evrópuríkja, þeirra á meðal Spánar og Ítalíu. Þá lækkaði Fitch langtímaláns- hæfismat Grikklands á fimmtudag úr B- í CCC og gaf þær skýringar að aukn- ar líkur væru á því að Grikkland yrði að hætta í evrusamstarfinu. Allt hefur þetta áhrif og smitar út frá sér. „Spánn hefur fallið aftur niður í kreppu á fyrsta ársfjórðungi 2012 og Moody‘s býst ekki við að ástandið batni á þessu ári,“ segir í tilkynningu matsfyrirtækisins þar sem ákvörðunin var kynnt. „Það sem meira er, er að fasteignakrísan sem hófst 2008 enn til staðar og atvinnuleysi er í hæstu hæð- um.“ Hvað gerðist á Spáni? Spánn er fimmta stærsta efnahagskerfi Evrópu en undanfarið hafa alvarlegar efasemdir verið uppi um styrk banka- kerfisins. Spænska ríkið hefur þegar þurft að ríkisvæða Bankia-bankann að hluta og gæti þurft að bjarga fleirum. Og ef allt fer á versta veg telur Moody‘s einmitt að spænska ríkið hafi ekki burði til þess. Samkvæmt fréttaskýringu BBC um vanda Spánar er málið útskýrt á mannamáli. Þar segir að saga Spánar sýni að vandi evrusvæðisins sé djúp- stæðari og flóknari en svo að hægt sé að útskýra hann með óhóflegri lán- töku óagaðra ríkja. Grikkland, Portú- gal og Ítalía voru allt of skuldsett en á Spáni var jafnvægi í ríkisbókhaldinu, allt fram að fjármálakreppunni haust- ið 2008. Á uppgangsárunum fyrir 2008 lækkaði skuldahlutfall Spánar, and- stætt því sem til að mynda átti sér stað hjá Þjóðverjum. Þegar Spánverjar tóku upp evru lækkuðu vextir umtals- vert. En þó að spænska ríkisstjórnin hafi staðist freistingar ódýrra lána, var ekki hægt að segja hið sama um hinn almenna borgara þar í landi. Við tók býsna langvinn fasteignabóla þar sem spænsk heimili skuldsettu sig upp í topp og gott betur. Frá árunum 2004 til 2008 hækkaði húsnæðisverð um 44 prósent og þegar bólan sprakk hrapaði það um 25 prósent. Efnahagur Spánar, sem óx um að meðaltali 3,7 prósent á árunum 1999– 2007, hefur síðan þá dregist saman um 1 prósent. Þegar húsnæðisbólan sprakk tók hún byggingariðnaðinn með sér. Og þrátt fyrir að spænska ríkið væri tiltölulega skuldlítið þegar þarna var komið sögu er staða þess í dag sú að það þarf að reiða sig á óhóf- lega lántöku til að fylla þau göt sem stóraukin útgjöld vegna atvinnu- leysisbóta og hrun á skatttekjustofn- um hafa orsakað. Þegar þetta er lesið verður ekki hjá því komist að greina talsverð líkindi með efnahagskrísu Spánar og Íslands. Búsáhöld barin Í höfuðborg Spánar berja menn búsáhöld að hætti samnefndrar byltingar hér á landi. Óneitanlega er talsverður samhljómur milli Íslands og Spánar hvað aðdraganda vandans varðar. Mynd ReuteRS n Efnahagskerfi Spánar nötraði n Ólga í Grikklandi smitar út frá sér „Moody‘s býst ekki við að ástandið batni á þessu ári. „Hann átti ekki að vera þarna“ n Manntjón og eyðilegging á Ítalíu eftir öflugan jarðskjálfta aðfaranótt sunnudags M annskæður jarðskjálfti sem mældist 6 stig á Rich- ter reið yfir norðurhluta Ítalíu aðfaranótt sunnu- dags. Að minnsta kosti sex manns létu lífið og gríðarmiklar skemmd- ir urðu á byggingum í fjölmörgum bæjum. Skjálftinn átti upptök sín um 35 kílómetra norður af borg- inni Bologna. Annar skjálfti sem mældist 5,1 að stærð varð síðar á sunnudag- inn og varð hann þess valdandi að byggingar, sem margar höfðu skemmst í fyrri skjálftanum, hrundu til grunna. Skjálftarnir á sunnudag eru þeir verstu sem orð- ið hafa á Ítalíu síðan hinn svokall- aði L‘Aguila-skjálfti varð nærri 300 manns að bana í Mið-Ítalíu árið 2009. Tveir hinna látnu létu lífið þegar keramíkverksmiðja í smá- bænum Sant-Augustino í Ferrara- héraði hrundi. „Hann átti ekki að vera þarna! Hann skipti um vakt við félaga sinn,“ hefur vefur BBC eftir móður annars mannsins sem lést í verk- smiðjunni. Enn er verið að meta skemmd- irnar sem ljóst er að eru umtals- verðar, en stjórnvöld hafa þegar tilkynnt að skemmdir hafi orðið á menningarverðmætum í hér- aðinu. Upptök skjálftans voru ekki á miklu dýpi, eða um 10 kílómetra, og fannst stóri skjálftinn alla leið til Mílanó og Feneyja. Óttaslegnir íbúar í fjölmörgum borgum og bæjum þustu út á götur meðan og eftir að skjálftinn reið yfir. Auk dauðsfallanna er áætlað að hátt í fimmtíu manns hafi slas- ast. Enginn þó lífshættulega. Þrjú þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín. Breski blaðamaðurinn Frankie Thompson var staddur í Bologna þegar skjálftinn varð og lýsir því í samtali við BBC að skjálftinn hafi varað í rúma mínútu. „Kirkjubjöllur tóku að klingja í látunum. En í kjölfarið fylgdi allt að óhugnanleg þögn. Smærri eftir- skjálftar urðu fram eftir morgni.“ mikael@dv.is Drengur í Finale Emilia horfir á rústir klukkuturns Delle Rocche- kastalans sem gjöreyðilagðist í skjálftanum. Mynd ReuteRS Stórbankar fá skell BBVA er einn af stærstu bönkum Spánar. Hann og fimmtán aðrir voru lækkaðir í mati Moody‘s á föstudag. Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.