Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Síða 6
Segir arðinn fara upp í skuldir Binni í Vinnslustöðinni segir arðinn sem hluthafar taka út úr fyrirtækinu fara upp í skuldir. „Við verðum bara að standa í skilum“ S igurgeir Brynjar Kristgeirs­ son, framkvæmdastjóri Vinnslu stöðvarinnar í Vest­ mannaeyjum, segir að skuld­ setning eignarhaldsfélagsins Seilar ehf., sem á 25 prósenta hlut í Vinnslustöðinni, sé það mikil að fé­ lagið þurfi að fá arð frá útgerðarfé­ laginu til að geta staðið í skilum. Seil ehf. keypti hlutinn í Vinnslustöðinni árið 2002 og fjármagnaði hann að stóru leyti með lánum. Sigurgeir, eða Binni eins og hann er yfirleitt kallað­ ur, á sjö prósenta hlut í Seil. Harald­ ur Gíslason og Kristín Gísladóttir eru stærstu hluthafar Seilar. Eins og fram kom í fjölmiðl­ um á fimmtudaginn ákvað stjórn Vinnslustöðvarinnar að greiða 830 milljóna arð til hluthafa sinna í ár vegna rekstrarársins í fyrra. Þenn­ an sama dag, á fimmtudaginn, til­ kynnti félagið um uppsagnir á 41 starfsmanni og boðaði sölu á einu af skipum félagsins, Gandí. Ástæð­ an sem gefin var upp fyrir niður­ skurðinum voru frumvörp ríkis­ stjórnarinnar um veiðigjöld og stjórn fiskveiða. Guðmundur segir uppsagnir pólitískar Í kjölfarið kom upp umræða um hvort og þá hvernig slík arðgreiðsla væri réttlætanleg á sama tíma og tilkynnt væri um uppsagnir á starfsmönnum fyrirtækisins. Guðmundur Kristjánsson í Brimi, einn af stærstu hluthöf­ um Vinnslustöðvarinnar, sem þó er í minnihluta í hluthafahópnum og stjórn fyrirtækisins, sagði í við­ tali við DV á föstudaginn að upp­ sagnirnar hjá Vinnslustöðinni væru pólitískar. ,,Þetta er sýndar­ mennska, miðað við hvernig þetta var kynnt í fjölmiðlum. Við vor­ um ekki fylgjandi því að segja upp þessum starfsmönnum. Minnihlut­ inn ræður engu í þessu fyrirtæki,“  sagði Guðmundur. Inntakið í gagn­ rýni Guðmundar var að uppsagn­ irnar væru kynntar vegna boðaðra breytinga ríkisstjórnarinnar á stjórn fiskveiða og auknum veiðigjöldum. Binni segir hins vegar að svarið við þessari spurningu sé að finna í mikilli skuldsetningu hluthafa Seil­ ar. Segir Seil þurfa arðinn „Það vita það allir að þegar meiri­ hlutinn í Vinnslustöðinni í Vest­ mannaeyjum var keyptur árið 2002 lögðu þeir sem hann keyptu fram eigið fé sem meðal annars var til­ komið með eignasölu. Það fé var nokkur hundruð milljónir auk þess sem tekin voru lán. Af þessum lán­ um verðum við að borga. Ekki get­ um við greitt af lánum okkar með peningum sem við tínum af trján­ um; við getum þetta ekki nema með því að fá peninga úr arðsömum rekstri,“ segir Binni. Hann segir þó, að arðgreiðslurn­ ar sem fyrirtækið hefur greitt út hafi aldrei verið hærri en sem nemi af­ borgunum af vöxtunum á lánum Seilar. „Arðgreiðslur hafa aldrei verið hærri en svo að við höfum einungis getað greitt vextina af lán­ unum. Við höfum ekki tekið pen­ inga út úr eignarhaldsfélögunum. Við verðum bara að standa í skilum, það er ekki flókið. Við erum bara venjulegt skilafólk sem vill standa í skilum með lánin sín. Þannig höf­ um við hugsað og þannig viljum við halda áfram að hugsa.“ Binni vill ekki gefa upp hver sé viðskipta­ banki Vinnslustöðvarinnar. 2,6 milljarða skuldir Ársreikningar Seilar ehf. sýna að arðurinn sem farið hefur til Seilar á liðnum árum hefur ekki runnið til hluthafa félagsins heldur upp í afborganir á lánum. Í ársreikningi Seilar ehf. fyrir árið 2010 kemur til að mynda fram að skuldir félags­ ins nemi tæplega 2,6 milljörðum króna. Vinnslustöðin greiddi þá út 460 milljóna króna arð, tæplega 3 milljóna evra, til hluthafa sinna árið 2010 vegna rekstrarársins þar á undan. Móttekinn arður Seilar árið 2010 nam rúmlega 125 milljónum króna og var arðgreiðslan út af hagnaði Vinnslustöðarinnar. Í ársreikningnum kemur fram að í fyrra hafi Seil ehf. átt að greiða rúmlega 156 milljónir króna í af­ borganir af langtímaskuldum sín­ um, nokkru hærri upphæð en fé­ lagið fékk í arð frá Vinnslustöðinni. Af þessu sést að arðurinn hefur ekki runnið til hluthafa heldur upp í skuldir vegna fjárfestingar þeirra í hlutabréfunum í Vinnslustöðinni. Binni segir að stóru hluthaf­ ar Seilar, Kristín og Haraldur, hafi einnig lagt peninga inn í einka­ hlutafélagið. „Þau hafa lagt peninga inn í Seil og ég veit bara að þetta fólk á ekki meiri peninga til að leggja inn í þennan rekstur.“ Binni vill meina að aukin veiðigjöld til ríkisins þýði að erfiðlega gæti orðið fyrir hlut­ hafa Vinnslustöðvarinnar að standa í skilum. Halda uppsögnum til streitu Binni segir aðspurður að niður­ skurðurinn í starfsemi félagsins muni því ekki verða endurskoðað­ ur. „Ef við segjum ekki upp í þeim rekstrareiningum sem taprekstur er á, þá endar þetta með einni allsherj­ ar uppsögn þegar fyrirtækið fer á hausinn. Það er einfaldlega þannig að ríkið er að setja okkur leikregl­ ur sem við verðum að fara eftir og þetta eru afleiðingarnar. Þær eru vissulega pólitískar, þannig.“ n Binni í Vinnslustöðinni segir skuldsetningu eigenda Vinnslustöðvarinnar mikla Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Fréttaviðtal Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum: Hluthafar: Stilla útgerð 30 prósent (Kristján Guðmundsson, Guðmundur Kristjánsson, kenndur við Brim, og Hjálmar Kristjánsson) Seil ehf. 26 prósent (Haraldur Gíslason, Kristín Gísladóttir og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson). 2012 830 milljónir króna 2011 472 milljónir króna 2010 457 milljónir króna 2009 0 krónur 2008 614 milljónir króna 2007 451 milljón króna Arðgreiðslur 2007 til 2011: 2.824 milljónir króna „Ekki getum við greitt af lánum okkar með peningum sem við tínum af trjánum 6 Fréttir 2. júlí 2012 Mánudagur MC Mongols koma ekki: Þótti ekki tíma- bært að stofna samtökin Samkvæmt heimildum DV hefur verið ákveðið að fresta stofnun vélhjólasamtakanna MC Mong­ ols hér á landi. Ástæðan er víst sú að ekki þyki tímabært fyrir samtökin að skjóta rótum hér og það sé óráðið hvort eða hvenær samtökin komi hingað til lands. DV greindi frá því í janúar síðastliðnum að MC Mongols hafi boðað komu sína til Íslands en í bloggfærslu á heimasíðu MC Mongols Scandinavia um heimsóknina til Íslands sagði að fulltrúum samtakanna þyki spennandi að kynna sér land og þjóð, sérstaklega þar sem Reykjavík sé þekkt fyrir öflugt skemmtanalíf. Mongols­menn virtust einnig spenntir fyrir að baða sig í Bláa lóninu og birta mynd af þeim vinsæla ferða­ mannastað á síðunni. Vitað er að samtökin voru að leita að meðlimum til að ganga í samtökin hér á landi. Lögreglan hefur sérstakar gætur á nokkrum hópum og þar á meðal MC Mongols sem hún telur að tengist skipulagðri glæpastarfsemi. MC Mongols eru þekkt á Norðurlöndunum þrátt fyrir að vera tiltölulega ný þar um slóðir. Mongols hafa komið sér upp fél­ ögum víða í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi en þessi samtök voru stofnuð í Bandaríkjunum undir lok sjöunda áratugar síðustu aldar. Meðlimir í Mongols eru taldir á bilinu 1.000 til 1.500 um allan heim. Þeir eru taldir tengjast fíkniefnasmygli, vopnasmygli, bílþjófnuðum, okurlánastarf­ semi, fjárkúgun og leigumorð­ um. Líkt og með Bandidos eru Hells Angels­samtökin skil­ greind sem óvinir Mongols. Lögreglan telur að samtökin séu að undirbúa að skjóta rótum hér á landi. Sterkastur í Suðurkjördæmi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var með áberandi mestan stuðning í Suðurkjördæmi í for­ setakosningunum á laugardag. Hann fékk um 64 prósent greiddra atkvæða í kjördæminu, 40 pró­ sentustigum meira en Þóra Arn­ órsdóttir, sem fékk næstflest at­ kvæði í kjördæminu. Kjörsókn var þó dræm í þessu kjördæmi líkt og í öðrum. Kjörsókn í kjördæminu var 68,3 prósent en ríflega 33.000 voru á kjörskrá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.