Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Side 14
14 Erlent 2. júlí 2012 Mánudagur
Á bömmer í reykjavík
L
eikarahjónin Katie Holmes og
Tom Cruise sáust síðast saman
í Reykjavík á veitingastaðnum
Sushi Samba þann 16. júní þar
sem þau snæddu með dóttur
sinni, Suri. Gestir á veitingahúsinu
lýstu því að þau hefðu virkað eins og
samheldin og ástfangin hjón. Ekkert
benti til þess að hjónabandið væri á
enda runnið og að Katie myndi sækja
um lögskilnað frá ofurstjörnunni að-
eins nokkrum dögum eftir að hún fór
af landi brott.
Vefmiðillinn Tmz sem sérhæfir sig
í fréttum af fræga fólkinu segir að áður
en þau komu hingað til lands hafi þau
búið í sitthvorri íbúðinni í New York
um nokkurt skeið. Á meðan þau voru
bæði hér á landi virtist þó allt leika í
lyndi, þau voru mynduð á gangi í mið-
bænum þar sem þau héldust í hendur.
Tom hefur getið sér orðs fyrir að
lýsa ást sinni á Katie með óhefðbundn-
um hætti og hefur það orðið til þess að
auka enn áhuga fjölmiðla á sambandi
þeirra. Í einu viðtali sagði hann: „Ég
ætla ekki að leyna því. Ég er svo ham-
ingjusamur og ég er ekki að fara að fela
neitt eða verða feiminn. Þessi kona er
einstök. Ég verð að segja að þessi kona
er stórkostleg og ég hef aldrei haft það
betra ... og ég er svo rosalega, rosalega,
rosalega hamingjusamur. Ég get bara
ekki hamið mig. Ég ætla ekki að þykj-
ast. Ég er ekki að fara að þykjast.“
Sonur Cruise skemmti sér
konunglega hér
Það kom Cruise, að sögn miðla vest-
anhafs, algjörlega í opna skjöldu að
Katie skyldi fara fram á skilnað. Hann
er sagður hafa gert sér grein fyrir því
að hjónabandið væri ekki upp á sitt
besta en hann hefði aldrei grunað að
það væri við það að hrynja. Sautján
ára sonur hans, Connor Cruise, sem
var hér á landi í för með pabba sín-
um, systur og stjúpmóður hefur verið
iðinn við að birta myndir frá ferðinni
hér á landi. Óvíst er hvort Tom og Katie
voru með í för í öllum ævintýrunum en
Connor hefur farið í flúðasiglingar nið-
ur jökulá, kafað í Silfru, gengið upp á
eldfjall, sigið niður í Þríhnúkagíg og
farið í vélsleðaferð upp á jökul. Hann
virðist hafa skemmt sér konunglega og
skrifaði meðal annars á Twitter: „Ís-
land er svo fallegt land. Ég hef aldrei
skemmt mér betur um ævina með fjöl-
skyldu minni.“
Afmælisveislan blásin af?
Vinur leikarans sagði við Daily Mail
að Cruise væri algjörlega niðurbrot-
inn. Hann verður fimmtugur á þriðju-
daginn og er sagður hafa áformað
að halda stóra veislu í lúxusvillunni
Hrafnabjörgum við Akureyri, sem
einu sinni var í eigu Jóhannesar Jóns-
sonar. David og Victoria Beckham,
Will Smith og fleiri stórstjörnur voru
sagðar á leið til landsins. „Það voru
allir að tala um hverjum yrði boðið í
partíið. Connor sonur hans var þegar
kominn til Íslands og altalað var að
þetta yrði mjög stór veisla. Það hefur
allt breyst. Skilnaðurinn virðist hafa
komið Tom algjörlega í opna skjöldu.
Katie er líka sögð hafa verið orðin leið
á Tom. „Þegar hann er ekki að vinna
þá er hann annað hvort í ræktinni eða
einhversstaðar með vinum sínum í
Vísindakirkjunni.“
Annar heimildamaður sagði við
breska blaðið: „Hann er niðurbrot-
inn. Hann er einn af frægustu mönn-
um heims en þegar þú sérð hann þá
er hann núna er hann einn af sorg-
mæddustu mönnum heims.“
Katie er sögð hafa verið mjög ósátt
með ákvörðun leikarans um að vera
á Íslandi á afmælisdaginn og sam-
kvæmt breska blaðinu mun rifrildi í
kringum það hafa verið dropinn sem
fyllti mælinn.
Tom er sagður hafa flogið með
þyrlu til Reykjavíkur og dvalið í svít-
unni á Nordica Hilton-hótelinu eftir
að hann frétti af skilnaðinum. Ekkert
hefur hins vegar sést til hans á hótel-
inu undanfarna daga. Hann sást hins
vegar fara um borð í einkaþyrlu sem
hóf sig til flugs frá Reykjavíkurflugvelli
á laugardaginn var.
Vildi ekki barnið í Vísindakirkjuna
Vísindakirkjan hefur spilað stórt hlut-
verk í lífi Tom og Katie. Hann er þó
sagður hafa verið miklu áhugasam-
ari um kirkjuna heldur en hún sem
hefur aldrei náð að tileinka sér trúar-
brögðin jafn heitt og innilega og Tom.
Suri er nú að komast á þann aldur
sem Vísindakirkjan á að fara að spila
stærra hlutverk í lífi hennar. Heimildir
eru fyrir því að Katie hafi verið hrædd
við það og viljað koma í veg fyrir að
Tom fengi að móta lífsskoðanir henn-
ar með þeim hætti. Hún var sjálf alin
upp sem kaþólikki og er sögð hafa
skráð Suri í kaþólskan einkaskóla á
Manhattan. Það er víst ein ástæða
þess að hún sótti um skilnað í New
York en dómstólar þar eru þekktir fyr-
ir að dæma foreldrum sjaldan sam-
eiginlegt forræði. Katie vill fá fullt for-
ræði yfir Suri en þau eru sögð hafa
tekist á um hversu stórt hlutverk Vís-
indakirkjan ætti að leika í lífi litlu stúl-
kunnar. Hjónin hefðu gert kaupmála
og skilnaðurinn snýst ekki um pen-
inga enda bæði forrík.
Nýjustu fregnir herma að Vís-
indakirkjan líti nú á Katie sem
einskonar andstæðing sinn og hún
telji að menn á vegum Kirkjunnar
elti hana hvert sem hún fer í svört-
um og hvítum jeppum. Vefurinn
Tmz telur að hún sé ekki væni-
sjúk, heldur hafi papparazzi ljós-
myndarar sem sitja fyrir henni
talað um „dularfulla menn“ á jepp-
um.
Geimveran Xenu
Tom fylgir Vísindakirkjunni af hug
og hjarta. Í stuttu máli má segja að
Vísindakirkjan sé trúarhreyfing sem
varð til í kjölfar sjálfbetrunartækni
sem vísindaskáldsagnahöfundur-
inn L. Ron Hubbard skapaði. Með-
limir kirkjunnar trúa á að menn séu
ódauðlegar verur sem hafa gleymt
eðli sínu. Með því að iðka trúar-
brögðin vinni menn í því að losna
við slæmar minningar þannig að
menn geti starfað eftir fullri getu.
Þessi aðferð hefur verið kölluð
„endurskoðun líkamans“ og selur
kirkjan áhangendum sínum lesefni
og námskeið sem kennir fólki þessa
aðferð. Hver „endurskoðun“ kostar
um 1,2 milljónir króna.
Þegar fólk hefur lokið „endur-
skoðun“ þá er notast við sérstakt
tæki sem kallast E-mælir sem mælir
andlega vanlíðan með rafsegulvið-
námi líkamans. Takmarkið er síð-
an að öðlast hreinleika, en þá hef-
ur fólki tekist að hreinsa öll ör af sál
sinni. Þegar það gerist hefur það
náð fullkomnun og getur hafið sig
yfir efni og orku, tíma og rúm. Vís-
indakirkjan er ekki viðurkennd sem
trúarbrögð í Bretlandi, Frakklandi
og Þýskalandi.
Tom og aðrir meðlimir Vísinda-
kirkjunnar trúa því einnig að fyr-
ir 75 milljónum ára hafi geimveran
Xenu sent milljarða þetana til jarð-
ar, sprengt í loft upp og heilaþvegið.
Þetanarnir eru á jörðinni og festa sig
á mannfólkið. Þó er hægt að losa sig
við þá með „endurskoðuninni.“
Margir meðlimir kirkjunnar hafna
geðlækningum, telja þær af hinu
illa og þær verði að leggja af. Tom
Cruise, sem hefur skapað sér orð-
spor fyrir skrýtna hegðun endrum og
sinnum, hefur lýst afdráttarlausum
skoðunum sínum á geðlæknum. „Ég
hef aldrei verið sammála geðlæknis-
fræðum; aldrei,“ sagði Tom eitt sinn
í viðtali. „Það er ekkert til sem heitir
ójafnvægi í efnaskiptum.“
Árið 2008 lak á Youtube 10 mín-
útna myndband af Tom þar sem
hann er að ræða um vísindakirkj-
una. Óhætt er að segja að þar sé
á ferð samhengislítið þvaður um
meintan sannleika og hvernig kirkj-
an geti hjálpað öðru fólki. Í öðru
viðtali svaraði hann gagnrýnend-
um sínum: „Sumt fólk ... ef því er illa
við Vísindakirkjuna, þá segi ég bara
fokkaðu þér! Í alvöru! Fokkaðu þér.
Punktur.“
n Tom Cruise fór suður til Reykjavíkur eftir að hann frétti af skilnaðinum við Katie Holmes
Skilin Katie Holmes og Tom Cruise á meðan þau voru ennþá hamingjusöm hjón. Hún hefur farið fram á skilnað frá stórstjörnunni.
„Sumt fólk ... ef því
er illa við Vísinda-
kirkjuna, þá segi ég bara
fokkaðu þér! Í alvöru!
Fokkaðu þér. Punktur.
Sorgmæddur Tom Cruise sást hefja
sig til flugs í þyrlu frá Reykjavíkurflug-
velli á laugardaginn. Hann er sagður
vera algjörlega niðurbrotinn maður.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is