Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2012, Síða 16
Sandkorn E gill Einarsson, Gillzenegger, er saklaus. Hann er saklaus uns sekt sannast, eins og allir. Hvað sem sagt er um að hann hafi verið kærður þýðir það ekki að hann sé sekur, enda hafa fáir fullyrt nokkuð slíkt. Þegar Egill var kærður fyrir nauð­ gun síðasta vetur sendi hann frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla, þar sem hann sakaði átján ára stelpuna, sem kærði hann, um lögbrot: „Það er refisvert að saka fólk ranglega um lögbrot. Það er jafnframt refsivert að hafa samband við handrukkara í þeim tilgangi að kúga fé út úr fólki ... Tilgangurinn með þessum ásök­ unum er því augljóslega ekki að ná fram ákæru heldur einvörðungu að sverta mannorð mitt,“ sagði hann. Hann vissi, eins og flestir, að í lýðræðisþjóðfélagi myndi fréttast ef maðurinn sem var settur framan á símaskrá landsmanna hefði ver­ ið kærður fyrir slíkan glæp, hvað þá maðurinn sem skrifar bækur fyrir unga menn um mannasiði og lífsleikni, leikur í sjónvarpsþáttum um sama efni og hefur verið gagn­ rýndur fyrir að ýta undir gildis­ mat nauðgara með gríni um að láta menn stunda kynlífsathafnir á nafn­ greindum femínistum til að þagga niður í þeim. Yfirlýsing Egils leit út fyrir að vera þaulhugsað markaðsbragð – að vera fyrri til og sverta stelpuna opin­ berlega. En þegar allt kom til alls hafði stelpan ekkert til sakar unnið annað en að kæra hann fyrir nauðgun. Flestum nauðgunarkærðum er vísað frá og það er ekkert sem segir að þær séu allar að reyna að koma höggi á hinn kærða. Þegar fólk lend­ ir í kynferðisofbeldi er nógu erfitt fyrir það að stíga skrefið og kæra, þótt það þurfi ekki að standa og falla með því að ákæra og dómur náist fram. Margir gengu of langt gagnvart Agli Gillzenegger. Áberandi dæmi um það var þegar fyrirtækið Já, sem hafði gert hann að ritstjóra Síma­ skrárinnar, framleiddi sérstaka lím­ miða til að líma yfir mynd af hon­ um, sem hann hafði sett framan á Símaskrána. Egill hefur hins vegar frá upphafi gert það sama og hann sakar aðra um; að ásaka og sakfella manneskju opinberlega fyrir glæp sem ekki hefur verið rannsakaður. Þótt Egill Einarsson sé saklaus, þýðir það ekki að átján ára stelpan sem kærði hann sé sek. Hvað með börnin? n Óvenjuhörð forræðisdeila hefur teygt anga sína á Face­ book og í fjölmiðla síðustu daga eftir að lögreglu­ menn komu á sjö bílum og tóku þrjár stúlkur af móður sinni á heimili í Reykjavík. Málið snýst um að móðirin, Hjördís Svan, var dæmd til að leyfa föðurn­ um, Kim Laursen, að umgang­ ast dætur sínar. Hann býr í Danmörku, eins og Hjördís og stúlkurnar gerðu áður en hún flúði til Íslands. Móð­ irin hefur undanfarið birt myndbönd af stúlkunum á Facebook, þar sem þær eru miður sín yfir deilunni og vilja ekki fara. Hreinn Loftsson, lögmaður konunnar, hefur beðið Ögmund Jónasson inn­ anríkisráðherra og Guðbjart Hannesson velferðarráðherra um að „stöðva þessa óhæfu“ og sýna kjark og manndóm í þágu barnanna og kyrrsetja þau þar til farið hefur verið yfir ný sönnunargögn. Margir styðja Íslendinginn í málinu, en aðrir hafa velt því fyrir sér hvort ekki sé of mikið á börn­ in lagt að vera þátttakendur í slíku stríði og þau þurfi að upplifa að lögreglan yfirbugi móður þeirra og taki þær frá henni með valdi. Þess ber að geta að DV var dæmt til að greiða föðurnum miskabætur fyrir að greina frá skýringum móðurinnar á því hvers vegna hún vildi ekki skilja börnin eftir hjá honum, þar sem þær þóttu ekki fullsannaðar. Ljósmyndari í lukkupottinn n Júlíus Sigurjónsson, ljós­ myndari Morgunblaðsins, datt heldur betur í lukkupott­ inn þegar hann náði myndum af Tom Cruise og Katie Holmes á göngu í Þingholts­ stræti í júní. Í erlendum fréttamiðlum hefur komið fram að Tom og Katie hafi lítið sem ekkert sést saman frá því í febrú­ ar. Mynd Júlíusar varð síðan margfalt verðmætari þegar Katie sótti um skilnað frá Tom og er líklegt að um sé að ræða eina dýrustu ljósmynd sem Íslendingur hefur tek­ ið, enda síðasta myndin af þeim saman. Í kjölfarið hafa laumuljósmyndarar streymt til landsins til að ná skoti af Tom. Fagnaði í London n Jónína Benediktsdóttir er nú meðlimur í Framsóknar­ flokknum, eins og flokkurinn greindi frá með fréttatilkynn­ ingu í vetur. Eins og flest­ ir framsóknarmenn studdi Jónína Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosningunum. Að loknum sigri hans sendi hún skilaboð á Ólaf og Dorrit á Facebook: „Til hamingju Dor- rit Moussaieff og Ólafur Ragn­ ar. Guð blessi forseta Íslands og forsetafrú. Guð blessi okkur öll. Greetings from London.“ Nei, þetta er ekki bruðl. Engar sannanir um falsanir. Ari Edwald segir kaup 365 á nýjum 11 milljóna króna jeppa handa sér sé ekki bruðl. – DV Ástþór Magnússon sendi frá sér fréttatilkynningu vegna ógildingar forsetaframboðs síns. – DV Hún er saklaus N ýlega synjaði Hæstiréttur ósk sonarins, Andrésar Helga, að fá að áfrýja máli sínu E­6157/2010. Mér hefur þótt synjunin undar­ leg í ljósi þess að Gaukur Úlfarsson (E­3619/2007) og Björn Bjarnason (E­3832/2011) fengu – eðlilega – að áfrýja sambærilegum málum. Samkvæmt svari Hæstaréttar við fyrirspurn DV sem birtist í blaðinu 25. júní 2012 þarf eitt af þremur skil­ yrðum að vera uppfyllt: a) Dómurinn þarf að hafa verulegt almennt gildi b) Úrslit málsins verða að varða mikilvæga hagsmuni þess sem leitar áfrýjunarleyfis c) Ekki sé útilokað samkvæmt fyr­ irliggjandi gögnum að dómi kunni að verða breytt svo einhverju nemi Þannig að mig langar að leggja eft­ irfarandi spurningar fyrir Hæstarétt: Vegna a) I. Hvaða verulega almenn gildi höfðu mál Björns og Gauks sem mál Andrésar hefur ekki? II. Hvaða verklagsreglur og við­ miðanir notar rétturinn við að meta hvort mál hefur almennt gildi eða ekki? III. Hefur tjáningarfrelsi ekki al­ mennt gildi að mati Hæstaréttar? IV. Dómurinn snerist að hluta til um ummæli á Facebook, sem er um­ ræða í lokuðum vinahóp. Hefði ekki haft almennt gildi að skera úr um hvort Facebook telst opinber um­ ræða? Það væri að minnsta kosti fróðlegt að sjá skýringar Hæstarétt­ ar á því hvers vegna slík umræða telst opinber. V. Og kannski almennt hefði verið fróðlegt að fá úrskurð Hæstaréttar um hvort sömu reglur gildi um umræður í lokuðum vinahóp og gilda um um­ ræðu í opinberum miðlum? Vegna b) I. Að hvaða leyti varða mál Björns og Gauks mikilvæga hagsmuni þeirra sem mál Andrésar varðar hann ekki? II. Hvaða verklagsreglur og við­ miðanir notar rétturinn við að meta hvort mál varðar mikilvæga hags­ muni áfrýjanda eða ekki? III. Nú er Andrés námsmað­ ur með litlar tekjur og talsverðar skuldir vegna náms. Þannig verða 300.000 króna miskabætur, 650.000 málskostnaður auk dráttarvaxta að viðbættum eigin lögfræðikostn­ aði einfaldlega óviðráðanleg byrði. Gjaldþrot er óhjákvæmilegt og hann þarf að hætta námi. Eru þetta smá­ vægilegir hagsmunir að mati Hæsta­ réttar? IV. Ef þetta eru smávægilegir hags­ munir Andrésar, hvað þarf til að Hæstiréttur meti hagsmuni mikil­ væga? Vegna c) I. Hvaða atriði eru það í málum Björns og Gauks sem urðu til þess að ekki þótti útilokað að dómnum yrði breytt? II. Hvaða verklagsreglur og við­ miðanir notar rétturinn við að meta hvort líklegt sé að dómi verði breytt? III. Hæstiréttur sneri við sams konar úrskurði sama héraðsdómara upp á sömu upphæð í sambærilegu máli. Gefur það ekki tilefni til að ætla að niðurstaða dómarans stangist á við skilning Hæstaréttar á tjáningar­ frelsi? IV. Héraðsdómari telur að langvar­ andi einelti sé ekki ofbeldi. Er þetta eðlileg túlkun að mati Hæstaréttar. Ef ekki, hefði þetta ekki nægt til að ætla að ekki sé útilokað að ætla að dómn­ um yrði snúið við? V. Héraðsdómari samþykkir órök­ studdar fullyrðingar stefnanda að aðrir fjölmiðlar hafi tekið þessi um­ mæli upp. Engin gögn komu fram þessu til stuðnings enda færslan á lítt sóttri vefsíðu og virk í örfáar klukku­ stundir. Enginn fjölmiðill vísaði í þessa færslu. Er ekki líklegra að fjöl­ margar aðrar færslur á fjölsóttum vef­ miðlum hafi frekar átt þátt í opinberri umræðu? Og er þá nokkuð ólíklegt að dómi héraðsdóms hefði verið snúið við? VI. Dómarinn telur það ósmekk­ legt að vísa til dóma sem viðkom­ andi hlaut fyrir talsvert löngu síðan. Hvernig getur það verið ósmekklegt, hvað þá refsivert, að vísa til dóma um sams konar hegðun og verið er að fjalla um? Væri ólíklegt að Hæsti­ réttur sneri dómnum við þó ekki kæmi annað til en þetta? VII. Héraðsdómari virðist ekki skilja að hægt sé að tala um brot nema viðkomandi hafi verið dæmd­ ur fyrir þau. Ekki virðist dregið í efa í dómnum að um brot hafi verið að ræða, aðeins að ekki hafi verið dæmt vegna þeirra. Það má vera að þannig sé það í réttarsal en þessi færsla var á vef fyrir vini og kunningja. Er þetta ekki nægileg ástæða til að ætla að ekki hefði verið útilokað að Hæsti­ réttur hefði endurskoðað dóminn? VIII. Héraðsdómari virðist taka það sem lykilatriði að stefnandi hafi ekki tekið beinan þátt í einu af þeim ofbeldisverkum sem um er fjallað. Ekki fæst betur séð en að héraðsdóm­ ari samþykki að stefnandi hafi átt þátt í upptökum ofbeldisins og hvatt til þess. Þarf þessi nýstárlega túlk­ un dómara ekki rýni Hæstaréttar? Er ólíklegt að Hæstiréttur hefði snúið þessu við? Eða myndi Hæstiréttur Ís­ lands vilja kynna þessa sérkennilegu túlkun sem gott og gilt fordæmi á al­ þjóðavettvangi? Er það misskilning­ ur hjá mér að fólk hafi verið dæmt til þungra refsinga af alþjóðadómstól­ um fyrir að hvetja til ofbeldis og bera þannig ábyrgð á því? Með von um skýr og skiljanleg svör Og með kröfu um endurskoðun ákvörð­ unar ef ekki eru skýrar ástæður fyrir hendi sem réttlæta þessa ákvörð un. Ákvörðun sem virðist ólíðandi mismunun Hæsta­ réttar á rétti til réttlátrar málsmeðferðar og að allir skuli vera jafnir fyrir lögum. Er það ekki meira að segja bundið í stjórnar­ skrá Íslands? Opið bréf til Hæstaréttar Leiðari Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 16 2. júlí 2012 Mánudagur „Egill hefur hins vegar frá upphafi gert það sama og hann sakar aðra um „Ef þetta eru smá- vægilegir hags- munir Andrésar, hvað þarf til að Hæstiréttur meti hagsmuni mikilvæga? Kjallari Valgarður Guðjónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.