Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2012, Page 11
RisastóRt æxli talið tRosnuð hásin
n Davíð Davíðsson leið vítiskvalir í tæplega tvö ár áður en fóturinn var tekinn af honum n Synir hans afar ósáttir við meðferðina sem hann fékk
Davíð Davíðsson Byrjaði að kenna sér
meins í fætinum fyrir tveimur árum. Verk-
urinn ágerðist stöðugt en læknar töldu
að um væri að ræða trosnaða hásin.
Hann reyndist vera með æxli á stærð við
páskaegg númer 3 í fætinum.
Heilbrigðiskerfinu blæðir
Þeir bræður eru þó báðir sammála
um að það sé ekki hægt að kenna
einstaka starfsfólki á sjúkrahúsum
um hvernig fór fyrir föður þeirra.
„Við erum ekki að álasa fólkinu, það
er yfirhlaðið af verk efnum,“ segir
Davíð. „Niðurskurður er komin langt
upp fyrir hættustig. Fórnarkostnað-
urinn er að pabbi er fætinum styttri.
Ég er líka alveg með það á hreinu að
það eru hræðilegri slys búin að ger-
ast í heilbrigðiskerfinu. Það er engu
öðru um að kenna en fjárveitinga-
valdinu sem veitir peninga í þessar
stofnanir. Það er enginn annar sem
á að taka ábyrgð á þessu. Það er ekki
flóknara,“ segir hann.
Davíð gagnrýnir einnig sam-
skiptaleysi á milli stofnana. Boð-
skiptin frá heimilislækni á Landspít-
alann eða til sjúkraþjálfara hafi ekki
verið góð. Sem dæmi um það þá
fékk pabbi þeirra símtal í vor um að
nú væri komið að honum í segulóm-
skoðun. Þá voru liðnar vikur frá því
að fóturinn var tekinn af honum.
„Það þarf enginn að segja mér
að þetta sé í lagi. Þetta er ekki
skipulagsleysi, þetta er spurning
um forgangsröðun í kerfinu. Það
var dauðans alvara að klára Hörpu-
na en skólum og heilbrigðiskerfinu
blæðir. Það er verið að koma svona
fram við fólkið sem byggði upp þetta
velferðarsamfélag. Þetta fólk verð-
skuldar ekki svona lélega þjónustu.“
Þakklátir fyrir frábært starfsfólk
Bræðurnir taka það fram að eftir að
faðir þeirra fékk loksins rétta grein-
ingu hafi hann fengið mjög góða
umönnun. Davíð, faðir þeirra, seg-
ist sjálfur vera afskaplega þakklátur
starfsfólkinu á bæklunardeild 5-A á
Landspítalanum fyrir frábæra um-
önnun. Hann vill líka koma áleiðis
sérstöku þakklæti til starfsfólksins
á Grensásdeildinni. Það hafi verið
algjör lífæð fyrri hann. Hann seg-
ir lækninn sem annast hann núna
hafa sinnt sér frábærlega.
Davíð dvelur nú á sjúkrahóteli og
hefur ekki náð sér. Hann missti 12
kíló frá því ágúst 2011 og fram í mars
þar sem hann gat ekki borðað vegna
verkja og vanlíðunar. Hann stefnir
að því að byrja að nota gervifót frá
Össuri en ófyrirsjáanlegir erfiðleik-
ar hafa hamlað því. Þannig opnað-
ist sárið á fætinum aftur vegna sýk-
ingar. Þá þurfti hann að fara í aðra
aðgerð þar sem læknarnir þurftu að
sverfa meira af beininu í fætinum.
Þeir taka það þó fram að þetta séu
vitaskuld hlutir sem ekki sé hægt að
álasa neinum fyrir og að ekki hafi
verið hægt að sjá þá fyrir.
Davíð Bergmann segir það dæmi
um fjárþörf heilbrigðiskerfisins að
Grensásdeildinni, þar sem unnið sé
gífurlega mikilvægt starf, verði lokað
nú vegna sumarfría. Á meðan mun
Davíð sitja í hjólastól á sjúkrahótel-
inu og bíða. „Hann kemst ekki heim
af því að hann býr í húsi á nokkrum
pöllum. Hann gerði ekki ráð fyr-
ir því að verða fatlaður. Aðgengið
er þannig að hann getur ekki farið
heim, það er ekki hægt,“ segir hann.
Davíð Bergmann segist að lok-
um vilja skora á annað fólk að stíga
fram. „Ég skora á fólk sem hefur
svipaða sögu að segja og koma fram
í dagsljósið og segja sína sögu. Fyrr
gerist ekkert.“ n
Fréttir 11Mánudagur 9. júlí 2012