Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2012, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2012, Blaðsíða 13
Ný slúðursíða skýtur rótum Fréttir 13Mánudagur 9. júlí 2012 „Svo ef þú ert með eitthvað krassandi skemmtilegt sendu mér þá póst. N ý „Gossip Girl“ síða hef­ ur skotið upp kollinum á Akranesi, en DV fjallaði á föstudag um íslenska vef­ síðu í anda „Gossip Girl“ þáttanna þar sem ljót ummæli voru viðhöfð um unglinga und­ ir lögaldri. Nokkur ólga var með­ al ungmenna þar sem enginn vissi hver stæði að baki síðunni og hvað yrði birt þar næst. Mildari síða Nýja síðan virðist ekki eins herská og sú fyrri, en á þeirri nýju er fjallað um ungmenni á Akranesi. Krakkarnir eru nafngreindir, myndir jafnvel birtar af þeim en talsmátinn er töluvert fínlegri en var á fyrri síðunni. Síðan virðist hafa verið opnuð fyrir um mánuði, en ef marka má færslurnar á henni varð hún virk fyrr en síðastliðinn laugardag. Á henni er rætt um ungmenni sem eru að slá sér saman, auk þess sem síðu­ ritarinn óskar eftir því að fá slúður sent í einkaskilaboðum. „Eins og þið skaga­ menn vitið nú, þá eru írskir dagar!! Gossip Girl vill að ÞÚ sendir sér allt nýjasta slúðrið úr bænum! svo ef þú ert með eitthvað krassandi skemmti­ legt sendu mér þá póst.“ Ekki liggur fyrir hver stendur að baki síðunni, en þeir foreldrar sem DV ræddi við, könnuðust ekki við síðuna og vissu ekki til þess að slíkar síður eða einelti væru vandamál hjá nemend­ um í aldurshópi barna þeirra. Lokað eftir umfjöllun DV fjallaði um herskáa Gossip Girl­ síðu í helgarblaði sínu, en eftir að blaðið fór að grennslast fyrir um síðuna var henni fljótlega lokað og á föstudag var ekki lengur hægt að komast inn á hana. Enn er þó ekki vit­ að hver var að verki en ljóst má vera að sá hinn sami virðist hafa séð að sér. Vefsíðan hafði einungis verið í gangi í nokkra daga og því ekki komnar margar færslur inn á hana en eigandi síðunnar auglýsti eftir eldheitu slúðri og leit því út fyrir að hann hafi ætlað að halda henni úti lengur. Lítið hægt að gera Grímur Grímsson aðstoðaryfir­ lögregluþjónn, sagði í samtali við DV að lögreglan gæti lítið aðhafst í slíkum málum þar sem síðan væri vistuð erlendis og ekki væri vitað hver stæði að baki henni. Kvart­ anir höfðu ekki borist inn á borð lögreglunnar vegna fyrri síðunn­ ar. Í umfjöllun DV um málið kom einnig fram að einelti, líkt og það sem mátti greina á síðunni, virð­ ist vera nokkuð algengt meðal unglinga og sambærilegar vefsíð­ ur virðast vera ágætlega þekktar meðal ungmenna. „Maður sér mikið af þessu. Ég hef reyndar ekki séð akkúrat svona síðu áður en þetta er mjög algengt inni á Formspring­síðum,“ sagði starfs­ maður í félagsmiðstöð í samtali við DV og átti þar við vefsíðuna Formspring.com. n Slúðursíðu um íslenska unglinga lokað n Önnur skýtur rótum Ný síða Síðan fyrir Akurnesinga var stofn- uð fyrir um mánuði en varð ekki virk fyrr en á laugardaginn. Skortur á neyðarblóði n Blóðgjafar hvattir til að mæta í Blóðbankann Þ að er ekki neyðarástand en okkur vantar þetta neyðar-blóð,“ segir Anna Margrét Halldórsdóttir, sérfræðilækn- ir hjá Blóðbankanum. Blóðbankinn sendi á fimmtudag ákall til svokall- aðra O neg blóðgjafa og voru þeir blóðgjafar sem eru í þeim blóðflokki beðnir um að renna við í Blóðbank- anum. Sú staða er í bankanum að aðeins eru til sextíu einingar af O neg blóði, en bankinn vill eiga 100 einingar. Anna Margrét segir að á mið- vikudag hafi komið fleiri en vana- lega af O neg blóðgjöfum, en bet- ur má ef duga skal. „Óskastaðan er að vera með hundrað einingar af O neg blóði. Það kom ekki gífurlegur fjöldi í gær [miðvikudag: innsk.blm] þó það hafi komið fleiri en vana- lega,“ sagði Anna í samtali við DV á fimmtudag. Fólk í O-flokki mynd- ar ekki mótefnisvaka og því er blóði sem það gefur sjaldnast hafnað af blóðþega og geta nánast allir þegið slíkt blóð. Á Vísindavef Háskóla Íslands kemur fram að blóðgjafa í O-flokki mætti því kalla algjafa og því er mik- ilvægt að Blóðbankinn eigi nægilegt magn af slíku blóði. Á sumrin eru blóðgjafar sérstak- lega hvattir til þess að mæta en færri skila sér í blóðgjöf yfir sumartímann en á öðrum árstíðum. Margvíslegar ástæður eru fyrir því, meðal annars sumarleyfi, en af þeim sökum er fólk sérstaklega hvatt til þess að koma í bankann. Anna Margrét áréttar að ágæt staða sé í öðrum blóðflokkum, en það sé þó alltaf mikilvægt að það skili sér 70–80 blóðgjafar á dag í bankann. astasigrun@dv.is 8 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað 88 eiga von á sekt Brot 88 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi á miðviku- dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, yfir gatnamót Vífils- staðavegar. Á einni klukku- stund, eftir hádegi, fór 801 öku- tæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11 pró- sent, of hratt eða yfir afskipta- hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 kílómetrar á klukkustund en þarna er 60 kílómetra há- markshraði. Þrettán óku á 80 kíló- metra hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.  Vöktun lögreglunnar á Hafnar- fjarðarvegi er liður í umferðar- eftirliti hennar á höfuðborgar- svæðinu, en síðastliðinn föstudag varð harður, þriggja bíla árekstur á fyrrnefndum gatnamótum og voru sjö fluttir á slysadeild. Lýst eftir stolnum bíl Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu lýsir eftir grá- um Volkswagen Golf með skrán- ingarnúmerinu MV-K12, en bílnum var stolið frá bílaleigu við Vatnsmýrarveg í Reykjavík í síð- asta mánuði. Þeir sem geta gef- ið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamleg- ast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is. Vantar blóð Blóðgjafar í O-flokki eru sér- staklega hvattir til að mæta í Blóðbankann til að gefa blóð. M ikil umræða hefur verið milli unglinga í netheim- um vegna nýrrar vefsíðu. Enginn veit hver stend- ur að baki síðunni en á henni eru viðhöfð ljót ummæli um unglinga undir lögaldri. Slíkt einelti meðal unglinga á internetinu virðist vera mjög algengt að sögn þeirra sem DV hefur rætt við. Ekki vitað hver er með síðuna Á vefsíðunni sem um ræðir eru birt- ar myndir af unglingum, þeir nafn- greindir og ljótir hlutir sagðir um þá. Undir einni myndinni er þetta skrif- að: „Hóra* einsvo sumir vilja frekar kalla hana. Reið X á meðann hann var á föstu með x.“ Stúlkan sem um ræðir er 15 ára. Í öðrum færslum eru viðhöfð misfögur ummæli um viðkomandi einstaklinga sem eru á meðfylgjandi myndum. Vefsíðan var sett upp fyrir aðeins örfáum dögum og því ekki komnar margar færslur inn á hana en greini- legt að sá sem stendur að baki síð- unni ætlar sér að halda henni gang- andi. Á miðvikudagskvöld auglýsti sá hinn sami eftir meira slúðri til að setja inn: „Gossip girl here. Vá strax komin með 300 followers á 2 dög- um! vel gert allir, nú má alveg fara að senda inn eld heit gossip!“ Hug- myndin er augljóslega sú sama og er að baki þáttunum um Gossip Girl. Þar sem viðkvæmar upplýsingar um sögupersónur þáttanna eru settar á vefsíðuna, veldur það sögupersón- unum miklu hugarangri. Erfitt að fylgjast með DV hafði samband við móður einn- ar stúlkunnar sem færsla er um inni á síðunni. Móðirin kom af fjöllum og sagðist ekki vita hvað væri hægt að gera til þess að láta loka síðunni. Henni fannst ekki gott að vita til þess að mynd og ummæli um 14 ára dóttur hennar væru inn á síðunni. „Það er svo mikið af þessum síðum í dag og erfitt að fylgjast með því sem er að gerast á netinu,“ segir hún. Í samtölum við nokkra unglinga virðast síður sem þessar vera al- gengar á internetinu. „Þetta er bara einelti. Það er alltaf verið að setja upp svona síður en yfirleitt lokar lög- reglan þeim, þetta er mjög algengt,“ sagði einn þeirra. Átta sig ekki á alvarleikanum Starfsmaður í félagsmiðstöð ung- linga sem DV ræddi við, segir mik- ið um slíkar síður og að mikið sé um einelti meðal unglinga á netinu. „Maður sér mikið af þessu. Ég hef reyndar ekki séð akkúrat svona síðu áður en þetta er mjög algengt inni á Formspring-síðum,“ segir starfsmað- urinn og á við formspring.com. Þar getur hver og einn verið með sína síðu og svo getur hver sem er lagt inn nafnlausa spurningu á viðkom- andi. „Þar er oft mikið einelti inni á síðunni og líka á Facebook. Krakk- arnir eru að hakka sig inn á Face- book-síður annarra og birta neyðar- legar myndir. Svo er myndunum kannski eytt en þá hafa þær staðið í einhvern ákveðinn tíma og á meðan hefur verið hægt að nota myndirn- ar. Það er eins og þau átti sig ekki á alvarleikanum og að svona geti verið á internetinu í mörg ár.“ Geta ekki brugðist við Þar sem vefsíðan er vistuð erlend- is virðist lítið hægt að gera til þess að láta loka henni. „Við getum ekk- ert brugðist við þessu, ekki ef hún er vistuð erlendis og ekki vitað hver er að baki henni. Hins vegar ef það kæmi fram kæra frá einhverjum sem teldi á sér brotið og vissi hver héldi úti síðunni þá myndum við skoða það,“ segir Grímur Grímsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn hjá lög- reglunni í Reykjavík. Grímur hafði ekki séð tiltekna vefsíðu en kannað- ist við vandamálið. „Við verðum svo- lítið varir við þetta. Það koma reglu- lega inn á borð til okkar svona mál þó það sé lítið við þeim að gera. Ef það er vitað hver er að baki síðunni þá er frekar hægt að bregðast við því.“ „Þetta er bara einelti“ „Gossip girl here. Vá strax komin með 300 followers á 2 dögum! vel gert allir, nú má alveg fara að senda inn eld heit gossip! n Ólga meðal unglinga vegna íslenskrar slúðursíðu í anda Gossip Girl Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Íslensk slúðursíða Ólga er meðal unglinga sem DV talaði við en einhver heldur úti vefsíðu þar sem birtar eru myndir af unglingum og ljót ummæli viðhöfð um þá. Síðan er í anda Gossip Girl-síðunnar sem samnefnd þáttaröð er byggð á. Mikið úrval af fallegum skóm og töskum Gæði & Glæsileiki www.gabor . i s - f a cebook . com/gaborse r ve r s lun FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16 Sérverslun með 25 ár á Íslandi 6. júli 2012 Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is uppljóstrari eltur af gruNsamlegum möNNum n Íslenskir uppljóstrarar í sigti bandarískra yfirvalda n „Greinilega búnir að elta mig í nokkurn tíma“ Óhugnanleg lífsreynsla uppljóstrara n Bradley Manning pyntaður Hermaðurinn Bradley Manning var handtekinn í fyrra og sakaður um að hafa lekið leyniskjölum frá Írak til uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks. Honum hefur verið haldið í einangrun í meira en tvö ár og lögmaður hans segir að hann sæti ýmis konar andlegum pyntingum í fangelsinu. Til að mynda sé hann látinn vera nakinn dögum saman, hann fái ekki að sofa frá fimm að morgni til átta að kvöldi og reyni hann að sofna sé honum skipað að sitja eða standa. Þá hefur samkynhneigð hans verið höfð að skotspæni. Manning er sagður gjörbreyttur og eyðilagður á líkama og sál, en margir telja að með þessu séu bandarísk yfirvöld að þvinga Manning til að bera vitni gegn Julian Assange, stofnanda Wikileaks. Argentínumaðurinn Juan Ernesto Mendez, helsti erindreki Sameinuðu þjóðanna í málum er snúa að pyntingum, hefur fordæmt með- ferðina. Herdómstóll hefur lögsögu í máli Mannings og líklega bíður hans ævilangt fangelsi. Kallar Obama hræsnara Kristinn er óánægður með stjórn­ arhætti Baracks Obama Banda­ ríkjaforseta og segir að þeir séu „ein mestu vonbrigði í pólitísk­ um umskiptum sem sést hafa í langan tíma.“ Hann telur að arfleifð Obama verði sú að hafa setið sem „einn mesti hræsnari Hvíta hússins á seinni árum.“ Hann segir Obama hafa lýst því yfir í kosningabar­ áttu sinni árið 2008 að uppljóstr­ arar væru mikilvægir fyrir lýðræðið og þá ætti ekki að berja niður. Síð­ an hafi hann snúið við blaðinu eft­ ir að hann komst til valda: „Í hans stjórnartíð hefur aldrei eins oft verið beitt hörðustu úrræðum í að reyna að lögsækja uppljóstrara inn­ an kerfisins.“ Kristinn segir þetta hafa gerst oftar í stjórnartíð Obama heldur en í stjórnartíð allra annarra forseta frá seinni heimsstyrjöldinni samanlangt. „En á sama tíma þá er kerfisbundið verið að leka upp­ lýsingum frá stjórnkerfinu í Was­ hington í því skyni að auka hróður Obama fyrir kosningar,“ segir Krist­ inn og bætir við: „Afstaða Obama er alveg ótrúleg hræsnisfull.“ Tillaga Íslendinga felld n Vildu að Palestína fengi þátttökurétt á ÖSE-þinginu T illaga Björns Vals Gíslasonar og Róberts Marshall á þingi Öryggis­ og samvinnustofn­ unar Evrópu (ÖSE) var felld á sunnudagskvöld, en tillagan fól í sér að heimastjórn Palestínu yrði veittur þátttökuréttur á þingi ÖSE og fengi að senda áheyrnarfulltrúa á þingið. Ísrael er eitt þeirra ríkja sem hafa slík­ an rétt en þingmenn Bandaríkjanna, sem venjulega eru hliðhollir Ísraels­ ríki, börðust hatrammlega gegn til­ lögunni. Þeim tókst ætlunarverk sitt og var hún felld með 28 atkvæðum gegn 22. Stóðu Norðurlandaþjóðirn­ ar, England og Frakkland við hlið Ís­ lendinga þegar atkvæði voru greidd. Ljóst er að í stjórnartíð Samfylk­ ingar og Vinstri grænna hefur Ísland skipað sér í fremstu röð í baráttunni fyrir réttindum Palestínumanna á alþjóða vettvangi. Í fyrra samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu sem gerði Ísland fyrst vestrænna ríkja til að viðurkenna Palestínu sem sjálf­ stætt og fullvalda ríki. Heimastjórn Palestínumanna hef­ ur þegar verið veittur þátttökuréttur í fundum Evrópuráðsins, alþjóðlegu þingmannasamtakanna og UNESCO. Athygli vakti í fyrra, að þegar Palestína fékk aðild að UNESCO hættu Banda­ ríkin að veita fé til stofnunarinnar en 16 ára gömul bandarísk lög kveða á um að ríkisstjórninni sé óheimilt að greiða framlög til þeirra stofnana Sam­ einuðu þjóðanna sem Palestína á að­ ild að. Fagnað á þingpöllum Íslendingar fylgdu þingsályktunartillögunni um Palestínu eftir á þingi ÖSE.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.