Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2012, Blaðsíða 12
12 Fréttir 9. júlí 2012 Mánudagur Uppljóstrari eltUr af grUnsamlegUm mönnUm n Íslenskir uppljóstrarar í sigti bandarískra yfirvalda n „Greinilega búnir að elta mig í nokkurn tíma“ „Ég hef ekki ferðast til Bandaríkjanna eftir að ég fór að starfa með Wikileaks og það er ekki á dagskrá. Þ eir voru greinilega búnir að elta mig í nokkurn tíma, veit ekki hve lengi. Veit ekki hvort við erum að tala um klukkutíma eða daga,“ seg- ir Smári McCarthy, íslenskur upp- ljóstrari og baráttumaður fyrir tjáningarfrelsi, um lífsreynslu sem hann varð fyrir í Bandaríkjunum á dögunum. Áreittur um miðja nótt „Þegar ég var að ganga út úr metro- stöð komu að mér tveir menn, sögð- ust vera frá FBI og vilja spyrja mig spurninga. Ég sagði bara að klukk- an væri eitt um nótt og ég vildi ekki tala við þá án lögfræðingsins míns,“ segir Smári og bætir við: „Þeir gáfu mér kontakt-upplýsingar, ekki FBI- nafnspjöld heldur handskrifað blað með hotmail-netföngum.“ Smári segist telja að hér hafi ekki verið lögreglumenn á ferð heldur starfs- menn einkarekins öryggisfyrirtæk- is, undirverktakar á sviði öryggis- mála, sem safna upplýsingum og selja til ríkisstjórna. „Þessir starfs- menn voru þá algjörlega úti að aka,“ segir Smári. Stöðvaður af tollvörðum Smári McCarthy, sem tók þátt í ráð- stefnu um upplýsinga- og tjáningar- frelsi í Bandaríkjunum, var einnig áreittur af tollvörðum þegar flug- vélin hans lenti í Washington. „Ég lenti í yfirheyrslum á flugvellinum. Talaði við þá í svona einn og hálf- an klukkutíma, meðal annars um Wikileaks,“ segir Smári. Þrátt fyrir þessa atburði segist hann þó ekkert hafa starfað með Wikileaks síðustu misserin. Hann hafi aðeins tekið þátt í lekanum árið 2010 á mynd- bandinu fræga sem sýndi banda- ríska hermenn murka lífið úr sak- lausum borgurum í Bagdad. Kristinn hættir sér ekki til BNA Smári McCarthy er einn þeirra þriggja Íslendinga sem starfað hafa með Wikileaks. Hin eru Kristinn Hrafnsson fréttamaður og Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyfingar- innar. Að sögn Kristins, sem starf- að hefur náið með Julian Assange forsprakka Wikileaks, er áreitið sem Smári McCarthy hefur orðið fyr- ir ekkert einsdæmi: „Þeir sem hafa verið að ferðast í Bandaríkjunum og hafa einhver tengsl við Wikileaks hafa verið stoppaðir á landamær- unum, yfirheyrðir, þeim hefur ver- ið hótað og svo eru gögn og tölv- ur gerðar upptækar,“ segir Kristinn og bætir við: „Þetta gildir jafnt um bandaríska ríkisborgara og erlenda. Ég hef ekki ferðast til Bandaríkj- anna eftir að ég fór að starfa með Wikileaks og það er ekki á dagskrá.“ Vöruð við af utanríkisráðu- neytinu Nýlega greindi Birgitta Jónsdótt- ir frá því í pistli í breska dagblað- inu Guard ian að íslenska utan- ríkisráðuneytið hefði varað hana sérstaklega við því að fara til Banda- ríkjanna vegna gruns um að hún væri undir smásjá bandarískra yf- irvalda. Í samtali við DV segist hún þó hafa fengið þau skilaboð frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu, í gegnum sendiherra Bandaríkj- anna á Íslandi, að engin rann- sókn ætti sér stað á hennar mál- um. „Þetta var nú kannski ekki alls kostar heiðarlegt af þeim. Kannski var þetta einhver orðaleikur, töl- uðu um „criminal investigation“,“ segir Birgitta. Hún hefur ásamt Al- þjóðaþingmannasambandinu átt í málaferlum í Bandaríkjunum eftir að dómsmálaráðuneyti Bandaríkj- anna lagði hald á persónuupplýs- ingar hennar af samskiptasíðunni Twitter. Aðspurð segist hún ekki vera hrædd við að fara til Bandaríkj- anna en síður vilja „storka ráðgjöf“ sem hún hefur fengið frá bandarísk- um lögmönnum sínum og íslenska utanríkisráðuneytinu. Hún sakar bandarísk yfirvöld um grófa aðför að tjáningarfrelsinu. „Þetta er miklu alvarlegra en fólk gerir sér grein fyr- ir,“ segir hún. Herferð gegn Wikileaks „Menn virðast gjörsamlega hafa misst fótanna í þessu draumalandi frjálsræðis og frjálsrar fjölmiðlunar,“ segir Kristinn Hrafnsson og bend- ir á að í Bandaríkjunum eigi sér nú stað herferð gegn Wikileaks. „Það kom í ljós í síðustu viku að umfang FBI-rannsókna síðustu tveggja ára er gríðarlegt. Málsgögnin, sem safn- að var saman, nema um 42 þúsund síðum. Og lögmaður Bradley Mann- ings fullyrðir að aðeins fimmtungur af þeim snúi að Bradley Manning og restin að öðrum sem starfa með Wikileaks.“ Í síðustu viku kom í ljós að rannsóknin lýtur að meintum brotum sjö einstaklinga sem ekki eru nafngreindir en skilgreindir sem stofnendur og framkvæmdastjórar Wikileaks. „Ég reikna með að Juli- an sé þar og vel gæti verið að ég sé á þeim lista,“ segir Kristinn Hrafns- son. „Geta varðað dauðarefsingu“ Að sögn Kristins fer nú fram dóms- mál tengt Wikileaks fyrir „undar- legum rannsóknarrétti“ í Banda- ríkjunum sem var ekki viðurkennt opinberlega að væri til, fyrr en í þar síðustu viku. „Í að minnsta kosti einni stefnu sem birt hefur verið er vísað til meintra brota á bandarísku njósnalöggjöfinni frá 1917, löggjöf sem varla hefur ver- ið hreyft við í áratugi enda sett í andrúmi fyrri heimsstyrjaldarinn- ar,“ segir Kristinn. Brot á njósna- löggjöfinni geta varðað dauðarefs- ingu. Kristinn bendir á að menn á borð við Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna, hafi kallað Juli- an Assange hryðjuverkamann og bætir við: „Ýmsir stjórnmálamenn hafa kallað eftir því að starfsmenn Wikileaks séu fangelsaðir og jafn- vel meðhöndlaðir eins og Bin Laden sem við vitum nú hvern- ig fór fyrir.“ Af ofangreindu er ekki furða að Íslendingar sem starfað hafa með Wikileaks séu varir um sig og hugsi sig tvisvar um áður en þeir fara til Bandaríkjanna. Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is Smári McCarthy Smári var áreittur í Bandaríkjunum vegna tengsla sinna við Wikileaks. Birgitta Jónsdóttir Utanríkisráðuneytið hefur ráðið Birgittu frá því að ferðast til Bandaríkjanna. Assange og Kristinn Hrafnsson Kollegarnir eru ljáir í þúfu bandarískra yfirvalda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.