Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2012, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2012, Blaðsíða 20
Lifðu áhyggjulausu lífi n 5 ráð til að fara eftir Þ að er eðlilegt að finna stund­ um fyrir smá kvíða en sífelld­ ar áhyggjur hafa mjög skaðleg áhrif bæði á andlega og lík­ amlega heilsu fólks. Ef þú vilt eiga innihaldsríkt og áhyggjulaust líf eru hér nokkur góð ráð til að fara eftir: Komdu auga á ástæðuna Það er eðlilegt að vera stundum stress­ aður en einblíndu ekki um of á smá­ atriðin, horfðu á heildarmyndina. Alls ekki hræðast hana, því þú munt án efa sjá eitthvað munstur í fari þínu sem getur hjálpað þér að minnka stressið. Gerðu eitthvað Ekki láta óttann stoppa þig og stjórna lífi þínu. Það er mjög auðvelt að gef­ ast bara upp og afgreiða hlutina sem eina af „staðreyndum lífsins“ en það er bara sjálfskemmandi. Þú verður að horfast í augu við vandamálið. Ef þú hugsar út í „hvað er það versta sem gæti gerst“ þá kemstu örugglega að því að þú gætir alveg leyst það. Skemmtu þér Stundum er það besta sem þú get­ ur gert við vandamál, að gleyma því. Taktu þátt í skemmtilegum hlutum til að dreifa huganum og hjálpa þér að horfa á jákvæðu hliðarnar. Eyddu tíma með fjölskyldunni, lestu góða bók, farðu í spa; gerðu eitthvað sem gleður þig. Fáðu stuðning Vinir og fjölskylda eru til staðar til að styðja okkur. Þeirra sjónarmið get­ ur hjálpað þér að sjá hlutina í skýrara ljósi og svo getur bara oft verið heil­ mikil hjálp í að tala upphátt um hvað er að angra mann. Slepptu tökunum Það sem er búið er búið. Ekki láta þér líða illa yfir einhverju liðnu. Þú get­ ur ekki breytt því núna og það besta sem hægt er að gera er að læra af for­ tíðinni. 20 Lífstíll 9. júlí 2012 Mánudagur Taska með vínflöskuhólfi Veitinga­ og skemmtistaðaeigend­ ur eru varla hrifnir af handtösk­ unum sem eru nú orðnar mjög vinsælar erlendis samkvæmt Daily Mail. Þessar töskur eru með sér­ hólfi fyrir vínflöskuna og eru því alveg kjörnar fyrir konur sem vilja bara einhverja eina tegund af víni og taka hana með sér í töskuna án þess að það sé mjög áberandi eða fyrirferðarmikið. Hólfið fyrir vínið er úr stífara efni en taskan sjálf svo að hún helst á sínum stað og engin hætta er á að hún verði fyrir hnjaski. Ekki skemmir svo fyrir að yfirleitt fylgir vínflaska hverri keyptri tösku þegar fest eru kaup á svona grip. Áhyggjur Sífelldar áhyggjur hafa skaðleg áhrif á heilsuna. Þjáist barnið af aðskilnaðarkvíða? n Ekki velja auðveldu leiðina; að láta þig hverfa þegar barnið sér ekki til 1 Vertu róleg og samkvæm sjálfri þér Það hjálpar að vera alltaf með sömu rútínuna þegar þú kveður barnið. Knúsaðu það og kysstu og segðu bless – og FARÐU. Ekki koma til baka þótt barnið gráti. Það gerir aðskilnaðinn erfiðari. 2 Búið til leik Leikir og einfaldar æfingar geta hjálpað til ef barnið bregst illa við að vera skilið eftir hjá pabba eða umönnunaraðila. Prófaðu leiki eins og „Bö“ eða „Hvar er mamma? Hér er mamma“. Þú getur falið andlitið bak við iljar barnsins. Eða breiddu teppi yfir höfuð barnsins og leyfðu því sjálfu að draga af sér og segja „bö“. Flest börn elska svona leiki og læra að mamma kemur alltaf aftur. 3 Æfið ykkur Segðu barninu að þú ætlir í næsta herbergi og að þú muni koma strax aftur. Jafnvel þótt að barnið skilji ekki orðin ennþá. Fáðu pabba með í lið. Hann og barnið bíða eftir mömmu og spyrja sig hvert hún hafi farið. Láttu barnið heyra í rödd þinni þótt það sjái þig ekki. Komdu svo og segðu: „Hér er mamma!“. 4 Skipulag Áður en þú snýrð aftur til vinnu mundu þá að kynna nýjan umönnunaraðila fyrir barninu. Ef þú ætlar að skilja það eftir hjá ættingja eða nýrri barnapíu skaltu bjóða manneskjunni í heimsókn svo barnið fái tíma til að aðlag- ast. Byrjaðu pössunina rólega ef það er möguleiki. Fyrsta daginn gæti barnið verið í pössun í tvo klukkutíma, næsta dag í hálfan dag og svo koll af kolli. Leyfðu barninu að hafa uppáhalds tuskudýrið eða teppið sitt með sér og mundu að aðlögunin verður erfiðari ef barnið er þreytt, svangt eða lasið. Tímasettu aðlögun svo best sé fyrir barnið. 5 Mundu að kveðja Stundum er aðskilnaðurinn svo erfiður fyrir foreldrið að það gengur út frá því að barnið eigi jafn erfitt. Þetta getur orðið til þess að foreldrið velja að lauma sér í burtu á meðan barnið sér ekki til í von um að forðast óþarfa þjáningu. En þjáningu hvers er hér verið að sneiða hjá? Og hvað gerist þegar barnið lítur upp í leit að mömmu og kemst að því að hún er horfin? Barnið gæti setið eftir sárt. Jafnvel þótt það geti verið erfitt á stundum er mikilvægt að undirbúa barnið með því að tala við það og kveðja áður en þú ferð. Þannig takmarkarðu glundroðann í huga barnsins. M argar mömmur, og ein­ hverjir pabbar auðvitað líka, hafa miklar áhyggj­ ur af aðskilnaðarkvíða – og ekki bara fyrir hönd unga­ barns síns. Þú skipuleggur næstu skref vel og vandlega, velur staðinn og réttu manneskjurnar til að hugsa um barnið á meðan þú snýrð aftur til lífsins sem hefur undanfarið setið á hakanum. Samt sem áður þjást margar mæður af gífurlegu samviskubiti þegar þær snúa aftur til vinnu eftir barnsburð. Aðskilnaðarkvíði felur í sér ótta við aðskilnað frá foreldrum. Samkvæmt vefsíðunni www.ljosmodir.is kemur kvíðinn oft fram við sex mánaða aldur. Eins ánægt og barnið er að geta hreyft sig sjálft um, þá getur það í leiðinni haft áhyggjur af því að mamma fari og sé ekki til staðar þegar það þarf á henni að halda. 5 skref til að sigrast á aðskilnaðarkvíða Lausn við appel- sínuhúð fundin? Svo virðist sem loksins sé komin raunveruleg lausn á því vandamáli sem margar konur þekkja sem appelsínuhúð. Lausnin felst í að­ ferð sem kallast Cellulaze, og snýst um leysigeisla sem bræðir fituna sem veldur því að húðin verð­ ur óslétt. Geislinn ræðst einnig á rót vandans, en það hafa aðrar meðferðir ekki gert. Virtir lækn­ ar sögðu í samtali við Wall Street Journal að árangurinn sé „ekkert annað en ótrúlegur“. En aðrir sér­ fræðingar segja að þótt að með­ ferðin lofi góðu, séu frekari rann­ sóknir nauðsynlegar. Barneignir breyta konum Samkvæmt rannsókn tekur það flestar nýbakaðar mæður um 13 mánuði að komast aftur í það lík­ amlega form sem þær voru í áður en þær urðu ófrískar. Og það sem meira er, að samkvæmt sömu rannsókn tekur það yfirleitt meira en heilt ár fyrir konur að upp­ lifa sig sem kynverur. Í rannsókn­ inni viðurkenndi ein af hverjum sjö konum að ástríðan sem þær upplifðu áður en þær urðu mæð­ ur hefði aldrei komið að fullu aft­ ur. Helsta orsökin fyrir skorti á kynlöngun reyndist vera þreyta, tímaleysi og það að geta ekki losn­ að við fituna á maganum. „Barn­ eignir breyta konum til framtíðar,“ segir sálfræðingurinn Elinor Wild. „Það getur enginn ætlast til þess að verða aftur nákvæmlega sama konan og hún var áður en barnið fæddist.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.