Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2012, Qupperneq 14
Engir erlendir stripparar
n Kanadamenn berjast gegn vændi og mansali
E
igendur súlustaða í Kanada ótt-
ast að þeir muni fara á hausinn í
kjölfar nýrra laga sem samþykkt
voru á dögunum. Samkvæmt
þeim munu einungis kanadísk-
ir ríkis borgarar mega vinna á súlu-
stöðum í landinu. Hundruð erlendra
kvenna hafa lifibrauð sitt af súludansi
í Kanada, en vegabréfsáritanir þeirra
verða ekki endurnýjaðar í kjölfar nýju
laganna. Þetta þýðir að umræddar
konur þurfa að yfirgefa landið þegar
vegabréfsáritanir þeirra renna út.
Þó að lögin hafi verið samþykkt
í síðustu viku hafa kanadísk yfir-
völd undirbúið lagasetninguna í þó
nokkurn tíma. Þannig voru einungis
tólf vegabréfsáritanir gefnar út á síð-
asta ári fyrir erlendar fatafellur sem er
gífurleg fækkun frá árinu á undan.
„Ríkisstjórnin getur ekki með góðri
samvisku gefið erlendu vinnuafli leyfi
til að starfa þar sem hætta er að ein-
hver muni hagnýta sér viðkomandi í
kynferðislegum tilgangi,“ segir Jason
Kenney, ráðherra innflytjendamála
í Kanada. Lagabreytingin er hluti af
áætlun kanadískra stjórnvalda til að
berjast gegn mansali.
Eigendur súlustaða er ósáttir við
breytingarnar og segir talsmaður
þeirra að 700 erlendir súludansarar
séu í Kanada. Tim Lambrinos, forsvars-
maður kanadísku Adult Entertain-
ment-samtakanna, segir að það sé
ósanngjarnt af yfirvöldum að setja alla
súlustaði undir sama hatt. Langflestir
eigendur reki staði sína með löglegum
hætti og vændi fyrirfinnist ekki á þess-
um stöðum. Lögin munu taka gildi um
næstu mánaðarmót.
14 Erlent 9. júlí 2012 Mánudagur
Fatafella Forsvarsmenn súlustaða í Kanada eru afar ósáttir við breytingarnar.
Mynd ReuteRs
Feitasti ung-
lingur Bretlands
í megrun
Georgia Davis, sem talin hefur
verið þyngsti unglingur Bretlands,
er á leið í megrun til Bandaríkj-
anna. Davis, sem er nítján ára,
hefur reglulega birst á síðum
breskra fjölmiðla en hún verður
flutt á Prince Charles-sjúkrastofn-
unina í Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum þar sem hún verður
undir eftirliti lækna. Davis vegur
rúmlega þrjú hundruð kíló en hún
náði afar góðum árangri þegar
hún fór á þessa sömu stofnun fyr-
ir fjórum árum. Þá tókst henni
að missa rúmlega fjörutíu kíló. Á
þeim fjórum árum sem liðin eru
frá því hún fór til Bandaríkjanna
hafa kílóin hins vegar hrannast
aftur upp.
Georgia hefur áður talað um
þann draum sinn að snúa blað-
inu við og jafnvel flytja til Japans
til að hefja nýtt líf. Hún segist hafa
fengið stuðningsbréf frá íbúum
víðsvegar um Bretland sem hafa
hvatt hana til dáða. Georgia þurfti
að sýna fram á árangur áður en
hún fékk pláss á Prince Charles-
stofnuninni. Mataræði hennar
samanstendur nú að miklu leyti
á höfrum, grænmeti og ávöxt-
um. Þetta er mikil breyting frá því
sem áður var, en Georgia hefur
lýst því yfir að hún hafi úðað í sig
hamborgurum, kebabi, pítsum og
sælgæti. Þessu öllu skolaði hún
niður með tveimur lítrum af gosi á
hverjum degi.
Sprengdi af
sér höndina
Metnaðarfull tilraun 46 ára karl-
manns til að búa til fallbyssu fór
illilega út um þúfur á dögunum.
Maðurinn, sem býr í Arkansas í
Bandaríkjunum, slasaðist alvar-
lega þegar skot hljóp úr byss-
unni. Það voru nágrannar sem til-
kynntu atvikið til lögreglu og var
sjúkrabíll sendur á staðinn. Mað-
urinn, Gregory Carlson, var fluttur
á sjúkrahús en hann missti aðra
höndina í slysinu. Þá hlaut hann
alvarleg brunasár á handleggn-
um. Hlaup byssunnar var 45 sentí-
metra langt og sagði maðurinn
við lögreglu að hann hafi verið að
afhlaða byssuna þegar kúlan hljóp
úr henni og í hönd hans.
„Hér er heitara
en í helvíti“
Að minnsta kosti 42 hafa látið lífið
í miklum hitabylgjum í Bandaríkj-
unum undanfarna daga. Hitamet
féllu víða á föstudag og laugardag
en á sunnudag var hitinn öllu lægri.
Í umfjöllun BBC kemur fram að
margir þeirra sem létust hafi verið
eldri borgarar sem bjuggu á heimil-
um með enga loftkælingu. Fjögurra
mánaða stúlka lést einnig í Indiana
eftir að hún var skilin eftir úti í bíl í
of langan tíma.
Á laugardag fór hitinn í 41 gráðu
í Washington DC og 46 gráður í St.
Louis í Missouri. „Hér er heitara en í
sjálfu helvíti,“ sagði kínverski ferða-
maðurinn John Ghio þegar blaða-
maður Reuters náði tali af honum
fyrir utan Hvíta húsið í Washington.
É
g hef verið misnotuð líkam-
lega. Ég hef verið misnotuð
andlega og eignir mínar hafa
verið frystar,“ segir hin 38 ára
Sara bint Talal bin Abdul-Aziz,
prinsessa frá Sádi-Arabíu. Sara hef-
ur búið í Bretlandi frá árinu 2007 en
þá yfirgaf hún Sádi-Arabíu eftir að
hún féll í ónáð hjá fjölskyldu sinni.
Á föstudag sótti hún um pólitískt
hæli í Bretlandi en málið vakti mikla
athygli þar í landi um helgina. Í við-
tali við The Sunday Telegraph sagð-
ist hún óttast að háttsettir aðilar kon-
ungsfjölskyldunnar hafi verið búnir
að leggja á ráðin um að ræna sér og
fara með sig til Sádi-Arabíu. Þess
vegna hafi hún ákveðið að sækja um
pólitískt hæli í Bretlandi.
Vildi eyðileggja mig
„Ég er mjög hrædd núna. Þeir vita
að ég get ekki snúið aftur heim,“ seg-
ir Sara í viðtalinu en hún er barna-
barn Abdul-Aziz bin Saud, stofn-
anda Sádi-Arabíu, og dóttir Talal
bin Abdluaziz al Saud sem jafnan er
kallaður Rauði prinsinn. Hún dvel-
ur nú á fimm stjörnu hóteli í London
ásamt fjórum börnum sínum og
tveimur hundum og gæta öryggis-
verðir herbergisins allan sólar-
hringinn. Ekki liggur nákvæmlega
fyrir hvers vegna hún féll í ónáð hjá
fjölskyldu sinni og segist Sara ekki
vilja fara mikið út í þá sálma. „Fað-
ir minn snérist gegn mér og vildi
eyðileggja mig. Ég var uppáhaldið
hans,“ segir hún. Sara nefnir þó að
fjölskylda hennar hafi sakað hana
um að hafa snúist gegn konungs-
fjölskyldunni og hafa unnið bak við
tjöldin með nágrannaríkinu Íran.
deilur um arf
Móðir Söru lést úr krabbameini árið
2008 og síðan þá hefur hún átt í deil-
um við eldri bróður sinn vegna mik-
illa eigna sem móðir hennar skildi
eftir sig þegar hún lést. Eignir hennar
voru metnar á 325 milljónir punda,
eða um 65 milljarða króna. Sjálf seg-
ist Sara ekki hafa fengið krónu í arf
og háttsettir aðilar innan konungs-
fjölskyldunnar hafi hvatt hana til að
koma heim og leysa málið þar. Það
hafi hún hins vegar ekki viljað af
ótta um öryggi sitt. Beiðni Söru um
pólitískt hæli virðist sýna, svo ekki
verður um villst, spennuna sem rík-
ir innan konungsfjölskyldunnar í
Sádi-Arabíu. Konungurinn, Abd-
ullah, glímir við veikindi og helsti
bandamaður Söru, krónprinsinn
og erkióvinur föður hennar, Nayef
bin Abdul-Aziz al Saud, lést í síð-
asta mánuði. Ekki er talið ólíklegt
að beiðni hennar um pólitískt hæli
tengist einnig andláti Nayefs.
Pólitísk spenna
Beiðni Söru um pólitískt hæli
gæti valdið spennu á milli Bret-
lands og Sádi-Arabíu. Ástæðan er
sú að breska innanríkisráðuneytið
þarf að fara nákvæmlega ofan í
saumana á því hvort ásakanir Söru
eigi við rök að styðjast áður en
ákvörðun verður tekin um pólitískt
hæli. Og í umfjöllun The Sunday
Telegraph kemur fram að þar sem
yfirvöld í Sádi-Arabíu vilja að hún
snúi aftur til heimalands síns gæti
það valdið spennu milli ríkjanna
fari svo að Bretar veiti henni póli-
tískt hæli. Árið 1980 var sendiherra
Bretlands í Sádi-Arabíu rekinn
heim eftir að ITV-sjónvarpsstöð-
in birti umfjöllun um sádi arabíska
prinsessu sem var líflátin vegna
framhjáhalds.
Sjálf segist Sara einungis vilja
endurheimta mannorð sitt en hún
hefur meðal annars verið bendluð
við Hizbollah-samtökin – ásökun
sem hún neitar. „Ég er ekki mjög
hugrökk. En ég vil endurheimta
réttindi mín og virðingu mína.“
n Sara Abdul-Aziz yfirgaf Sádi-Arabíu árið 2007
Prinsessa sækir
um pólitískt hæli
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Ég er
mjög
hrædd núna.
Þeir vita að ég
get ekki snúið
aftur heim
Óttast Sara
hefur sótt um
pólitískt hæli í
Bretlandi af ótta
um öryggi sitt.
spenna innan fjölskyldunnar Krónprinsinn Nayef bin Abdul al Saud lést í síðasta
mánuði. Abdullah konungur sést hér næst lengst til hægri í jarðarförinni.