Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.2012, Side 25
Sport 25Mánudagur 23. júlí 2012 Skapa nýtt stórveldi í Evrópuboltanum n Eigendur PSG eyða eins og enginn sé morgundagurinn Þ að er staðfest. Zlatan Ibrahimovich er orðinn leik- maður Paris Saint-Germain í Frakklandi. Það var síðasta púslið sem vantaði í fokdýrt liðið sem er á einu ári að verða að nýju stórveldi í Evrópuboltanum þökk sé hyldjúpum vösum fjárfesta frá Katar. Hafa eigendurnir, sem keyptu liðið með manni og mús í maí í fyrra, keypt fjölda leikmanna og stefna að því að gera það sama við PSG og Roman Abramovich gerði við Chelsea og Arabíufurstar við Manchester City; taka miðlungs- lið, kaupa tonn af góðum leik- mönnum og stækka hillupláss fyrir bikarana. Hafa fjárfestarnir eytt 200 millj- ónum evra í nýja leikmenn síðan þeir komu að klúbbnum og þar á meðal mölbrotið franska metið fyrir verð á einum leikmanni. Það var þegar félagið keypti Javier Pastore á síðustu leiktíð fyrir 42 milljónir evra. Upphæðin er hærri uppfærð til núvirðis en þær fúlg- ur sem Roman Abramovich eyddi fyrsta árið sem hann átti Chelsea. Hingað til í sumar hefur buddan verið opnuð þrívegis. Abrahimovic er þriðji nýi leikmaðurinn síðustu vikurnar. Hinir tveir eru Ezequiel Lavezzi og Thiago Silva sem báðir komu frá AC Milan. Er ár og dagur síðan franskt félagslið heillaði frá- bæra leikmennn frá Ítalíu en það gera auðvitað risalaunin. Keyptir leikmenn hingað til eru: Kevin Gameiro, Milan Bisevac, Blaise Matuidi, Jeremy Menez, Salvatore Sirigu, Moha- med Sissoko, Javier Pastore, Diego Lugano, Maxwell, Alex, Thiago Motta, Ezequiel Lavazzi, Zlatan Ibrahimovich og Marco Verratti. albert@dv.is Úrslit Pepsi-deildin Grindavík – FH 0–1 Guðmann Þórisson (6.) Staðan L U J T Skor Stig 1. KR 12 7 3 2 24:15 24 2. Stjarnan 12 5 6 1 25:19 21 3. FH 10 6 2 2 28:12 20 4. ÍBV 10 5 2 3 20:11 17 5. ÍA 11 5 2 4 18:22 17 6. Fylkir 11 4 4 3 14:19 16 7. Keflavík 11 4 3 4 19:16 15 8. Valur 11 5 0 6 16:15 15 9. Breiðablik 11 4 3 4 9:13 15 10. Fram 11 3 0 8 13:19 9 11. Selfoss 11 2 2 7 13:24 8 12. Grindavík 11 1 3 7 15:29 6 Næstu leikir ÍBV – Selfoss Mánudag kl. 18:00 Keflavík – Fylkir Mánudag kl. 19:15 Valur – Fram Mánudag kl. 19:15 ÍA – Breiðablik Mánudag kl. 19:15 Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritstjorn@dv.is Breti sigraði í Tour de France Bretinn Bradley Wiggins endaði sem sigurvegari í Tour de France sem lauk í gær í París. Wiggins var vel að sigrinum kominn en hann nældi sér í gulu forystupeysuna strax á sjötta degi keppninnar erf- iðu og lét hana aldrei af hendi eft- ir það. Víst metnaður hjá Arsenal Deilt er á forráðamenn Arsenal fyrir að endurnýja ekki saming liðsins við markahrókinn Robin van Persie og er það sagt til marks um metnaðarleysi. Talið er víst að Persie verði seldur annað á næstu dögum. Arsene Wenger segir það af og frá og segir að fjárhagslegt öryggi liðsins sé alltaf númer eitt, tvö og þrjú. Risasamningar geti auðveldlega sett það í uppnám.S pánverjinn Fernando Alonso virðist vera að endurheimta sitt allra besta form í Formúl- unni en hann gerði sér lítið fyrir og vann æsispennandi keppni í Hockenheim í Þýskalandi um helgina. Þa með varð Alonso fyrsti ökumaðurinn þetta keppn- istímabilið til að sigra þrjár keppnir. Endaspretturinn var einn sá jafn- asti í Formúlunni lengi en Alonso átti í höggi við Jenson Button á McL- aren og Sebastian Vettel hjá Red Bull fram á síðasta hring. Með sigrinum er Spánverjinn á Ferrari-bíl sínum kominn í kjörstöðu í keppni öku- manna með 34 stiga forskot á næsta mann í þeirri keppni. Aðeins fimm keppnir eru eftir á þessu tímabili og má mikið gerast til að Alonso næli sér ekki í enn einn heimsmeistaratit- il. Sjálfur er hann þó lítillátur og seg- ir titilinn alls ekki innan seilingar þó margt og mikið þurfi að gerast til að það verði ekki raunin. Kallaði Hamilton vitleysing Töluverða athygli vakti sú yfirlýs- ing Sebastians Vettel eftir keppn- ina að kalla Lewis Hamilton, öku- mann McLaren, vitleysing fyrir að aka eins og hann ætti lífið að leysa í kappi við fremstu menn á Hocken- heim þó að Hamilton væri heilum hring á eftir fremstu mönnum. Hafði sprunginn hjólbarði tafið Hamilton það mikið en hann ók engu að síð- ur eins og eldibrandur. Taldi Vettel, sem á þeim tímapunkti var í harðri keppni við Jenson Button og Fern- ando Alonso, að kappið í Hamilton hefði tímabundið kostað hann ann- að sætið á eftir Alonso og allnokkrar sekúndur þegar upp var staðið. „Ég skil ekki tilganginn með að keppa við fremstu menn í slíkri stöðu. Það er varla neitt annað en vitleysisháttur.“ Óhófleg bjartsýni Og reyndar grunar marga að Hamilton sé nú orðinn eitthvað dasaður. Hef- ur honum lítt gengið upp á síðkastið og ekið svo illa að orðrómur hefur verið uppi um að samning hans við McLaren verði sagt upp. Hafa forráða- menn McLaren þó ekkert gefið út um að slíkt sé hugsanlegt. Hamilton hefur ekið fyrir liðið allar götur síðan hann hóf keppni á F1 2007. Hamilton er nú 37 stigum á eftir Fernando Alonso í keppninni um heimsmeistaratitilinn í greininni en telur sjálfur góðar líkur að hann hampi titlinum í lok vertíðar. Víti á Vettel Eftir keppnina var ákveðið að refsa Sebastian Vettel fyrir að fara fram úr keppinaut sínum Jenson Button utan brautar í keppninni í gær. Vítið var 20 sekúndu refsing í viðbót við tíma hans í hringnum. Við það féll Vettel og lið hans úr öðru sætinu á Hocken- heim í það fimmta. Upprisa alonso n Spánverjinn vann sinn þriðja sigur í F1 n Með mikið forskot á aðra Illa farið með gott kampavín Vettel og Jenson hella yfir sigurvegarann á Hockenheim brautinni. Keppnin var ein sú harðasta í langan tíma. Snýr aftur með stæl Alonso í baráttu við Vettel. Að komast ekki í skóna Hinn yfirlýsingarglaði Diego Arm- ando Maradona heldur því fram að Cristiano Ronaldo sé lakari leikmaður en Leo Messi. Ronaldo sé vissulega frábær en hann gef- ist of auðveldalega upp ef á móti blási en það aftur á móti efli Messi í sínum leik. Síðasta púslið Zlatan er einn fjölmargra rándýrra leikmanna sem Parísarliðið hefur keypt undanfarið. Mynd: REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.