Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2012, Qupperneq 24
Í
slenska handboltalands-
liðið vann auðveldan tíu
marka sigur á Túnis í riðla-
keppni Ólympíuleikanna
í London á þriðjudags-
morgun. Lokatölur urðu 32–22
en Ísland er nú með fullt hús
stiga eftir fyrstu tvo leiki sína
á leikunum. Sigurinn var þó
ljúfsár fyrir nokkra leikmenn
íslenska liðsins því tveir strák-
ar úr íslenska hópnum misstu
vinnuna svo til í miðjum leik
því danska stórliðið AGK lýsti
sig gjaldþrota.
Flugeldasýning í fyrri
hálfleik
Það er ekki hægt að lýsa fyrri
hálfleik íslenska liðsins öðru-
vísi en sem flugeldasýningu í
handknattleik. Strákarnir okk-
ar léku frábærlega og gerðu út
um leikinn. Á markatöflunni
mátti um tíma sjá stöðuna
11–3, Íslandi í vil. Í hálfleik var
staðan 19–8 og ljóst að mikið
yrði að fara úrskeiðis til að ís-
lenska liðið missti sigurinn úr
greipum sér.
Tíu mörk – tíu krónur
Í síðari hálfleik byrjuðu ís-
lensku strákarnir af miklum
krafti og komust í 24–9 en þá
kom kæruleysislegur kafli í
leik liðsins. Eftir þessa sterku
byrjun liðsins varð munurinn
minnstur sjö mörk en strák-
arnir gáfu eilítið í og unnu að
lokum tíu marka sigur. Íslensk-
ir bifreiðaeigendur geta tekið
gleði sína því einhver olíufé-
lög hafa lofað afsláttarkjörum
sem eru beintengd úrslitum
leikjanna. Tíu króna afsláttur
af lítranum var því staðreynd.
Hjá Íslandi var Aron Pálm-
arsson frábær í leiknum með
8 mörk. Guðjón Valur Sigurðs-
son 7 og Alexander Petersson
5. Björgvin Páll Gústavsson
varði 8 skot og kollegi hans
Hreiðar Levý Guðmundsson
varði 6 en þeir deildu leiknum
bróðurlega á milli sín.
Ljúfsár sigur
En það dró til tíðinda annars
staðar í handknattleiksheim-
inum meðan leikur Íslands
og Túnis stóð yfir. Tilkynn-
ing barst frá hinum áður
auðuga skartgripasala
Jesper Nielsen í Dan-
mörku. Hann lýsti því
yfir að danska stórliðið AG
København (AGK), sem hann
hefur á undangengnum árum
dælt peningum í, væri gjald-
þrota. Tíðindin hafa bein áhrif
Ísland, enda hafa nokkrir af
okkar bestu leikmönnum leik-
ið með liðinu.
Snorri Steinn Guðjónsson
og Arnór Atlason eru samn-
ingsbundnir liðinu og þurfa því
að róa á ný mið. Stórstjörnurn-
ar Guðjón Valur Sigurðsson og
Ólafur Stefánsson voru einnig
á mála hjá liðinu á síðustu leik-
tíð. Guðjón Valur er genginn
til liðs við Kiel í Þýskalandi en
framtíð Ólafs er óráðin eftir að
samningur hans rann út.
Bannað að tala
Það vekur talsverða athygli
að svo virðist sem Hand-
knattleikssamband Íslands
(HSÍ) hafi meinað íslensku
leikmönnunum að tjá sig um
gjaldþrot AGK. Guðjón Valur
tjáði sig reyndar um málið á
Vísi þar sem hann sagðist vera
í sjokki yfir fregnunum. „Það
er mjög leiðinlegt að þetta
verk efni skuli ekki hafa geng-
ið eftir því það er allt til alls
þarna,“ var haft eftir horna-
manninum frábæra eftir leik á
Vísi. RÚV leitaði viðbragða hjá
Guðjóni, Snorra, Atla og Ólafi
eftir leik en þá mun HSÍ hafa
gripið í taumana og meinað
þeim að ræða málefnið.
Þó að Snorri Steinn og Arn-
ór muni vafalaust ekki eiga
í vandræðum með að finna
sér nýtt lið, enda frábær-
ir leikmenn, er einnig ljóst að
þessu AGK-máli fylgir óþægi-
leg óvissa fyrir þessa leikmenn
sem vonandi þó fyrir íslenska
liðið og íslenska þjóð mun
ekki hafa áhrif á þessa ágætu
atvinnumenn. n
24 Sport 1. ágúst 2012 Miðvikudagur
Það er líf eftir van Persie
n Thierry Henry tjáir sig um yfirvofandi brottför fyrirliða Arsenal
T
hierry Henry, sem fyr-
ir löngu er kominn í
hóp goðsagnakenndra
leikmanna hjá Arsenal,
segir að stuðningsmenn
liðsins skuli ekki örvænta þó
Robin van Persie yfirgefi her-
búðir Arsenal. Talið er nær
öruggt að van Persie fari frá
Arsenal í sumar, en hann
hefur neitað að skrifa undir
framlengingu á samningi sín-
um sem rennur út á næsta ári.
Ætli Arsenal að fá einhvern
aur fyrir leikmanninn þurfa
þeir því að selja hann í sum-
ar eða í síðasta lagi í janúar.
Manchester City, Manches-
ter United og Juventus eru
meðal þeirra liða sem nú gera
hosur sínar grænar fyrir hol-
lenska markahróknum.
„Við vonum auðvitað
að hann verði áfram,“ seg-
ir Henry, sem nú leikur með
New York Red Bulls í banda-
rísku MLS-deildinni, í sam-
tali við Sky Sports. „Ég veit
ekki hvað gerist, en sem
stuðningsmaður Arsenal
vona ég innilega að hann
verði áfram,“ segir Henry og
bætir við að „allir hafi grátið“
þegar hann yfirgaf félagið
árið 2007 til að ganga í rað-
ir Barcelona. Félagið hafi þó
yfirstigið brotthvarf sitt með
sóma og ávallt muni koma
maður í manns stað.
Henry tjáði sig þó ekki
einungis um van Persie því
hann lofaði ungstirnið Jack
Wilshire í hástert. Wilshire
er nú að jafna sig á erfiðum
meiðslum og verður vænt-
anlega ekki klár í slaginn fyrr
en í október. Henry segir að
Wilshire eigi alla möguleika
á að ná í fremstu röð í heim-
inum.
„Wilshire er leikmað-
ur sem allir þjálfarar vilja
hafa í sínu liði. Hann er mik-
ill stuðningsmaður Arsenal
og frábær leikmaður – svo
einfalt er það. Það er synd
að hann skuli hafa meiðst
því hann tók stórkostlegum
framförum á undraverðum
tíma.“
Ísland 32
Túnis 22
Mörk Íslands:
Aron Pálmarsson 8
Guðjón Valur Sigurðsson 7
Alexander Petersson 5
Ólafur Stefánsson 3
Ingimundur Ingimundarson 3
Snorri Steinn Guðjónsson 3
Arnór Atlason 1
Róbert Gunnarsson 1
Ásgeir Örn Hallgrímsson 1
Varin skot:
Björgvin Páll 8 skot (42%)
Hreiðar Levý 6 skot (36%)
Næstu leikir
02.08 Kl 20:15
Ísland - Svíþjóð
04.08 Kl. 18:30
Ísland - Frakkland
06:08 Kl. 15:15
Ísland - Bretland
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Auðvelt gegn Túnis
Guðjón Valur skoraði 7
mörk í sigrinum gegn Túnis.
Hann hefur samið við Kiel
og gjaldþrot AGK er því ekki
hans vandamál lengur.
MyNd: ReuTeRs
Þórður kallar Kjartan óþverra:
Ætlaði engan
að meiða
Kjartan Henry Finnboga-
son, framherji KR, segir
Þórð Þórðarson, þjálfara ÍA,
hafa haft sjálfan sig að fífli
með ummælum sem hann
lét falla eftir leik liðanna á
mánudagskvöld. KR vann
auðveldan 2–0 sigur þar sem
Kjartan Henry og Óskar Örn
Hauksson skoruðu mörk-
in. Óhætt er að segja að
netheimar hafi logað í gær-
kvöldi þegar viðtöl tóku að
birtast eftir leik. Þórður lét
þung orð falla og vísaði sér-
staklega til umdeilds atviks í
fyrri hálfleik þar sem Kjartan
Henry hoppaði frá tæklingu
Guðjóns Heiðars Sveinsson-
ar, varnarmanns ÍA, en ekki
vildi betur til en svo að hann
lenti jafnfætis á hendi Guð-
jóns. Skagamaðurinn slas-
aðist illa og þurfti að sauma
18 spor í hann. Þórður sagði
eftir leik að Kjartan hefði
viljandi stappað á Guðjóni
og kallaði hann „óþverra“
sem margoft hefði gerst sek-
ur um bolabrögð sem þessi.
Í viðtali við Fotbolta.net á
þriðjudag segir Kjartan það
af og frá að hann hafi ætlað
að meiða Guðjón Heiðar.
Hann fordæmdi að auki um-
mæli Þórðar. Loks bað hann
Guðjón Heiðar afsökunar.
Mascherano
fær samning
Barcelona hefur framlengt
samning sinn við argent-
ínska miðjumanninn Javier
Mascherano um fjögur ár.
Það þýðir að þessi harði
miðjumaður verður á Camp
Nou þar til árið 2016. Á sama
tíma hefur fyrirliði liðsins,
Carles Puyol, eiginlega lýst
eftir nýjum samningi við fé-
lagið. Hann segir við dag-
blaðið Marca að hann vilji
ólmur enda ferilinn hjá upp-
eldisfélaginu og vilji ólmur
framlengja.
Buðu í
Robinho
Luis Alvaro Ribeiro, forseti
brasilíska félagsins Santos,
hefur viðurkennt að félagið
hafi gert tilboð í einn af sín-
um fyrrverandi leikmönn-
um, framherjann Robinho.
Ribeiro segir hins vegar að
AC Milan hafi hafnað tilboð-
inu og hann hafi ekki haft
árangur sem erfiði með 4
milljóna evra tilboði sínu.
„Þeir vildu 6 milljónir evra
og höfðu að auki misst Zlat-
an nýverið.“
UrðU atvinnUlaUsir
Óþægileg óvissa Snorri Steinn skoraði þrjú mörk í leiknum en það
hlýtur að naga hann að óvissa er um framtíð hans eftir gjaldþrot AGK.
n Ísland vann tíu marka sigur á Túnis
í miðjUm sigUrleik
Frábær leikmaður Thierry Henry segir að maður komi í manns stað.
Stuðningsmenn Arsenal eigi ekki að örvænta þó van Persie hverfi á braut.
MyNd ReuTeRs