Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Blaðsíða 12
Grunsemdir vöknuðu 12 Fréttir 21.–23. september 2012 Helgarblað V ikuna 5. til 9. mars síðast- liðinn hafði Baldur Guð- laugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármála- ráðuneytinu, samband við að minnsta kosti tvö fjármálafyrirtæki og spurðist fyrir um sölu á íbúðabréf- um. Að minnsta kosti í öðru tilfell- inu sagði hann ekki til nafns en lýsti áhuga á að selja íbúðabréf – svoköll- uð HFF-bréf – fyrir vel á annað hund- rað milljónir króna. Tilgangur Baldurs hefur líkast til verið að afla upplýsinga um þóknanir sem greiða þyrfti til fjár- málafyrirtækjanna vegna sölunnar. Annað fjármálafyrirtækið, HF Verðbréf, seldi bréf Baldurs í gegnum Kauphöll Íslands föstudaginn 9. mars, rétt fyrir klukkan fjögur, fyrir tæplega 187 milljónir króna að nafnvirði. Kast- ljós Ríkissjónvarpsins greindi frá sölu Baldurs á bréfunum á miðvikudaginn. Þremur dögum síðar, eftir lokun markaða þann 12. mars og fyrir opn- un markaða þann 13., var samþykkt á Alþingi breyting á lögum um gjald- eyrishöft. Lagabreytingin var á vitorði „mjög, mjög fárra“, samkvæmt heim- ildarmanni DV innan úr stjórnkerfinu, og var því keyrð í gegn í skjóli nætur. Breytingarnar á lögunum voru unn- ar af Seðlabanka Íslands og fjármála- ráðuneytinu. Lagabreytingin snérist meðal annars um útflæði á vöxtum af skuldabréfaflokknum sem Baldur hafði fjárfest í. „Blóðbað á markaði“ Lagabreytingin hafði strax um morguninn 13. mars mikil áhrif á markaðinn með skuldabréfin sem Baldur hafði átt. Klukkan rúmlega tíu um morguninn birti vefmiðill- inn Vísir frétt með fyrirsögninni „Blóðbað á markaði, íbúðabréf falla um 14%“. Þar var rakið hvernig laga- setningin hafði leitt af sér lækkun á skuldabréfunum sem Baldur hafði átt. „Lagasetningin um hert gjald- eyrishöft á Alþingi í nótt kallaði fram mikil viðbrögð á skuldabréfa- markaði í morgun. Þannig hafa stutt íbúðabréf eða flokkurinn HFF14 lækkað um 14% í verði og HFF24 hafa lækkað um 2,5%. Þessar lækk- anir hafa síðan smitað út frá sér yfir í ríkisskuldabréf.“ Bréf úr þessum skuldabréfaflokki seldust fyrir meira en þrjá milljarða króna á fyrstu klukkutímunum eftir opnun markaða þennan dag. Vegna þeirra aðstæðna sem sköpuðust á markaðnum í kjölfar lagasetningar- innar heimilaði Íbúðalánasjóð- ur, útgefandi íbúðabréfanna, verð- bréfamiðlurum sínum að vinna með aukið verðbil á milli sölu- og kauptilboða í klukkustund eft- ir opnun markaða þann 13. mars, samkvæmt tilkynningu sem sjóð- urinn sendi frá sér þá um morgun- inn. Þetta var gert til að bregðast við mikilli sölu á íbúðabréfunum þá um morguninn. Grunsemdir vakna Þegar lagabreytingin hafði gengið í gegn byrjuðu starfsmenn annars fjár- málafyrirtækisins sem hinn ónafn- greindi einstaklingur hafði haft sam- band við að velta því fyrir sér hver það hefði verið sem hringt hefði nokkrum dögum áður til að spyrjast fyrir um söluna á íbúðabréfunum. Þeir sáu að skömmu eftir að viðkom- andi hafði haft samband til að spyrj- ast fyrir um söluna á bréfunum höfðu slík bréf verið seld fyrir sömu upp- hæð og nefnd var í símtalinu. Við eft- irgrennslan kom í ljós að um væri að ræða Baldur Guðlaugsson. Viðkomandi fjármálafyrirtæki íhugaði að senda ábendingu um mál- ið til Fjármálaeftirlitsins í ljósi þess að óeðlilegt þótti að bréfin hefðu verið seld þetta skömmu fyrir setningu lag- anna. Fjármálafyrirtækið lét þó ekki verða af þessu. Salan á skuldabréfun- um fór hins vegar inn á borð til Fjár- málaeftirlitsins eftir öðrum leiðum, samkvæmt heimildum DV. Rannsókn ólíkleg Afar ólíklegt er að salan á bréfun- um verði kærð til embættis sérstaks saksóknara. Fyrir því eru nokkrar ástæður. Baldur var ekki innherji á þeim tíma sem hann seldi íbúðabréf- in og bjó því ekki yfir upplýsingum um lagasetninguna sem hann hafði augljóslega öðlast í krafti starfs síns. Hann var hættur störfum sem ráðu- neytisstjóri og beið eftir því að hefja afplánun dóms fyrir innherjasvik – hann fór á Kvíabryggju þann 13. mars, sama dag og hin nýju hertu lög tóku gildi. Til að eitthvert vit væri í rann- sókn málsins þyrfti að finna hvort og þá hvernig Baldur komst yfir upplýs- ingar um væntanlega lagasetningu. Slíkt gæti reynst nokkuð snúið. Mál- inu telst því víst lokið án þess að náðst hafi að upplýsa hvort um hafi verið að ræða upplýsingagjöf til Baldurs sem leiddi til sölunnar á bréfunum eða hreina tilviljun. Sjálfur segir Baldur að eðlilegar ástæður hafi verið fyrir sölunni þar sem bréfin hefðu hækkað mjög í verði það sem af var árinu, líkt og lesa má hér til hliðar. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is eftir laGa- setninGuna n Baldur sagði ekki til nafns n Íbúðabréf hrundu í verði Yfirlýsing Baldurs Baldur Guðlaugsson sendi frá sér yfirlýsingu á fimmtudag vegna umfjöllunar Kastljóss um söluna á skuldabréfunum. Yfirlýsingin er svohljóðandi: Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var fjallað um það að undirritaður hefði selt íbúðarbréf í mars sl., nokkrum dög-um áður en gerðar voru breytingar á lögum um gjaldeyrismál sem þrengdu heimildir erlendra eigenda slíkra bréfa til að fá gjaldeyrisyfirfærslu fyrir afborgunum og vöxtum af bréfunum. Var látið að því liggja að undirritaður hefði vegna fyrri starfa í stjórnarráðinu haft vitneskju um að umræddar lagabreytingar væru í farvatninu. Af þessu tilefni skal eftirfarandi tekið fram: 1 Ég lét af störfum í stjórnarráðinu á árinu 2009 og hef ekki frá þeim tíma haft neinn aðgang að upplýsing- um um þau mál sem á hverjum tíma eru til vinnslu í stjórn- arráðinu eða annars staðar í stjórnsýslunni. Hef ég hvorki leitað eftir slíkum upplýsingum né þær verið látnar mér í té. Gildir það jafnt um breytingar á lögum um gjaldeyrimál sem önnur mál. Mér var því með öllu ókunnugt um að til stæði að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum sem þrengdu gjaldeyrisyfirfærsluheimildir erlendra eigenda íbúðabréfa.  2 Ástæða þess að ég ákvað að selja íbúðabréf sem ég átti í flokki HFF 14 var ósköp einföld. Þessi bréf höfðu hækkað mjög í verði á fyrstu mánuðum þessa árs, að því er fram hafði komið vegna áhuga erlendra krónueigenda á að eignast þau af þeim ástæðum sem að framan greinir. Um- rædd íbúðabréf eru með afborgunum tvisvar á ári og loka- gjalddaga á árinu 2014. Segir sig sjálft að eftirstöðvar bréf- anna – og þar með andlag viðskipta með bréfin – lækkar eftir því sem búið er að greiða fleiri afborganir af bréfunum og nær dregur lokagjalddaga þeirra. Ég ákvað því að selja íbúðabréf sem ég átti í flokki HFF 14. Þar sem fyrir lá að ég myndi hefja nýjan kafla í lífinu sunnudaginn 11. mars sl. lagði ég áherslu á að ljúka sölunni fyrir þann tíma. Hafði ég fyrst samband við verðbréfafyrirtæki um söluna um miðbik vikunnar á undan. Viðskipti komust síðan á föstudaginn 9. mars. Tímasetning tilkynningar verðbréfafyrirtækisins sem annaðist viðskipin til Kauphallar þann dag um viðskiptin er mér hins vegar með öllu óviðkomandi. Rétt er að taka fram að það sem fram kom í umfjöllun Kastljóss um söluverð umræddra bréfa er rangt. Söluverð bréfanna var miklum mun lægra.  3 Mér er ekki kunnugt um að umrædd viðskipti eða önn-ur sem fram fóru á þessum tíma sæti sérstakri rann- sókn. Það á hins vegar að vera sjálfsagður hluti af verkefn- um Kauphallar og Fjármálaeftirlits að kanna hvort eitthvað telst óeðlilegt við viðskipti á verðbréfamarkaði sem eiga sér stað í aðdraganda lagabreytinga sem áhrif geta haft á verð- myndun á markaði. Vonandi hefur það verið gert í þessu til- viki sem öðrum.  Ég mun ekki tjá mig frekar um þetta mál.“ Segir viðskiptin eðlileg Baldur Guðlaugsson segir að viðskipti hans með íbúðabréf í mars síðastliðnum hafi verið eðlileg og að hann hafi enga vitneskju haft um lagabreytingar sem ollu verðrýrnun á þessum bréfum. Á Vernd Baldur sést hér ganga inn á Vernd eftir vinnudag á lögmannsstofunni Lex. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik árið 2011. ynd eyþóR ÁRnaSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.