Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Blaðsíða 56
Tvöföld frelsis- svipting! Rúnta á ráðherrarútu n Þorvaldur Gylfason mun ferð- ast með stjórnmálasamtökun- um Dögun um landið og kynna stjórnarskrártillögur stjórnlaga- ráðs á komandi dögum. Ætlunin er að kynna tillögurnar og hvetja landsmenn til að mæta á kjör- stað þann 20. október. Farartæk- ið verður nýuppgerð ráðherrar- úta og Sauðárkrókur verður fyrsti viðkomustaðurinn. Þorvaldur verður þó ekki einn á ferð heldur ferðast með honum stjórn- lagaráðsmennirn- ir Gísli Tryggvason og Lýður Árnason. Þá verð- ur einnig Skerjafjarðar- skáldið Kristján Hreinsson auk þingmanna Hreyfingar- innar og Þórs Baldurssonar. Gangandi auglýsing n Jóhannes Jónsson kaupmaður, nú kenndur við Iceland, er eflaust besta auglýsing Iceland-versl- unarinnar, en hann sést nánast aldrei án þess að vera klæddur einkennisfatnaði hennar, vesti og der- húfu. Hefur hann sést spóka sig í búningnum allar götur síðan búðin var opnuð. Jóhannes snæddi hádeg- isverð í miðborg Reykja- víkur í fullum skrúða, en tók þó ofan höf- uðfatið við borð- haldið. Vinsælir biskupar n Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, er eins og margir aðr- ir Íslendingar á Facebook. Hún er vinamörg og á rúmlega 620 vini á samskiptasíðunni. Hún er þó ekki með tærnar þar sem fyrirrennari hennar í embætti biskups hefur hælana. Karl Sig- urbjörnsson, fyrrverandi bisk- up, á 2.087 vini á síðunni, eins og staðan var á fimmtudag. Lík- legt verður að teljast að Agnes eigi eftir að bæta við sig vinum á næstu mánuð- um vegna stöðu sinnar en það verð- ur spennandi að sjá hvort og þá hvenær hún nær að skáka Karli. A ndrea Kristín Unnarsdóttir, Andrea „slæma stelpa“ eins og hún kýs að kalla sig, giftist unnusta sínum og samverka- manni Jóni Ólafssyni í fangelsinu á Litla-Hrauni þann 7. september síð- astliðinn. Samkvæmt heimildum DV var athöfnin fábrotin en engir gest- ir voru viðstaddir. Andrea og Jón hafa verið par til margra ára. Andrea afplánar fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm í kvennafangelsinu í Kópavogi fyrir þátt sinn í hrottalegri árás á unga konu í Hafnarfirði í des- ember. Jón var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir sína aðild að málinu en þau voru bæði dæmd fyrir sérstak- lega hættulega líkamsárás og kynferð- isbrot. Andrea er sögð hafa sterk tengsl inn í Hells Angels en Jón mun hafa verið meðlimur í S.O.D sem eru stuðningssamtök Hells Angels á Ís- landi. Þau voru bæði ákærð fyrir aðild að skipulagðri glæpastarfsemi en voru sýknuð af þeim ákærulið. Hreinn Hákonarson fangelsis- prestur segir sjaldgæft að fangar gangi í hjónaband á meðan þeir afplána fangelsisdóm en það hafi þó komið fyrir. Hann vill ekki tjá sig um einstök mál en segir að almennt séð sé ekkert því til fyrirstöðu að fólk gifti sig innan fangels- ismúranna. „Það er al- mennt mjög sjaldgæft að fólk sem er í afplán- un sé að giftast. Það bíð- ur yfirleitt með það þar til það er orðið frjálst. En fangar hafa mannréttindi og þó þeir séu í fangelsi mega þeir ganga í það heilaga.“ n hanna@dv.is Ást í afplánun n Andrea „slæma stelpa“ og Jón Ólafsson gengu í það heilaga Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 21.–23. SepTeMBer 2012 109. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Giftu sig á Hrauninu Andrea „slæma stelpa“ Unnarsdóttir og eiginmaður hennar, Jón Ólafsson. Þau giftu sig á Litla-Hrauni fyrir skömmu. SAMSeTT Mynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.