Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Side 13
Persónukjör
Fréttir 13Helgarblað 21.–23. september 2012
F
rumvarp um persónukjör
þvert á flokka hefur verið
lagt fram á Alþingi. Þetta er
í þriðja sinn sem frumvarp
ið er lagt fram en það byggir
á frumvarpi Vilmundar Gylfasonar,
þingmanns Alþýðuflokks og seinna
frambjóðanda Bandalags jafnaðar
manna, frá árinu 1983. Frummæl
endur eru tólf þingmenn úr þremur
flokkum. Verði frumvarpið að lögum
munu kjósendum standa til boða
þrír möguleikar á því hvernig þeir
nýta atkvæðisrétt sinn; að merkja við
listabókstaf, merkja við einn fram
bjóðanda eða kjósa einstaklinga
þvert á flokka.
Valgerður Bjarnadóttir, þing
kona Samfylkingarinnar, er frum
mælandi frumvarpsins. Hvort fjöldi
þingmanna á meðmælendalista sé
merki þess að málið njóti víðtæks
stuðnings í þinginu segir hún: „Að
minnsta kosti er það þannig hjá því
fólki sem þarna er. Ég vona auðvitað
að frumvarpið nái fram. Ég legg ekki
fram mál nema ég trúi að þau kom
ist í gegn.“
Vilmundarfrumvarpið
Krafan um persónukjör ágerðist í
kjölfar efnahagshrunsins og bús
áhaldabyltingarinnar. Í fylgi
gögnum með drögum að nýrri
stjórnarskrá sem unnin voru af
stjórnlagaráði er til að mynda lagt
til að kosið verði með persónukjöri
inn á þingið. Frumvarp tólfmenn
inganna er í flestum efnisatriðum
samhljóða frumvarpi Vilmundar frá
árinu 1983. Vilmundur var kjörinn á
þing fyrir Bandalag jafnaðarmanna
árið 1983 en lést áður en þingið kom
saman. Valgerður, ekkja Vilmundar,
er frummælandi frumvarpsins. Auk
hennar mæla Birgitta Jónsdóttir,
Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari
frá Hreyfingunni fyrir frumvarp
inu. Auk Valgerðar mæla sjö aðrir
þingmenn Samfylkingarinnar fyr
ir frumvarpinu, það eru Björgvin G.
Sigurðsson, Helgi Hjörvar, Magn
ús Orri Schram, Mörður Árnason,
Ólína Þorvarðardóttir, Róbert Mars
hall og Skúli Helgason. Í þingflokki
VG er Þráinn Bertelsson meðal
meðmælenda frumvarpsins.
Aukið val kjósenda
Með því að greiða framboðslista
atkvæði sitt samþykkir kjósandi
uppröðun flokksins. Hins vegar
getur kjósandi léð einstaklingi á
framboðslista atkvæði sitt. Þá nýt
ist atkvæðið þeim stjórnmála
flokki sem frambjóðandinn býð
ur fram fyrir um leið og atkvæðið
hefur áhrif á uppröðun á lista.
Samkvæmt frumvarpinu verð
ur heimilt að kjósa frambjóðend
ur þvert á flokka. Þá getur kjós
andi merkt við allt að helmingi
fleiri frambjóðendur en fulltrúar
kjördæmisins eru. Kjósandi sem
greiðir atkvæði í kjördæmi með tíu
þingmenn getur því raðað á allt að
tuttugu manna lista. Atkvæði kjós
andans deilist í hlutfalli milli lista
og frambjóðenda. n
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
n Hægt verði að kjósa þvert á lista n Tólf mæla fyrir frumvarpinu
Þau vilja
persónukjör
n Tólf þingmenn þriggja flokka hafa
lagt fram frumvarp um persónukjör.
Valgerður Bjarnadóttir
Samfylking
Björgvin G. Sigurðsson
Samfylking
Helgi Hjörvar
Samfylking
Magnús Orri Schram
Samfylking
Mörður Árnason
Samfylking
Ólína Þorvarðardóttir
Samfylking
Róbert Marshall
Samfylking
Skúli Helgason
Samfylking
Birgitta Jónsdóttir
Hreyfingin
Margrét Tryggvadóttir
Hreyfingin
Þór Saari
Hreyfingin
Þráinn Bertelsson
VG
Vilmundur
Gylfason
n Var fyrst kjörinn á þing árið 1978 í
Reykjavík fyrir Alþýðuflokkinn. Árið
1983 var Vilmundur kjörinn á þing
fyrir Bandalag jafnaðarmanna en hann
stofnaði hreyfinguna eftir að hafa sagt
sig úr Alþýðuflokknum. Vilmundur var
umdeildur sem stjórnmálamaður. Hann
gagnrýndi íslenska flokka og flokka-
kerfið. Taldi það úrelt og spillt. Þá var
hann gagnrýninn á bitleysi fjölmiðla.
Vilmundur kom að þáttarstjórn Lands-
horns,sem sýnt var í Ríkissjónvarpinu
árið 1973. Þar vakti Vilmundur athygli
fyrir hispurslausa og nokkuð ágenga
framgöngu. Landshorn varð seinna að
Kastljósi.
„Frumvarp tólf-
menninganna er
í flestum efnisatriðum
samhljóðandi frumvarpi
Vilmundar Gylfasonar frá
árinu 1983.
Listi kosinn
n Hér er um að ræða ímyndað kjördæmi sem hefur fimm
þingmenn í kjördæmis- og jöfnunarsætum. Kjósandinn
hefur kosið lista A og þar með fellt sig við röðun hans.
Atkvæði kjósandans kemur til með að skiptast á milli
efstu manna listans.
Einstaklingur kosinn
n Hér hefur kjósandi kosið einstakling á lista. Sá eða sú
hlýtur þá heilt atkvæði og jafnframt hlýtur C-listi þetta
atkvæði.
Atkvæði skipt í 10 hluta
n Hér hefur kjósandi kosið að skipta atkvæði sínu í tíu
hluta, sem er hámark þar sem þingmenn kjördæmisins
eru fimm. Kjósandinn hefur kosið að dreifa því milli lista.
Listarnir hljóta þá brot úr atkvæði. Í þessu tilfelli hljóta A og
B 1/10 hvor, C og D 3/10 hvor og loks fær F 2/10 eða samtals
10/10 = 1. Kjósandinn hefur jafnframt kosið tíu einstaklinga.
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
A B C D F
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
A B C D F
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
---------
A B C D F