Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Blaðsíða 23
Ég ætla að melta
það með mér
Það verður
skemmtilegt
Ekki er ljóst hvort Birgitta Jónsdóttir muni leiða Pírataflokkinn. – DV.isTeitur Atlason ætlar að endurgreiða styrki sem hann fékk. – DV.is
Ég er stoltur Íslendingur
Spurningin
„Nei, ekki enn.“
Karen Rós Sigurðardóttir
19 ára nemi
„Já, ég kíkti með gamla settinu
í sumar.“
Maríanna Eva Sævarsdóttir
20 ára sundlaugarvörður
„Nei, ég er ekki búin að fara.“
Hera Melgar
19 ára nemi
„Nei, ég er ekki búin að því.“
Elísabet Rún Þorsteinsdóttir
19 ára nemi
„Ég hef ekki farið í berjamó, nei.“
Birnir Jón Sigurðsson
19 ára nemi
Ertu búin/n að
fara í berjamó?
1 „Logið og bullað í manni“ Snorri Harðarson sem segir Velferðar-
svið Reykjavíkurborgar hafa svikið
sig um vilyrði fyrir styrk eða láni til
fyrirframgreiðslu húsaleigu.
2 120 manns missa vinnuna Breskur eigandi blaðsins Daily Star
ákvað að hætta rekstri blaðsins eftir
að nektarmyndir birtust þar af Kate
hertogaynju. Öllum var sagt upp.
3 Garðar: „Mér finnst hóp-nauðganir ekki grjótharðar“
„Vil taka það skýrt fram að mér finnst
hópnauðganir ekki grjótharðar,“
áréttaði Garðar Gunnlaugsson
knattspyrnumaður. Hann hafði áður
sagt á Facebook að húðflúr af grófu
tattúi þar sem dvergarnir sjö virtust
nauðga Mjallhvíti væri „grjóthart“.
4 Baldur seldi bréf rétt fyrir lagasetningu Kastljós sagði frá því
að Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri, hefði selt ríkisskulda-
bréf fyrir 190 milljónir króna í mars, á
síðustu mínútu síðasta virka dagsins
áður en leynileg lagasetning, sem fáir
vissu af, tók gildi.
5 Birti óvart nektarmynd á Twitter Leikkonan Alison Pill birti
í skamma stund nektarmynd af sér þar
sem hún lá ber að ofan uppi í rúmi með
stór gleraugu.
6 Hermaður eignaðist barn í herbúðum Breskur hermaður
sem reyndist vera barnshafandi án
þess að vita það sjálfur eignaðist son
síðastliðinn þriðjudag í herbúðum
breska hersins í Afganistan.
Mest lesið á DV.is
Bannað að grilla
F
ólk er að fara á límingunum af því
að Baldur Guðlaugsson, einn af
vænstu sonum lýðveldisins, er að
fá í rólegheitunum leiðréttingu á
því dómsmorði sem átti sér stað þegar
hann varð uppvís að innherjasvikum.
Öllum, og þó sérstaklega gömlu valda-
klíkunni í Sjálfstæðisflokknum, er ljóst
að Baldur er á þeirra mælikvarða sak-
laus. Hann var í þeim öfluga hópi sem
græddi á daginn og grillaði á kvöldin.
Hann hafði að vísu fágæta innsýn í það
sem gerðist að tjaldabaki og nýtti sér
það. En slíkt er eðli manns sem vinnur
við að græða.
Það var skuggaleg niðurstaða þegar
Baldur var dæmdur í fangelsi. Það hefur
hingað til ekki tíðkast nema í undan-
tekningartilvikum að dæma fínt og
viðurkennt fólk til fangavistar. Fang-
elsi eru ekki öruggur staður til að vera
á fyrir vandaða bisnessmenn. Það eru
menn eins og Lalli Johns og Einsi glæp-
ur sem eiga réttilega að sitja inni fyrir að
stela gosi og karamellum. Og aðrir verri
glæpamenn sem ástunda subbulega
glæpi eiga að sitja inni.
Það er huggun harmi gegn að örfá-
um dögum áður en mektarmaðurinn
var sendur á Kvíabryggju náði hann að
selja húsbréf sem hann hafði á löngum
tíma önglað saman. Svo heppilega vildi
til að salan átti sér stað korteri áður en
þau hrundu í verði vegna inngripa hins
opinbera. Baldur sparaði sér 30 milljón-
ir króna með því að sjá fyrir aðgerðirnar.
Þá fékk hann lausafé upp á 186 milljónir
króna til að framfleyta sér og sínum.
Það er erfitt að vera í fangelsi og
nauðsynlegt að ná Baldri þaðan. Með
samtaka átaki lögmannsstofunnar Lex,
Fangelsismálastofnunar og Eimreiðar-
hópsins tókst að ná Baldri út af Kvía-
bryggju og inn í miðborg Reykjavíkur.
Það vill svo heppilega til að Lex er lög-
mannsstofan sem varði Baldur og hefur
lýst því yfir að hann hafi verið dæmdur
saklaus. Þeir borga honum laun.
Nú er Baldur eins og áður. Hann
vaknar á morgnana og fer í fínu fötin
sín. Síðan röltir hann frá náttstað sínum
á Vernd og í vinnuna. Réttlætinu hef-
ur verið fullnægt eftir krókaleiðum hins
falda valds. Á sama tíma eru smáþjófar
á bak við lás og slá. Einhverjir þeirra eru
eflaust með þá grillu í hausnum að fá
vinnu í 10-11 eða jafnvel apóteki. Það er
auðvitað sprenghlægileg tilhugsun. Þeir
verða að taka út sína refsingu að lögum.
Það er útilokað að þrjóturinn sem stal
gosflöskunni og sprittglasinu fái vinnu
og losni undan refsingunni. Við verðum
að standa vörð um réttarríkið sem Bald-
ur, Björn Bjarnason eftirlaunaþegi og
hinir í Eimreiðarhópnum hafa byggt upp
með hugsjónir sínar í grunni. Græðum á
daginn, grillum á kvöldin. Baldur græðir
á daginn en fær ekki að grilla á kvöldin
vegna þess að hann er lokaður inni. Það
er sómamanninum næg refsing.
S
á ágæti maður Lúter, sem mót-
mælti hér í eina og lét eftir sér
hafa: „Hér stend ég og get ekki
annað,“ var bara ósköp venju-
leg hetja sem leyfði auðvaldi ekki
að valta yfir sig. Hvort hann upp-
skar í samræmi við sáninguna, þegar
hann fékk sér sæti hjá himnafeðgun-
um, veit ég ekki. En væntanlega naut
hann einhvers stolts á meðan hann
lifði; hann uppskar þó það, að til er
fólk sem er honum ævinlega þakklátt
fyrir að reyna að klæða trú í búning
réttlætis.
Við sem börðum potta og pönn-
ur í okkar yndislegu og alíslensku bú-
sáhaldabyltingu, við eigum einnig
að njóta stoltsins, því eftir u.þ.b. einn
mánuð fáum við uppskeruna. Já, þetta
haustið verður uppskeruhátíðin okk-
ar; við fáum í þjóðaratkvæðagreiðslu
að samþykkja þá stjórnarskrá sem við
höfum sjálf samið. Það er þjóðin sjálf
sem semur þessa stjórnarskrá og það
er þjóðin sjálf sem ber ábyrgð á því að
stjórnarskráin fái allt það lof sem hugs-
anlega má á hana hlaða. Við höfum
leyfi til að vera hnarreist, vera keik og
bera höfuð hátt. Við eigum að láta stolt
okkar njóta sín, fyrst og fremst vegna
þess að núna er það lýðræðið sem er
að vinna sigur á þeim spillingaröflum
sem hérna lögðu allt í rúst. Búsáhalda-
byltingunni var beitt gegn ofríki spill-
ingar, græðgi og heimsku. Hér var far-
in leið samfélagslegrar óhlýðni, leiðin
sem Gandí notaði þegar hann stökkti
gráðugu, bresku ljóni á flótta hér í eina
tíð.
Þjóðaratkvæðagreiðslan 20. október
mun að öllum líkindum verða allra
mikilvægasta atkvæðagreiðsla Íslands-
sögunnar. Í fyrsta skipti í sögunni
gefst okkur kostur á að svara grund-
vallarspurningum um stjórnmál. Já,
við erum að tala um bein og milliliða-
laus afskipti þjóðarinnar af ákvörðun
um jafnt vægi atkvæða, auðlindir í
þjóðareigu og yfirleitt allt sem fegrað
getur vora fögru þjóð. Það skemmti-
legasta við þetta allt, er sú staðreynd,
að þjóðin sjálf tekur hér ákvörðun um
stjórnarskrá sem þjóðin sjálf samdi og
þetta gerir hún án milligöngu stjórn-
málaflokka. Já, kæru vinir, uppskeru-
hátíðin hefst eftir mánuð.
Einn afrakstur byltingarinnar okkar
er skýrsla rannsóknarnefndar Alþing-
is, en í þeirri dásamlegu skýrslu má á
einum stað finna eftirfarandi klausu:
„Eitt augljósasta tæki viðskiptalífsins
til að hafa áhrif á stjórnmálamenn eru
bein fjárframlög, bæði til stjórnmála-
flokka og einstakra stjórnmálamanna.“
Og nokkru síðar er þetta: „Leita þarf
leiða til þess að draga skýrari mörk á
milli fjármálalífs og stjórnmála. Ekki
er líðandi að gæslumenn almanna-
hagsmuna gangi erinda einkafyrir-
tækja með þeim hætti sem gert var í
aðdraganda bankahrunsins.“ Kæru
Íslendingar, á þessum vanda tekur ný
stjórnarskrá.
Með von og hugans heitu þrá
hjartað í mér syngur:
„Hér styður nýja stjórnarskrá
stoltur Íslendingur.“
Málar spegilramma Veðrið hefur verið milt síðustu daga eins og myndin ber með sér. Þessi borgarbúi nýtti einn af síðustu góðviðrisdögunum til að dytta að speglinum sínum.
Kaldari tíð fer senn í hönd og ekki er víst að það verði notalegt að vera úti við á stuttermabol öllu lengur. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Svarthöfði
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Umræða 23Helgarblað 21.–23. september 2012
Logið og bullað
í manni
Snorri Harðarson missir húsnæði vegna vanefnda borgarinnar. – DV