Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Síða 26
„Ég er
svolítið
klikkuð“
21.–23. september 2012 Helgarblað
É
g held stundum að ég muni
deyja,“ segir Elín Hirst í símann
þegar við ákveðum að mæla
okkur mót. Þetta er sagt í hálf-
kæringi, hún er á eftir áætlun,
ætlaði að vera búin að hringja. Það er
brjálað að gera og stundum nær hún
ekki að halda utan um öll verkefnin –
eða þannig er tilfinningin. Hún stend-
ur nú samt við sitt og heldur ótrauð
áfram, skrifar bók og stefnir á framboð
fyrir alþingiskosningarnar í vor.
Stefnumótið er sett næsta morgun,
á milli þess sem hún heldur fyrirlestur
um framkomu í fjölmiðlum og fundar
með aðstandendum söguhetjunnar í
bókinni sem hún er að skrifa, á danska
kaffihúsinu við Suðurlandsbraut. Þar
kemur hún sér fyrir úti í horni með
spjaldtölvuna, te og gróft brauð með
osti. Hún er óaðfinnanlega til fara,
andlitið málað og hárið uppsett, í ljós-
brúnum kögurjakka, blárri skyrtu og
hermannagrænum buxum með hvít-
an iPhone um hálsinn.
„Ég er búin að fara í svo mörg við-
töl að mér finnst stundum leiðinlegt
að hlusta á mig tala,“ segir hún og lofar
að segja frá því sem hún hefur aldrei
sagt áður. „Ég vil vera hrein og bein og
tala um allt.“
Óttaðist dauðann
Eins og dauðann, hann hefur lengi
verið henni hugleikinn og í æsku ótt-
aðist hún hann mjög. „Ég hef alltaf
verið hrædd við að deyja. Þegar ég var
lítil var mamma oft í vandræðum með
mig því ég fékk grátköst og vildi ekki
deyja. Ég er ekki alveg laus við þennan
ótta en eftir að ég fór að skilja dauðann
get ég horfst í augu við hann. Þetta eru
okkar örlög, við munum öll deyja, en
það eru engin endalok. Sál okkar lifir
áfram,“ segir hún sannfærð.
Hún hefur ekki alltaf verið trúuð en
er mjög trúuð núna. „Ég fékk trú þegar
amma Elín dó árið 1993. Við vorum
ofboðslega nánar. Hún lá á Landakoti
og þegar hún dó fór ég þangað og sá
hvar hún lá uppi í rúmi, líkaminn var
fallegur en ég sagði strax að þetta væri
ekki amma mín. Þetta var ekki hún. Ég
upplifði það svo sterkt að líkaminn var
bara farartæki, hulstur utan um hana,
og sálin var farin.
Ég hafði aldrei séð látinn einstak-
ling áður og var svo hissa. Þegar ég
kom heim þá bað ég Guð um að út-
skýra þetta fyrir mér, það var eitthvað
í gangi þarna sem ég vildi skilja betur.
Ég bað bænir og bað um svar. Eftir það
öðlaðist ég trú, sem er eitthvað annað
og meira en þessi týpíska barnatrú.“
Um leið áttaði hún sig á því að kær-
leikurinn getur gert magnaða hluti og
að við uppskerum eins og við sáum.
„Ég held að Guð viti hvað maður á að
gera, ef þú gerir það þá nærðu ekki
bara árangri heldur finnur hamingj-
una. En það sem mér fannst merkileg-
ast er að maður deyr ekki. Við skiljum
líkamann eftir – eins óhugnanlegt og
það nú er, en lífsneisti sálarinnar lifir
áfram.“
Menningarsjokk á Indlandi
Sjálf stundar hún stundum hug-
leiðslujóga, þó að hún sé kannski ekki
eins dugleg og hún myndi vilja vera.
En það er hennar leið til þess að kom-
ast í samband við æðri máttarvöld og
stilla hugann af – eða hennar tilraun
réttara sagt. „Ég reyni,“ segir hún og
hristir hausinn. „Ég er svo upptekin
af öllu áreitinu í kringum mig. En ég
hef farið á kúrsa á Indlandi til þess að
læra meira. Það breytir þér, þú ert ekki
sama manneskjan þegar þú kemur
heim úr slíkri ferð.
Fyrst þegar ég kom til Indlands
fékk ég menningarsjokk og mér leið
illa allan tímann. Samt var eitthvað
sem togaði mjög sterkt í mig þannig
að um leið og ég fékk tækifæri til þess
að fara aftur þá fór ég, þó að þetta væri
erfitt ferðalag líkamlega og andlega,
dýrt og allt það. Núna nýt ég þess að
vera þar.“
Hún hefur núna farið nokkrum
sinnum og er yfirleitt viku, tíu daga
í senn. „Ég vil ekki vera lengi. Ég er
reyndar ekki mikið fyrir að fara til
útlanda og sækist ekki eftir því nema
það sé eitthvað sérstakt, ég eigi erindi
út. En þetta finnst mér æðislegt.“
Bað um skilaboð að handan
Hún er einlæg í frásögn sinni og hlær
þegar hún rifjar það upp að þegar góð-
vinur hennar Jónas Jónasson var að
deyja hafi þau gert með sér samkomu-
lag. „Fyrst við vorum á sömu línu bað
ég hann um að hnippa í mig þegar
hann væri kominn yfir. Hann með
sinn mikla viljastyrk og sterku sann-
færingu ætti að geta náð sambandi
við mig sem er opinn viðtakandi. Ég er
alltaf að bíða!“ segir hún og hlær.
„Mér finnst þetta notalegar hugs-
anir. Þetta er partur af lífinu, dauðinn
er partur af lífinu en það er aldrei talað
um hann, hann er útilokaður og þess
vegna óttumst við hann. En þetta var
ekki svona. Í gamla daga lágu lík á
heimilum fólks, og það er kallað að
láta líkið standa uppi, og síðan voru
teknar myndir af líkum barna. Það var
til siðs á Íslandi og víða um lönd, og
á Þjóðminjasafninu er gríðarlegt safn
af myndum af líkum barna. Á þessum
tíma var dauðinn daglegt brauð. Það
var rosalega mikið lagt á fólk.“
Hamingjan er ekki velgengni
Í dag höfum við betri úrræði, fólk er
heilbrigðara og lifir lengur og við betri
aðstæður. En þá eru kannski aðrir
hlutir sem færa fólki óhamingju „…
eins og þessi neysluhyggja og allt þetta
áreiti,“ segir hún og grípur um símann
sem hangir um háls hennar. „Ég bara
velti því fyrir mér hvort við séum eitt-
hvað hamingjusamari í dag. Það er
svo sláandi að ferðast um staði eins og
Indland þar sem þú sérð konu skæl-
brosandi í einhverju hreysi á meðan
þú situr í fýlu inni í fínum bíl. Það er
eitthvað skakkt við það og það sýnir
svo skýrt að velmegun og velgengni
færa okkur ekki hamingju.“
Nú eru liðin tvö og hálft ár síðan líf
hennar tók nýja stefnu, „… hvort sem
mér líkaði betur eða verr.“
Eftir 30 ára feril í fjölmiðlum var
henni sagt upp á fréttastofu RÚV.
Uppsögnin var mikið reiðarslag en
síðan hefur hún notað tímann til þess
að verða betri manneskja – eða reyna
það. „Ég hef ekki sótt um vinnu heldur
verið frílans og sinnt eigin verkefnum.
Það hefur stundum verið erfitt fjár-
hagslega, flæðið er ekki eins jafnt og
áður. Á endanum skila peningarn-
ir sér en ég þarf að vinna lengi launa-
laust áður. Engu að síður hefur mér
tekist að halda mér á núllinu og er
sennilega á svipuðu róli og ef ég væri
óbreyttur fréttamaður á RÚV.“
Reiddist sjálfri sér
Launin voru aftur á móti hærri þegar
hún var í yfirmannsstöðu, þá var hún
með hátt í milljón á mánuði. „En það
er svo merkilegt að maður hagar lífi
sínu alltaf út frá því hversu mikið mað-
ur hefur á milli handanna og er alltaf
jafn blankur, það er svo fáránlegt. Á
þessum tíma var ég að eyða í alls kon-
ar fatastand, hárgreiðslu og var alltaf
að kaupa eitthvað á strákana eða til
heimilisins.“
Þegar hún hætti á RÚV skall líka
á efnahagskreppa sem gerði það að
verkum að Elín ákvað að fara í neyslu-
bindindi. „Ég ákvað að kaupa aldrei
neitt fyrr en það var búið heima, fór að
versla í ódýrari matvöruverslunum og
spá í það hvernig ég gæti nýtt matinn.
Ég var eitthvað svo reið inni í
mér fyrir að hafa tekið þátt í þessum
neysludansi. Til hvers átti ég enda-
laust af sokkabuxum sem ég nota
aldrei eða þrjátíu pör af skóm þegar
ég nota alltaf sömu þrjú pörin? Ég var
búin að kaupa alls konar föt sem ég
notaði kannski einu sinni. Þannig að
ég ákvað að nú væri kominn tími til að
versla í mínum eigin skápum og það
var mjög mikið að finna þar eftir öll
þessi ár,“ segir hún og hlær.
„Að sumu leyti er ég hamingju-
samari en ég var. Þetta var svo mikið
bull. Ég var að kaupa þetta og hitt sem
ég hafði engin not fyrir. Smám saman
óx upphæðin sem fór í svona vitleysu
og ég gerði mér enga grein fyrir því.
En ég finna að núna er þetta að koma
aðeins aftur, þannig að ég er fljót að
gleyma eins og allir, en ég vona samt
að við munum aldrei fara aftur í sama
eyðslugírinn.“
Elín Hirst segir hlæjandi frá því að hún hafi safnað leikfangakörlum með strákunum sínum og sé kannski
svolítið klikk. Fjölskyldan var alltaf númer eitt, hún átti fáa vini og hikaði ekki við að hlaupa frá stærsta tækifæri
lífsins til að aðstoða son sinn sem kallaði. En nú vill hún fara á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn og stefnir á þriðja
sætið í Suðvesturkjördæmi. Hún fer yfir ferilinn þar sem hún hefur átt sínar dýfur og einsetti sér að verða betri
manneskja þegar henni var sagt upp störfum fyrir tveimur árum. Og það hvernig hún öðlast trú eftir að hún sá
ömmu sína þegar sálin hafði yfirgefið hana og áttaði sig á því að dauðinn er ekki endanlegur.
26 Viðtal
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Viðtal „Ég upplifði það svo
sterkt að líkam
inn var bara farartæki,
hulstur utan um hana, og
sálin var farin.
„Ég fékk grátköst
og vildi ekki deyja.