Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Blaðsíða 36
Hvítt og
svart
36 Lífsstíll 21.–23. september 2012 Helgarblað
S
ólin hefur ákveðið að láta
sjá sig þennan haustdag og
er skjannahvítt húsið bað-
að geislum hennar. Nokkur
nöfn eru rist í filmu á glugga
við útidyrahurðina. Neðst stendur:
Cesar. Ætli gæludýr sé á heimilinu?
Húsið er raðhús, byggt á áttunda
áratugnum. Þar býr Sigrún ásamt
tveimur sonum sínum. Elsti sonur-
inn er fluttur að heiman og dóttirin
er í námi í útlöndum.
Og jú, það er víst gæludýr á
heimilinu: Hundurinn Cesar.
Sigrún býður til stofu og má
segja að heimilið sé gullfallegt. Hvítt
og svart ræður þar ríkjum að mestu
leyti hvað innréttingar og húsgögn
varðar og svo skreyta veggina mál-
verk í skærum litum. Stórt málverk
eftir meistara Tolla hangir á vegg í
stofunni; minnir þá sem á horfa á
hálendið. Náttúruna. Ævintýralega
litina á Íslandi.
Skjannahvít og háglans
„Ég er búin að búa hérna síðan
1993,“ segir Sigrún, „og var húsið
í ágætis standi þegar við fluttum.
Það er vel byggt og því var vel við
haldið en smekkurinn var ekki al-
veg eftir mínu höfði þannig að það
er búið að vera að breyta eitthvað í
öll þessi ár.“
Sigrún, sem hrifnust er af hvíta
og svarta litnum, segir að eld-
húsinnréttingin hafi verið blá, loft
hafi verið brún og að brúnar flís-
ar með rósum á hafi verið á aðal-
baðherberginu. „Það væri kannski
komið aftur í tísku; væri svona
retrótíska.“
Byrjað var á að skipta um gólf-
efni á neðstu hæðinni, síðar var að-
albaðherbergið tekið í gegn, skipt
var um skápa og hurðir og það var
svo fyrir þremur árum sem ný eld-
húsinnrétting var sett upp: Skjanna-
hvít og háglans.
„Ég var alltaf ákveðin í því hvern-
ig ég vildi að eldhúsið yrði.“ Veggur
á milli búrs og eldhússins var brot-
inn niður og í dag er eldhúsið rúm-
gott og bjart. Vaskur var áður við
gluggann en Sigrún kaus að hafa
setbekk við gluggann. Hvítt. Hvítt.
Hvítt. „Innréttingin er skjannahvít
og ég vildi meira að segja líka hvíta
borðplötu.“ Bekkurinn er hvítur.
Gluggatjöldin eru hvít.
Hvít fartölva liggur á eldhús-
borðinu.
Zu Hause og Wohnen
Nokkur hreindýr skreyta stofuna.
Úr gleri. Leir. Postulíni. Sigrún safn-
ar hreindýrum.
En hvar er Cesar? Hann sést ekki
en heyrist einu sinni gelta.
Best að bakka aftur í tíma. Sigrún
var ekki há í loftinu þegar hún fór að
hafa áhuga á að skreyta herbergið
sitt. Hún var dugleg að raða upp á
nýtt í hillunum sínum, hún saumaði
púða og málaði með nýjum litum.
Unglingurinn Sigrún safnaði hí-
býlablöðum og nefnir þýsku blöðin
Zu Hause og Wohnen. „Ég átti stafla
af þessum blöðum og hef alltaf haft
áhuga á að hugga til í kringum mig;
mér finnst það ofsalega skemmti-
legt.“
Hugmyndin að stílnum á fram-
tíðarheimilinu var farinn að mótast
á þessum árum: Mínímalískt skyldi
það vera með rúnnuðu og mjúku yf-
irbragði.
Hún velti því meira að segja fyrir
sér um tíma að fara í nám í innan-
hússhönnun.
Fallegir hlutir einkenna heimili
Sigrúnar, sonanna tveggja og Ces-
ars. „Það skiptir mig miklu máli að
eiga fallegt heimili. Mér líður best
ef það er hreint í kringum mig og
hlutirnir eins og ég vil hafa þá. Ég get
notið mín við að raða hlutum, spek-
úlera í hvað passar hvar og hvernig
kerti eiga að vera í kertastjökunum.“
Það er einhvern veginn allt í stíl.
Það passar allt svo vel saman.
Sigrún er í svörtum fötum með
hvítu mynstri. Það er haust. „Ég
klæðist mikið hvítum fötum á
sumrin og svörtum á veturna. Það
er ekki kominn vetur,“ segir Sigrún
og hlær. Armbandið og naglalakk-
ið er í stíl.
Eins og listaverk
Fyrir utan að raða í hillur, sauma
púða og mála herbergið sitt af og
til á æsku- og unglingsárunum –
og skoða myndir í Zu Hause og
Wohnen – þá átti Sigrún dúkkur
sem henni fannst gaman að greiða.
Stundum klippti hún hárið á þeim.
Prófaði sig áfram. Kona nokkur
virðist hafa gert sér grein fyrir áhug-
anum, kynnti Sigrúnu fyrir eiganda
hárgreiðslustofu og hóf hún nám
í hárgreiðslu 17 ára gömul. Hún
tók svo við stofunni þegar hún var
tvítug og nýútskrifuð og í dag er hún
eigandi Hársögu.
Næstu árin fór hún að keppa í
hárgreiðslu og stóð oft uppi sem
sigurvegari; hún nefnir sérstaklega
keppni þar sem hún hannaði avant-
garde hárgreiðslu. Án efa framúr-
stefnulegt og flott.
Hún hefur haldið sýningar og
hannað hárlínur, bæði hér á landi
og erlendis, og það er auðheyrt að
áhuginn er mikill á starfinu.
„Það gefur mér mikið að vera
með fólk í höndunum og geta
kannski breytt útliti þess til hins
betra þannig að það sé ánægt. Sjálfs-
myndin fer upp á við þegar fólk lítur
vel út og er með fallegt hár.“
Hvað með tískuna? Hvaða stíll
ríkir í dömuklippingum á Íslandi?
„Kvenlegt en samt töff.“
Sigrún segir mikið um að konur
séu með litað hár á Íslandi; meira
en annars staðar. „Fallega litað hár í
nokkrum tónum getur verið eins og
listaverk.“
Listaverk. Það má líkja heimilinu
við listaverk.
Garðurinn er skoðaður sem er nátt-
úrlega baðaður í sólargeislum. Það
er auðséð að Sigrún hefur líka gam-
an af að skreyta í garðinum. Blómin
eru ekki hvít en sum eru gráleit; passa
einhvern veginn vel við húsið þar sem
hundurinn Cesar býr sem hefur ekki
látið sjá sig. n Svava Jónsdóttir
Það er nútímalegt. Hlýlegt. Heimili Sigrúnar
Kristínar Ægisdóttur hárgreiðslumeistara skreyta
litrík málverk og vel valin húsgögn og smáhlutir.
Haust í garðinum Sigrún í garðinum þar sem allt er í stíl.
Svart og hvítt
Kolsvart píanó
og skjannahvítt
borð.
Hlýlegt horn í stofunni Gólflampinn er
frá Tekk húsinu.
Tvö hreindýr Fallegir smáhlutir
setja sterkan svip á heimilið.