Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2012, Side 39
sem ég reyndi að grafa þetta eins langt niður og ég gat. Ég reyndi að vera bæði gella og prinsessa. Það var eins og ég þurfti ávallt að sann- færa mig um að ég væri kona og gerði ýmis legt til að draga upp kvenleik- ann. Ég var í alveg gífurlegri afneitun á brúðkaupsdaginn,“ segir hann og bætir við að það sé ekkert létt verk að skoða myndir frá þessum tíma. „Því fylgja blendnar tilfinningar. Ég er búinn að loka gömlu fésbók- inni minni en þurfti að fara þangað inn til að sækja myndir um daginn og fannst það mjög erfitt. Ég get ekki alveg útskýrt af hverju. Alla jafnan finnst mér ekki erfitt að sjá myndir af mér í kvenmannshlutverki enda er það svo rosalega stór partur af því hver ég er. En stundum kemur yfir mig reiði. Ég get orðið alveg ofboðslega reiður. Þetta er ekkert auðvelt ferli og stundum verð ég reiður út í lífið og tilveruna. Af hverju fæddist ég ekki bara sem karlmaður? Eða réttara sagt í karlmannslíkama með rétt kynfæri. Á þeim stundum finnst mér erfitt að horfa á þessar myndir. Þetta er ekki öfundsverð staða og mér finnst að fólk mætti bara vera þakklátt fyrir að fá að lifa í þeim líkama sem það finnst það tilheyra og þurfa ekki að standa í þessu.“ Saknar sundsins Þrátt fyrir allt segist Örn ekki sjá eft- ir að hafa ekki byrjað á kynleið- réttingarferlinu fyrr. „Auðvitað, ef ég hefði farið af stað fyrr, hefði ég kannski ekki þurft að gangast und- ir þessa aðgerð sem ég fer í í næstu viku. Þá hefði ég getað fengið lyf til að stoppa kynþroskann. Að því leytinu hefði verið heppilegra að byrja fyrr á ferlinu. En á hinn bóginn þá ætti ég líklega ekki þessi börn í dag.“ Hann segist ekki hafa ákveðið hvað hann ætli að gera varðandi þá aðgerð sem snýr að kynfærunum. „Mér finnst líklegt að ég fari í hana. Mig langar það. En þetta er svo ófull- komið. Það er svo margt sem vantar upp á svo þetta er erfið ákvörðun.“ Í gegnum ferlið segist hann hafa komist að því hverjir eru raunverulegu vinir sínir og hverjir ekki. „Alveg hik- laust. Ein vinkona mín höndlaði þetta ekki. Ég hef ekki heyrt í henni í marga mánuði. Svo hafa aðrir reynst mér vel og komið mér á óvart,“ segir hann og bætir við að líkt og margt annað trans- fólk geti hann ekki hugsað sér að fara í sund. „Ég sakna sundferðanna. Ég og krakkarnir fórum í sund alla vega einu sinni, tvisvar í viku. Auðvitað gæti ég farið í sund en ég get ekki hugsað mér það eins og ég lít út í dag. Fyrir nokkrum mánuðum fór ég í kvennaklefann í líkamsræktarstöð og þegar ég steig inn sá ég hvað konun- um varð brugðið. Þær sveipuðu um sig handklæðinu líkt og ef unglingsstrák- ur hefði gengið inn í klefann. Vissulega var það góð viðurkenning en það er samt strembið að vera í þessu millibils- ástandi. Sumir horfa á þig sem konu, aðrir sem karlmann. Svo eru það enn aðrir sem vita ekki hvað þú ert. Mér hefur verið vísað úr sjoppu fyrir að nota kortið mitt. Það var frekar niðurlægjandi. Þótt það sé ákveðin viðurkenning að þeir vilji ekki taka við kvenmannskorti þá eru þetta ekkert skemmtilegar aðstæður. Maður veit ekki alveg hvort maður á að hlæja eða gráta.“ Karlmaður sem heklar Örn segist búast við að að kynleið- réttingarferlið muni taka alla ævina. „Brjóstanámið er í næstu viku og svo tek ég ákvörðun um hina aðgerðina. Það er samt engin pressa. Ég verð svo á hormónum alla ævi þannig að ég hugsa að þessu ferli ljúki aldrei. Sjálf- ur lít ég svo á að ég hafi náð ákveðn- um markmiðum þegar ég verð kom- inn með nafn- og kynbreytingu í þjóðskrá. Það verður kannski í vor og ég ætla að halda upp á það með pompi og prakt. Sérstaklega þar sem ég verð þrítugur á sama tíma.“ Hann segir að sér þyki mikilvægt að koma fram og segja sína sögu. „Ég er svo þakkátur því fólki sem er búið að berjast á undan. Ég ber mikla virðingu fyrir því fólki. Nú tek ég þátt og held áfram með baráttuna. Það er svo mikilvægt að transmenn jafnt og transkonur séu sýnileg í þjóðfélaginu.“ Örn segist vera sami einstak- lingurinn og hann hafi verið áður en hann hóf ferlið. Það séu bara umbúð- irnar sem séu breyttar. „Ég á sömu áhugamálin og held að ég sé enn- þá jafn móðurleg mamma. Ég hekla teppi og er nýbúin að prjóna vetrar- vettlinga. Svo hef ég gaman af veiði, útivist, tónlist, tölvum og bíómynd- um,“ segir Örn sem er á lausu og ótt- ast ekki að ganga ekki út. „Ég er ekk- ert að hugsa um þau mál núna. En ég viðurkenni að ég er óöruggur þegar ég reyni að nálgast konur. Ég bíð bara eftir að rétta konan komi til mín.“ n Viðtal 39Helgarblað 21.–23. september 2012 „Feðgasamband okkar er nánara en feðginasambandið var Brosi framan í heiminn „Ég vissi að svona væri til en samt skildi ég þetta ekki alveg,“ segir Kristján 13 ára sonur Arnar. Kristján segir að þótt honum hafi brugðið í fyrstu hafi hann tekið fréttunum vel. „Ég varð aldrei reiður. Það var aldrei nein ástæða til þess. Vinir mínir stríddu mér samt fyrst en eru í dag farnir að styðja mig í þessu. Þetta varð auðveldara eftir að hún kom í skólann og talaði við krakkana,“ segir hann og viðurkennir að það hafi verið erfitt að vera strítt út af einhverju svona. „Ég varð reiður út af því og leið illa. Þetta er eitthvað sem maður er viðkvæmur fyrir.“ Kristján segist kalla Örn mömmu sína í dag. „Ég veit ekki hvað ég mun kalla hana í framtíðinni. Ég sé bara til,“ segir hann og bætir aðspurður við að honum líði ekki eins og hann sé að missa mömmu sína. „Nei, það er frekar eins og að mamma sé að breytast í pabba. Ég vil bara gera sem mest gott úr þessu og brosi bara framan í heiminn. Þannig gengur þetta allt vel.“ Falleg brúður Sem Helga reyndi Örn að sannfæra sjálfan sig um að hann væri kona og draga fram kvenleika. Líður loksins vel Örn, sem hét áður Helga, er nú hættur á kvíða- og þunglyndislyfjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.