Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Page 12
12 | Neytendur 26. júlí 2011 Þriðjudagur „Það er verið að breyta um tækni við sjónvarpsdreifingu en breiðbands- tæknin er að verða barns síns tíma. Að okkar mati er ljósnetið framtíðin, að flestir kjósi sjónvarpsdreifingu í gegnum internetið innan fárra ára,“ segir Margrét Stefánsdóttir, upp- lýsingafulltrúi Símans, aðspurð um ástæður þess að Síminn hafi ákveð- ið að taka upp nýtt kerfi í sjónvarps- útsendingum. Hún segir að fyrirtæk- ið hafi ákveðið á sínum tíma að taka upp breiðbandið en að tæknin hafi þróast hratt og í stað þess að ráðast í uppfærslu á breiðbandinu hafi verið ákveðið að taka upp ljósnetið. Hliðrænar útsendingar hætta Síminn hefur hafið það verkefni að breyta breiðbandi Símans í ljósnet en með þessum breytingum verð- ur ekki hægt að senda út hliðrænar sjónvarpsrásir. Með hliðrænum rás- um er átt við að áhorfendur hafa get- að horft á RÚV í gegnum rás Símans en með breytingunum verður það ekki lengur hægt. Þeir sem eru ekki með venjulegt loftnet og ekki með nettengingu hjá fyrirtækinu geta því ekki séð útsendingar RÚV og þurfa að kaupa netaðgang hjá einhverju þeirra fyrirtækja sem bjóða upp á sjónvarpsútsendingar. Aukakostnaður fyrir neytendur Margrét segir að hliðrænar útsend- ingar hafi verið lagðar af í flestum nágrannalöndum okkar en ekki hér. „Samkvæmt fjarskiptaáætlun eru fyrirætlanir um stafræna sjón- varpsdreifingu fyrir alla landsmenn, meðal annars með tilliti til dreifing- ar Ríkisútvarpsins. Upphaflega stóð til að sjónvarpsdreifing yrði stafræn árið 2010 en svo kom efnahagshrun. Þessu hefur því seinkað en það stefn- ir allt í þessa átt og við fylgjum því.“ Aðspurð um aukakostnað sem breytingar úr breiðbandi í ljósnet hafa í för með sér fyrir neytendur segir hún að vissulega muni þetta þýða aukakostnað fyrir suma. „Fólk þarf að kaupa internettengingu hjá Símanum en fær betri þjónustu en breiðbandsþjónustan gat boðið upp á, langflestir vilji hafa internetteng- ingu og fyrir þá er þetta hagstæð leið. Það eru hins vegar ekki allir sem kjósa að nýta sér nýju þjónustuna og þeir sem ekki hafa lengur kost á breiðbandinu hafa vitanlega ávallt val um að snúa sér annað,“ segir hún. Fólk nær ekki RÚV Hún segir að enn geti fólk náð sjón- varpsútsendingum með hliðrænu loftneti ef það vill ekki kaupa þessa nýju þjónustu. Í framtíðinni munu hliðrænar útsendingar þó leggjast af og þá þarf fólk að huga að annars konar úrræðum. Síminn vilji hugsa til framtíðar og bjóði nú viðskiptavin- um sínum sjónvarp eingöngu í gegn- um ljósnetið sem er veitt með net- tengingu. „Loftnet eru víða á húsum fyrir þá sem það kjósa en einnig er mögulegt er að ná útsendingum RÚV í gegnum stafræn loftnet, betur þekkt sem örbylgjuloftnet.“ segir hún. Eitt af kvörtunarefnum sem bor- ist hafa til Neytendasamtakanna er að lokað hafi verið fyrir breiðbandið án þess að nýja kerfið sé orðið virkt. Fólk hafi því verið sjónvarpslaust í lengri tíma. „Við höfum sent fólki bréf og hringt til að láta vita af fyrir- hugaðri lokun en til þess að breyt- ingin geti átt sér stað, úr breiðbandi í ljósnet, þarf starfsmaður Símans að koma á heimili fólks. Stundum gerist það að fólk er í fríi eða les ekki bréf- in og þetta fer því framhjá því. Við þurfum að taka hvert hverfi á höf- uðborgarsvæðinu fyrir sig og und- ir venjulegum kringumstæðum á fólk ekki að þurfa að vera sjónvarps- laust,“ segir Margrét en eftir afteng- ingu á stafrænni þjónustu breið- bandsins er hliðrænni útsendingu RÚV haldið í heila viku með viðvör- unarskilti þannig að jafnvel þó ekki náist í einhvern sem nýtir hliðræna útsendingu RÚV þá fær hann viku til að bregðast við.“ Kvartað til Neytendasam- takanna „Það hefur töluvert verið hringt hing- að og fólk hefur verið ósátt. Það eina sem við getum gert er að reyna að leiðbeina fólki og benda á hvað það getur gert en kostnaðurinn við þessa breytingu er allur þeirra,“ segir Ingi- björg Magnúsdóttir, fulltrúi í leið- beininga- og kvörtunardeild Neyt- endasamtakanna. Hún segir að það fylgi þessu alltaf einhver kostnaður og hann geti orðið töluverður hjá þeim sem þurfa að láta leggja nýtt í húsið hjá sér. Sá kostnaður sé ávallt kostnaður neytandans. Þeir einu sem fá nýtt kerfi án kostnaðar eru þeir sem búa þar sem ljósleiðari er kominn upp að húsi. Þá koma starfs- menn Símans og draga inn, fólki að kostnaðarlausu. Alltaf aukakostnaður fyrir neytendur „Breiðbandið var gott á sínum tíma en nú er ljósnetið orðið miklu full- komnara. Þetta er hins vegar ekki komið alls staðar svo þetta stendur ekki öllum til boða. Þeir þurfa því að taka inn adsl því allt dettur úr, bæði RÚV og annað,“ segir Ingibjörg og bendir á að þetta sé allt á kostnað neytandans. Síminn beri ekki neinn kostnað, nema viðskiptamaðurinn sé kominn með ljósleiðara upp að húsinu. „Í mörgum af eldri húsum þarf að draga nýtt inn með tilheyr- andi snúrum um allt hús. Ef það er ekki ljósnet þá getur fólk fengið sér adsl en það er kostnaður við það og mánaðarlegar greiðslur. Sumir voru ekki með breiðbandið og því ekki vant þessum aukakostnaði. Fólk er ósátt við það.“ Getur hlaupið á tugum þúsunda Neytendasamtökin hafa lýst yfir óánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar hjá Símanum og eftir- farandi má finna á heimasíðu sam- takanna: „Breyting úr breiðbandi í ljós- net verður kostnaðarsöm fyrir fólk og getur hlaupið á tugum þúsunda króna hjá mörgum heimilum, eft- ir því hvort er um að ræða fjölbýli eða einbýli og hvort þurfi að tengja og leggja nýja kapla innanhúss. Með nýrri ADSL lausn verður að aftengja svokallaðar ISDN heim- ilissímstöðvar. Þá er hægt að fá sér örbylgjuloftnet (Digital Ísland) en það er ódýrara en að leggja nýja kapla. Ekkert í lögum bannar Síman- um að taka breiðbandið af mark- aði, og verða þeir sem nota breið- bandið því miður að bera óþægindi og kostnað sem af því hlýst.“ (ns.is 10. júní 2011) RÚV Kristján Benediktsson, verkfræðing- ur hjá dreifikerfi RÚV, segir að fram- tíðarstefnumörkun RÚV sé í skoð- un og ekkert sé neglt niður í þeim málum. Það liggi hins vegar fyrir að eitthvað þurfi að koma í stað gamla kerfisins sem nú er í notkun. Hann segir þó að fólk muni ná útsending- um RÚV áfram í gegnum loftnet. Stöð 2 Hjá Vodafone hefur nú þegar verið tekið upp stafrænt kerfi. „Við erum bæði með stafrænar sjónvarpsút- sendingar í lofti og á IP-staðli sem er sambærilegt og Síminn er með. Kerf- ið hjá okkur mun ekki breytast,“ segir Sigurbjörn Eiríksson, forstöðumaður Netkerfa. Aðspurður hvort fólk geti séð Stöð 2 án loftnets segir hann svo ekki vera. „Ef þú ert ekki með loftnet þá þarftu að taka þetta í gegnum net- ið og þá þarftu að borga mánaðar- leigu af interneti. Á suðvesturhorn- inu er þó enn hægt að horfa á fréttir og annað sem er í opinni dagskrá en það er tímabundið.“ Aukakostnaður fyrir neytendur n Síminn skiptir breiðbandinu út fyrir ljósnet n Breytingin mun hafa kostnað í för með sér fyrir neytendur n Neytendasamtökin hafa lýst yfir óánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar Sjónvarpsútsend- ingar Landsmenn geta ekki lengur horft á RÚV í gegnum kerfi Símans. „Hliðrænar útsend- ingar munu þó leggjast af og þar með er ekki hægt að ná útsend- ingum RÚV í gegnum Símann nema með því að kaupa nýju þjónustuna sem er veitt með net- tengingu. Á heimasíðu Símans eru gefnar upp nokkrar leiðir sem þú getur farið við fyrirhugaðar breytingar. Eina leiðin sem er þér algjörlega að kostnaðarlausu er ef þú ert með breiðbandslykil og nettengingu frá Símanum: n Ef þú ert með breiðbandslykil og nettengingu frá Símanum munu starfsmenn skipta út breiðbandslykli fyrir nýjan stafrænan myndlykil þér að kostnaðarlausu. n Ef þú ert með breiðbandslykil en ekki með nettengingu frá Símanum þarftu að kaupa nettengingu. Þá munu starfsmenn skipta út breiðbandslykli frá Símanum fyrir nýjan stafrænan mynd- lykil þér að kostnaðarlausu. n Ef þú ert með loftnet gætir þú þurft að endurstilla sjónvarpið en þú getur séð RÚV áfram. n Ef þú ert hvorki með loftnet né mynd- lykil frá Símanum þarftu að verða þér úti um annað hvort loftnet eða kaupa þjónustu af þeim fyrirtækjum sem bjóða upp á sjónvarpsútsendingar. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.