Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2011, Side 44
NÝR PEUGEOT 508
Eyðsla í blönduðum akstri (l/100 km) frá 4,4 til 7,1. CO2 útblástur (g/km): frá 115 til 164.
Nýr Peugeot 508.
Áræðni & öryggi.
Bernhard ehf • Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985 Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535
Áræðni – Ný hönnun, nýtt viðmót og aksturseiginleikar sem samkeppnin á erfitt með að jafna á þessu verði.
Öryggi – ABS, EBFD, EBA, ESP, ASR, CBC veitir ríka hugarró fyrir bílstjóra, farþega og gangandi umferð.
Verð frá kr. 4.390.000
Ó
perusöngvararnir Bjarni
Thor Kristinsson og Krist-
inn Sigmundsson eru ein-
ir launahæstu söngvarar
landsins. Bjarni Thor er með
1.118.056 krónur á mánuði en Krist-
inn 1.096.391 krónur. Það borgar sig
greinilega að vera bassi því báðir
sinna þeir því hlutverki í óperuheim-
inum.
Bjarni og Kristinn hafa í áraraðir
verið á meðal fremstu bassasöngv-
ara heims. Báðir ferðast þeir víða um
heim og syngja í mörgum af þekkt-
ustu óperuhúsunum. Bjarni hef-
ur ferðast mikið til Evrópu og Asíu.
Kristinn hefur einnig verið mikið í
Evrópu en einnig í Bandaríkjunum
og víðar. Kristinn hlaut í vor Menn-
ingarverðlaun DV í flokki tónlistar
fyrir frammistöðu sína árið 2010.
Bjarni og Kristinn skáka nánast
öllum poppurum landsins að und-
anskildum Pálma Gunnarssyni sem
er með 1,3 milljónir króna í laun sem
að mestum hluta eru tilkomin vegna
annarrar atvinnu en söng. Þeir skáka
til dæmis kónginum Bubba Mort-
hens en hann er með um 850 þúsund
krónur í tekjur á mánuði. Þá slá þeir
Björgvini Halldórssyni einnig hressi-
lega við en hann er með tæpar 300
þúsund krónur á mánuði.
Íslenskar óperusöngkonur virð-
ast þó ekki þéna jafn mikið. Til að
mynda er Elín Ósk Óskarsdóttir með
um 50 þúsund krónur í mánaðarlaun
og Hulda Björk Garðarsdóttir með
svipaðar tekjur. Hins vegar er Björg
Þórhallsdóttir með um 400 þúsund
krónur í tekjur á mánuði.
n Bjarni Thor og Kristinn Sigmundsson hæstlaunuðu söngvararnir
Borgar sig að vera bassi
Bassarnir gera það gott
Bjarni Thor og Kristinn Sigmundsson voru
hæstlaunuðustu óperusöngvararnir.
Þarf ekki að
veiða í matinn
Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður er
hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt
í hljómsveitinni Mannakorn og að
vera fyrsti íslenski Eurovision-far-
inn. Það er þó orðið langt síðan og
hefur Pálmi verið stórtækur leigutaki
í íslenskum stangveiðiám. Hann hef-
ur gert það mjög gott í þeim bransa
sem og tónlistinni og hefur hann
þénað um 1.317.205 krónur á mán-
uði undanfarið ár. Það verður því
seint sagt að Pálmi þurfi að veiða sér
til matar – þó hann hafi án efa gert
það oft og mörgum sinnum.
Borgar sig
að syngja
Það gefur vel að eiga hvern slagar-
ann á fætur öðrum og spila fótbolta
með Selfossi, að minnsta kosti ef
tekið er mið af launum Ingólfs Þórar-
inssonar, sem oftast er kallaður Ingó í
Veðurguðunum. Á síðasta ári þénaði
hann um 816.863 krónur á mánuði
sem verður að teljast gott fyrir ís-
lenskan trúbador og fótboltamann.
Lög hans og hljómsveitarinnar Veð-
urguðanna hafa þó mikið verið spil-
uð á íslenskum útvarpsstöðvum og
er ekki ólíklegt að stór hluti þessara
launa komi í formi STEF-gjalda sem
stöðvarnar borga fyrir hverja spilun.
Kóngurinn
vel launaður
Bubbi Morthens er einn vinsælasti
tónlistarmaður Íslands og eru launin
eftir því. Hann er með 850.000 krón-
ur í laun á mánuði en Bubbi hefur
líka verið mjög duglegur undan-
farið. Haldið tónleika víða og verið
áberandi. Nýjasta platan fékk frá-
bæra dóma og lögin hafa klifið upp
vinsældalistana. Fjármál Bubba hafa
ekki verið neitt leyndarmál undan-
farin ár en hann hefur sagt frá því í
viðtölum að hann hafi tapað miklu á
hlutabréfakaupum og hruninu.