Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað Slakaðu á heima • Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd • Djúpslökun með infrarauðum hita • Sjálfvirkt og stillanlegt nudd Verið velkomin í verslun okkar prófið og sannfærist! Úrval nuddsæta Verð frá 29.750 kr. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 Fjöldamorð í Noregi Anders Behring Breivik, 32 ára Norðmaður, játaði á sig ein mannskæð­ ustu fjöldamorð síðari tíma en hann myrti að minnsta kosti 75 manns í Noregi síðastliðinn föstudag. Fyrst sprengdi hann öfluga sprengju í miðborg Óslóar og lagði síðar leið sína í Útey þar sem hann skaut tugi manna til bana. Breivik vildi berjast gegn „menningarlegum marxistum“ og hafði andúð á fjölmenningar­ stefnu. Hann virðist hafa skipu­ lagt voðaverkin í mörg ár. Í vik­ unni var Breivik úrskurðaður í átta vikna gæsluvarðhald en hann mun að öllum líkindum verða ákærður fyrir hryðjuverk. Þorsteinn er skattakóngur Þorsteinn Hjaltested, fjárfestir og stór­ landeigandi í Kópavogi, er skattakóngur Ís­ lands árið 2010. Álagningarskrá ríkisskattstjóra fyrir árið 2010 var gerð opinber á mánudag. Skattgreiðslur Þorsteins námu tæpum 162 milljónum króna árið 2010. Þorsteinn hefur ekki verið mikið í fjölmiðlaumræðunni hér á landi. Helst hefur verið fjallað um Þorstein vegna Vatnsendajarðar­ innar svokölluðu í Kópavogi sem hann erfði eftir föður sinn Magn­ ús Hjaltested þegar hann lést árið 2009. Auð Þorsteins má rekja til Vatnsendalandsins. Tæknilega gjald- þrota félagi lánað Fyrrverandi stjórnarmaður í Glitni, Björn Ingi Sveinsson, fékk í gegn 200 milljóna króna lán­ veitingu frá Nýja Glitni í nóvem­ ber 2008 til fast­ eigna­ félags sem nú er gjaldþrota, Norður­ turnsins ehf. Þetta kom fram í DV á miðvikudag. Björn Ingi Sveins­ son var framkvæmdastjóri eignar­ haldsfélagsins Saxbygg sem var stærsti hluthafi Norðurturnsins með um 66 prósenta eignarhlut á móti 34 prósenta eignarhlut FL Group. Saxbygg var jafnframt fimmti stærsti hluthafi Glitnis fyrir hrunið. Fréttir vikunnar í DV 1 2 3 Öryggisverðir ráku brettafólk frá Hörpu n Reynt var að bola hjólabrettafólki í burtu frá brettaaðstöðu við Hörpu n Væri synd að missa þetta, segir Addi Intro n Talsmaður Hörpu segir málið byggt á misskilningi, brettafólk sé velkomið „Það voru öryggisverðir frá Securitas sem ráku okkur í burtu,“ segir Ársæll Þór Ingólfsson, betur þekktur sem Addi Intro. Addi hefur undanfarið nýtt sér aðstöðu við tónlistarhúsið Hörpu til þess að iðka hjólabretta­ íþróttina ásamt fjölda annarra. Hann segir aðstöðuna vera eina þá bestu sem í boði er hér á landi. Þrátt fyrir að öryggisverðir hafi rekið Adda og fleiri í burtu í síðustu viku virðist sú ákvörðun hafa verið byggð á mis­ skilningi, eða svo segir talsmaður Hörpu. „Það var bara einhver misskiln­ ingur, þeir mega alveg vera þarna,“ segir Anna Margrét Björnsson, upp­ lýsingafulltrúi Hörpu, um málið. Hún segir þó að ennþá sé óljóst hvernig svæðið verði nýtt í kjölfar formlegrar opnunar Hörpu, sem verður á Menningarnótt. Ekkert bann gagnvart brettafólki sé þó í spil­ unum. Aðstöðuleysi Addi Intro segist hafa rætt málið við Önnu og það sé í góðum farvegi. „Hún sagði að það væri ekki búið að banna þetta en þetta væri eitthvað sem þyrfti að ræða,“ segir hann. Addi segir hjólabrettaiðkun við Hörpu gæða þessa nýju byggingu og um­ hverfi hennar lífi. „Það sem við höf­ um upplifað þegar við rennum okkur þarna er að túristum finnist þetta frá­ bært. Fólki finnst æðislegt að stjórn Reykjavíkurborgar sé svo góð að leyfa okkur að vera þarna.“ Þá segir hann að lengi vel hafi brettafólk átt erfitt með að athafna sig þar sem lítið væri um góða aðstöðu fyrir það. Aðspurð hvort til greina komi að banna hjólabrettaiðkun á svæðinu í kringum Hörpu segir Anna Mar­ grét ekkert slíkt í spilunum. „Eins og ég segi þá viljum við bara lifa í sátt og samlyndi við alla, hvort sem það er hjólabrettafólk eða aðrir,“ seg­ ir hún. Anna segir þó að einhverjir hafi nýlega tekið sig til og rennt sér á hjólabrettum inni í Hörpu, en slíkt sé vissulega bannað: „Það náttúru­ lega gengur ekki að vera þarna inni á hjólabretti.“ Hún segist fylgjandi því að brettafólk fái aðstöðu til framtíð­ ar og að gott væri ef Reykjavíkurborg gæti komið að því. Jaðarsport krakka Addi segir í samtali við DV að að­ stöðuleysi sé einmitt eitthvað sem hrjáð hafi hjólabrettafólk á Íslandi til margra ára. „Þetta er bara eitt af þeim mörgu vandamálum sem við þurfum að takast á við. Það er lítil sem engin brettaaðstaða til staðar og ef svo er þá er það bara eitthvað skítamix sem dugar tímabundið,“ segir hann. Hann segir að í rauninni ætti borgin að sjá til þess að til væri brettaaðstaða sem rekin væri „jafn gaumgæfilega og sundlaug, alveg frá hreinlæti og upp í öryggismál.“ Aðspurður hvers vegna bretta­ fólk hafi setið á hakanum svo lengi á meðan aðrir íþróttaiðkendur virð­ ist njóta betri aðstöðu segir Addi: „Ég held bara að Íslendingar hafi aldrei gefið þessu neinn séns. Eins og þú veist er alltaf litið á alla í jað­ arsporti sem einhverja krakka. Það er til dæmis fyrst núna sem snjó­ brettaiðkendur eru teknir alvarlega enda hefur komið í ljós að við eigum þrjá snjóbrettagaura á heimsmæli­ kvarða.“ Samkomustaður „Þetta er eitthvert besta nýja svæð­ ið sem brettafólk getur hugsað sér,“ segir Addi um brettaaðstöðuna við Hörpu. Hann segir að það sé alveg eins og svæðið hafi verið hannað með brettafólk í huga. „Það ganga sögusagnir á milli hjólabrettafólks um að ein konan sem sat í hönnun­ arnefndinni hafi orðið fyrir áhrifum af því sem sést hefur í nágranna­ löndunum, þar sem byggð hefur verið lögleg brettaaðstaða, sem lítur kannski ekkert út eins og brettaað­ staða en er vel hjólabrettahæf.“ Addi segir að stuttu eftir að svæðið varð klárt hafi hjólabretta­ fólk uppgötvað það. Nú sé svo komið að þetta sé eins konar sam­ komustaður hjólabrettafólks. „Þetta svæði er svo fallegt, eldra brettafólk sem komið er yfir þrítugt er að kíkja þarna á kvöldin og leika sér eitthvað og spjalla. Það væri synd að missa þetta.“ „ Þetta er eitthvert besta nýja svæð- ið sem brettafólk getur hugsað sér. Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Draumasvæðið Addi Intro segir brettaaðstöðuna við Hörpu vera þá bestu sem komið hafi fram síðan Ingólfstorg varð til. mynD gunnAR gunnARSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.