Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 26
26 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
A
uðugasti maður Íslands árið
2010, samkvæmt útreikn-
ingum út frá auðlegðarskatti
sem greiddur er af eignum
einstaklinga, er byggingar-
verktakinn Sigurður Sigurgeirsson
í Kópavogi. Sigurður á eignir upp á
tæpa 3,8 milljarða króna samkvæmt
greiddum auðlegðarskatti fyrir árið
2010. Sigurður hefur verið ofarlega á
listanum yfir hæstu skattgreiðendur
landsins síðastliðin ár.
Auðlegðarskattur er 1,5 prósenta
skattur sem leggst ofan á eignir ein-
staklinga sem nema 75 milljónum eða
meira eða eignir hjóna sem nema 100
milljónum eða meira. Ef eignir ein-
staklinga og hjóna eru lægri en 75
milljónir eða 100 milljónir þarf ekki að
greiða þennan skatt. Viðbótarauðlegð-
arskattur, sem er nýr skattur sem leggst
á hlutabréfaeign að raunvirði 90 millj-
ónir króna eða meira hjá einstakling-
um, er ekki hluti af þessari umfjöllun
DV, aðeins auðlegðarskatturinn sjálf-
ur.
Auður Sigurðar er í grunninn til-
kominn vegna þess að hann seldi
athafnamanninum Engilbert Run-
ólfssyni verktakafyrirtæki sitt JB Bygg-
ingarfélag fyrir um 3,5 milljarða króna
í miðju góðærinu, í júní 2007, þegar
hlutabréfaverð var í hæstu hæðum á
Íslandi. Fjárfestingarbankinn VBS fjár-
magnaði viðskiptin. Sigurður hafði
þá byggt fyrirtækið upp á um 20 ára
tímabili og verið stærsti verktakinn í
uppbyggingu Kópavogs ásamt BYGG,
Byggingarfélagi Gunnars og Gylfa.
Velta J.B. Verktaka hafði verið fjórir
milljarðar króna árið áður og hugðist
Engilbert auka veltuna í um sex til átta
milljarða króna. Í viðtali við Viðskipta-
blaðið í tilefni sölunnar koma fram að
Sigurður ætlaði að snúa sér að öðrum
verkefnum.
Byrjaði með tvær hendur tómar
Heimildarmaður DV sem þekkir til Sig-
urðar segir að í raun hafi hann byrjað
sinn fjárfestingarferil með tvær hend-
ur tómar. Sigurður hafi sjálfur unn-
ið sem járnabindingamaður, stofnað
verktakafyrirtækið Járnbendingu árið
1984 – sem síðan fékk nafnið J.B. verk-
takar árið 2002 – og byrjað smátt. Starf-
semin hafi svo undið upp á sig þar til
hann seldi Engilberti fyrirtækið fyrir
metfé árið 2007. Þá voru starfsmenn
verktakafyrirtækisins um 200 talsins
og taldist mönnum til að fyrirtækið
hefði byggt á áttunda hundrað íbúð-
ir á árunum þar á undan, til dæmis í
Kópavogi og Grafarholti. Stærsta verk-
efni félagsins í eigendatíð Sigurðar var
bygging Egilshallarinnar árið 2004.
Stofnar fjölmörg
eignarhaldsfélög
Sigurður er eigandi fjölmargra ný-
legra eignarhaldsfélaga á sviði verk-
takastarfsemi og fasteignaviðskipta.
Félög hans eiga meðal annars eignir í
Hlíða smára og Ögurhvarfi í Kópavogi.
Flest af félögum hans eru tiltölulega
nýstofnuð – á síðastliðnum tveimur
árum – og er ljóst að Sigurður ætlar sér
að koma af krafti aftur inn í verktaka-
og fasteignabransann. DV hefur meðal
annars heimildir fyrir því að Sigurður
hafi verið einn af þeim fjárfestum sem
gerðu kauptilboð í verslanamiðstöð-
ina Smáralindina í Kópavogi í fyrra.
Verslanamiðstöðin er í eigu Lands-
bankans og mat bankinn það svo að
tilboð Sigurðar væri of lágt. Bankinn
heldur enn utan um Smáralindina.
Líklegt má telja að Sigurður ætli
að nýta sér það, líkt og margir aðrir
fjárfestar sem eiga miklar eignir, að
fasteigna- og lóðaverð er fremur lágt
á Íslandi um þessar mundir miðað
við hvað gekk og gerðist í efnahags-
bólunni fyrir hrun og má því fá eignir
ódýrari en ella.
Skúli í næsta sæti
Fjárfestirinn Skúli Mogensen, einn
af nýjum eigendum MP Banka og er
yfirleitt er kenndur við hugbúnaðar-
fyrirtækið OZ, er í næstefsta sæti yfir
hæstu skattgreiðendur Íslands. Hann
greiddi rúmar 52 milljónir króna í
auðlegðarskatt í fyrra af eignum sem
nema, samkvæmt þessari tölu, tæp-
um 3,5 milljörðum króna. Skúli flutti
hingað til lands frá Kanada árið 2009
og því var árið 2010 fyrsta heila skatt-
árið sem hann var búsettur á Íslandi
eftir flutningana. „Ég hef ekki greitt
skatta á Íslandi undanfarin tíu ár þar
sem ég var búsettur í Kanada,“ segir
Skúli aðspurður um ástæðuna fyrir
veru hans á listanum yfir hæstu greið-
endur auðlegðarskatts á Íslandi.
Skúli segir að ástæðan fyrir því af
hverju hann sé svo ofarlega á listan-
um sé sú að hann hafi flutt hingað til
lands frá Kanada með fjármagn sem
hann ætli sér að nota til fjárfestinga
hér á landi og að hann greiði nú auð-
legðarskatt af þessum fjármunum hér
á landi en ekki í Kanada. Eiginkona
Skúla, Margrét Ásgeirsdóttir, er sömu-
leiðis á listanum yfir hæstu skattgreið-
endur en ástæðan fyrir því er sú að
hjónin eru samsköttuð.
Næsta nafnið á listanum er Guð-
björg Matthíasdóttir, útgerðarkona
og fjárfestir í Vestmannaeyjum. Vera
hennar á listanum kemur ekkert á
óvart enda var greiddi hún hæstan
auðlegðarskatt árið 2009 og hefur
verið meðal ríkustu Íslendinganna
um langt árabil. Guðbjörg, og eigin-
maður hennar Sigurður Einarsson út-
gerðarmaður sem er látinn, auðguð-
ust mjög á því að kaupa kvóta á sínum
tíma sem og mikið magn hlutabréfa
í Tryggingamiðstöðinni, meðal ann-
ars. Þau hlutabréf voru síðar seld til
fjárfestingarfélagsins FL Group sum-
arið 2007. Guðbjörg hefur síðan fjár-
fest í ýmsum öðrum fyrirtækjum og
atvinnugreinum, meðal annars í Lýsi
og Morgunblaðinu.
Fékk fimm milljarða frá
Milestone
Næsti maður á listanum er lyfjafræð-
ingurinn Ívar Daníelsson en auðlegð
hans er meðal annars tilkomin út af
sölu á 0,60 prósenta hlut í samheita-
lyfjafyrirtækinu Actavis. Ívar er skráð-
ur fyrir hreinni eign upp á meira en
2 milljarða króna, samkvæmt þeim
auðlegðarskatti sem hann greiðir.
Fleiri einstaklingar á listanum eru
þar vegna hlutabréfaeignar í Actavis,
meðal annars lyfjafræðingurinn Jón
Zimsen, sem átti tæpt prósent í Acta-
vis. Jón er í áttunda sæti á listanum
með hreina eign upp á meira en 1.700
milljónir.
Í fimmta sæti er auðkonan Ing-
unn Wernersdóttir, sem kennd er við
eignarhaldsfélagið Milestone. Hún
er skráð fyrir eignum upp á um 2,2
milljarða króna. Ingunn er jafnframt
í þrettánda sæti yfir þá sem greiða
hæstan skatt á landinu. Ingunn fékk
rúma fimm milljarða króna frá bræðr-
um sínum Karli og Steingrími þegar
hún seldi þeim hlutabréf sín sinn í
fjölskyldufyrirtækinu Milestone árið
2005. Auður hennar er tilkomin út
af þessum viðskiptum. Skiptastjóri
Milestone, Grímur Sigurðsson, vill
rifta viðskiptunum á þeim forsendum
að um gjafagerning hafi verið að ræða
og fá fjármunina aftur inn í bú hins
gjaldþrota eignarhaldsfélags. Auð-
konan er meðal annars þekkt fyrir að
hafa keypt hús Borgarbókasafnsins
í Þingholtsstræti af norska málaran-
um Odd Nerdrum en þetta glæsilega
hús er í mikilli niðurníðslu um þess-
ar mundir. Ingunn hefur annars ekki
verið stórtæk í atvinnulífinu eða í fjár-
festingum hér á landi og kom ekki að
rekstri Milestone með beinum hætti.
Vatnsendabóndinn
Þorsteinn Hjaltested, fjárfestir og
stórlandeigandi í Kópavogi, er skatta-
kóngur Íslands árið 2010 og er jafn-
framt í sjötta sæti yfir þá sem greiða
mestan auðlegðarskatt. Skattgreiðslur
Þorsteins námu tæpum 162 milljón-
um króna árið 2010 og voru greiðslur
hans vegna auðlegðarskatts um 30
milljónir króna. Hrein eign Þorsteins
nemur um 2 milljörðum króna.
Helst hefur verið fjallað um Þor-
stein í fjölmiðlum vegna Vatnsenda-
Auðugustu
ÍslendingArnir
n Eiga milljarða eftir góðærið á Íslandi n Þeir sem seldu hlutabréf á réttum
tíma ofarlega á lista n Þekktir og auðugir einstaklingar eru ekki á listanum
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Skattar 2010
Sigurður greiðir mest Sigurður Sigurgeirsson, verktaki og fjárfestir, greiðir mestan auðlegðarskatt einstaklinga á Íslandi, samkvæmt
útreikningum DV. Hann sést hér lengst til vinstri ásamt Elfari Ólasyni og Bjarna Má Bjarnasyni sem voru starfsmenn verktakafyrirtækis
hans ,J.B. verktaka, áður en hann seldi félagið fyrir metfé árið 2007. Þeir sjást hér árið 2002 fyrir framan fjölbýlishús sem J.B. byggði í
Grafarholti. Mynd MorgunBlaðið/SVerrir VilHelMSSon
ekki á listanum Fjölmargir þekktir og vel stæðir einstaklingar eru ekki á listanum yfir þá sem
greiða hæstan auðlegðarskatt hér á landi. Meðal þeirra má nefna Pálma Haraldsson, Hannes
Smárason og Ólaf Ólafsson. Allir fengu þeir himinháar arðgreiðslur út úr íslenska fjármálakerfinu
fyrir hrun og allir eru þeir búsettir erlendis í dag og greiða því ekki auðlegðarskatt hér á landi.