Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 14
14 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað Capacent Ráðningar Capacent Ráðningar Borgartúni 27 Sími 540 1000 Microsoft Ísland óskar eftir að ráða sölu- og markaðsdrifinn einstakling til starfa til þess að sjá um samskipti við lykilviðskiptavini. Um mjög spennandi og krefjandi starf er að ræða sem gefur viðkomandi tækifæri til mótunar og starfsframa hjá Microsoft Corporation. Starfið felur í sér að vera í tryggu og stöðugu sambandi við stærstu viðskiptavini Microsoft hér á landi. Jafnframt felst í starfinu greining á sölu- og markaðstækifærum auk áætlanagerðar. Umsjón með starfinu hafa Ragnheidur Dagsdóttir (ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) og Sigríður Pétursdóttir (sigridur.petursdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Menntunarlegar og faglegar kröfur: • Háskólamenntun skilyrði, meistarapróf eða MBA nám að auki mjög æskilegt • 5 -10 ára reynsla í svipuðu eða sambærilegu starfi • Reynsla af stjórnendaráðgjöf er mikill kostur eða reynsla af sölu til þeirra sem taka viðskiptalegar ákvarðanir innan fyrirtækja • Reynsla af hagnýtingu upplýsingatækni • Reynsla af skipulagningu verkefna • Glöggskyggni, framtakssemi og frumkvæði í samskiptum við viðskiptavini • Yfirborðsþekking á vörum og lausnum Microsoft • Góð færni í ensku skilyrði, góð færni í dönsku æskileg • Mikil hæfni til að koma frá sér upplýsingum í töluðu og rituðu máli Lykileiginleikar starfsmannsins eru: • Að geta helgað sig samskiptum við viðskiptavini af einlægum áhuga og stutt þá í það finna lausnir sem eykur hag þeirra • Skipulagshæfileikar, skarpskyggni og einbeitni við verkefni og markmið • Metnaður og áhugi, áræðni og frumkvæði • Sjálfstæði, mikil ábyrgðartilfinning og hæfni í mannlegum samskiptum • Mannblendinn, umburðarlyndi og hæfileiki til að þrífast í síbreytilegu umhverfi Microsoft er staðsett í Borgartúni 25, þar starfa í dag 15 starfsmenn. Starfsaðstaða er mjög góð. Viðskiptastjóri stærri fyrirtækja (Corporate aCCount Manager) Ef þú: - Hefur mikinn metnað og dug - Vilt uppskera í samræmi við árangur - Ert með góða samskiptahæfileika - Átt auðvelt með að koma fram - Átt gott með að leiða margþætt og margslungin verkefni - Átt auðvelt með að aðlagast nýjum aðstæðum og fólki - Átt auðvelt með samskipti við fólk - Átt auðvelt að koma auga á nýjar leiðir til lausnar verkefna Þá býðst þér: - Spennandi starf með mikla ábyrgð - Laun í samræmi við hæfileika, getu og reynslu - Góðir möguleikar á þróun í starfi innan Microsoft E ftir að Anders Behring Breivik framdi ódæðin í Noregi hefur athyglin beinst að íslenskum hópum sem eru á móti fjöl- menningu. Anders Behring Breivik setti fram stefnuyfirlýsingu og það sem þar kemur fram er ekk- ert ólíkt umræðunni sem heyrst hefur í þjóðfélaginu um innflytjendur. Brei- vik sagði fjölmenningu ekki vera Evr- ópu til góðs og sagðist vera bjargvætt- ur heimsálfunnar með því að fremja ódæðin í Noregi. Andhvítir Fyrr í vetur birtust fréttir af boðskap Íslendinga sem sögðu að þeir, sem beita sér gegn aðskilnaði kynþátta, séu í raun á móti hvíta manninum og þar af leiðandi andhvítir. Myndband var birt á vef YouTube þar sem íslensk kona las þennan boðskap. Þessi skila- boð eru samhljóma boðskap samtak- anna Blóðs og heiðurs. Samtökin eru alþjóðleg og nefnast á ensku Blood and Honor. Þau samtök hafa tekið þátt í ofbeldisfullum aðgerðum erlendis og hafa gert það undir nafninu Combat 18. Vopn merki um frjálsan mann Þá er einnig vitað um einn mann hér á landi sem er í Sköpunarhreyfing- unni svokölluðu. Samtökin eru köll- uð Creativity Movement á ensku og er Skúli Jakobsson einn þeirra sem tilheyra henni. Í viðtali við DV fyrr á þessu ári sagðist Skúli vera rasisti en tók fram að orðið væri misskilið. Með því að segjast vera rasisti sagðist Skúli trúa á sinn eigin kynstofn. Sköpunar- hreyfingin er kirkjusamtök sem berjast fyrir aðskilnaði hvítra og annarra kyn- stofna. Skúli var vígður til prests af æðstu stjórnendum kirkjunnar í Bandaríkj- unum. Honum er þá leyfilegt að tjá sig um málefni kirkjunnar og trúna, en það er hinum venjulega meðlimi ekki leyfilegt. Hann hefur stofnað kirkju hér á landi undir merkjum Sköpunarhreyf- ingarinnar, en á heimasíðu kirkjunnar, sem Skúli hefur sett upp, er fólk hvatt til þess að eignast skotvopn. Sjálfur sagð- ist hann í samtali við DV fyrr á þessu ári eiga byssu. „Já, hvað heldurðu! Að bera vopn er merki um frjálsan mann. En ég geng að sjálfsögðu ekki um með hana dagsdaglega, enda er það ólöglegt á Ís- landi.“ Þjóðernissinnar á Austurvelli Í fyrrahaust vakti athygli þegar fána nasista var veifað á mótmælum á Aust- urvelli. Sigríður Bryndís Baldvinsdótt- ir var ein þeirra sem mótmælti undir merkjum hvítra þjóðernissinna á Aust- urvelli. Hún útilokaði ekki framboð þjóðernissinna í komandi kosningum. Hún sagði þjóðernissinna vera á móti fjölmenningarsamfélagi. Þá tengdist Sigríður Bryndís einn- ig Frjálslynda flokknum en hún var í framboði fyrir flokkinn í alþingiskosn- ingum árið 2009. Þar skipaði hún sjö- unda sæti listans í Suðurkjördæmi. Frjálslyndi flokkurinn fór einnig mik- inn í umræðu um málefni innflytjenda í aðdraganda alþingiskosninganna árið 2007. Hvítt Ísland Nokkur þjóðernissamtök hafa risið upp á Íslandi í gegnum árin. Félags- skapurinn Norænn kynstofn var starf- andi á áttunda og níunda áratug síð- ustu aldar. Í kjölfar hans var stofnað Félag íslenskra þjóðernissinna á Suð- urlandi skömmu fyrir aldamótin. DV árið 2001 um Félag íslenskra þjóðern- issinna, en þá sagði Hlynur Freyr Vig- fússon, varaformaður félagsins, í við- tali við blaðið að 120 meðlimir væru í félaginu. Viðtalið dró dilk á eftir sér því Hlynur var ákærður  og  að lokum dæmdur í 100 þúsund króna sektar- greiðslu fyrir að hafa opinberlega ráð- ist með háði, rógi  og  smánun á hóp Birgir Olgeirsson blaðamaður skrifar birgir@dv.is „Ef þú elskar kyn- þáttinn þinn getur þú ekki annað en hatað allt sem eyðileggur hann. Andúð í gArð fjölmenningAr n Íslenskir þjóðernissinnar tengdir alþjóðlegum samtökum n „Að bera vopn er merki um frjálsan mann“ Á móti fjölmenningu Anders Behring Breivik er á móti fjölmenningu. Hann sagðist vera að bjarga Evrópu með ódæði sínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.