Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Gríðarlega háar skuldir liggja að baki
félaginu K08 ehf. sem nú hefur verið
tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt
úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur.
Félagið er í eigu Ingvars Vilhjálms
sonar, fyrrverandi framkvæmda
stjóra markaðsviðskipta Kaupþings
banka. Hann stofnaði félagið Ingvar
Vilhjálmsson ehf., sem síðar var end
urnefnt K08, örstuttu fyrir hrun, og
setti skuldir sínar vegna hlutabréfa
kaupa inn í félagið ásamt bréfunum
sjálfum. Á sama tíma flutti hann
einnig eignarhald á tveimur glæsi
húsum í Skerjafirði yfir á konu sína
og móður. Félagið K08 ehf. skuldar í
dag yfir sex milljarða króna.
Kúlulán fyrir hlutabréfum
Skuldirnar í félaginu eru vegna kúlu
lána til hlutabréfakaupa í Kaup
þingi. Í ársreikningi félagsins frá
árinu 2009 kemur fram að félagið
átti bréf í Kaupþingi fyrir um 3 millj
arða króna. Skuldirnar eru kúlulán í
erlendri mynt og hækkuðu því veru
lega við hrun íslensku krónunnar.
Samkvæmt ársreikningnum námu
heildarskuldir félagsins í lok árs 2009
um 6,6 milljörðum króna.
Skilanefnd Kaupþings fór í mál
við Ingvar til að endurheimta fjár
munina sem bankinn lánaði honum
á sínum tíma. Ingvar var einn af þeim
starfsmönnum sem fengu lánað til
hlutabréfakaupa hjá bankanum árið
2005. Í september 2008 ákvað svo
bankinn að fella niður persónulegar
ábyrgðir starfsmanna á umræddum
lánum. Ingvar hafði í framhaldinu
komið sínum skuldum fyrir í eign
arhaldsfélagi sem bar nafn hans.
Skuldastaða Ingvars hjá bankanum
óx jafnt og þétt eftir árið 2005. Sam
kvæmt rannsóknarskýrslu Alþing
is skuldaði hann 770 milljónir árið
2005, 1.931 milljón árið 2006, 2.861
milljón árið 2007 og 5.084 milljón
ir árið 2008. Eins og áður segir var
skuldastaðan svo komin í rúma 6,6
milljarða í lok árs 2009. Ingvar var sá
starfsmaður bankans sem fékk mest
lánað til hlutabréfakaupa fyrir utan
bankastjórann Hreiðar Má Sigurðs
son og stjórnarformanninn Sigurð
Einarsson.
Engar eignir
Engar eignir voru inni í félagi Ingvars
í lok árs 2009 og því ljóst að félagið er
búið að vera eignalaust og tæknilega
gjaldþrota í lengri tíma. Ársreikning
urinn fyrir árið 2009 er eini ársreikn
ingur félagsins sem er opinber og því
ekki hægt að segja til um hversu lengi
félagið er búið að vera tæknilega gjald
þrota. Það er hins vegar ljóst að síðan
Kaupþing var tekið yfir af ríkinu í októ
ber 2008 hefur félagið verið eignalaust.
Endalok félagsins sem hafa verið ljós
frá hruni virðast því vera að renna upp
með úrskurði héraðsdóms.
Samkvæmt tekjublaði DV sem
kom út á þriðjudaginn var Ingvar
með 5.208 krónur í mánaðarlaun
árið 2010. Hann er þó ekki á flæði
skeri staddur því eignir hans og konu
hans nema um 358 milljónum sé
miðað við álagningu auðlegðarskatts
ársins 2010.
Kúlulánafélagið í
milljarðagjaldþrot
n Félag utan um kúlulán til hlutabréfakaupa n Setti milljarðaskuldir í einka-
hlutafélag korteri fyrir hrun n Skilanefnd Kaupþings í mál til að endurheimta fé
„Ljóst að félagið
er búið að vera
eignalaust og tæknilega
gjaldþrota í lengri tíma.
Fékk kúlulán Ingvar kom
kúlulánum sem hann hafði
fengið yfir í eignarhalds-
félag skömmu fyrir hrun.
Lánuðu starfsmönnum Tugir starfsmanna Kaupþings fengu lánað til hlutabréfakaupa
í bankanum fyrir hrun.
Alvarleg brot í Póllandi:
Ofbeldismaður
framseldur
Pólskur maður sem búsettur er á Ís
landi verður framseldur til Póllands
samkvæmt dómi Hæstaréttar. Hann
hefur verið dæmdur fyrir alvarlegar
líkamsárásir í Póllandi.
Innanríkisráðuneytið tók þá
ákvörðun að framselja manninn. Við
það sætti maðurinn sig ekki og kærði
úrskurð ráðuneytisins. Héraðsdómur
komst að þeirri niðurstöðu að fella
skyldi ákvörðun ráðuneytisins úr gildi.
Niðurstaðan varð hins vegar öðruvísi
í Hæstarétti.
Samkvæmt málsgögnum hefur
maðurinn verið dæmdur þrisvar
sinnum fyrir líkamsárás í Póllandi,
þar af voru tvær árásanna alvarlegar.
Samtals var hann dæmdur í fjögurra
ára og sex mánaða fangelsisvist í Pól
landi. Nýlega krafðist pólska dóms
málaráðuneytið þess að maðurinn
yrði framseldur. Á það féllst innanrík
isráðuneytið.
Samkvæmt dómsorði mun mað
urinn hafa mótmælt framsalinu á
grundvelli mannúðarástæðna, en
hann hefur starfað og búið hér á landi
frá árinu 2006 og hefur eignast barn
með íslenskri konu. Hann kvaðst
hafa bundist henni og þremur börn
um hennar frá fyrra sambandi fjöl
skylduböndum. Þá hefur hann ekki
gerst sekur um að brjóta refsilög hér
á landi.
Hann sagði einnig að mikið hefði
dregist að krefjast framsals hans, enda
hefur hann verið hér á landi í hart
nær fimm ár. Því hafi hann talið sem
svo að framsals yrði ekki krafist. Þessu
til stuðnings vitnar hann í mannrétt
indasáttmála Evrópu.
En fram kemur í dómi Hæstaréttar
að maðurinn hlyti að hafa áttað sig á
því að pólsk yfirvöld myndu krefjast
framsals hans, sérstaklega í ljósi alvar
legra brota hans í heimalandi sínu. Þá
hafi innanríkisráðuneytið metið hvort
að mannúðarástæður mæli gegn
framsali mannsins og komist að þeirri
niðurstöðu að svo væri ekki. „Verður
ekki annað séð en að það mat hafi
verið framkvæmt með réttum og mál
efnalegum hætti,“ segir í dómsorði.
Úrskurður héraðsdóms var því
felldur úr gildi og ákvörðun innanrík
isráðherra staðfest.
Guðni Rúnar Gíslason
blaðamaður skrifar gudni@dv.is