Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 78

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 78
78 | Fólk 29. júlí – 2. ágúst 2011 Helgarblað Fagnaði átta ára brúð- kaupsafmæli Söngleikjaleikarinn Ívar Helga- son hefur vakið verðskuldaða athygli í söngleiknum Hárinu sem nú er sýndur við góðan orðstír í tónlistar- og ráðstefnu- húsinu Hörpu í Reykjavík tók sér frí frá önnum og fór með konuna út að borða á 1862 Nor- dic Bistro í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Þar fögnuðu hann og eiginkona hans átta ára brúðkaupsafmæli. Ívar hefur eytt mörgum stundum á Akur- eyri að undanförnu en Hárið var sett þar upp í vetur áður en sýningin var færð til Reykjavíkur nú í byrjun sumars. Ilmur í formi Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er lítið í því að hlífa sjálfri sér þegar kemur að líkamsrækt- inni. Hún stundar Víkingaþrek í bardagaklúbbnum Mjölni en á þeim æfingum er tekið vel á því. Ilmur fór á æfingu í vikunni og gerði upphífingar og ketilbjöllu- lyftur af miklum móð. Leik- konan lítur vel út og er komin í flott form. Ilmur gerir það þó ekki einungis gott í ræktinni því í tekjublaði DV sem kom út fyrr í vikunni var sagt frá því að leikkonan sé með nærri 600 þúsund krónur í mánaðarlaun. Enda gríðarlega vinsæl. „Þú ert ekki Andri Freyr“ „Þú ert ekki Andri Freyr,“ sagði Vala Matt, gestastjórnandi Virkra morgna, þegar þátturinn hófst á miðvikudagsmorgun. Þá sat við hliðina á henni Freyr Eyjólfsson, stjórnandi Morg- unútvarpsins, en Andri Freyr Viðarsson hafði sofið yfir sig og ekki náðist í kappann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Freyr stýrði þættinum þar til Andri kom á hlaupum. Andri sló á létta strengi og lét eins og ekk- ert hefði í skorist þegar hann kom inn í útsendingu en viður- kenndi að það væri ansi óþægi- legt að sofa svona yfir sig. S amkvæmt ársreikningi Fjarþjálfunar ehf sem DV hefur undir hönd- um var hreinn hagn- aður félagsins 3,7 millj- ónir á árinu 2010. Félagið er í eigu Egils Einarssonar sem oft- ast er nefndur Gillzenegger eða Þykki. Félagið heldur utan um samnefndan rekstur Gillz en fyrir nokkrum árum stofnaði hann fyrirtæki þar sem hann býður fólki upp á einkaþjálfun í gegnum netið. Heildarvelta félagsins á árinu 2010 var 11,6 milljónir króna. Skuldir félagsins eru rétt tæpar fjórar milljónir króna en eigið fé að þeim frádregnum nemur 7,5 milljónum. Hagnaður félagsins dregst lítillega saman frá því árið 2009 en þá var hann tæplega 4,5 milljónir króna. Skuldir félags- ins jukust hins vegar um rúmar þrjár milljónir á milli ára. Egill hefur greitt sér arð upp á rúmar 3 milljónir úr félaginu á síðustu tveimur árum en handbært fé þess í lok árs var rúmar 2 millj- ónir króna. Egill, sem hefur verið áber- andi talsmaður hollustu og lík- amsræktar undanfarin ár, gerir það ekki bara gott í gegnum fyr- irtækið sitt Farþjálfun því sam- kvæmt nýútkomnu tekjublaði DV er hann einnig með um 420 þúsund krónur í laun á mán- uði. En Egill starfar einnig sem einkaþjálfari í Sporthúsinu. Það er þó langt frá því að Egill hagnist bara á líkams- ræktinni því hann hefur einnig komist á metsölulista sem rit- höfundur. Egill hefur gefið út þrjár bækur sem allar hafa selst vel. Þá var gerð sjónvarpsþátta- sería eftir bókinni Mannasiðir sem sýnd var á Stöð 2 við góðar undirtektir. Við þetta bætist svo sala á þáttaröðinni á DVD. Vinsældir Egils hafa aukist jafnt og þétt undan- farin ár en hann vakti fyrst athygli sem pistlahöfundur og bloggari. Egill er þó einn- ig mjög umdeildur og hafa femínistar og fleiri þjarm- að mjög að líkamsræktarf- römuðinum undanfarið fyrir niðrandi ummæli sem voru látin falla á bloggsíðu hans árið 2007. Þessi ummæli hafa verið rifjuð upp með reglu- legu millibili og skaut umræð- an enn og aftur upp kollin- um þegar Egill prýddi forsíðu Símaskrárinnar í ár. Fyrirtæki Gillz veltir milljónum Í slenska fyrirsætan og pistlahöfundurinn Bryndís Gyða Michelsen er komin í úrslit fegurðarsamkeppn- innar Playboy Miss Soci- al sem fram fer á Facebook. Keppninni lýkur í dag föstu- dag og kemur þá í ljós hvort Bryndís fái að sitja nakin fyr- ir á síðum eins vinsælasta og frægasta karlatímarits heims. Í tilefni af þátttöku Bryndís- ar í keppninni var rætt við hana og aðra keppendur sem komist hafa í úrslit á vefsíð- unni thesmokingjacket.com, sem er „vinnustaðaútgáfa“ af Playboy, eins Hugh Hefner lýsti síðunni sjálfur þegar hún var opnuð í fyrravetur. Bryndís svaraði, ásamt tveimur öðrum þátttakend- um, því hvað væri skrítnasti staðurinn þar sem hún hafi verið kysst. Þó að Íslending- um finnist það kannski ekk- ert rosalega skrítinn staður þá svaraði Bryndís því að skrít- nasti staðurinn hafi verið uppi á Vatnajökli. „Á toppi stærsta jökuls á Íslandi,“ sagði Bryn- dís Gyða sem fékk viðurnefn- ið Ice Ice Baby fyrir vikið á síðunni. Hinar tvær stúlkurn- ar sem svöruðu sömu spurn- ingu sögðust hafa verið kysst- ar í rússíbana á fleygiferð og í baksæti á hermannajeppa. Eins og áður segir er Bryn- dís Gyða komin í úrslit keppn- innar sem var upphaflega opin öllum kvenkyns notend- um á Facebook. Heldur bet- ur hefur fækkað í hópi kepp- enda en Bryndís er komin í 22 kvenna úrslit. Sigur vegarinn í keppninni fær myndaseríu í Playboy auk þess að fá að vera gestgjafi í partíi sem haldið verður á Playboy-setrinu í Los Angeles í Bandaríkjunum. „Á toppi stærsta jökuls á Íslandi“ n Skrítnasti staðurinn þar sem Bryndís Gyða hefur verið kysst n Fyrirtæki Gillz, Fjarþjálfun ehf., með 3,7 milljónir í hagnað n Velta up á 11 milljónir n Vinsæll en umdeildur Umdeildur Ekki voru allir sáttir við að hann skyldi prýða forsíðu Símaskrárinnar. Egill Einarsson Fyrir- tæki hans, Fjarþjálfun, veltir milljónum. Umdeildur Ekki voru allir sáttir við að hann skyldi prýða forsíðu Símaskrárinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.