Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 80

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2011, Blaðsíða 80
F í t o n / S Í A 30/07 20 11 | WW W.LOTTO .IS Skráðu þig sem aðdáanda Lottó á facebook.com/lotto.is Þrefaldur Lottópottur stefnir í 16 milljónir. Leyfðu þér smá Lottó! 16 MILLJÓNIR SPILAÐU MEÐ! Gott að búa í Kópa- vogi? Nýbökuð hjón í sól n Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og nýbakaður eiginmaður hennar Bjarni Bjarnason rithöfundur hafa undanfarnar vikur notið sumarsins í sólinni á Spáni. Frí ráðherrans er eflaust langþráð og kærkomið enda langur og strangur vetur í þeytivindu stjórnmálanna að baki. Bjarni fær þó minna frí en Katrín, enda starfs- vettvangur rithöfundarins ótryggari. Auk þess að baka sig í sólinni með sinni heittelskuðu nýtir Bjarni fríið einnig til þess að leggja lokahönd á skáldsögu sem hann hefur verið með í smíðum síðasta árið og er væntan- leg í haust. Stjörnufans í Safamýri n Tvö af frægustu knattspyrnuliðum landsins mættust óvænt í stuttum æfingaleik sem fram fór á Fram- velli í Safamýrinni á þriðjudag. Liðin sem um ræðir eru Afríka United og KF Mjöðm. Lið Afríku vakti mikla athygli eftir heimildamynd Ólafs Jó- hannessonar, en í liði Mjaðmarinnar er að finna rjómann af tónlistarfólki landsins í bland við aðrar listaspír- ur. Skemmst er frá því að segja að lið Mjaðmarinnar fór með sigur af hólmi en lokatölur urðu 4–1. Einn markaskor- ara Mjaðmar- innar var Steinþór Helgi Arnsteins- son sem skoraði af stuttu færi eftir mikla baráttu. Stein- þór er þekktastur sem umboðsmaður og spurninganjörður en honum er greinilega fleira til lista lagt. Ármann ráðgjafi skilanefndanna n Líkt og DV greindi frá á þriðjudag gerðu hjónin Ármann Harri Þorvalds- son, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í London, og Þórdís Edwald, eigin- kona hans, nýlega með sér kaup- mála. Þegar DV hafði samband við Ármann til að spyrja um kaup- málann sagðist hann enn búsettur í London en vildi ekki upplýsa við hvað hann starfaði í dag. Maður sem þekkir vel til í fjármálaheimin- um fullyrðir að Ármann sinni í dag ráðgjafarstörfum fyrir skilanefndir föllnu íslensku bankanna í London. Ekki slæmt fyrir mann sem stýrði áður Singer & Friedlander, einu stærsta útrásarverkefni Íslendinga, en stærsta eign bankans voru Edge- innlánsreikningarnir. N ei, það er alveg ljóst,“ segir Gunnar I. Birgis- son, bæjarfulltrúi í Kópavogi, aðspurð- ur hvort hann sé á leiðinni að flytja í annað sveitarfélag. Gunnar hefur sett einbýlis- húsið sitt í Kópavogi á sölu þar sem hann býr ásamt konu sinni, Vigdísi Karlsdóttur. Um er að ræða mjög glæsilegt 214 fermetra einbýlishús á tveim- ur hæðum með innbyggðum bílskúr við Austurgerði. „Fyrst þarf að selja, svo þarf að kaupa,“ segir Gunn- ar um það hvort þau hjónin séu búin að festa kaup á öðru húsnæði. Þau ætla því að bíða og sjá hvort húsið seljist áður en þau ákveða næstu skref. Gunnar telur þó líklegt að þau muni flytja sig austar í Kópa- voginn ef þau flytja sig á ann- að borð. Eins og fyrr segir er það ekki svo að Gunnar ætli sér að flytja úr sveitarfélaginu sem hann hefur lýst yfir að sé gott að búa í. Bæjarbúar í Kópavogi þurfa því ekki að örvænta yfir að missa einn helsta talsmann bæjarins yfir í annað sveitarfélag. Gunnar segir að ástæðan á bak við fyrirhuga sölu sé sú að þau hjónin vilji minnka aðeins við sig, enda komin á þann aldur. „Þetta er bara svona eins og það gengur í líf- inu,“ segir Gunnar en hann og frúin verja miklum tíma í sumarbústað sínum og hafa því minni þörf fyrir einbýlis- húsið góða. Einnig eru börnin þeirra uppkomin og því ekki þörf á jafn stóru húsnæði og áður fyrir fjölskylduna. Gunnar selur húsið í Kópavogi n Minnkar við sig en ætlar sér þó ekki að flytja úr sveitarfélaginu Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 29. Júlí –2.ÁgúSt 2011 86. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr. Selur húsið Gunnar Birgisson og kona hans hafa sett húsið í Kópavogi á sölu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.